Morgunblaðið - 15.03.1979, Qupperneq 48
AUfiLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JW*r0unbI«iti(í>
Verzlið
i sérverzlun með
litasjónvörp og hljómtæki.
vték*)’ Skipholti 19
V BUÐIN sími
■ ' 29800
FIMMTUDAGUR 15. MARZ 1979
Ný skattheimta ríkisins:
Fasteignaskattar
lagðir á fokheld hús
FASTEIGNAGJÖLD eru nú lögð á fokheld hús í fyrsta skipti. en
hingað til hefur jafnan verið miðað við að fasteignagjöld séu greidd
frá þeim tíma sem viðkomandi húsnæði er tekið í notkun. Samkvæmt
upplýsingum sem Morgunbiaðið fékk hjá Fasteignamati ríkisins mun
láta nærri að gjöld af fokheldu íbúðarhúsi séu um 35 til 50% af því
gjaidi sem greitt er af fuilhúnu húsnæði. Af atvinnuhúsnæði er
hlutfallið hins vegar mun hærra, en þó er það mjög breytilegt eftir
gerð húsnæðisins. Sumt atvinnuhúsnaéði er svipað íbúðarhúsnæði, en
annað mjög frábrugðið.
Ný reglugerð um fasteignagjöld
af fokheldu húsnæði var sett hinn
3. nóvember siðast liðinn, og var
farið eftir hinni nýju reglugerð
þegar gjöld voru lögð á hinn 1.
desember síðast liðinn. Þetta
ákveðna reglugerðarákvæði hljóð-
ar svo:
„Mannvirki skal meta einu sinni
á ári miðað við það ásigkomulag
sem þau eru þá í. Mannvirki eða
BHM:
Akveöur verkfaU,
ef nýtt þak
verður sett á
launagreiðslur
STJÓRN launamálaráðs
Bandalags háskólamanna
hefur ákveðið að hefja verk-
fallsaðgerðir, verði sett nýtt
þak með lögum á visitölu
kaupgjalds. Þessa ályktun
samþykkti launamálaráðið í
fyrrakvöld og fylgdi þessari
ályktun, sem var mjög stutt,
löng greinargerð um „vísi-
töluþakið“.
Sjá greinargerð BHM á
bls. 25.
einstaka hluta þeirra skal þá fyrst
taka í fasteignamat er þeir teljast
fokheldir."
I eldri lögunum, frá 1973, sagði:
„Þegar mannvirki er fulllokið", en
í reynd var jafnan miðað það
þegar talið var að eignin væri
orðin arðgæf, að sögn Guttorms
Sigurbjörnssonar forstjóra Fast-
eignamats ríkisins. Að hans sögn
voru hins vegar engin ákvæði um
þetta í lögunum frá 1976, og koma
þau því ekki fyrr en núna í
nóvember með fyrrnefndri reglu-
gerð. Ekki mun liggja ljóst fyrir
hve þessi nýja skattheimta muni
skila ríkissjóði miklum tekjum á
þessu ári.
* V í'/¥
■
Vetrarríkið undanfarnar vikur og mánuði hefur gert mörgum bfleigandanum gramt f
geði; eilíft streð við bflana á morgnana, akstur á keðjum og þar fram eftir götunum. Nú
er hins vegar spáð heldur hlýnandi veðri, og í dag verður hitinn kominn eitthvað upp
fyrir frostmark á vestanverðu landinu. uahid.: mw. Kristján
Ölafur hafnaði málaleitan
VMSI-manna um breytingar
ÓLAFUR Jóhannesson forsætis-
ráðherra leggur í dag fram í
efri deild Alþingis efnahags-
málafrumvarp sitt, að því full-
víst er talið, en hins vegar mun
Kókaínmálið:
Yfirheyrslur í Svíþjóð
DÖNSKU lögreglumennirnir,
sem vinna að rannsókn kókaín-
málsins fóru í gær til Helsing-
borgar í Svíþjóð til til þess að
yfirheyra fólk vegna málsins.
Með í förinni var Guðmundur
Gígja lögreglufulltrúi við fíkni-
efnadeildina f Reykjavik.
Morgunblaðið fékk þetta stað-
fest í gær hjá Svend Thorsted,
deildarstjóra í fíkniefnadeild lög-
reglunnar í Kaupmannahöfn. Hins
vegar vildi Thorsted ekki skýra frá
því hvort fólkið sem hér um ræðir
væri íslenzkt né vildi hann skýra
frá því á hvern hátt það tengdist
málinu.
I dag er verkfall lögreglumanna
í Danmörku og verður þá ekkert
unnið við rannsókn málsins, en
tíðinda er að vænta á morgun,
föstudag. Þá rennur út gæzluvarð-
hald eins fjögurra íslendinga, sem
sitja inni vegna málsins. Svend
Thorsted sagði í gær að lögreglan
myndi krefjast þess að gæzluvarð-
hald Islendingsins yrði framlengt.
hann vart mæla fyrir frumvarp-
inu fyrr en eftir helgina — og
þá á mánudag eftir því sem nú
er búizt við. Formaður og vara-
formaður Verkamannasam-
bands íslands þeir Guðmundur
J. Guðmundsson og Karl Stein-
ar Guðnason alþingismaður
gengu f gær ásamt Ásmundi
Stefánssyni, hagfræðingi ASÍ, á
fund forsætisráðherra og reif-
uðu við hann hugmyndir um
hugsanlegar breytingar á verð-
bótakafla frumvarpsins en
munu í engu hafa þokað Ólafi
frá þeirri fyrirætlan sinni að
leggja frumvarpið fram
óbreytt.
Þeir Guðmundur J. Guðmunds-
son og Karl Steinar óskuðu eftir
þessu viðtali við forsætisráðherra
að eigin frumkvæði og fór Ás-
mundur Stefánsson með þeim á
fundinn til að vera þeim til ráðu-
Atlantshafsflug Flugleiða:
Stofna Luxemborg-
arar nýtt flugfélag?
YFIRVÖLD í Luxemburg munu hafa hug á því að stofna nýtt
flugfélag til að fljúga á leiðinni Luxemburg — Bandaríkin, að því er
Benedikt Gröndal utanríkisráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið
í gærkvöldi. Yrði þar væntanlega um að ræða sameignarfélag
Cargolux og Luxair, en Flugleiðum yrði væntanlega boðið að gerast
hluthafar.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu ætlaði utanríkis-
ráðherra utan til fundar við
Gaston Thorne forsætis- og utan-
ríkisráðherra Luxemburgar í
fyrradag, en þeirri för var frestað
vegna óvissu um framvindu mála í
ríkisstjórn Islands.
Benedikt sagði að upphaf þessa
máls hefði verið það, að Thorne
óskaði eftir viðræðum við hann er
þeir hittust á fundi utanríkísráð-
herra Atlandshafsbandalagsins í
Brússel í desember. Kvaðst Thorn
vilja ræða flugsamband og flug-
samvinnu mijli Islandinga og
Luxemborgara, enda væru marg-
víslegir erfiðleikar fyrirsjáanlegir
í Atlandshafsfluginu eftir að tekin
hefur verið upp mjög frjálslynd
stefna í Bandaríkjunum „free sky“
eins og Carter nefnir hana. Virðist
það nú vera miklum vafa undir-
orpið hvort farþegar á leið milli
Evrópu og Bandaríkjanna vilja
millilenda á íslandi eftir að far-
gjöldin eru orðin svo lág.
neytis. Veitti forsætisráðherra
þeim þremenningum viðtal milli
kl. 16 og 16.30. Guðmundur J.
Guðmundsson sagði í samtali við
Morgunblaðið eftir fundinn að þeir
Karl Steinar hefði verið á gangi í
miðbænum og þá litið við í Stjórn-
arráðinu. Fundurinn hefði verið
mest spjall um daginn og veginn.
Samkvæmt heimildum sem
Morgunblaðið hins vegar aflaði sér
freistuðu þeir Guðmundur og Karl
að fá Ólaf Jóhannesson til að gera
einhverjar breytingar á ákvæðum
verðbótakafla frumvarpsins, sem
mestur styrr hefur staðið um, en
Ólafur mun hafa staðið fastur
fyrir, hafnað öllum breytingum á
frumvarpinu og sagzt mundu
leggja frumvarpið fram, eins og
hann teldi að ráðherrar Alþýðu-
bandalagsins hefðu verið búnir að
samþykkja það sl. laugardag. Mun
Ólafur hafa haft á orði að væru
einhverjar breytingar gerðar á
verðbótakaflanum, yrðu þær að
koma fram í meðförum þingsins,
hann vildi ekki breyta frumvarp-
inu í neinu, enda myndi slíkt
einungis valda nýju upphlaupi
meðal alþýðuflokksmanna. Eftir
því sem Morgunblaðið kemst næst
mun þingmönnum Alþýðuflokks-
ins almennt ekki hafa verið kunn-
ugt um þennan fund og þátttöku
Karls Steinars Guðnasonar í hon-
Samkvæmt því sem Morgun-
blaðið hefur fregnað má líklegt
telja að af hálfu Álþýðusambands-
ins verði lögð höfuðáherzla á að
knýja fram breytingar á olíu-
hækkunarákvæðunum í verðbóta-
kaflanum, þar sem það telji að
með því séu launþegar að gefa
eftir á tveimur stöðum, annars
vegar vegna þess að gert er ráð
fyrir að olíuhækkanirnar komi inn
í viðskiptakjaravísitöluna og hins
vegar vegna þess að gert er ráð
fyrir eftirgjöf á aukinni skatt-
heimtu vegna niðurgreiðslna á
olíu.
Aftur á móti mun ASI vera inni
á viðskiptakjaravísitölu en vill
hafa eitthvað um það að segja
hvernig hún tengist kauplagsvísi-
tölu. Auk þess mun ASÍ geta sætt
sig við að vísitalan sé sett í 100 í
febrúar en ekki að uppsöfnunar-
áhrifin verði jöfnuð út hverju
Siglufjörður:
Piltur
beið
bana af
raflosti
ÞRETTÁN ára gamáll piltur á
Siglufirði beið bana í gær af
völdum raflosts sem hann fékk
í spennistöð sem tengd er
háspennustrengnum til Siglu-
fjarðar.
Slysið varð laust eftir kl. 15 í
gær. Þá voru þrír félagar að
leik nærri spennistöðinni og
klifruðu yfir varnargirðinguna
við spe’nnistöðina og inn í virk-
ið. Girðingin er há járngirðing
með vírneti ofan á, en þegar
drengurinn sem fyrstur fór
kom við einn strenginn beið
hann bana samstundis. Félagar
hans tveir klifruðu þá strax úl
úr spennistöðinni og náðu í
hjálp og komu menn skjótt á
vettvang en ekkert var unnt að
gera til hjálpar. Spennistöðin
er við kirkjugarðinn ofan bæj-