Morgunblaðið - 01.04.1979, Qupperneq 1
72 SÍÐUR
77. tbl. 66. árg.
SUNNUDAGUR 1. APRÍL 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
III
Líbýumenn halda uppi
harðri vörn íKampala
Nairobi. 31. marz. AP.
LÍBÝSKIR hermenn sem berjast
íyrir Idi Amin Ugandaforseta
hafa hrakið innrásarlið Tanz-
aniumanna og landflótta Uganda-
manna frá Kampala eftir þriggja
daga stórskotaárásir þess á
höfuðborgina, sem nú er ekki
lengur í skotfæri, að sögn er-
lendra diplómata í dag.
Diplómatarnir segjast hafa
Veggspjöld
bönnuð
Belgrrad, Júgóslavlu, 31. marz. AP.
farið til bæjarins Natete, 10 km
suðvestan við Kampala og ekkert
séð sem benti til þess að bardagar
geisuðu. Innrásarliðið mun hafa
verið sex km suðvestan við Natete
í þessari viku eða 16 km frá
höfuðborginni sjálfri. Stórskota-
vopn Tanzaníumanna munu
draga 20 km.
Þessar upplýsingar styðja frétt-
ir frá íbúum í Kampala um að
kyrrt hafi verið í borginni síðan í
gærkvöldi í fyrsta sinn í nokkra
daga. Ibúarnir segja að nokkrar
verzlanir hafi aftur verið opnaðar
og að ýmsir Ugandamenn, sem
flúðu borgina í vikunni í norðurátt
með allt sitt hafurtask, hafi snúið
aftur.
Uganda-útvarpið sagði að Ug-
andaher hefði hafið gagnsókn og
að óvinahermenn hafi flúið og
skilið eftir hergögn og skotfæri á
flóttanum en Ugandahermenn
veiti þeim eftirför.
Diplómatarnir segja að það sé
„opinbert leyndarmál" að lið 2.000
Líbýumanna sjái eitt um varnir
Kampala. Áður var talið að fjöldi
þeirra væri 1.400, en fréttir herma
að liðsauki og hergögn hafi borizt
með líbýskum flutningaflugvélum.
Evrópumenn, sem hafa flúið frá
Kampala og aðrir sem hafa verið
um kyrrt, segja að Ugandaher sé í
upplausn. Þeir segja að vopnaðir
hermenn leggi hald á vörubíla og
fólksbifreiðar, hlaði þá ránsfeng
og eigum og aki á brott frá
höfuðborginni. Aðrir eru sagðir
ráfa í tilgangsleysi um göturnar.
Kampala er eins og vofubær,
ráðuneyti starfa ekki og símar
þeirra svara ekki.
Innanríkisráðherra Amins,
Farouk Minawa ofursti, gaf dipló-
mötum skýrslu um ástandið og það
þykir benda til þess að forsetinn sé
í höfuðborginni. Hann hefur ýmist
verið sagður vera í Kampala,
flugstöðinni í Nakasongola, 112
km frá borginni eða í heimabyggð
sinni Aarua 300 km í norðvestri.
Aðgerðir
gegn
Egyptum
Baghdad. írak, 31. marz. AP.
SAMKOMULAG hefur náðst á
fimm daga fundi fulltrúa 18 Araba-
ríkja um refsiaðgerðir gegn
Egyptalandi vegna friðarsamninga
Egypta og ísraelsmanna. Hafa rík-
in átján ákveðið að setja viðskipta-
bann á Egyptaland og slíta stjórn-
málasambandi við rfkisstjórn An-
wars Sadats forseta.
Kom þetta samkomulag á óvart,
því álitið var að Saudi-Arabía og
önnur þau ríki Araba, sem vinsam-
legri hafa verið í garð Egypta, stæðu
í vegi fyrir samstöðu um aðgerðir.
Samkomulagið er um þrjú atriði:
1. Öll aðstoð Arabaríkjanna við
Egyptaland verður stöðvuð.
2. Ríkin kalli þegar í stað heim
sendiherra sína frá Kairó.
3. Öll samskipti ríkisstjórna
Arabaríkjanna við stjórn Egypta-
lands verði rofin.
Baktiar
fundinn?
Clermont-Ferrand, 31. marz. AP.
MICIIEL Poniatowski, sérlegur
sendiherra frönsku ríkis-
stjórnarinnar, sagði á fundi með
fréttamönnum í Clermont-Ferr-
and í Suður-Frakklandi á föstu-
dagskvöld að Shapour Baktiar.
síðasti forsætisráðherra keisara-
stjórnarinnar í íran, byggi nú
„350 kílómetrum fyrir austan
okkur“. Þessi vegalengd gæti átt
við frönsku Alpana,
Norður-Ítalíu, eða vesturhéruð
Sviss.
Talsmaður dómsmálaráðuneytis-
ins í Sviss hefur lýst því yfir að
ráðuneytið viti ekkert um hugsan-
legan dvalarstað Baktiars, og hann
hafi ekki sótt um dvalarleyfi í
Sviss.
Poniatowski hefur neitað að gefa
nánari upplýsingar um fullyrðingu
sína.
Baktiar var lengi andvígur stjórn
Iranskeisara, en engu að síður
skipaði keisarinn hann í embætti
forsætisráðherra skömmu áður en
hann var sjálfur hrakinn í útlegð.
Við heimkomu Khomeinis trúar-
leiðtoga neyddist Baktiar til að
segja af sér og fara í felur.
SAMKVÆMT júgó-
slavneskum heimildum í
Peking hefur verið bannað
að hengja þar upp eða gefa
út hvers konar veggspjöld,
vígorð, tímarit, ljósmyndir
eða svipað efni, sem brýtur
í bága við „sósíalisma,
alræði öreiganna,
Marx-Leninisma og
kenningar MaoTse-tungs.“
Júgóslavneska frétta-
stofan Tanjug segir að
ákvörðun um bannið hafi
verið tekin fyrir tveimur
dögum á fundi byltingar-
ráðsins í Peking og birt í
Dagblaði alþýðunnar.
Tanjug segir að banni
þessu sé ætlað að koma á
meiri aga í höfuðborginni
og stöðva gagnrýni á stjórn-
ina, sem komið hefur fram á
veggspjöldum.
E vrópusöng vakeppnin:
Alúðlegir ástarsöngvar,
diskó-lög og ræflarokk
Jerúsalcm, 31. marz. AP.
SÖNGVAKEPPNI Evrópu
verður háð í Jerúsalem í ísrael
í dag. Það er í fyrsta sinn sem
keppni þessi fer fram þar og
hafa ísraelar lagt mikið í und-
irbúning og kappkostað að
atburðurinn verði eftirminni-
legur þeim 500 milljónum
manna sem reiknað er með að
horfi á keppnina í beinni út-
sendingu.
Mikið hefur verið fjallað um
keppnina f fjölmiðlum í ísrael
siðustu daga, gefnar hafa verið
út sérútgáfur og sum blöð hafa
helgað keppninni jafnvel
nokkrar síður á degi hverjum.
I fyrra sigraði flokkur ísra-
elska söngvarans Yizhar Cohen í
keppninni með laginu
A-Ba-Ni-Bi, sem var hressilegt
dægurlag. Að þessu sinni keppa
fulltrúar 19 þjóðlanda og fremja
þeir allt frá alúðlegum ástar-
söngvum í dískó-lög og ræfla-
rokk.
Mörg textaskáldanna sækja
viðfangsefnið í fyrirbæri út í
geiminn. Gríska söngkonan
Elpida syngur um Sókrates, sem
hún segir að hafi verið fyrsta
ofurmennið (súperstar). Sér-
fræðingar segja að ekki komi
fram nein sérstök þjóðernis-
kennd í lögum keppenda, og
benda m.a. á að hollenzka söng-
konan Xandra syngi um
Colorado.
Austurríska söngkonan
Christina Simon syngur ljúft
lag sem helgað er keppnisstaðn-
um, Jerúsalem. Biður söngkonan
þar m.a. fyrir frið Jerúsalem til
handa.
Án efa mun söngkonan
njóta hylli Israela, en eins og
kunnugt er hafa fá þjóðríki
orðið til að viðurkenna hina
helgu borg sem höfuðborg ísra-
els og enn færri ríki hafa sætt
sig við innlimun austurhluta
borgarinnar, sem Arabar byggja
að mestu, eftir sex daga stríðið
1967.