Morgunblaðið - 01.04.1979, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. APRÍL 1979
„Ilefðarfreðnir upp á Guðasteini“svo vísað sé í Selskapsvísur Bjarna Thorarensens. Myndin sýnir fyrirmenni úr röðum sovéska kommúnistaflokksins við hersýningu fyrir skömmu
Deild úr riddaraliði Rauða
hcrsins sundreið á nokkra í
Síheríu. er straumurinn hreif
skyndilega með sér sjö her-
menn á hestum sínum og
drekkti öllum. Yfirmaður
þeirra scndi skeyti: „Sjö hestar
drukknuðu í vaði.“ Þegar
undirmenn hans hentu honum
á að c.t.v. hefði ekki sakað að
geta hcrmannanna einnig varð
foringjanum að orði: „Hver
sem er getur orðið að manni.
En hver ykkar getur orðið
hestur?-
Er Jósef Stalín sagði
nemendum sínum í herskóla
Rauða hersins sögu þessa árið
1934 var það auðsýnn
ásctningur hans að vara við
öðru eins virðingarleysi fyrir
mannslífum. Þó er vafasamt að
einmitt sá boðskapur hafi
komizt til skila. Gaman væri að
eiga hljóðupptöku af tæki-
færinu en jafnvel án þess er
auðvelt að ímynda sér tröllsleg
hlátrasköllin, sem orðið hafa af
gálgahrandara yfirböðulsins.
Gerald Manley Hopkins sagði
það um Browning-hjónin að þau
væru góðskáld á „sinn sérstaka
nöturlega hátt“. Það var einmitt
í sama skilningi að gamansemi
Stalíns var fyndin. Fól hún
jafnan í sér hótun af einhverju
tagi og má sem dæmi nefna
tilsvar hans eftir að Krupskaya
hafði mótmælt meðferð harð-
stjórans á bolsévíkunum gömlu:
„Ef þú heldur þér ekki saman,
ákveðum við nýja ekkju Lenins."
Svona framarlega sem ég fæ
séð segja arftakar Stalíns enga
brandara yfirleitt. Ásýnd þeirra
er sem stirðnuð í önuglyndislegt
háttprýðismót, sem jafnvel
býður mönnum vara við að
sleppa spaugyrði af vörum fram
í návist þeirra. En milli trölia-
kímni gamla einræðisherrans til
gleðilausra samtíðarleiðtoga var
sú tíð að Rússaleiðtogi gerði að
gamni sínu á alþýðlegan hátt.
Er ekki fjarri lagi að ætla að
það hafi einmitt átt sinn þátt í
því að honum var steypt.
Ástæðulaust vær i að reyna að
hefja Nikita Sergeyevich
Krútséf til skýjanna. Hann
hlýtur vissulega að hafa verið
óvenjulegt hörkutól að komast
eins langt og raun varð á. Þrátt
fyrir það var látbragð hans og
einkum kímnigáfa gædd
frískleik og tepruleysi, sem ber-
lega stakk í stúf við hinar
rússnesku kringumstæður. Um
skeið hafði rússneskur
sósíalismi mannlegt andlit. Það
andlit var að vísu bæði óheflað
og gróft en eigi að síður mann-
legt.
Þegar eitt sinn var stungið
upp á því við Laurence Olivier
að leika mætti leikrit nokkurt
með grímum, gretti hann sig og
svaraði ógleymanlega: „Til
hvers væri gríman, ef maðurinn
hefði andlit?" Krútséf hafði
andlit, Fyndni hans var að því
leyti áþekk Stalíns að hún var
oftast sverðbeitt en hafði að
auki til að bera sjálfhæðni og
ekki sízt ádeilu í garð þess
skipulags þrælsóttans, er hann
hafði erft frá fyrirrennara sín-
um. Ávörp hans, er birtust á
síðum Pravda, litu út eins og
gras í glufum steinhellu.
I ræðu á landbúnaðarráð-
stefnu spurði Krútséf eitt sinn:
„Hverjir ykkar eru hlynntir
maísrækt?" Þar sem hann var
leiðtoginn og allir vissu að hann
lagði kapp á ræktun maíss réttu
allir upp höndina. Krútséf gerði
Conor Cruise 0‘Brien ritstjóri
Observer
hlé á máli sínu, litaðist gaum-
gæfilega um í salnum og sagði
síðan: „Ég skil. Meira af
höndum en maís.“
Við annað tækifæri í
Austur-Berlín, í ávarpi sem
hann flutti þýzkum „félögum",
spurði Krútséf: „Viljið þið
sósíalisma?" Er
„Jawohl“-fagnaðarópið hafði
fjarað út hélt Krútséf áfram:
„Áður fyrr, er bolsévikar voru
nýkomnir til valda, dreifðum við
spurningaskrá til allra opin-
berra starfsmanna. Ein
spurninganna hljóðaði svo:
„Trúir þú á guð?“ Auðvitað
vissu allir embættismenn að
bolsévikar trúa ekki á guð svo
þeir skrifuðu allir: „nei“, allir
nema einn. Það fyrir fannst
aðeins einn heiðvirður maður,
sem skrifaði: „í starfi, nei, en
heima hjá mér, já.“ Það er
einmitt sama máli að gegna um
ykkur Þjóðverja. Þegar þið eruð
í Austur-Berlín, trúið þið á
sósíalisma. Þegar þið komið til
Vestur-Berlínar gerið þi það
ekki.“
Á fundi rithöfundasamtaka
Sovétríkjanna, er hugmynda-
fræðileg afglöp Solzhenitsyns
voru í hámæli, féllst Krútséf
einnig á að Solzhenitsyn væri
ögn auvirðilegur í hugsun sinni.
Síðan bætti hann við: „En þrátt
fyrir allt má lesa hann án þess
að nota títurprjón“. I sömu
andrá lézt hann stinga í lær sér
títuprjón þeim, er hann
þarfnaðist til að halda vöku
sinni við lestur bókmennta-
afurða frá hendi hinna hug-
myndalega fölskvalausu félaga
rithöfundasambandsins.
Hláturinn, er fylgdi í kjölfar
þessarar ádrepu hefur áreiðan-
lega verið hófstilltari en sá er út
brast af skrýtlu Stalíns um
hestana.
Ég varð sjálfur vitni af því við
frægt tækifæri hvernig fram-
koma Krútséfs gat slegið rúss-
neska skriffinna út af laginu.
Þetta var þegar Krútséf tók af
sér skóinn og barði honum í
borðið til að trufla Harold
Macmillan í ræðu hans á Alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna haustið 1960.
Skó-hvellurinn tel ég að hafi
tæpast átt sér pólitískar
orsakir. Tiltækið spratt
sumpart af gáska, sumpart af
leiða og e.t.v. einnig af löngun
eins pótintáta til að hvekkja
annan. Ræða brezka forsætis-
ráðherrans var með ágætum og
flutt í aðalsmannsstíl og kaus
Krútséf að leika bóndakurfinn á
móti honum. En andlit hinna
sovésku sendimannanna sögðu
sína sögu. Sært stolt og sneypa,
er lýsti sér í svipbrigðum þeirra
sagði fyrir um tilkomu Brésnefs
og Kosygins; traustvekjandi,
mæðulegra virðingargríma
skrifræðisins.
Brandarar eru alltaf að
nokkru marki hættulegir. Vissu-
lega mynda þeir tengsl milli
þeirra sem skilja þá og njóta
þeirra, en þau tengsl fara
sjaldnast óátalin fram hjá þeim,
sem hvorki skilja né skemmt er
og eru þeir oft í meirihluta.
Gamansemi þeirra sem völdin
hafa kann að reynast þeim
sjálfum einkar skaðsamleg,
nema auðvitað þeir hafi ógnar-
stjórn að bakhjarli eins og
Stalín. Spaug Krútséfs velgdi
ýmsum undir uggum án þess að
ógna þeim, en það var einmitt
þess konar blöndun sem
Machiavelli varaði prinsinn við.
Það var umfram allt neitun
Krútséfs við að taka sjálfan sig
of alvarlega, sem reyndist
honum skeinuhætt. Viki hann
sér undan því að vera hátíð-
legur, fannst þeim sem undir
hann voru gefnir og vildu láta
taka mark á sér, að grafið væri
undan þeim sjálfum og rýrð
varpað á starfsmáta þeirra og
mikilvægi. “Ef guð er ekki til,“
spurði ein af söguhetjum
Dostójefskýs, „hvernig get ég þá
verið leiðtogi?" Lotningarleysi á
toppnum hafði sáð fræjum
tilvistarótta meðal undir-
foringjanna.
Það var nákvæmlega á sama
hátt sem glaðleg og óþvinguð
framkoma Jóhannesar páfa,
samtímamanns Krútséfs, kom
illa við kaunin í kirkjubákninu.
Á írlandi var eftirtektarvert
hvernig kirkjunnar menn sem
talað höfðu um Píus XII sem
„hinn heilaga föður" skír-
skotuðu til „hins heilaga föður
núverandi“ þegar átt var við
Jóhannes páfa. Bikarinn færi
handa á milli.
Enginn vafi er á að athafnir
Krútséfs í alþjóðastjórnmálum
áttu sinn þáttí falli hans,
áhætta í kjarnorkumálum varð-
andi Kúbu, mistök og þar af
leiðandi hrap í áliti. En frunta-
skapurinn sem lýsir sér í með-
ferð hans eftir fallið lyktar af
langrækni hefðarfreðinna og
snjakillra skriffinna. Kemur
hann meðal annars fram í
endurminningum Medvedevs.
Þegar Krútséf neitaði fyrst að
taka við dvalarstað og eftirlaun-
um var honum gert verra tilboð.
Hann var niðurlægður,
einangraður og sneyddur öllum
áhrifum. Eitt barnabarn hans
sagði eitt sinn „Afi grætur
alltaf." En þrátt fyrir það var
gamli maðurinn fær um að sétja
ofan í við flokksdyndla daginn
fyrir andlátið, ekki aðeins í
gamansökum heldur einnig með
þeim eiginleika, er þeir sjálfir
kappkostuðu mest; tign.
Andrei Kirilenko, sem nú er
annar áhrifamesti valdamaður
Sovétríkjanna á eftir Bréshnef,
hélt honum einkar illrætna
ræðu dag þennan og sagði hon-
um meðal annars að hann hefði
það „ennþá allt of gott“.
„Þið getið hirt húsið og eftir-
launin", svaraði Krútséf. „Ég
gæti farið með útrétta hönd og
beðið landa mína um ölmusur og
þeir munu áreiðanlega láta eitt-
hvað af hendi rakna. En þeir
gæfu ykkur hins vegar ekki eyri
ef neyddust þið dag einn til að
ganga bónarveginn.“
GðLFHF
m
GOLFHF KÁRSNESBRAUT 32, KÓPAVOGI. SÍMAR: 40460 OG 76220.
2
Hefur skapast vandræðaástand á vinnustað
| út af gólfum?
Gólf hf. hefur sérhæft sig í lögn fúgulausra
epoxybundinna DEKA-gólfa. Gólf hf. tekur
einnig að sér viðgerð gólfa, sem dæmd hafa
verið ónothæf af heilbrigðisástæðum.
Veitum allar frekari upplýsingar. - Gerum
föst tilboð.
„reynsla, þekking, þjálfun," -
ÖRUGGT ATHAFNASVÆOI A GÓLFLÖGN FRÁ ÚÓLFHF KARSNESBRAUT 32. KOPAVOGI SIMAR 40460 OG 76220
Conor Cruise 0‘Brien:
Hver sem glettist
við gikkinn fær af
honum hnykkinn