Morgunblaðið - 01.04.1979, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. APRÍL 1979
Þrjár sýningar
Þórunn Eiríksdóttir á sýningu sinni í FlM-salnum að Laugarnes-
vegi 112.
þessum línum árétta enn einu
sinni, að mikil fjölgun ljós-
myndasýninga kallar á vettvang
velmenntaða fagmenn til um-
fjöllunar þeirra.
Hér er mikill áhugi, þekking
og næmt auga fyrir ljósmyndun
jafnvel ekki nóg og hví skyldi
það ekki vera ærið tilefni að
ráða sérstaka menn til umfjöll-
unar ljósmynda og t.d. kvik-
mynda? Ljósmyndin er einmitt
svo sterkur og mikilvægur tjá-
miðill, í nútímanum, að fjöl-
miðlar ættu að sýna henni verð-
ugan sóma.
Þórunn
Eiríksdóttir
í FÍM-salnum að Laugarnes-
vegi 112, sýnir þessa dagana
Þórunn Eiríksdóttir 23 mál-
verk, sem öll munu vera máluð á
næstliðnum árum. Þórunn hefur
haldið tvær einkasýningar áður,
báðar af hóflegri stærð og með
rólegu yfirbragði. Hún er ekki
átaka- né umbrotamanneskja í
listsköpun sinni og er hér ekki
um aðfinnslur að ræða, heldur
álít ég að einkenni skapgerðar
Þórunnar sé að fara sér hægt. Á
köflum virðist hún næsta feimin
við viðfangsefni sín, óráðin
hvert stefna skuli og fyllir þá
gjarnan myndflötinn margvís-
legum óreglulegum formum er
hún reynir að tengja saman.
Listakonan lætur gjarnan hug-
myndaflugið ráða ferðinni enda
nefnir hún myndirnar „Fantasí-
ur“. Þetta vill takast misjafn-
lega vel, einkum vegna þess að
ennþá skortir Þórunni þá
reynslu og yfirsýn sem er undir-
staða úrskerandi árangurs er
slík vinnubrögð eru viðhöfð. Þó
nær listakonan á stundum
þokkafullum árangri og þá eink-
um er hún leitast við að koma
skipan á myndbygginguna og
tefla andstæðum saman sbr.
myndir svo sem nr. 4 „Umferð",
13 „Stormur", 16 „Sviptingar" og
22 „Hvíld". Það eru eðlilega
merkjanleg ýmis áhrif frá inn-
lendum og útlendum málurum
og listakonan þarf ekki að leit-
ast við að fela þau. Oft er gott að
taka sér ákveðinn málara til
fyrirmyndar og vinna sig svo
smám saman burt frá honum,
eins og það nefnist, — það hafa
fjölmargir meistarar nútíma-
listar gert á sínum ferli. Á
sýningunni er málverkið „Ójafn
leikur" (17) nokkuð sér á báti
hvað litanotkun og vinnubrögð
áhrærir. Hér gengur dæmið upp
hvað létt og leikandi vinnubrögð
snertir, og hér virðist frúin hafa
gleymt feimni sinni og því verð-
ur myndin hvorki óróafull né
vandræðaleg.
Vafalítið hefði Þórunn mjög
gott af frekari þjálfun í listinni
undir handleiðslu góðs læri-
meistara og einnig hefði hún
hag af að ferðast og skoða sig
um í heiminum. Heimsækja
söfn og sýningar og standa
augliti til auglitis við verk
meistara svipaðra vinnubragða
og hún hefur tamið sér.
Kristján
Ingi Einarsson
í Galleríi „Á næstu grösum",
sýnir ungur maður Kristján
Ingi Einarsson allnokkrar ljós-
myndir í svart-hvítu. Myndir
þessar sem allar munu teknar á
Patricia Halley ásamt dóttur sinni við eitt málverka sinna.
Mynflllst
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
Ibiza og Formentera nefnir
Kristján samheitinu „Siesta" og
eiga þær öðru fremur að bregða
upp sannverðugum myndum af
mannfólkinu í umhverfi sínu, —
túlka lífsmynstur innfæddra á
þessum slóðum, hvunndaginn í
fjölbreytileik sínum. Aðferðin
minnir sterklega á hugmyndina
að hinni minnisstæðu sýningu
„The Family of Man“, sem gekk
um heiminn fyrir meira en
tveim áratugum við mikla að-
sókn og hrifningu.
Margar myndir Kristjáns eru
vel gerðar og honum tekst ágæt-
lega að framkalla magnaðar
stemmningar, sem koma þeim
kunnuglega fyrir sjónir er hafa
gist þessar slóðir og vekur upp
hjá þeim ýmsar tregablandnar
og ljúfar minningar. Þó grípa
fæstir myndanna áhorfandann
sem verulega sterk og áhrifa-
mikil verk.
Tæknileg úrvinnsla þykir mér
og allgóð, en þar sem ég er hér
ekki fagmaður hætti ég mér
ekki út á hálan ís með ferkari
umfjöllun. Vildi frekar með
Patricia E.
Halloy
Á Mokka-kaffi stendur um
þessar mundir yfir sýning á
verkum amerískrar listakonu og
myndlistarkennara Patricia E.
Halloy að nafni, er hér dvelst
við kennslu landa sinna.
Það er dálítið undarleg tilvilj-
un, að velflestar myndir hennar
eru stemmningamyndir frá Suð-
ur-Spáni og Ibiza og er því
fróðlegt að bera saman vinnu-
brögð og viðhorf hins huglæga
málara og hlutlæga ljósmynd-
ara, sem ég fjallaði um hér að
framan. Þá eru þær frú Halloy
og Þórunn Eiríksdóttir ekki
mjög ósvipaðar í myndhugsun
sinni því að báðar ganga þær út
frá huglægum hughrifum og
stemmningum þótt þær geri það
á ólíkan hátt. Frú Halloy er
bersýnilega sjóaðari í list sinni
og hefur að auki víða farið og
margt séð. Hefur stundað
kennslustörf víða um heim t.d. í
Kaliforníu, Casablanca, Wies-
baden, Gelnhausen, Ankara,
Izmir, Napoli svo og á tveim
stöðum í Japan.
Skólun frú Halloy kemur öðru
fremur fram í meðferð lita og
forma, — hvernig henni tekst að
þjappa þeim saman í hnitmið-
aða heild. Oft eru litirnir þungir
og djúpir, geta sem slíkir minnt
á ljóðræna næturstemmningar
suðursins svo sem nr. 5
„Prisma" og nr. 16 „New Years
Night". Stundum bregður hún
aftur á móti á gáskafullan leik
og nær þá hrifmestum árangri
t.d. í myndunum „Lights" (6) og
„Port Town“ (12). Annars er
sýningin mjög jöfn og yfir henni
er látlaus og hógvær þokki.
Bragi Ásgeirsson.
Islandsmótið,
sveitakeppni
Um hænadagana verða spiluð
undanúrslit í íslandsmótinu í
sveitakeppni. Spilað verður á
Hótel Loftleiðum og verður
Agnar Jörgensson
keppnisstjóri.
SPILTATÍMI
1. umf. miðvikud. 11. april kl. 20.00
2. umf. fimmtud. 12. aprfl kl. 13.15
3. umf. fimmtud. 12. aprfl kl. 20.00.
4. umf. fifstud. 13. aprfl kl. 13.15
5. umf. föstud. 13. aprfl kl. 20.00.
Urslitakeppnin fer síðan fram
í lok apríl á sama stað:
SPILATlMI
1. umf. föstud. 27. aprfl kl. 20.00
2. umf. laugard. 23. apríl kl. 13.15
3. umf. laugard. 23. aprfl kl. 20.00
4. umf. sunnud. 29. aprfl kl. 13.15
5. umf. mánud. 30. aprfl kl. 13.15
6. umf. mánud. 30. aprfl kl. 20.00
7. umf. þriðjud. 1. maf kl. 13.15
Urslitakeppnin í
tvímenningnum verður 19. og 20.
maí og verður hans getið síðar.
Réttur hvers svæðis til þátt-
töku í íslandsmóti 1979.
Svœði: Sveltakeppni (und.úr.)
Reykjavík 4+6 = 10 sveitir
Reykjanes 3+1 = 4 sveitir
SuÖurland 2 sveitir
Austurland 2 sveitir
Noröurland A. 1 sveitir
NorÖurland V. 1 sveitir
VestfirÖir 1 sveitir
Vesturland 2 sveitir
íslandsmeist-
arar fyrra árs 1 sveitir
Samtals 24 sveitir
Til vara:
1. varasv. Reykjav(kd2. “
Vesturland 3. U
Reykjanes 4. U
Reykjavík 5. U
Austurland 6. U
Vestfirðir
Firmakeppnin
1978
Önnur umferð firma-
keppninnar verður spiluð
annað kvöld í Domus Medica og
hefst klukkan 20. Spilarar fjöl-
mennið.
Bridgedeild
Breiðfirðinga-
félagsins
Sl. fimmtudag lauk baro-
meterkeppninni með sigri
óskars Þráinssonar og Guð-
laugs Karlssonar. Þeir höfðu
leitt keppnina lengi en lentu í
kröppum dansi síðasta kvöldið.
Fyrir síðustu umferina voru
Jón Stefánsson og Ólafur Gfsla-
son efstir, en svo skemmtilega
stóð á að þessi pör mættust í
síðustu umferðinni. Óskar og
Guðlaugur höfðu betur og voru
þar með orðnir sigurvegarar.
Röð efstu para:
Guðlaugur Karlsson —
Óskar Þráinsson 579
Jón Stefánsson —
Ólafur Gíslason 553
Björn Gíslason —
Gísli Víglundsson 453
Ólafur Jónsson —
Halldór Jóhannsson 433
Ingibjörg Halldórsd. —
Sigvaldi Þorsteinsson 402
Finnbogi Guðmundsson —
Sigurbjörn Ármannsson 366
Páll Valdimarsson —
Sveinn Helgason 347
Ragnar Björnsson —
Þórarinn Árnason 335
Hannes Jónsson —
Birgir Sigurðsson 316
Frá íslandsmótinu í fyrra. Guð-
laugur og Örn spila gegn Gesti og
Sigurjóni. — Mikill mannfjöldi
fylgdist með.
Brldge
Umsjón. ARNÓR
RAGNARSSON
Magnús Oddsson —
Þorsteinn Laufdal 282
Cyrus Hjartarson —
Svavar Magnússon 272
Bersveinn Breiðfjörð —
Tómas Sigurðsson 249
Gísli Guðmundsson —
Þórarinn Alexanderss. 234
Steinunn Snorrad. —
Þorgerður Þórarinsd. 207
Magnús Björnsson —
Benedikt Björnsson 139
Meðalárangur 0
Næsta keppni sem verður
jafnframt síðasta keppni vetrar-
ins verður fimm kvölda hrað-
sveitakeppni. Skráningin er
langt komið. Spilað er í
Hreyfilshúsinu á fimmtudögum
kl. 20.
Tafl- og
bridge-
klúbburinn
Tuttugu umferðum af 35 er
lokið í barómeterkeppni félags-
ins. Sá einstæði atburður
gerðist í einni af siðustu
umferðunum að eitt parið fékk
fullt hús stiga — eða topp á öll
spilin í einni umferðinni. Voru
það félagarnir Hilmar Ólafsson
og Ólafur Karlsson (68—0).
Spiluð eru 4 spil við par.
Staðan í keppninni:
Gunnlaugur ðskarsson —
Helgi Einarsson 241
Hilmar Ólafsson —
Ólafur Karlsson 228
Kristján Kristjánsson —
Óskar Friðþjófss. 214
Ingólfur Böðvarsson —
Guðjón Ottósson 155
Ólafur Lárusson —
Viðar Jónsson 132
Rafn Kristjánsson —
Þorsteinn Kristjánsson 116
Sigfús Árnason —
Sverrir Kristinsson 114
Benedikt Guðmundsson
Júlíus Guðmundsson 97
Meðalskor 0
Næsta umferð verður spiluð á
fimmtudag í Domus Medica og
hefst keppnin klukkan 19.30.
Um helgina fer Tafl- og
bridgeklúbburinn til Horna-
fjarðar að spila við Horn-
firðinga, Héraðsbúa og
Akureyringa en þetta er árleg
keppni sem haldinn hefir verið
tvisvar áður. TBK hefir unnið
keppnina í bæði skiptin.