Morgunblaðið - 01.04.1979, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. APRÍL 1979
t
Eiginkona mín, dóttir, móöir, tengdamóöir og amma,
JÓNÍNA HANSEN,
Unutelli 31, Rvk.
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, mánudaginn 2. apríl kl. 10.30.
Axel Þorkelason,
Margrét Hanson,
Jóhanna Axeladóttir, Knatján Ingimundaraon,
Axal Axalaaon, Máttrföur Jónadóttir,
Valdimar Axalaaon, Anna Ágúatadóttir,
Tryggvi Axelaaon, Ingibjórg Balduradóttir,
Áatbjörg Kornalíuadóttir,
og barnabórn.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
ÞÓRA JENNÝ VALDIMARSDÓTTIR,
Sólvallagötu 37,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 2. apríl kl. 3 e.h.
Hjálmar Guöbjörnaaon, Kriatin Steinadóttir,
Bjárni Guöbjörnaaon, Kriatfn Óakaradóttir,
Aöalatainn Guöbjðrnaaon,
Róaa Guöbjðmadóttir,
barnabðm og barnabarnabörn.
t
Hugheilar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinahug viö fráfall og útför bróöur
okkar
ÁSGEIRS H. GUDMUNDSSONAR,
frá Gerói.
Syatkini.
t
Hjartans þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og úttör
KRISTÍNAR LÁRUSDÓTTUR
Mávahlíð 38,
Halgi Jónaaon,
Elfn Helgadóttir, Erlingur Brynjólfmaon,
Jón Björn Helgaaon, Kolbrún Gunnlaugadóttir,
Hilmar b. Helgaaon, Erna Harmannadóttir,
Jón Eiríkaaon,
og barnabðrn.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og jaröarför ástvinar mfns,
fööur og bróöur,
SIGURÐAR B. MAGNÚSSONAR,
varkfrmöinga.
Ólöf Óakaradóttir,
Kriatján Siguröaaon,
María Sólrún Siguröardóttir,
Áata Magnúadóttir.
t
Ég þakka innilega auösýnda samúö viö andlát og útför móöur mlnnar
GUÐRÍDAR ÓLAFSDÓTTUR
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks gjörgæsiudeildar og deildar A-5 á
Borgarspítalanum fyrir frábæra hjúkrun og umhyggju.
Þórunn Dagmar Siguröardóttir, (Douat).
t
Þökkum innilega samúö viö andlát og útför eiginmanns míns, og fööur okkar,
tengdafööur og afa, SIGURÐAR GÍSLASONAR,
loftmkaytamannm,
Þórunn Siguróardóttir,
Sigrún Jonný Siguróardóttir, Guömundur Halkfórmaon,
Áata Siguröardóttir, Þormtainn Hálfdanaraon,
Höróur Jafmetmaon. Anna Aöalsteinmdóttir,
og barnabörn.
t
Alúöarþakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför sonar okkar
og bróöur,
SVEINBJARNAR BECK
Sérstakar þakkir færum viö björgunarsveitarmönnum fyrir veitta aöstoö.
Ásta og Árni Back
Áaa og Ólöf Una Beck
Jónína Soffía Han
sen — Minning
Mér stendur það lifandi fyrir
hugarsjónum, hvenær og hvar ég
sá Jónínu Soffíu Hansen, húsmóð-
irina og eiginkonuna, sem mánu-
daginn 2. apríl verður kvödd ]
hinztu kveðju frá Fossvogskirkju.
Það var haustið 1936 á Klepps-
veginum, á móts við Klett. Það var
aðeins byrjað að skyggja. Þá
mætti ég henni þarna á veginum.
Hun var þá tíu ára gömul. Eg var
þá að hefja prestþjónustu mína, í
þeirri Laugarnessókn, er síðar
varð. Við tókum tal saman, ég og
þessi broshýra tíu ára telpa — og
síðan höfum við þekkst og mæst
svo oft á ævinnar vegi. Og ég hef
metið hana því meir, því lengri
sem kynnin urðu.
Nú á morgun, mánudag, verður
hún til grafar borin frá Fossvogs-
kirkju, umvafin þökk og elsku
fjölskyldu sinnar allrar og ástvina.
Jónína Soffía Hansen eins og
hún hét fullu nafni fæddist þann 8.
des. 1926 hér í Reykjavík. Foreldr-
ar Jónínu voru þau hjón Margrét
Jonsdóttir Hansen fædd í Holtsfit
á Barðaströnd og Nils Hansen,
karlmannlegur norskur lifrar-
bræðslumaður, er bæði bjó og
starfaði þarna inni við Klett að
lifrarbræðslu fyrir útgerðarfélagið
„Geir Thorsteinson" er þá hafði
þarna allmikla starfsemi með
höndum. Nils andaðist þann 9. des.
1952.
Börn þeirra Nils Hansen og
Margrétar Hansen er upp komust
voru fimm — og eru hin systkinin
öll fjögur á lífi.
Þann 30. okt. 1948 giftist Jónína
Axeli Aðalsteini Þorkelssyni skip-
stjóra. Var hjónaband þeirra far-
sælt og innilegt. Þau eignuðust sex
börn, eina dóttur og fimm syni.
Tveir sonanna eru látnir, Nils
Þorkell og Garðar, er lézt síðast-
liðið haust, og var móður sinni og
föður mikill harmdauði. Nöfn
barnanna sem eftir lifa eru í
aldursröð: Jóhanna, Axel,
Valdimar og Tryggvi, sem stundað
hefur nám í Frakklandi, en er
nýkominn þaðan og hingað heim
ásamt unnustu sinni.
Árið 1952 flutti Jónína með
manni sínum til Siglufjarðar. Þau
dvöldu þar í fimm ár, en fluttu þá
aftur til Reykjavíkur og hafa búið
hér síðan. Síðustu tæp fjögur árin
hefur Axel unnið við afgreiðslu á
ís til skipa hjá frystihúsinu ísbirn-
inum í Örfirisey.
Þau hjónin Jónina og Axel voru
hvort öðru uppörvun og styrkur og
stóð Axel sannarlega við hlið
henni í langvarandi veikindum
hennar, studdi hana með rósemi
sinni og kjarki.
Heilsuleysi Jónínu ágerðist með
árunum — en móðurelska hennar
var slík, að þrátt fyrir sjúkrahús-
vistir og þreytu og áhyggjur og
sársauka, var hún broshýr og bar
þetta allt með óvenjulegri, kyrr-
látri reisn, svo að börn hennar
skyldu ekki verða óróleg, né ala
með sér kvíða. Slík var lífsorka
hennar og hugulsemi.
Og fyrir ekki all-löngu eftir að
líða tók á ævina, gekk hún fram í
ýmsum félagsmálum Fella- og
Hólahverfis, — já eins lengi og
heilsan entist — og tók þar lifandi
þátt í félagsmálum, og orkaði
miklu með persónuleika sínum og
heilbrigðri skynsemi.
I Orðakviðum Salomons standa
þessi orð um væna konu:
„Hún opnar munninn með speki
og ástúðleg fræðsla er á
tungu hennar.
Hún vakir yfir því, sem fram fer
á heimili hennar
og etur ekki letinnar brauð.“
Þrátt fyrir vanheilsu sína hin
síðari ár, vann hún fyrir aðeins
tveim árum síðan hjá Sláturfélagi
Suðurlands við ýmiskonar kjöt-
vinnslu. Kom hún þá oft dauð-
þreytt heim, en jafnframt óendan-
lega glöð yfir því að hafa getað
innt þetta af hendi með sóma.
Þannig gafst henni í erfiðri
baráttu sinni ný seigla, og nýr
þróttur svo við undruðumst.
Sú minning um hana, sem mér
er hugstæðust, er hversu hún
brosti þegar ég mætti henni 10 ára
gamalli. Ög ég sá sama ógleyman-
lega brosið á andliti hennar nú
undir hið síðasta, rétt áður en hún
hóf förina hinztu, þá, er enginn
snýr aftur frá.
Kynslóðir koma
kynslóðir fara
allar sömu ævigöng.
Gleymist þó aldrei
eilífa lagið
við pílagrímsins gleðisöng.
Garðar Svavarsson.
LEGSTEINAR
S. HELGASON H/F,
STEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48, KÓPAVOGI,
SÍMI 76677.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Líf mitt er svo grámyglulegt, að stundum liggur mér við
að leggja árar í bát. Ég geng til starfa á hverjum degi, geri
sömu hreyfingarnar dag eftir dag, og mér finnst ekkert
liggja eftir mig. Hvernig er hægt að komast upp úr
hjólfarinu?
Öll vinna getur orðið tilbreytingarlaus, ef við látum
hana verða það. Göthe hét vitur maður. Hann sagði:
„Það, sem veitir lífinu blessun, er ekki að gera það,
sem okkur langar til, heldur að langa til að gera það,
sem við verðum að gera.“
Þér segið, að ekkert liggi eftir yður. En ef þér hafið
verið trúr í starfi, eins og bréfið bendir til, hljótið þér
að hafa afkastað allnokkru og aflað vinnuveitanda
yðar og yður sjálfum nokkurra tekna.
Dr. Charles Mayo sagði einu sinni: „Ekkert er eins
skemmtilegt og vinna. Að fara á mis við vinnu er eins
og að fara á mis við lífið, enda er það vinnan, sem
gefur okkur lífslöngun."
Guð sagði manninum að eta brauð í sveita síns
andlitis. Þá gerði hann manninn að félaga sínum.
Jesús sagði líka: „Faðir minn starfar allt til þessa. Ég
starfa einnig."
Heilbrigð skapgerð mótast í heiðarlegu starfi, og
þar fæst kjölfestan, svo að við getum tekið „vondu
dögunum", þegar þeir renna upp. I starfi líkjumst við
Guði að því leyti að hlutir verða til vegna fyrirhafnar
okkar, og heimurinn verður betri.
Vinnið ekki með hangandi hendi, heldur þakklátur;
ekki eins og vél, heldur eins og maður, sem Guð hefur
skapað í sinni mynd.
Espigeröi — lyftuhús
Til sölu eöa í skiptum er 5 herb. íbúö í lyftuhúsi
viö Espigeröi: 3—4 svefnh., stofa, boröstofu-
krókur, þvottah., mikil og vönduö sameign, m.a.
vel búiö vélaþvottahús. í staöinn óskast 6—7
herb. sérhæö eöa einbýlishús meö bílskúr
(bílsk.rétti), helst í Smáíbúöahverfi eöa gamla
bænum. Þeir sem vildu sinna þessu, gjöri svo vel
aö leggja nafn, heimilisfang og símanúmer inn á
afgreiöslu Mbl. merkt: „Espigerði — 5723“.
Útborgun 28 millj.
Vantar raöhús eöa einbýlishús má vera t.d. í
Breiöholti, austurbæ, Seltjarnarnesi eöa Kópavogi.
Aðrir staöir koma einnig til greina. Húsiö má vera í
smíðum. Bílskúr eöa bílskúrsplata þarf aö vera. Útb.
28 millj., þar af 26 millj. fyrir áramót.
Upplyæsingar í síma 86985 í dag og eftir kl. 4 næstu
daga.