Morgunblaðið - 01.04.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. APRÍL 1979
29
Myndin hér að ofan var tekin um páskana í fyrra, þegar 40 manna
hópur frá Útivist gekk á Snæfellsjökul í góðu veðri, svo sem sjá má á
myndinni.
Ú tivistar f er d-
ir um páskana
Snæfellsnesferð er aftur á
dagskrá hjá Útivist um þessa
páska, og verður eins og áður gist
allar nætur í félagsheimilinu á
Lýsuhóli. Þar er mjög góð aðstaða
til gistingar fyrir hópa, og örstutt
frá húsinu er sundlaug og hita-
pottur. Vatnið í laugina kemur
beint úr ölkeldu, þeirri heitustu á
Snæfellsnesi.
Stefnt verður að því að ganga á
Snæfellsjökul einhvern daginn og
sömuleiðis á Helgrindur, sem eru í
göngufæri frá Lýsuhóli. Þeir sem
ekki hafa hug á fjallgöngum fá
tækifæri til öku- og gönguferða
víðs vegar um nesið, m.a. um þá
staði, sem skoðunarverðastir eru
undir Jökli.
Fararstjórar verða þeir Erling-
ur Thoroddsen, Einar Þ. Guð-
johnsen og fleiri. Kvöldvökur
verða í Félagsheimilinu á kvöldin.
Önnur fimm daga ferð verður
austur í Oræfi og þeirri ferð
stjórnar Jón I. Bjarnason. Gist
verður á Hofi og farnar þaðan
öku- og gönguferðir um nágrennið,
m.a. um Morsárdal og austur að
Breiðamerkurjökli. Möguleiki
verður á snjóbílsferð inn á Vatna-
jökul, t.d. í Esjufjöll. Uppselt er í
þessa ferð.
Friðrik Daníelsson og Konráð
Kristinsson sjá svo um stuttar
ferðir um nágrenni Reykjavíkur
alla dagana. Á skírdag verður
farið kl. 13 frá Umferðarmiðstöð-
inni og gengið um Skerjafjörð og
Fossvog. Föstudaginn langa verð-
ur gengið með Elliðaánum kl. 13,
mæting við Elliðaárbrúna. Á laug-
ardag verður farið kl. 13 og gengið
um Búrfellsgjá og Búrfell, upptök
Hafnarfjarðarhrauna. Á páska-
dag verður farið kl. 13 og gengið á
Vífilsfell, sem er nokkuð auðvelt
uppgöngu. Annan í páskum verð-
ur um tvær ferðir að ræða. Sú
fyrri verður kl. 13 og verður gengið
norður yfir Esju, en sú seinni
verður kl. 13 og verður þá farið á
kræklingafjöru við Hvalfjörð.
Brottfararstaður í allar ferðirnar
er við Umferðarmiðstöðina,
benzínsölu, nema við Elliðaárnar á
föstudaginn langa.
írlandsdagar
íÞórscafé
sunnudagur
opiðtilO
skem
Við endum írlandshátiðina með hörkudansleik i Þórscafé í kvöld.
Lúdó og Stefán leika fyrir dansi og hin frábæra írska þjóðlaga-
hljómsveit. DE DANANN kemur i heimsókn og leikur nokkur lög.
Fyrstu hundrað matargestunum er boðið upp á ósvikin ÍRSKAN
ÞJOÐARDRYKK fyrir. með eöa eftir mat. - þeim að kostnaöarlausu.
Öllum gestum í Þórscaféer boðiö án endurgjalds aö bragða á írsku brauöi
frá Nýja Kökuhúsinu, sérbökuð samkvæmt ströngustu kröfum irskra
bakara, og allir fá bolla af irsku ERIN súpunum til hressingar er liða
tekur á kvöldiö.
Forréttur: SMOKED SALMON SHANNON STYLE
Aðalréttur: SWEET AND SOUR IRISH PORK
m/lrsku ERIN graenmeti
Veró aóeins kr 4.500
Kynnir: Magnús Axelsson
BINGÓ:
Nokkrar Bingoumferöir teknar um
kvoldið og spilað upp á irlands-
ferðir i ollum umferðunum
Dagskrá kvöldsins:
ÍRLANDSKYNNING:
Hlaupið i gegnum helstu
möguleika ferðamanna á (rlandi
og nýi sumarferðabæklingurSam-
vinnuferða kynntur.
(RSK TÓNLIST:
Þjóðlagahljómsveitin De Danann
bregður fyrir sig betri fætinum og
leikur hressilega ómengaða irska
þjóðlagatónlist
TÍSKUSÝNING:
Karon synir nyjustu tiskulinuna
fyrir domur og herra
ASADANS:
Og viö bregðum okkur i ásadans
Hann verður horkuspennandi og
fiorugur pvi pariö sem siðast
stendur a dansgólfinu hefur
dansað sig beint inn i páskaferð til
irlands fyrir tvo
Borðapantanir í síma 23333
Samvinnuferdir-Landsýn
Austurstræti 12 - sími 27077
Sá besti frá JAPAN
Frá 1. maí veröur P. Stefánsson hf. meö einkaumboð á
íslandi fyrir Mitsubishi Motor Corporation í Japan.
Þá bjóöum við hinn frábæra GALANT SIGMA sem fariö
hefur sigurför um heiminn, vegna framúrskarandi gæóa
og öryggis.
Verðkr. 4.185.000.-
Miöað við gengisskráningu 12. 3.1979
Fyrsta sending til afgreiðslu í maí