Morgunblaðið - 20.05.1979, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 20.05.1979, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1979 13 Rithöfundurinn Joachim Fernau fæddist í Bromberg í Vestur-Prúss- landi (nú Póllandi) árið 1910 og starfaði sem blaðamaður. Árið 1952 kom fyrsta bók hans út; „Deutschland, Deutschland iiber alles“, sem varð metsölubók. í eftirfarandi bréfi er vestur-þýzka blaðið Welt am Sonntag fékk til birtingar svarar hann dóttur sinni er spurt hafði í bréfi til föður síns: „Er guð til?“ Elsku barn. Ég var snortinn af bréfi þínu. í fyrstunni ákvað ég að tala um það við þig þegar þú kemur aftur heim úr leyfinu. En nú finnst mér ég þurfi að svara þér samstundis. Það liggur svolítið á, ekki satt? „Segðu mér, faðir, hvort guð er til“ skrifaðir þú. Elsku Rut. í fyrsta skipti ávarpar þú mig „faðir“ en ekki „pabbi" eins og áður. Þú hefur á réttu að standa. Pabbi er sá er kyssir þig á vangann þegar þú kemur heim, strýkur hár þitt, leggur hönd yfir öxl þína og fær að vita um vonbrigði þín með Jonna eða Svenna þegar mamma heyrir ekki til. Hann er sá sem laumar nokkrum krónum í hanskahólfið á bíln- um þínum og stelst til að kíkja í veskið þitt, þar sem hann uppgötvar mynd af sjálfum sér en ekki af ungum pilti — já, það hef ég gert og burgðið ögn fyrir bragðið. Brugðið en ekki hamingju- samur? Jú, sannarlega ham- ingjusamur, en þó meira brugðið. Þetta áttu erfitt með að skilja, þó skal ég reyna að útskýra. I gömlum sálmi er að finna orð sem hljóma eitthvað á þessa leið: „Þú ert undirstaðan þar sem mitt akkeri alsælt hvílir." Undan- skildu nú orðið „alsælt", þar eð það er of trúarlegrar merkingar, og það sem eftir stendur hæfir. Er ég þessi trausti grunnur, Rut? Ég hef aldrei talið sjálfan mig sterk- an og nú á ég skyndilega svo að heita. Þokkalegur vitnis- burður það. I þessu bréfi verður það að koma í ljós. Þú sagðist í nauðum stödd í bréfinu, að þú íþyngdir sjálfri þér, að þú hefðir misst stjón- ar af guði og tilgangi tilver- unnar. Þegar þú horfir um öxl ertu ekki einu sinni viss um, hvort þú áttir hann nokk- urn tíma að. Áreiðanlega hefur þú spurt mig hundrað sinnum í huganum. En ég var hvergi nærri og því kom ekkert svar. Þegar ég var ungur eins ðg þú spurði ég aldrei um guð. Það var ekki af hugsunarleysi heldur sökum trúnaðar- trausts. Trausts á hvað? Það skal ég segja þér, en misskildu mig ekki. Þú veizt mér líkar tvöfeldni. Ég trúði að ég hefði ekkert að óttast á dómsdegi. Ég var enginn eng- ill, guðumlíkur einstaklingur en eitthvað óeðlilegur. Ég prettaði, ég laug, ég var óskírlífur, reykti pípu, bar hattinn skáhallt og var gáskafullur eins og hvolpur. Þegar ég skrökvaði gerði ég það til að forða einhverjum við vonbrigðum. Eitt sinn stalst ég fimm sinnum með almenningsvagni án þess að borga og keypti mér fjaðra- hatt fyrir það sem sparaðist. Á þvilikum augnablikum, og eins og þegar ég kyssti brjóst á stúlku, kraup ég í reynd og sanni i tilbeiðslu til lífsfeg- urðarinnar í stað þess að standa hjá eins og þjófur að nóttu eða Hans klaufi. Ég hef aldrei farið blístrandi um heiminn. Ef til vill varð mér óafvitandi margt á sem bak- aði öðrum sársauka, ef til vill, Joachim Fernau vonandi ekki. Ég vildi ætíð vernda og varðveita og var ætíð bljúgur frammi fyrir sköpunarverkinu. Ég varð frá mér numinn af fegurð í hvaða mynd sem var og kunni mér ekki læti fyrir dýrð vor- morgunsins. Af einskærri aðdáun kyssti ég blómin. Stundum átti ég til að standa stundum saman fyrir framan málverk eftir Manet eða van Gogh unz safnvörðunum þótti ekki annað hlýða en færa mér stól. Undir Mattheusarpassíu Bachs kjökraði ég eins og búðarrakki. Það var ekki vegna trúarótta af þeirri teg- und sem kirkjan predikar heldur af auðmýkt; sælu. Hefði einhver spurt mig þá hvort ég tryði á guð hefði ég svarað: En fjandakornið, sjá- ið þér ekki að ég skæli? Hvað gæti svo sem hugsan- lega komið fyrir mig á dóms- degi? Ég fæ ekki ímyndað mér nokkurn mun á dýrkun og tilbeiðslu. Ég get ekki leitt mér fyrir sjónir hvernig nokkur maður getur afrekað stórvirki án þess að trúa. Öll saga mannsins, sýnir þetta augljósleg'a. Er ekki fásinna að spyrja andspænis menn- ingu Babýlons, Egyptalands, Hellas, Rómar, Kína, Japan og Evrópu hvaða máttarvöld wm ||i§ ✓ •'■■ ••■í, • V :: m m Fimmtán af hundraði þeirra sem spurðir voru svöruðu: „Eg veit það ekki.' þessi ólíku samfélög tignuðu eða hvaða orð þau mæltu af vörum fram? Þær sungu sína lofgjörð allar. Er það ekki nóg? Nægir ekki að þau hafi gert okkur auðið að lifa sömu tilfinningu, að hrærast í and- akt yfir lífinu? Prestarnir segja: það er ekki nóg. Þeir byrjuðu að segja það fyrir þúsundum ára. Eitt sinn tilfærðu þeir þennan guð og því næst hinn og síðan koll af kolli og nú á dögum eiga þeir enn sinn afmarkaða guð. En hvaða nafn hæfir honum nú og hvar á hann heima? Ofstækismennirnir eru slæmir Rut. Og verstir eru þeir sem aldrei brosa eða finna gleðinni st' ð í hjarta sínu. Ernst Junger skrifaði einhvers staðar — ég skal fletta því upp, hér hef ég fundið það: „Guðhræðsia er það, að verða uppnuminn af undrum heimsins. Slíkt er ekki einkenni eða afleiðing trúarbragða heldur forsenda þeirra. Það kallar fram skil- yrðislausa lotningu og innri heiðríkju (ég myndi bæta við ró). Sennilegra er“, heldur Júnger áfram „að gleði en ótti sé uppspretta trúarinnar eins og margar kenningar gera ráð fyrir. Nú á tímum er sú guðhræðsla grunsamleg er byggist á ótta og ekki er blandin glaðværð. Samtíð okkar og prestarnir hafa horfið aftur til tíma hómó- patanna og segja: „Lifðu í guðsótta. Á ne.vðarstund og á banabeði munuð þér ákalla drottinn og kveina.“ Félagi minn úr stríðinu sagði mér frá því er hann eitt sinn lifði af stórskotahríð. Hann lá flatur á akri og kom auga á jurt eina þétt upp við andlitið. Hann hafði ekki veitt þessari jurt athygli ár- um saman og það veitti hon- um nú óumræðilega ángæju að uppgötva hana aftur. Það var græðisúra. Hann lifnaði allur við er honum kom nafn- ið í hug. Hann minntist bernsku sinnar þegar hann strauk fingrum yfir aldin- hnappana og lét kornin ýrast upp í munninn. Þarna stóð hún nú, græðisúran, í eld- glæringunum, rétt eins og hann sjálfur og honum kom í hug að hún væri aðeins jurt eins og hann var maður: Þú hefur lifað og blómstrað, lifað mörg sumur á enda og ég hef lifað, unnað lífinu. Ef deyjum við nú, deyjum við saman, óttastu eigi. Barnið mitt, ég trúi að þessi maður hafi ekki síðan spurt frekar um guð. Finnst þér það ekki ósennilegt líka? Við þetta tækifæri hafði hann sannreynt að hann og skepnan voru eitt, hann og skepnan sem aldrei spurði spurninga. Og til hvers væri að spyrja? Einhvers staðar er tilgangur lífsins og allrar tilveru fólginn. En hvers vegna spyrðu hvar? Hafðu traust í stað þess að spyrja eftir æðri máttarvöld- um. Hafðu traust í stað þess að spyrja eftir tilvist ein- hvers ofar okkar eigin hugar- flugi. Sköpunarverkið spyr einsk- is. Énginn fugl, ekkert fiðrildi, ekkert tré eða gras- strá leitar að guði. Slíkar spurningar dvelja hvorki ský himinsins né hafsins báru. Hún er á þann veg sem hún verður og veit sitt skjól i náttúrunni. Leita þú ekki heldur að guði. Ef til er guð vænist hann þess allra allra sízt jarðneskar verur leiti hans. Slíkur hégómi væri almætt inu vart samboðinn. Vertu sterk, eisku dóttir, og taktu lífinu opnum örmum, ástinni, fegurðinni, náttúr- unni. Og þegar þú loks hefur öðlast ró, nefndu það eins og þú vilt, nefndu það guð. Ég á sjálfur ekkert orð til að lýsa því.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.