Morgunblaðið - 20.05.1979, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1979
Alþjóðlega bamasöngvakeppnin 1979:
Valdir tveir textar
íslenzkra höfunda
ÚRSLIT fyrri hluta AlþjóOlettu
barnasonKvakcppninnar 1979 á
vetíur Barnahjálpar Sameinuðu
þjóðanna (UNICEF) litttíja nú fyr-
ir. Valdir voru tveir textar að
harnasöntc. annars vetfar almenns
eðlis ot? hins vctfar texti, scm
saminn er mcð 10. ttrein yfirlýsintt-
ar Sameinuðu þjóðanna um róttindi
barnsins í hut;a.
Voru það annars vet;ar „We’re
children of the world today" eftir
Intíibjörtfu Þorbergs ok „Við erum
börn“ eftir Ingólf Jónsson frá Prest-
bakka hins vegar.
Núna hefst síðari hluti keppninn-
ar, þar sem óskað er eftir lögum við
þessa texta. Skilafrestur er til 21.
júní. Eftir að lögin hafa verið valin
verða söngvarnir sungnir inn á
hljómband af barnakór og þeir
sendir í alþjóðlegu úrslitakeppnina,
en hún fer fram á hausti komandi.
í íslensku dómnefndinni eiga sæti:
Ármann Kr. Einarsson rithöfundur,
Arnheiður Borg kennari, Björn
Vignir Sigurpálsson blaðamaður,
Guðfinna Dóra Ólafsdóttir tón-
menntakennari, Marta Sigurðar-
dóttir fóstra, Njáll Sigurðsson
námsstjóri og Þorkell Sigurbjörns-
son tónskáld, sem jafnframt er
formaður nefndarinnar.
Nýja skrifstofuhúsgagnakerfið
frá Bjerringbro gefur
umhverfinu hressilegan lit
-=•>' : w
Biðjið um tilboð í nýja innréttingu á skrifstofu yðar — með
hliðsjón af þörfum yðar og kröfum. Tillögur að fyrirkomulagi
innréttinga og „skrifstofulandslags" við yðar hæfi eru ávallt til
reiðu, — endurgjaldslaust.
B/8 — litakerfi — 800 er skrifstofukerfi, sem hægt er að nýta við
hvers konar aðstæður.
Hallarmúla 2 - Sími 83211
1. Þáttur
Oft skal góðs geta, segir í
Hávamálum. Mér er fremur
að skapi að hefja þennan
þátt á því, sem til bóta
horfir, en hinu sem miður
fer.
Vænt þótti mér um að
heyra Bjarna Felixson nota
orðið hnit = badminton í
íþróttaþætti sjónvarpsins.
Badminton er þess konar orð
sem uppfyllir ekki þær kröf-
ur er gera verður til töku-
orða áður en þau öðlast
þegnrétt í ríki máls okkar.
Nú skortir ekki nema herslu-
muninn til þess að festa
orðið hnit í málinu. Bið ég
því menn, einkum forráða-
menn íþróttastarfs, liðsinnis
og fulltingis í þessu efni.
Þá hefur mér einnig hugn-
að að hlusta á Þorgeir Ást-
valdsson, þann sem stjórnar
sældaþættinum Skonrok í
sjónvarpinu. Mér finnst, í
þau skipti sem ég hef fylgst
með þætti hans, að hann tali
lipurt mál með eðlilegum
áherslum, en einmitt í sam-
bandi við skemmtanir margs
konar, svo sem sældirnar,
hefur oft mátt heyra óeðli-
legt málfar, t.d. sönglandi
amerískan vörubjóðs- eða
uppboðshaldaratón. Þeim
mun þakkarverðara er að
heyra gott íslenskt mál á
þessum vettvangi. Sældamál
getur haft mikil áhrif.
Ég hef hér á undan notað
skýringalaust og upp úr
þurru orðið sældir í staðinn
fyrir pop. Það er gert bæði í
gamni og alvöru. Enska orðið
pop í þessu sambandi er
stytting úr popular, sem
merkir vinsæll af almenn-
ingi, alþýðlegur, en rætur
þessa orðs er að rekja til
latínu. Nú er pop að vísu ekki
vont tökuorð. En til þess að
taka við því þurfum við þó að
skrifa þð með tveimur péum
(popp). En alltaf er gaman
að spreyta sig á einhverju
nýju og láta til þrautar
reyna á þanþol og endurnýj-
unarmátt tungunnar.
Hér geri ég þann útúrdúr
að af latneska orðinu
automobilis = sjálfhreyfan-
legur tóku Þjóðverjar fyrri
hlutann og bjuggu til orðið
das Auto = bíll, en það orð
tókum við eftir Dönum sem
smíðað höfðu það úr síðari
hlutanum. Enskumælandi
menn stytta sitt orð popular
með því að taka framhlut-
ann, pop, ég gerði þá tilraun
að stytta sambærilegt orð,
vinsældir, með því að taka
afturhlutann sældir í þeirri
sérmerkingu sem enska orðið
pop hefur. Gallinn á þessu
orði miðað við pop er augljós.
Það er tvö atkvæði fyrir eitt
og er því ekki eins þjált í
samsetningum, t.d. sælda-
þáttur, sældamál eða sælda-
hljómsveit. Og þá er að finna
eitthvað betra eða taka hið
erlenda orð upp með ís-
lenskri stafsetningu, popp.
Nú koma aðfinnslur. Illa
kann ég því til dæmis
hvernig gagnstæðistengingin
en er oft látin þoka fyrir
tíðartengingunni meðan, og
er hér tvímælalaust um ensk
máláhrif að ræða. Þetta
hefur verið einkar áberandi
þegar sagt er frá kosninga-
úrslitum. Tilbúið dæmi:
Sameiningarflokkurinn vann
mikinn sigur og fékk 40
þingsæti meðan
Landsbyggðarflokkurinn
fékk ekki nema sjö. Þarna
þykir mér sjálfsagt að hafa
en í stað meðan, og reyni því
að sporna gegn þessari
breytingu.
Stagl í fréttum fjölmiðla
er stundum fjarskalega
hvimleitt. Vindur er svo og
svo mörg vindstig, vísitalan
hækkar um mörg vísitölustig
og nú fyrir skemmstu var um
það rætt í fréttum útvarps-
ins hvað Bandaríkjamenn
hygðust gera til þess að
koma í veg fyrir að fiskverð
hækkaði á fiski þar í landi.
Þarna fer að vísu ekkert á
milli mála, hvað um er rætt,
fremur en í þessari greinar-
góðu vísu um bátstapa:
MisHti bátinn ntaður ná
mjnií {atóru veðri.
bað grkk hvo mikll tcula á
hann gekk sundur af veðrl.
Og þá vita menn það.
Enn er að geta þess mál-
lýtis sem er fólgið í vansköp-
un eða vönun þolmyndar svo
að hún verður alltaf í
hvorugkyni eintölu. Dæmi úr
forsíðufrétt hér í Morgun-
blaðinu s.l. laugardag: „Lagt
var (auðkennt hér) á ráðin
um morð með byssukúlu eða
hægdrepandi eitrun við læst-
ar dyr í neðri málstofu
breska þingsins ...“ Þetta
kynni reyndar að þarfnast
nánari skýringa, en mergur-
inn málsins er sá, að þarna á
að mínu viti að standa í
upphafi: Lögð voru á ráðin,
ekki lagt var á ráðin. Ég held
meira að segja að það merki
annað. Eins og þetta stóð í
blaðinu er því helst líkjandi
við fátæklegt barnamál: Það
var barið mig í bakið.