Morgunblaðið - 20.05.1979, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MAÍ1979
Enn ríkir veturirm
Morgunblaðið hafði á föstudaginn samband við nokkra
fréttaritara sína úti á landsbyggðinni og fara frásagnir þeirra
hér á eftir auk fréttabréfs frá Jónasi Péturssyni fréttaritara í
Norður-Múlasýslu frá 14. maí s.l.
Kópaskor:
„Mætti ætla að
það væri janúar
eða febrúar “
Hér er vetrartíð ennþá og ætla
mætti að það væri janúar eða
febrúar,“ sagði Ragnar Helgason á
Kópaskeri. „Þetta er voðalegur
tími fyrir bændurna þar sem ekki
er hægt að láta út skepnur vegna
veðurs. Flesta daga er hríð og um
hádaginn í dag var 4—5 stiga frost
í forsælu.
Veturinn hér var gjafafrekur,
stórviðri voru ákaflega tíð en ekki
mikill snjór. Það er fyrst nú eftir
sumarmálin að hér er mikill
snjór."
Ragnar sagði að lítið væri að
frétta af útgerðinni.
„Þessa vikuna hefur verið veiði-
bann og nokkrir bátanna fóru í
slipp eftir rækjuveiðarnar. Þær
gengu svolítið stirt í ár, gæftir
voru stirðar og gera varð hlé á
veiðunum meðan hafísinn var hér
en hann er nú horfinn héðan fyrir
nokkru.
Það eru einnig stirðar gæftir
fyrir grásleppuveiðarnar en þegar
gefur á sjó er mokafli."
Ragnar sagði að frekar lítið
væri um atvinnu nú á Kópaskeri
en þó sagðist hann halda að flestir
hefðu eitthvað að gera nema kven-
fólkið sem vann í rækjunni.
„Mannlífið hjá okkur er svipað
og verið hefur. Rækjuveiðin hafði
svolítil áhrif á það því að allt
félagslíf lá niðri meðan á henni
stóð en annars er mannlífið alltaf
gott hér á Kópaskeri," sagði Ragn-
ar að lokum.
Ilrísoy:
Bora eftir
heitu vatni
í sumar
„Hér var stórhríð í morgun og
ökladjúpur snjór þegar við komum
á fætur," sagði fréttaritari Mbl. í
Hrísey, Sigurður Finnbogason.
„Það er ekki verulega sumarlegt
hér, töluverður snjór, en menn eru
þó það bjartsýnir að við ætlumst
til þess að sumarið komi,“ sagði
Sigurður.
I Hrísey hefur engin útgerð
verið þessa viku vegna þorskveiði-
bannsins en í gær var verið að
vinna þar fisk úr Snæfellinu sem
landaði á laugardaginn.
Skólanum í Hrísey hefur verið
slitið og sagði Sigurður að skóla-
börnin væru nú að leika sér í
Reykjavík.
„Það er ýmislegt á döfinni hér
hjá okkur. Við ætlum t.d. að láta
bora eftir meira heitu vatni handa
okkur. Það stendur til að sú
framkvæmd hefjist í júní eða júlí.
En menn eru hér nú að dytta að
bátum sínum og búa sig undir að
það verði nægur fiskur í sumar.
Félagslífið hefur verið heldur
dauft hér. Þó héldu börnin ágætis
samkomu þegar þau slitu skólan-
um og á morgun ætlar Kaupfélag-
ið að standa fyrir samsæti hérna
með góðum mat og dansleik. í
vetur sýndum við hér leikrit og
höfðum alls 10 sýningar þrisvar á
eyjunni og sjö sinnum uppi á
landi," sagði Sigurður að lokum.
Hvanunstangi:
Mikið um að
vera í menningar-
málum í vetur
Hér hefur verið heldur risjótt
veðurfar, kannski snjór að
Vorsýningin okkar opnar þriöjudaginn.
22. maí og stendur til 27. maí.
Opiö verður alla daga, virka daga sem helga, trá kl. 14—18
Sundaborg. Sími 86644.
Þingeyri við Dýrafjörð. Þar er nú kalt og mikið frost er í jörðu.
morgni, næturfrost en hlýtt á
eftirmiðdögum," sagði Sigurður
H. Þorsteinsson á Hvammstanga.
„Sauðburður er almennt byrjaður
en halda verður fé á húsi vegna
tíðarfarsins.
Grunnskóla Hvammstanga var
sagt upp í gær. Þar stunduðu 87
nemendur nám á s.l. vetri. Nýlega
var haldinn aðalfundur Kaupfé-
lags Vestur-Húnvetninga og var
afkoman góð á s.l. ári.
Fimm bátar hafa verið gerðir út
frá Hvammstanga í vetur og hafa
4 þeirra stundað rækjuveiðar og
einn línuveiðar. Tveir þessara
báta fóru á vertíð suður er rækju-
vertíð lauk en bátur sá er línuveið-
ar stundar hefur haldið þeim
áfram og einn bátanna hefur
stundað hörpudiskveiðar á Húna-
flóa síðan rækjuvertíð lauk. Hefur
sú útgerð gengið nokkuð vel.“
Sigurður sagði að mikið hefði
verið um að vera í menningarmál-
um á Hvammstanga í vetur.
„Arshátíð skólans var eins og
fyrr með glæsibrag og nokkru
síðar hófst á Hvammstanga vor-
vaka Vestur-Húnvetninga. Sóttu
hana um 850 manns en þar sýndu
5 listmálarar og seldu yfir 30
myndir. Samtals voru sýndar um
120 myndir og er það stærsta
málverkasýning í Húnaþingi fyrr
og síðar. Þá voru haldnar vökur
þar sem lesið var úr bundnu og
óbundnu máli vestur-húnvetnskra
höfunda, kórsöngur og fleira var
til skemmtunar. Leikflokkur
Hvammstanga sýndi leikrit eftir
Sigurð Róbertsson og ennfremur
komu nágrannaleikfélögin í heim-
sókn og á sumardaginn fyrsta var
sýndur Kardimommubærinn eftir
Torbjörn Egner.
A undanförnum árum hafa allt-
af verið um 30—40 hús í byggingu
hér á staðnum og er svo enn. Er
þegar á þessu ári hafin bygging 5
einbýlishúsa. Þá er langt komið
með 5 raðhús á vegum sveitar-
félagsins en þær íbúðir eru seldar
jafnóðum," sagði Sigurður að lok-
um.
Þingoyri:
Miklar
byggingar-
framkvæmdir
„Hér er mikill hugur í mönnum
að byggja," sagði Hulda Sig-
mundsdóttir fréttaritari Mbl. á
Þingeyri.
„Sæmundur Jóhannsson múrari
frá Flateyri er að auglýsa rað-
húsabyggingu og Gunnar Sigurðs-
son smiður hér á staðnum er líka
með teikningu af blokk með 5—6
íbúðum sem verða boðnar til
kaups jafnóðum og þær verða
byggðar. En farmannaverkfallið
setur sinn svip á reikninginn því
enginn fær timbur og gífurlegt
frost er í jörðu, það er ekki einu
sinni hægt að ná sér í mold í
blómapott.
Þá er einnig verið að byggja
raðhús á vegum hreppsins. Bygg-
ingaverktaki er Hefill frá Flateyri
en yfirsmiður er Þórarinn Helga-
son. Raðhúsið á aö vera tilbúið í
júlí.
Ný beinaverksmiðja er komin í
gagnið á vegum Kaupfélagsins og
verið er að hefjast handa um
byggingu frystiklefa við hrað-
frystihúsið. Þá er og hafin aftur
vinna við byggingu grunnskóla
Þingeyrar. Gamli skólinn var
byggður árið 1909 en nú er verið
að prjóna við skólann og erum við
mjög ánægð með það hversu ný-
byggingin fellur vel inn í þá
gömlu."
Hulda sagði, að kalt hefði verið í
veðri á Þingeyri en sólskin undan-
farna daga og minni vindur en
frost á hverri nóttu.
„Fólk er hér almennt með kvef
og hæsi vegna kulda og göturyks.
Félagslífið hefur verið ágætt hér í
vetur þrátt fyrir mikla vinnu.
Núna eru allir á kafi við að æfa
skemmtiatriði fyrir sjómannadag-
inn þótt engan höfum við söng-
stjórann en orgelleikara höfum
við fengið, ástralska stúlku sem er
gift á Þingeyri. Hún er mjög
efnileg og við væntum mikils af
henni. Prest höfum við því miður
engan enn sem komið er og séra
Lárus Guðmundsson í Holti gegn-
ir ennþá störfum Þingeyrar-
prestakalls.
1. maí keppti bridgefélagið Gosi
á Þingeyri við Isfirðinga um það
hverjir ættu að mæta í tvímenn-
ingskeppnina í Reykjavík. ísfirð-
ingar unnu en Þingeyringarnir
fóru í keppnina, aðstæður leyfðu
hinum ekki að fara. Bridgemót
Vestfjarða verður síðan haldið á
Núpi 26. og 27. maí.“
Hulda sagði, að togari Þingeyr-
inga fiskaði ágætlega. Hann hefur
undanfarna tvo túra verið á karfa-
og grálúðuveiðum.
„Það er ekki langt síðan hér
varð slys í karfavél. Ungur piltur
missti 3 fingur framan af hægri
hendi en hefur von um að halda
litla fingri en þó er ekki vitað
hvort hann verður staur. Þumal-
fingurinn skaddaðist ekki.
Kindur bera skarpt hjá bænd-
unum hér og er mikið tvílembt.
Hobby-bændurnir, eins og við
köllum þá sem hafa kindur á
Þingeyri, eiga yfirleitt hverja á
tvílembda og einstaka þrílembda
og þeir þykjast góðir ef þeir fá
ekki gemlingana líka tvílembda,"
sagði Hulda að lokum.
Nordur-Múlasýsla:
Þungar
draumfarir
Lagarfelli 14. maí.
Ennþá er alhvít jörð hér um
slóðir, éljagrámi í lofti og slítur úr
hríðarfjúk. Frost var nokkurt í
nótt og norðaustangola. Harðindi
heitir svona tíðarfar í almennu
tali.
Draumfarir þungar hafa sótt á
náttúrugreinda menn eða dulvitra
og kvíði situr í hálsinum á ýmsum
við svona svip á veðri. Veðurfregn-
irnar hljóða svipað dag frá degi,
næturfrost eða kólnandi og él eða
snjókoma. Sauðburður er almennt
byrjaður en þó eru enn nokkir
bændur sem miða við að hann
byrji kringum 20. maí. Fólk er nú
færra en áður á heimilum, ærnar
fleiri og miklu fleira tvílembt. Allt
þættir sem valda meiri erfiðleik-
um en áður í harðindavori. Spá-
menn hér og hvar njóta misjafnr-
ar tiltrúar, en ein spáin er að
batni 8. júní. Þangað til verður
mörgum þungt að þreyja en sólin
er fljót að verma ef fær að skína.
J.P.