Morgunblaðið - 20.05.1979, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1979
21
Gífur-
leg
harð-
yndi
I dag eru þrjár vikur liðnar af
sumri, og má nú segja, að vorið sé
hvorki grænt né hlýtt, heldur
miklu fremur sé það lagt undir
þann járnhæl sem kaldastur hefir
orðið nú um langan tíma.
Steindauð hvít og visin jörð blasir
nú við í hverju spori sem gengið
er. Upp í 8 stig hefur frostið
komist um nætur, og rétt um
hádaginn sigið í um frostmark en
oftast um alla daga er sólar ekki
nýtur en 5 stig. Slíkt og þvílíkt
leiðir af sér ómældar útgjalda-
fúlgur hjá bændum við að halda
fénaði í holdum. Er þó eftir versti
þrældómstíminn, sauðburðurinn í
öllu sínu basli og stjái við slíkar
aðstæður, en nú í miðri fjórðu
viku sumars fer hann í
algleyming. Verður án efa mörg-
um liðfáum bóndanum þolraun í
þrældómi og vökum. Byrjaður er
þó burður nokkuð víða, þótt í
smáum stíl sé ennþá, en svo innan
tíðar hrannast hann upp af fullum
krafti.
Það mun algert einsdæmi að nú
þrem vikum af sumri er Mjói-
fjörður hér í Djúpi ennþá svo
þakinn lagnaðarís, að engum bát
er þar fært um að sigla, og verða
Mjófjarðarbændur að keyra út í
Ögur til að geta komist í samneyti
við Djúpbátinn, og hefur svo verið
frá því um jól í vetur.
Einn var sá bóndi harðsæknast-
ur hér í Djúpi í vetur, Agúst
Gíslason, nýlegur bóndi í Botni í
Mjóafirði, að hann brá sér að
heiman á hið mikla aflaskip
ísfirðinga skuttogarann
Guðbjörgu, og hristi þar upp í
ermi sína margar langþráðar gull-
krónur, fékk hann heimamann í
Hörgshlíð til búsýslustarfa á
meðan — en er nú kominn heim til
vorverkanna. Kona hans fór
einnig út af örkinni í rækjuvinnu
á ísafirði til að drýgja tekjur
þeirra hjóna við búskapinn, en
mörg er búmannsþörfin, ekki síst
byrjenda, en slík atorka sýnir
óneitanlega bæði vakleika og úr-
ræði.
Nýmæli er hér, að nú mun mjólk
verða flutt á bílum til Isafjarðar í
sumar, og hefur verið samið við
Gunnar og Ebenezer á ísafirði að
sækja mjólkina hér í Djúpið,tvær
ferðir í viku í sumar, en undan-
farin sumur hefur hún tvisvar í
viku verið flutt landleiðina að
Djúpbátnum að Bæjum og Ögri,
en báturinn farið þriðju ferðina,
venjulega hringferð um Djúpið.
Til stendur jafnvel að mjólkur-
tankur verði kominn til þessara
flutninga síðar á sumrinu. Verið
er að setja upp nýja skilvindu í
mjólkurstöðinni á ísafirði, sem
kosta mun um 8 milljónir, og mun
sá rjóminn kostbær, sem um slíka
völundarmaskínu rennur.
Jens í Kaldalóni.
við spörum tíma
meó nýjum síma
Vegna mikilla anna sprakk kerfíð og við lentum í
vandræðum. Þess vegna höfum við bætt við okkur
nýju símanúmeri
28899
8 línur
Samvinnuferóir-Landsýn
Austurstræti 12 - simar 27077 og 28H99
Eruðþið
tilbuin
í garðvinnuna?
Helmingur ánægjunnar
við útistörfin felst í góöum
garðáhöldum,
- vönduöum verkfærum
frá Lysbro! umboÓsmenn:
ahold til utivinnu!
K.Þorsteinsson &Co.,Sundaborg