Morgunblaðið - 20.05.1979, Síða 22

Morgunblaðið - 20.05.1979, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1979 í sunnu dags heimsókn hjá Hildi Einars- dóttur ritstjóra Á vinnustað. „Stundum þurfa konur að endurhsfa eigin- mennina ef þær vilja skapa sér stöðu...“ Það er alkunna, að Þó nokkrum sinnum hafa hérlendis verið gerðar tilraunir með að gefa út rit sem sérstaklega hafa verið sniðin fyrir kvenfólk. Útgáfa Þeirra hefur stundum farið fjörlega af stað, en lognast síðan út af. Auk Þess hafa svo komið upp deilur um pað, hvort ástæða væri til á pessum síðustu jafnréttistímum að gefa út blað sem frekar væri öðru kyninu ætlað. Tízkublaðið Líf hefur nú komið út á annað ár, nokkuð reglulega og fengið góðar undirtektir og ýmislegt bendir til að pað eigi framtíð fyrir ár. Ritstjóri Lífs er Hildur Einarsdóttir, 28 ára gamall Þjóðfélagsfræðingur. Mér lék forvitni á að rabba við Hildi og heyra viðhorf hennar til Þeirra röksemda sem eru með og á móti útgáfu slíks blaös og fá í leiðinni að vita ögn um hana sjálfa. Veggirnir í íbúðinni þeirra hjóna Hildar og Egils Ágústssonar eru allir hvítir. Það verkar sérkennilega, einkum til aö byrja með. Glugga- tjöldin eru líka hvít. Fjöldi teikninga og grafíkmynda, Kjarvalsmynd frá 1944. Brúnt leðursófasett í stofunni og í einu horni hennar gamalt boröstofuborð meö sex bólstruö- um stólum. Hér hefur hver hlutur sinn staö, ekkert óþarfa plastgull heldur valdir og vandaðir munir. — Híbýli eru mikiö atriði, segir hún og setzt á móti mér í brúnan leóurstól og lætur fara um sig makmdalega. — Hér á landi er fólk áreiðanlega óvenjulega langan tíma sólarhrings á heimilum sínum. M.á sjálfsagt vegna veöráttunnar. Mér finnst mikils um vert að verja þeningum í smekklega hluti sem hafa bæöi notagildi og prýöi er aö. Ekki bara sanka aó sér dóti af handahófi til aö fylla upp í húsa- kynnin. Þótt þetta heiti dauöir hlutir eru þeir stór hluti af daglegu lífi okkar og því nokkurs vert að þeir hugnist okkur. Hildur fór í þjóöfélagsfræðinám að loknu stúdentsprófi 1971. Á námsárum sínum eöa sumariö 1974 vann hún á Vísi. — Þaö var eina undirstaöa mín í blaða- mennsku, þegar ég tók við Lífi. En ég haföi verið meö nokkurn áhuga á blaði af þessu tagi alllengi. Fannst einhvern veginn aö þaö vantaöi hér og það sem studdi þetta var hversu margir sækja í að kaupa erlend blöð af svipuöu tagi. Þaö varö úr aö ég sneri mér til Jóhanns Briem með þessa hug- mynd og síðan var fariö aö vinna úr henni meö þeim árangri aö blaöiö er nú staðreynd og viröist ætla að lifa af. í Líf er ýmislegt á boöstólum og ofmælt aö segja það fjalli einvörö- ungu um tízku. Þar eru einnig greinar um listir og menningarmál, greinar og viðtöl um ýmis efni. — Við vildum ekki kalla þetta kvennablaö, svo var á endanum ák^eöiö aö kalla þaó tízkublaö. Ég hefði viljaö aö þaö héti þara Líf... Ég sé ekki minnstu ástæöu til þess að karlmenn geti ekki einnig lesiö blaöiö. Þar er ýmislegt tekið fyrir sem hlýtur aö höföa til þeirra ekkert síöur. Greinar um listir, tízku, heimili og börn. Er þetta nokkurt einkamál kvenna — allra sízt nú? Ég hef líka oröið þess vör aö karlmenn glugga töluvert í þlaðið. Við reynum að hafa þarna greinar um margvísleg efni, á lifandi og aögengilegu máli. Tökum málefni sem eru kannski í eöli sínu þung og viö reynum aö fjalla um þau frá einhverri nýrri hlið og einfalda þau. Mörgu fólki — ekki sízt hinu svonefnda menntafólki — hættir til aö koma sér upp formúl- um og frösum í skrifum sínum þannig aö fólk skilur ekki hvað er veriö að tala um. Þetta reynum viö að forðast fyrir alla muni. — Jú, stundum er ég skömmuö, segir hún. — Skólafélagar mínir eöa kennarar veita mér ákúrur fyrir aó taka þátt í aö gefa út yfirborðs- kennt tízkublað eins og sumir kalla það. Tízkumyndirnar fara oft í taugarnar á fólki: þær sýna ef til vill konu í kynþokkafullri stööu — sjáðu, eins og forsíöan á þessu blaði. Og svo er önnur mynd þar sem konan horfir upp til karl- mannsins og kannski verður lesin aödáun úr augnaráöinu. Þá eru sumir snarir í snúningum aö leggja út: hér er eina feröina enn veriö að gera lítiö úr vitsmunaverunni, kon- unni, og undirstrikuö er konan sem kynvera, og þar meö sé viðhaldiö gamalli útjaskaðri mynd sem stuöli svo að því aö viöhalda mismunun kynjanna ... o.s.frv. Mér flnnast tízkumyndir, vel geröar og snjallar, brot af listaverki. Ljósmynd er túlkun á sinn hátt og viö höfum lagt mikið upp úr vönduðum vinnu- „Umræðan um jafnrétti og vinstri aldan hafði mikil áhrif og þá fékk ég þann stimpil að ég væri hægri glanspía.. .„ brögöum viö þá gerö tízkumynda sem birtast í blaðinu. Tízkuljós- myndirnar í Lífi eru auglýsingar og því þurfa þær aö bera í sér fleira — m.a. gera þann fatnaö eóa þá vöru, sem er verið aö kynna, eftirsóknar- veröa. Ég fæ ekki séö neina lítil- lækkun í því, og felli mig ekki viö aö fólk geti ekki litið í kringum sig án þess aö sjá drauga í hverju horni. Mér finnst konur eiga aö hafa öölast það mikiö sjálfstraust aö þær geti tekið svona án þess aó fá högg í hjartaö og sjá í því einhvers konar ofsókn. Nú, sumir hafa áhuga á fatnaöi og aðrir ekki. Þaö er alveg ágætt aö fólk hafi í sér löngun til aó líta sæmilega út. Umfram allt finnst mér þó aö fólk, karlar sem konur, veröi aö móta sinn eigin smekk og leyfa ímyndun- araflinu aö vera með í leiknum, en stunda ekki öpun og eftirlíkingu. Ég er ekki hlynnt því aö hlaupa eftir öllu því nýjasta sem upp kemur bara af því aö einhverjum tísku- frömuöum í útlöndum dettur það í hug. Fyrir nú utan hvaö þaö er dýrt. — Hefur þú sjálf áhuga á fatn- aði? — Mér finnst fallegur fatnaður gleðja augaö en ég tala ekki um fatnað aó fyrra bragói og legg ekki mikið upp úr eigin klæöaburöi. Ég hef unnið viö aö gera þessar Ijósmyndir, og hef að ýmsu leyti haft gaman af, vegna þess aö þaö er þáttur af starfi mínu. Viö vinnum saman, Ijósmyndari, auglýsinga- stjóri, fyrirsæturnar og ég. Veljum fötin, finnum umgeröina og vinnum upp hvernig hreyfingar skuli vera og hvaö undirstrikað skuli á mynd- unum. — Hvað finnst þér gaman? — Mikiö af mínum tíma hefur farið í vinnu. Vinnu, sem ég hef haft ánægju af. Á næstunni losna ég viö tízkuljósmyndirnar því aö sérstakur starfsmaöur kemur í þaö. Þá hef ég meiri tíma. Ég hef tekið að mér smávegis þýöingar. Svo eigum viö Egill hesta upp í Víöidal og stund- um reiömennskuna, hann þó öllu meira. Viö eigum sumarbústaö með fjölskyldunni og förum oft þangaó. Viö skreppum stundum í leikhús, sjaldnar í bíó. Ég fer stundum á hljómleika upp í M.H. og hlusta á Megas, Þokkabót eóa annaó gott. Einnig er gaman að fara í félagsstofnun stúdenta og hlusta á t.d. jazz. En við förum ekki mikið út að „skemmta okkur". Þó var ég heilmikiö skemmtanafrík hér áöur, en oftast var þó kætin í hófi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.