Morgunblaðið - 20.05.1979, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1979
29
Pottasleikir
Hæ, krakkar!
Mikið er ég spenntur að heyra, hvort nokkurt ykkar
hefur reynt að borða „grænmetisuppskriftina" mína!
Ég er ekki af baki dottinn, ef þið haldið það! Og þið
megið heldur ekki gefast upp. Pönnukökur — ammi
nammmmmmm!
Ég vildi óska þess, að mér væri boðið í pönnukökuveislu
hjá ykkur! Bjóðið vinum ykkar — og hafið ekkert á
boðstólnum nema pönnukökur. Það er alveg óþarfi að
vera með sautján sortir af kökum og brauði. — Eruð þið
ekki sammála! Gangi ykkur vel — Gefist ekki upp!
Ykkar sami einlægi Pottasleikir og allir hinir.
2 dl. hveiti 3 dl. mjólk
V* tsk. lyftiduft W tsk. vanilludropar
Va tsk. salt 1 '/2 msk. matarolía
1 egg
Svona bakar þú pönnukökurnar
1. Hitaðu pönnuköku-
pönnuna, hún má ekki
verða of heit.
2. Helltu það miklu deigi
á pönnuna, að hún þek-
ist alveg.
3. Þegar pönnukakan hef-
ur stífnað og hún er
orðin hæfilega brún að
neðan, verður þú að
snúa henni við.
Mundu eftir að losa
hana frá kantinum áð-
ur en þú snýrð henni.
4. Bakaðu pönnukökuna á
hinni hliðinni og stafl-
aðu þeim siðan á disk.
Þú getur ýmist vafið
pönnukökurnar upp eða
brotið þær saman. Þú set-
ur strásykur, púðursykur
eða aldinmauk innan í
þær og rjóma til hátíðar-
brigða. Mundu að kæla
þær vel áður en þú setur
rjóma innan í þær.
Pönnukökur eiga að vera, hæfilega
þunnar, fallega jafnt bakaðar.
Svona býrðu til deigið »
1. Blandaðu saman hveiti, lyftidufti og salti.
2. Þeyttu eggið í skál og hrærðu mjólkinni saman við.
3. Hrærðu helmingnum af vökvanum saman við hveitið, hrærðu
vel í kekkjalausan jafning.
4. Hrærðu því sem eftir er af vökvanum saman við ásamt dropunum
og matarolíunni.
Hefurðu heyrt
’ann
Getur þú sagt mér, Pétur
minn, af hverju sjórinn er
svona saltur?
Já, það hlýtur að vera í
sambandi við alla síldina í
honum!
Eitt af okkar fallegu sófasettum klætt meö
skinni eöa taui
Hverfisgötu 76 — S. 15102.
tvöföld líming
margföld
ending
Tvöfalda límingin hefur valdið þáttaskilum í
framleiðslu einangrunarglers og marg-
sannað þrautreynda hæfni sína.
Helstu kostir tvofaldrar limmgar
1 Margfalt meiri þéttleiki gagnvart raka
2 Minm kuldaleiðni, þar sem ruður og loft
rúmslisti liggja ekki saman
3 Meira þol gagnvart vindálagi
Með fullkomnustu vélum sem völ er á getur
Glerborg hf. því boðið viðskiptavinum
sínum einangrunargler - tvöfalt - þrefalt -
fjórfalt - þar sem gæði og ending eru marg-
falt meiri og betri en nokkru sinni fyrr.
Með vel skipulagðri þjónustu og ráðgjöf
verða viðskiptin auðveldari og ánægjulegri
- já þú ættir að glugga í okkar gler.
LOFTRÚM
GLER
ÁLLISTI
MILLIBIL
PÉTTILISTI
RAKAEYOINGAREFNI
SAMSE TNINGARLIM