Morgunblaðið - 22.06.1979, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ1979
3
Olíufélögin
vfljahækkun
í júlíbyrjun
Benzínið í 310 krónur og gasolían í 160 krónur
OLÍUFÉLÖGIN hafa ritað verðlagsyfirvöldum bréf og
óskað eftir því að fá að hækka verð á olíuvörum í byrjun
júlí vegna þess að þá komi í sölu nýir og dýrari farmar
af Rússlandsolíu. Telja olíufélögin nauðsynlegt að
hækka hvern lítra af benzíni úr 256 í tæplega 310
krónur, hvern lítra af gasolíu úr 103 í tæpar 160 krónur
og hvert tonn af gasolíu úr 52.900 krónum í tæplega 70
þúsund krónur.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. hefur aflað sér er áætlað að
nýjar og dýrari birgðir af gasolíu
komi í sölu í byrjun júlí og nýjar
birgðir af benzíni og svartolíu
nokkrum dögum síðar. Sem kunn-
ugt er höfðu olíufélögin óskað
eftir því að fá að hækka olíuvörur
í áföngum, fyrst 15. júní og síðan
aftur í júlí en viðskiptaráðherra
hafnaði þeirri beiðni.
I beiðni olíufélaganna um hærra
benzínverð er ekki reiknað með
hækkun á vegagjaldi til samræmis
við hækkun byggingarvísitölu eins
og ríkissjóður hefur heimild til. Ef
ríkissjóður ákveður hækkun vega-
gjalds við þessa verðákvörðun
mun það væntanlega hækka benz-
ínlítrann um 12—13 krónur um-
fram það sem olíufélögin telja
nauðsynlegt.
Flóttafólk
frá Víetnam;
Málið í salt
hjáríkis-
stjórninni
RÍKISSTJÓRNIN írestaði því
á fundi sínum í gærmorgun að
taka afstöðu til þess hvort
tekið verður við fimmtíu
flóttamönnum frá Víetnam,
eins og Flóttamannahjálp
Sameinuðu þjóðanna hefur
farið fram á.
Magnús Torfi Ólafsson
blaðafulltrúi ríkisstjórnarinn-
ar sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að ráðherrar vildu
kanna málið nánar áður en
lokaákvörðun verður tekin, og
væri alls óákveðið hvenær það
yrði gert.
Höskuldur Jónsson ráðuneytis-
stjóri sagði í gær að þessi mál
væru nú til athugunar. I fjárlög-
um væri gert ráð fyrir því að
vegagjald hækkaði tvisvar á þessu
ári og hefði það þegar verið
hækkað einu sinni. Framkvæmdir
Vegagerðarinnar væru miðaðar
við það að vegagjaldið yrði hækk-
að og myndi Vegagerðin lenda í
fjárhagsvandræðum ef það yrði
ekki gert.
Við fiskverðsákvörðunina á dög-
unum lýsti rikisstjórnin því yfir
að gasolía og svartolía til fiski-
skipa yrði ekki hækkuð á þessu
fiskverðstímabili, en fiskverðið
gildir til 1. október. Hyggst ríkis-
stjórnin greiða niður olíuna til
fiskiskipaflotans, þ.e. þær hækk-
anir sem verða umfram það verð
sem nú er. Er áætlað að mánuðina
júlí—september kosti niður-
greiðslurnar ríkissjóð 1900 mill-
jónir króna og eins og fram hefur
komið í Mbl. er nú verið að leita að
leiðum til að afla þessa fjár. Er
helst rætt um hækkun á söluskatti
eða sérstakt gjald á innflutning.
Kristján Guðmundsson, skipstjóri:
Ummæli
Ingólfs ósönn
VEGNA yfirlýsingar Ingólfs
Ingólfssonar formanns F.F.S.Í.
varðandi fund er forstjóri Eim-
skips Hr. Óttar Möller hélt með
skipstjórum félagsins hinn 20.
júní vil ég taka fram eftirfarandi.
Ummæli Ingólfs eru að öllu
leyti ósönn.
Á fundi þessum óskaði forstjóri
eftir því að skipstjórar kynntu sér
hvernig þeir stæðu lagalega í
þeirri deilu er upp væri komin.
Var það sérstaklega tekið fram að
engin hótun væri í þessu, heldur
sérstök ábending vegna ákvæða
sjómannalaga um stöðu skip-
stjóra.
Var sérstaklega tekið fram af
forstjóra, að hann virti þá fundar-
samþykkt sem við værum aðilar
að að samþykkja, þótt ekki væri
hann sammála um lagagildi
hennar.
Allar fullyrðingar Ingólfs
Ingólfssonar um hótanir eða
kúgunaraðgerðir eru ósannar og
óskiljanlegur tilgangur þeirra.
Ef andrúmsloft í undangenginni
kjaradeilu hefur verið samkvæmt
þessari yfirlýsingu er skiljanlegt
hvers vegna endalok urðu jafn
glæsileg og reynslan hefur sýnt.
Að lokum vil ég taka fram, að
vegna ákvæða í 13. grein C-liðs
vélstjórasamnings og 19. greinar
samnings stýrimanna hef ég álitið
yfirvinnubann það sem samþykkt
var samskonar lagabrot og þótt
við hefðum með öllu neitað að
hlýða settum bráðabirgðalögum.
Reykjavík 21. júní 1979.
Kristján Guðmundsson
skipstjóri m/s. ÚÐAFOSS
Leidangrar felldir niður
vegna viðgerða á skipum
Unnið að viðgerð um borð í Bjarna Sæmundssyni í gær, en mikil tæring var komin neðst í brúna á
samskeytum milli áls og járns. (Ljó.sm. Krístján).
Erf iðleikar Haf rannsóknastofnunar:
í MEIRA en mánuð hefur
verið unnið að viðgerð á
hafrannsóknaskipinu
Bjarna Sæmundssyni, en
mikil tæring var komin
neðst í brú skipsins. Höfðu
gárungar á orði að í gegn-
um rifur mætti sjá allt
Atlantshafið og að ástand-
ið hefði verið orðið svo
slæmt að brúin gæti farið
af í heilu lagi ef eitthvað
yrði að veðri.
Brú skipsins er úr áli, en undir-
staðan úr járni og fljótlega eftir
að Bjarni Sæmundsson kom til
landsins fór að koma í ljós tæring
á samskeytunum. Því var vitað
fyrir mörgum mánuðum að þessi
viðgerð þyrfti að fara fram, en
hins vegar var reynt að draga
hana þar til skuttogarinn Hafþór,
áður Baldur, yrði kominn í gagnið.
í áætlunum um skip Hafrann-
sóknastofnunar, sem gerð var í
desember sl. var reiknað með að
Bjarni Sæmundsson færi í þessa
viðgerð í maímánuði, en Hafþór
yrði þá fyrir löngu kominn til
starfa. Svo er þó ekki enn og
erfiðleikar stofnunarinnar í skipa-
málum því veruiegir. Hefur orðið
aö fella niður áður skipulagða
leiðangra og einnig að nýta rann-
sóknaskipin Án.u F: ór’ksson og
Dröfn meira og öðru vísi on áður
hefur veriðgert. Það bætir ekki úr
skák að viðgerðinni á Bjarna
hefur dregist á langinn, en er nú
um það bil að ljúka.
Jón Magnússon starfsmannastjóriEÍ:
Furðuleg yfirlýsing
forseta F.F.S.Í.
„MÉR finnst þetta vera furðuleg
yfirlýsing forseta Farmanna- og
fiskimannasambands íslands,“
sagði Jón Magnússon starfs-
mannastjóri Eimskipafélags ís-
lands í samtali við Morgunblaðið
í gær og vitnaði hann þar til
ummæla Ingólfs Ingólfssonar í
samtali við Morgunblaðið sem
birtist í blaðinu f gær. Jón sagði
að sá þáttur yfirlýsingar Ingólfs,
sem sneri að Eimskipafélaginu,
vægi að sér og Óttari Möller
forstjóra félagsins.
„Ingólfur heldur því fram,“
sagði Jón, „að ég og forstjórinn
hafi haldið reiðilestur yfir skip-
stjórum félagsins og haft í hótun-
um við þá. Þ*£ta er algjör fjar-
stæða, sem ekki er hægt að láta
óátalda. Hefði mér fundizt eðli-
legt, að einhver þeirra, er sátu
fundinn hefðu tjáð sig um hann,
því að Ingólfur Ingólfsson var þar
alls ekki viðstaddur."
„Á fundinum voru allir þeir
skipstjórar, sem voru hér tiltækir
í landi eða 16 skipstjórar af 24
skipstjórum félagsins, þar á meðal
formaður skipstjórafélags íslands
Ásgeir Sigurðsson. í upphafi fund-
arins gat forstjórinn þess að hann
hefði fyrst og fremst kallað þá
saman vegna þess að líklegast yrði
þetta síðasta tækifæri hans til
þess að geta séð saman flestalla
skipstjóra félagsins, þar sem hann
væri að láta af störfum 1. ágúst.
Hóf hann mál sitt á því að þakka
skipstjórunum góð störf og sam-
vinnu þau 17 ár, sem hann hefði
verið forstjóri. Tók hann jafn-
framt fram að sumir hefðu starf-
að álíka lengi og hann og hefði
hann þekkt þá elztu í um það bil
40 ár. Hann gat þess jafnframt að
Hörður Sigurgestsson væri kom-
inn til starfa, en gæti því miður
ekki setið fundinn og þeir Hörður
myndu vinna saman sem forstjór-
ar félagsins fram að 1. ágúst.“
„Að sjálfsögðu," sagði Jón
Magnússon, „var rætt um málefni
félagsins og skipverja og samstarf
og stöðu félagsins vítt og breitt og
ekki er því að leyna að þar var
minnst á kjaradeiluna og yfir-
vinnubannið. í því efni var ekki
verið með neinar hótanir í garð
eins eða neins, heldur gat Óttarr
þess að hann væri ekki lögfróður
maður, og því gæti hann ekki
skorið úr um lögmæti aðgerðanna.
Það væri annarra að meta það.
Nefndi hann það að menn athug-
uðu hver fyrir sig sína stöðu og
sinn gang í sambandi við þessi
mál, þetta myndi að sjálfsögðu
valda töfum og erfiðleikum, það
væri ljóst.“
Jón Magnússon kvað menn hafa
skipzt á skoðunum um þessi atriði
og kvaðst Jón hafa ákveðnar
hugmyndir um yfirvinnubannið.
„Það vil svo einkennilega til að við
höfum verið minntir á það í
þessari kjaradeilu og samninga-
umleitunum, að þessi hópur væri
einn af fáum hópum, sem væri til
reiðu í þjónustu fyrirtækisins,
hvort sem væri að nóttu eða degi
og í því eru engar hömlur í
samningunum. Þar stendur t.d. í
stýrimannasamningi: „þegar
hafnarvaktir eru staðnar, telst
vinnutími stýrimanna vera 8
klukkustundir frá klukkan 08 til
12 og frá klukkan 13 til 17, en
skylt er stýrimanni að vinna á
öðrum tíma, samkvæmt ósk út-
gerðar, enda verði slík vinna
greidd með yfirvinnu." Þá eru
ákvæði um það hvað útkall í
heimahöfn kostar. Því tel ég
furðulegt að lýsa því yfir að
yfirvinnubannið sé réttmætt. Því
tel ég fyrir mitt leyti að þetta sé
samningsbrot. Hitt er annað mál
að það má segja þeim til hróss að
þeir hafa þurft að koma til skips
hvenær sólarhrings sem er annað
hvort til að færa skip eða fara, en
þetta er eðli sjómannsstarfsins.
Vona ég, að sá, sem hefur talað við
lngólf hafi misskilið hann, því að í
niðurlagi viðtalsins við hann er
heldur vegið illilega að okkur
þegar talað er um ögranir og
hótanir og sagt, að það sé gömul
reynsla af því hjá Eimskipafélag
inu. Ef þetta er ekki misskilning-
ur, þá hef ég í mínu starfi vaðið í
villu undanfarin ár, því að ég
kannast ekki við að slíkum vinnu-
brögðum hafi verið beitt hjá
fyrirtækinu," sagði Jón Magnús-
jon að lokum.