Morgunblaðið - 22.06.1979, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 22.06.1979, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ1979 Sigþór Ómarsson (nr. 11) skorar annað mark ÍA, án Þess að Þeir Sigurður Har- aldsson og Grímur Sæm- undsson komi nokkrum VÖrnUm VÍð. Ljósm. Emlira. Skagamenn betri ÁHORFENDUR voru íarnir að sœtta sig við jafntefli 2—2 í leik Vals og ÍA í gærkvöldi á Laugardalsvellinum. Það var aðeins um minúta til lciksloka, er Sigurður Lárusson ÍA fékk góða þversendingu og brunaði upp kantinn og upp að endamörkum, gaf vel fyrir markið og þar kom Guðbjörn Tryggvason á fullri ferð og stökk vel upp og þrumuskalli hans söng í netmöskvunum án þess að góður markvörður Vals Sigurður Haraldsson kæmi vörnum við. Sanngjarn sigur ÍA var í höfn þó svo að hann kæmi á elleftu stundu. Lið ÍA sýndi mjög góða knattspyrnu í leiknum og oft á tiðum yfirspiluðu þeir Valsmenn algjörlega. Þrátt fyrir að lið Vals léki á köflum vel og þó sérstaklega í síðari hluta seinni hálfleiks. Opin tækifæri misnotuð Byrjun leiksins var afar lífleg, og leikurinn varð strax mjög opinn. Ekki voru liðnar nema fjórar mínútur er fyrsta dauða- færið kom. Ólafur Danivalsson gaf vel fyrir markið til Magna sem var fyrir opnu marki og ekkert nema mark virtist blasa við, en í mark- vörðinn skaut Magni og hættunni var bægt frá. Mínútu síðar skallar Árni Sveinsson svo yfir mark Vals í góðu færi. Og á 6.-7. mínútu á Sigurður Lárusson góð skot sem sleikja slárnar. Skagamenn sóttu öllu meir fyrstu mínútur leiksins, og náðu öllu betri tökum á miðj- unni. Glæsilegt mark Á 11. mínútu leiksins kemur fyrsta markið. Sigurður Lárusson skaut þrumuskoti rétt utan við vítateigslínu og aðeins með því að sýna snilldartilþrif tekst Sigurði markverði Vals að verja, en hann hélt ekki boltanum sem hrökk út til Sigþórs Ómarssonar sem tók boltann viðstöðulaust og skoraði glæsilega. Var sem að drægi úr Valsliöinu við að fá á sig mark. IA-menn náðu enn betri tökum á miðju vallarins og léku mun betur saman. Á 17. mínútu á Sigþór, sem gerði mikinn usla í vörn Vals, góðan skalla rétt yfir þverslá. Árni Sveinsson var nálægt því að skora skömmu síðar en Sigurður bjargar vel skoti hans. Það var ekki oft í fyrri hálf- leiknum sem mark ÍA var í hættu. Þó skall hurð nærri hælum á 45. mín. er Sævar tók aukaspyrnu langt utan vítateigs og Jón Þor- björnsson hélt ekki boltanum, Ólafur fylgdi vel á eftir og náði til boltans, en í stað þess að reyna að vippa yfir .markvörðinn tók hann skot og Jón gat bjargað. Stórkostlegur síðari hálfleikur Síðari hálfleikur var hreint út sagt stórkostlegur. Hann bauð upp á allt sem gefur knattspyrnunni gildi. Spennu, góða knattspyrnu og glæsileg mörk. Strax á 2. mínútu hálfleiksins kemur glæsileg sókn hjá ÍA. Sig- þór Ómarsson gefur langa sendingu á Árna Sveinsson sem skallar að marki Vals en boltinn hrekkur út af varnarmanni til Sveinbjarnar sem býst upp að endamörkum og gefur fyrir markið frá markteig. Árni Sveins- son skallar að marki og Sigþór bætir um betur og skallar í netið. Valur ÍA 2—0. Örugg forusta ÍA. Nú voru Skagamenn langt komnir með að kveða Valsliðið í kútinn. Og nú skall hver sóknin á fætur annarri á vörn Vals. Á 56. mínútu á Árni Sveinsson stórgott skot sem stefndi beint upp í vinkilinn, markið blasti við, en Sigurður varði enn af snilld. Og fjórum mínútum síðar bjarga Valsmenn á línu. Sigurður hafði varið gott skot Árna og eftir þvögu innan markteigsins bjargar Sævar á linu. Fyrstu 20 mínútur síðari hálf- leiksins voru Valsmenn gjörsam- lega yfirspilaðir. Enn þeir höfðu alls ekki sagt sitt síðasta. Þeir komast inn í leikinn á 67. mínútu. Hálfdán Örlygsson brunaði upp miðjan völlinn, óhindraður og renndi boltanum laglega út á Jón Einarsson sem sendi fyrir markið. Sigurði Lárussyni verður á mistök í að hreinsa frá og skallar hann í stöng. Þaðan fór boltinn til Atla Eðvaldssonar sem var ekki í vand- ræðum með að skora létt fyrir opnu marki. Valsmenn eflast Nú var sem einhver tauga- trekkingur kæmi í Skagamenn. Varnarleikur þeirra fór að verka óöruggur og Valsmenn eflast. Skagamenn misstu Sigþór Ómars- son, einn sinn besta mann út af meiddan á 64. mínútu leiksins og inn í hans stað kom Guðbjörn Tryggvason. Nú var komið að Valsmönnum að sækja og á 82. mínútu leiksins jafnar Jón Einarsson leikinn. Hálfdán Örlygsson tekur hornspyrnu og Jóni tekst að skora með skalla. Þarna svaf Jón Þorbjörnsson markvörður ÍA illa á verðinum. Síðustu mínútur var jafnræði með liðunum. Sigurmarkið Það hlýtur að vera draumur hvers einasta leikmanns að geta fært liði sínu sigur á þann hátt sem Guðbjörn Tryggvason gerði í gær. Jafnteflið lá í loftinu. Mínúta tæplega til leiksloka. Góð fyrir- gjöf frá Sigurði Lárussyni og svo sannarleg var Guðbjörn með á nótunum, enda fór flóðbylgja fagnaðarláta um stúku Laugar- dalsvallarins frá dyggum stuðningsmönnum ÍA er Guðbjörn tryggði sigurinn og ekki fögnuðu félagar hans honum minna. Liðin Lið IA lék sinn besta leik í íslandsmótinu til þessa, á því er ekki nokkur vafi. Samleikur þeirra og leikfléttur voru mjög góðar. Þá voru skiptingar þeirra stórgóðar á milli kanta, vallarbreiddin nýtt til fullnustu, og leikmenn skiluðu boltanum frá sér á réttum augna- blikum. Ekki vafi á að hinn þýski þjálfari er á réttri leið með að koma með stórlið. Erfitt er að gera upp á milli einstakra leik- manna IA. Það var sterk liðsheild sem vann sigurinn. Lið eru aldrei sterkari en veikasti hlekkurinn. Þó er rétt að geta um stórgóða frammistöðu Sigþórs Ómarssonar, Árna Sveinssonar, Sveinbjörns og Sigurðar Lárussonar. Lið Vals verður með í barátt- unni í sumar, þeir léku nú án Guðmundar Þorbjörnssonar og Harðar Hilmarssonar. Og ekki er vafi á að það hafði sín áhrif. Liðið mætti sýna meiri baráttu á vellinum, það gefur of auðveldlega eftir ef á móti blæs. Dýri Guð- mundsson og Sigurður Haraldsson voru bestir í gær. - þr. Erfitt hjáVal Segja má, að bikarmeistarar Akraness hafi verið heppnir í drættinum, er dregið var í 16 liða urslit í Bikarkeppni KSÍ í gær- kvöldi. Mótherji ÍA er annað hvort Austri frá Eskifirði, eða Þróttur frá Norðfirði, eftir því hvort liðið sigrar í innbyrðis viðureign félaganna. Valur, lið sem IA lagði að velli í úrslitaleiknum í fyrra, fékk erfiðari mótherja, Víking, sem hefur verið að vakna til lífsins að undanförnu. En lftum á dráttinn. UBK— Fylkir KA—Fram Í A—Austri eða Þróttur Nk Haukar—Þróttur Rk Víkingur—Valur KR-KS Þór Ak-ÍBV ÍBK-ÍBÍ Leikirnir fara fram dagana 3.-4. júlí, en frá því verður nánar greint síðar. — gg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.