Morgunblaðið - 22.06.1979, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.06.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1979 5 Grundarfjöróur: Stjórnvöld taki ákvördun um fiskimjöls- verksmidju Grundarfirði, 6.6. HREPPSNEFND Eyrarsveitar skorar á stjornvöld að dvelja ekki lengur en orðið er við að taka ákvörðun um að heimila Jöklamjöli hf. að reisa fiski- mjölsverksmiðju í Grundarfirði. Það er öllum til vansa og víðsfjarri hugmyndum manna um nýtingu sjávarafla að allan úr- gang úr feitum fiski verði að keyra í sjóinn eða fara með hann eftir ónýtu þjóðvegakerfinu svo hundr- uðum km skiptir. Hreppsnefnd Eyrarsveitar leggur á það áherzlu, að samtímis því að flotanum er gert skylt að veiða aðrar fiskteg- undir en þorsk, jafnvel mánuðum saman, verði að vera fyrir hendi aðstaða í landi til að nýta það hráefni sem berst. Skortur slíkrar verksmiðju á Snæfellsnesi hefur hindrað eðli- lega þróun fiskveiða á svæðinu. I Grundarfirði er fyrir gömul beinamjölsverksmiðja, sem er ófullnægjandi á allan hátt og kann svo að fara að rekstri hennar verði hætt fyrr en varir. Flestum er ljóst að nú er ekki mikið olnbogarými fyrir fjárfestingu, en hitt vita allir að það er ekki sæmandi siðmenntuðum mönnum að kasta á glæ stórkostlegum verðmætum eins og nú er látið viðgangast. Emil Davíð Oddsson. Sjúkrasamlag Reykjavíkur: Davíð Oddsson ráðinn fram- kvæmdastjóri DAVÍÐ Oddsson lögfræðingur var nýlega ráðinn framkvæmda- stjóri Sjúkrasamlags Reykjavík- ur. Auk Davíðs sótti Gunnar Gunnarsson framkvæmdastjóri Starfsmannafélags ríkisstofnana um starfið. Davíð Oddsson er 31 árs gamall. Að loknu lagaprófi 1976 var hann ráðinn skrifstofustjóri Sjúkra- samlagsins. Hann tekur nú við framkvæmdastjórastarfinu af Gunnari Möller, sem lætur af störfum að eigin ósk. Davíð hefur verið borgarfulltrúi í Reykjavík síðan 1974. Hann er kvæntur Ástríði Thorarensen og eiga þau einn son. Síðustu fossam- ir verða farnir í lok næstu viku SAMKVÆMT upplýsingum Sigurlaugs Þorkelssonar, blaðafulltrúa Eimskipafélags Islands, var Brúarfoss fyrsta skip félagsins, sem lagði úr höfn að loknu verkfalli. Fór hann til hafna á ströndinni að ferma frystan fisk til Bandaríkjanna, en víða eru tilfinnanleg þrengsli í frystigeymslum, frystihúsa. Bæjarfoss er að lesta frystan fisk til Bretlands og Þýzkalands, Ljósafoss frosið minkafóður til Finnlands, Selfoss, Goðafoss og Stuðlafoss verða útlosaðir í Reykjavík í næstu viku og ferma þá frystan fisk, Selfoss til Banda- ríkjanna, Stuðlafoss til Bretlands, og meginlandsins og Goðafoss til Rússlands. Háifoss fór frá Reykjavík í fyrrakvöld til Helsingborgar og Kaupmannahafnar og tekur þar fullfermi af vörum. Mánafoss fór frá Reykjavík í gær til Hamborgar með skreið, saltfisk, lýsi, hvalkjöt og lagmeti, en tekur fullfermi af vörum í Hamborg til Reykjavíkur í næstu viku. Bakkafoss fór í gær til Ports- mouth og fermir vörur til Islands 2. júlí. Reykjafoss fer frá Reykja- Biskup vísiter- ar á Vestfjörðum BISKUP vísiterar eftirfarandi kirkjur í ísafjarðarprófastsdaemi: Unaðsdal, föstudaginn 22. júní kl. 14, Suðureyri laugardag 23.6. kl. 14, Flateyri sunnudag 24. júní kl. 13.30 og Holt í Önundarfirði sama dag kl. 15.30. svo að liggur við stöðvun vík í dag til Kaupmannahafnar og Riga og fermir til íslands. Skógar- foss tekur saltfisk og hrogn í Hafnarfirði og siglir þaðan í dag til Rotterdam og Antwerpen og losar og lestar þar í næstu viku. Úðafoss fer sömuleiðis frá Hafn- arfirði í dag til Gautaborgar og lestar þar um 27. júní. Unnið verður áfram að losun annarra skipa Eimskipafélagsins og sigla þau flest í næstu viku. Dettifoss tekur vörur í Felixstowe 2. júlí til Reykjavíkur. Lagarfoss losar ósekkjaðan áburð í Gufunesi í dag og á mánudag, en fer til Antverpen og Rotterdam að því loknu og fermir vörur til íslands. Álafoss, írafoss, Múlafoss, Tungufoss og Urriða- foss fara frá Reykjavík í lok næstu viku með útflutningsafurðir, aðal- lega mjöl, síld til Finnlands og Rússlands og lesta síðan á Eystra- salts- og Norðurlandahöfhum. Fjallfoss lýkur losun á áburði á Húsavík á morgun, laugardag, og siglir þaðan til Ósló, Moss, Krist- iansands, og Stafangurs, þar sem hann tekur vörur til Islands. Skeiðsfoss er að losa áburð á Norður- og Austfjarðahöfnum og lestar síðan saltfisk til Italíu. Kljáfoss fer frá Reykjavík í lok næstu viku til Weston Point og tekur fullfermi til íslands. Laxfoss fer frá Reykjavík í kvöld með fullfermi af vörum til Akureyrar. 1*1 AUa.VSIK l'M ALLT LAND ÞEdAR Þt' Al'GLÝSIR 1 MORGl'XBLAÐINt Forsetahjónin heimsækja Mön FORSETI (slands hr. Kristján Eldjárn og frú Ilalldóra Eldjárn hafa þekkst boð landsstjórnar eyjarinnar Manar að taka þátt í hátíðarhöldum þar í tilefni af þúsund ára af- mæli Tynwalds, þings Manarbúa, dagana 23. til 28. júní n.k. Flogið verður frá Keflavíkur- flugvelli að morgni dags laugar- daginn 23. júní um London og lent á Ronaldsway flugvelli á eynni Mön kl. 17.30. Síðan verður mót- taka í stjórnarhúsinu í boði lands- stjórans, Sir John Warburton Paul, og kvöldverður í boði hátíð- arnefndarinnar. Að morgni dags sunnudaginn 24. júní fara forsetahjónin til guðþjónustu í Royal Chapel í St. Johns. Því næst verður hádegis- verður í boði forseta þingsins. Eftir hádegi mun dr. D. Wilson, forstjóri British Museum, og hr. M. Cubbon, forstjóri Manx Museum, sýna forsetahjónunum fornminjar á sunnanverðri eynni. Mánudagsmorgun 25. júní fara forsetahjónin í kurteisisheimsókn til borgarstjórans í Douglas. Síð- an verður farið í skoðunarferð um norðanverða eyna og St. Patricks eyju. Um kvöldið verður opinber veisla í boði landsstjórans. Þriðjudagsmorgun 26. júní verða ýmsar verksmiðjur og fiskvinnslustöðvar sóttar heim. Síðan verður haldið til Calf of Man og eyjan skoðuð. Síðdegis er þátttaka í opnunarathöfn Tyn- wald þjóðgarðsins í St. Johns. Miðvikudaginn 27. júní verður haldið upp á fjallið Snaefell, og síðdegis er þátttaka í svokölluðum víkingahátíðarhöldum í Peel. Fimmtudagsmorgun 28. júní verður haldið flugleiðis heim um London og komið aðfaranótt föstudags til Keflavíkur. I fylgd forsetahjóna verður Sigurður Bjarnason, sendiherra Islands í London og kona hans, og Birgir Möller forsetaritari og kona hans. Allir búa gestirnir í húsi landsstjórnarinnar meðan þeir dveljast á eynni. TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS KARNABÆR )i 66, sími frá skiptiborði 28155

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.