Morgunblaðið - 22.06.1979, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.06.1979, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ1979 Messugcstir Kuntta úr hinni tæplcga 100 ára Komlu kirkju að hátíðarguðsþjónustu lokinni. Þjóðhátíðarmessa að göml- um sið iHrafnseyrarkirkju Ferðaáætlun Ferða- miðstöðvarinnar 1979 EINS og endranær var sungin messa að Hrafnseyri, fæðingar- stað Jóns Sigurðssonar, á 17. júní. Séra Lárus Guðmundsson í Holti Önundarfirði, sem gegn- ir aukaþjónustu í Þingeyrar- prestakaili, þjónaði fyrir altari en Finnbogi Hermannsson kennari á Núpi predikaði. Þrátt fyrir rysjótt veður var hvert sæti skipað í kirkjunni bæði fólk úr sókninni og eins mörgu frá Þingeyri. Kirkjukór- inn á Þingeyri söng, en söng- stjóri og organisti er áströlsk kona sem búsett er á Þingeyri og gift þar íslenskum manni. A eftir messu þágu kirkjugest- ir góðgerðir hjá staðarhaldara, Hallgrími Sigurðssyni, og konu hans Guðrúnu Steinþórsdóttur. Sá skemmtilegi siður hefur tíðkast um langa hríð, að kirkju- kórinn hefur komið saman í Hrafnseyrarkirkju eftir messu á 17. júní og sungið sér til ánægju og þeim sem inn slæðast. Var þarna mikil stemning í þessari gömlu kirkju, sem byggð Laxinn seinn í árnar og hoplax enn á ferð Laxveiðisumar gæti þó orðið gott, segir veiðimálastjóri laxinn mun fyrr af stað og aðaltíminn væri aprílmánuður. Aðspurður um laxveiði þar sem af er veiðitímanum og göngu laxins í árnar sagði Þór, að sá lax, sem gegi í árnar, væri einnig seint á ferðinni og yfirleitt hefðu veiði- menn lítið fengið. Þó sagðist hann hafa frétt af ágætri veiði í Norð- urá um síðustu helgi, en hópur, sem þá var þar við veiðar, fékk 53 laxa. Annars væru ár enn óhrein- ar og jafnvel mórauðar þannig að ekki væri auðvelt að eiga við þann lax, sem genginn væri í árnar. Þór sagði að varðandi hoplaxinn væru sér minnisstæð vorin 1949 og 1950, en þá hefði verið mjög kalt. Þegar sjógönguseiði hefðu verið veidd í Ulfarsá um sumarið hefði orðið vart við talsvert af hoplaxi, Hoplaxinn er horaður, svangur og slappur um þetta leyti og óætur, en að auk er hætt við að sá hoplax sem bítur á hjá veiðimönnum, lifi það ekki af þó honum sé sleppt aftur. Laxveiðitíminn er yfirleitt byrj- aður í ánum og t.a.m. byrjar veiðitíminn í vatnasvæði Ölfuss og Hvítár í dag. Þó má veiði t.d. ekki byrja fyrr en um mánaðamót í Hofsá í Vopnafirði og fleiri ám á norðausturhorninu. GuðrúnÁ. ogkompaní út á land? FULLT HÚS var á 5. síðustu kvöldskcmmtun Guðrúnar Á og kompanís í Háskólabíói s.l. föstu- dagskvöld, en fullt hafði verið á öllum sýningunum áður. Ilefur engin skemmtun í Háskólabíói í þessum dúr fengið aðra cins að- sókn. Mögulegt er að Guðrún Á og kompaní fari út á land með dagskrá kvöldskemmtunarinnar einhvern- tíma á næstunni, en spurt hefur verið um slíkt bæði frá Norðurlandi og Suðurlandi. tSSSirc var 1886, þegar blaðam. Mbl. fór að hlýða á sönginn og smella af nokkrum myndum. Var eigi laust við að nokkurs trega gætti og söknuðar með því gert er ráð fyrir að kapellan sem nú er í smíðum á Hrafnseyri verði vígð næsta vor og þetta ef til vill í síðasta sinn sem kirkjukórinn á Þingeyri kemur þarna saman til að taka lagið eftir 17. júnímess- una. FERÐAMIÐSTÖÐIN í Aðal- stræti heldur uppi ferðum til sólbaðsstaðarins Benedorm á Costa Blanca-ströndinni á Spáni. Nú þegar hafa verið farnar þrjár ferðir þangað, tvær í maí og ein í júní. Nær uppselt hefur verið í allar ferðirnar, enda er veðurfar á Benedorm með því besta sem gerist á Spáni. Næsta ferð verður 11. júlí og síðan tvær í ágúst, hinn 1. og 22. Síðasta ferð Ferðamiðstöðvarinnar til Bene- Lúdraþing í Stykkishólmi Stykkishólmi. 20. júní. AÐALFUNDUR Sambands ís- lenzkra lúðrasveita verður hald- inn í Stykkishólmi dagana 22.-24. þessa mánaðar og er það í fyrsta sinn, sem hann er haldinn hér. Einnig verður þar háð landsmót ísl. lúðrasveita og er þegar vitað um 8 lúðrasveitir víðs vegar að af landinu, sem sækja mótið. Oppergaardsskole Musikkorps, unglingalúðrasveit frá Ósló, kem- ur hingað og verður gestur móts- ins, auk þess sem hún mun fara um Nesið og leika í kauptúnum þar ef veður leyfir. í þessari lúðrasveit eru 54 hljóðfæraleikar- ar og er sveitin stofnuð 1927 og stjórnandi er Erik Bjorhei. Undir- búningur hefur staðið allt síðan snemma í vor og hefur hótelið búið sig undir að taka á móti stórum hópi. Lúðrasveit Stykkis- hólms hefur haft allan undirbún- ing með höndum. Leikið verður á íþróttavelli staðarins, þar mun hver lúðrasveit leika og eins allar sveitirnar sameiginlega. Verður þetta þá stærsta lúðr f'róftaritarP leikið hefur hér á landi. Nokkrir félagar í kirkjukórnum á Þingeyri. (Ljósm. Finnbogi). dorm á þessu ári verður 12. september. I haust skipuleggur Ferðamið- stöðin að vanda hinar vinsælu Lundúnaferðir og verða þær 29. sept., 27. okt. og 24. nóv. Þá verður Ferðamiðstöðin með ferð á Scandinavian Fashion Week í Kaupmannahöfn, sem stendur yfir dagana 13. sept. til 16. sept. Verður þar til sýnis allt það nýjasta í tískuheiminum í ár. (Fréttatilkynning) — ÞÓ SVO að byrjunin á laxveiðitímanum sé slæm gæti sumarið orðið gott laxveiðiár þjá okkur, sagði Þór Guðjóns- son veiðimálastjóri í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann sagði að þar sem vorið, og reyndar veturinn líka, hefði verið mjög kalt, þá hefði hoplaxinn verið mjög seinn á ferðinni og víða væri hann enn að hopa niður árnar. Þannig sagðist Þór hafa heyrt fréttir um mikið af hop- laxi í EHiðaánum, Miðfjarðará og víðar. í eðiiiegu ári færi Hér getur að lfta ströndina á Benedorm. Aðalfundur Búnaðarfélags Reykhólahrepps: Hart deilt um kosningu kjörmanna á fund Stétt- arsambands bænda Miðhúsum. A-Barð.. 20. júní, írá Sveini Guðmundssyni, fréttaritara Mbl. Á mánudaginn var haldinn aðalfundur Búnaðarfélags Reykhólahrepps í Bjarkar- lundi. Þar kom fram tillaga frá oddvíta Reykhóla- hrepps í sambandi við kosn- ingu kjörmanna, sem síðar velja fulltrúa á fund Stétt- arsambands bænda, um að Fundur um öldrunarmál á Reykhólum Miðhúsum. A-Barð., 20. júní, frá Sveini Guðmundssyni fréttaritara Mbl. A VEGUM heilsugæzlustöðv- arinnar í Búðardal var á laugardaginn haldinn fundur á Reykhólum um öldrunar- mál. Framsögu höfðu Sigurður Sigurbjörn Sveinsson læknir, í Búðardal, séra Valdimar Hreiðarsson, Reykhólum, og Vilhjálmur Sigurðsson, odd- viti Reykhólahrepps. Mikill áhugi ríkti um þessi mál og til þess að kanna almennan vilja fólks í Austur-Barðastranda- sýslu var kosinn ráðgefandi nefnd og er sr. Valdimar for- maður hennar. kjósa ekki kjörmenn að þessu sinni, vegna þess að Stéttarsambandið tæki ekki stéttarlega afstöðu til mála bændastéttarinnar. Miklar umræður urðu en tillagan var felld með 11 atkvæðum gegn níu. Síðan voru fulltrúar kosnir og kosningu hlutu þeir Vil- hjálmur Sigurðsson oddviti og Jón Snæbjörnsson for- maður Búnaðarfélagsins. Engu verður um það spáð hvort Vilhjálmur fær tæki- færi til þess að koma skoð- unum sínum á framfæri á næsta Stéttarsambands- fundi. Á fundinum flutti Ingi Garðar Sigurðsson tilraunastjóri á Reykhólum erindi um fóðrun áa á heyi eingöngu og samkvæmt sams konar tilraunum sem gerðar hafa verið á tveimur tilraunabúum kemur í ljós að hægt er að fóðra ær á heyi eingöngu með góðum árangri. Samþykkt var að halda upp á 80 ára afmæli Búnaðarfélags Reykh- ólahrepps í haust, en það var stofnað 3. september 1899 og var fyrsti formaður þess Benjamín Benjamínsson á Miðhúsum. 17. júní var minnst að venju á Reykhólum og stendur ungmenn- afélag Reykhólahrepps, fyrir þeirri hátíð. Formaður félagsins er frú Lilja Þórarinsdóttir á Grund.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.