Morgunblaðið - 22.06.1979, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 22.06.1979, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1979 ÞÝZKALAND — 28 ára einhleyp- ur kvenmaður, félagsráðgjafi, óskar eftir pennavinum á aldrin- um 20—32 ára, sem búa utan Reykjavíkur. Áhugamál: frí- merki, vinir, akstur, tónlist, sund o.fl. Renate Ingeborg Steininger Trivastr. 5/1 D 8000 Miinchen 19 F.R. Germany TÉKKÓSLÓVAKÍA - Mr. Kveta Danoczyova 277 44 Vojkovice 63 Okres Melnik Ceskoslovensko ENGLAND — 52ja ára kvenmað- ur. Mrs. J. Marris 9 Fairmolme Gons Cranmam Upminster Essex RM-16 IMJ England BANDARÍKIN - Mr. D. Melcher 1074 Raymond St. Paul M.N. 55108 U.S.A. Mr. Stanley Smith P.O. Box 488 Polk City Fla. 33868 U.S.A. Mrs. Carol Bennett 222, No West Temple No. 2 Salt Lake City Utah 84013 U.S.A. SRI LANKA — 25 ára gamall karlmaður. Mr. T.M. Nimal Seneviratne Bank of Ceylon York Street Branch Colombo 1 Sri Lanka. 83033 er nýtt símanúmer á afgreiöslu Morgunblaösins Sjónvarp kl. 20.40: Skonrok(k) 99 99 Skonrok(k)ið verður að venju á dagskrá sjónvarpsins í kvöld, en þátturinn sem sýndur verður mun vera sá næstsíðasti sem poppunn- endum sjónvarpsins gefst kostur á að sjá, a.m.k. um sinn. Leitast verður við í þessum þætti, sem öðrum, að hafa sem fjölbreyttast efni og flytjendur af ýmsu tagi. Efnið ætti því að vera nokkuð blandað og gætu efalaust flestir fundið eitthvað við sitt hæfi. Þátturinn hefst á því að hljóm- sveitin góðkunna Earth, Wind & Fire flytur hið góðkunna lag „Fantasy". í kjölfar þeirra koma tveir lítt þekktir en eldhressir kappar og raula uppáhaldslögin sín. Sá fyrri heitir Adrian Gurvitz og syngur lagið Low Space, en sá síðari heitir hvorki meira né minna en Bram Tchaihovsky, við skulum vona að hann beri nafn með rentu, en hann flytur lagið Girl of my dream. Síðan birtast á skjánum góðkunnir kappar, Dire Straits, flytja þeir lagið Sultans of Swing. Næst birtast á skjánum sannkall- aðir öldungar poppsins, Doobie Brothers, og flytja þeir lagið Min- ute by Minute en það er titillagið af nýju plötunni þeirra. Með öllum þessum ósköpum koma svo tvær eldri filmur með eldri lögum, sem allir ættu að kannast við. Fyrra lagið er Mull og Kintyre sem Wings flytja og er það lag það mest selda á lítilli plötu í Bretlandi. Hið seinna er með hinni klassísku hljómsveit Queen, og heitir Bohemian Rapsody. Þáttur- inn endar svo með því að glys og stunuhljómsveitin Boney M syngur lagið Hurrey, hurrey it’s á holly holly day, og ku þetta lag vera flutt í tilefni rigningarinnar sem öllum er að drekkja á þessum síðustu og verstu tímum. Útvarpkl. 14.00: Hátíðardagskrá vegna 800 ára afmælis Snorra Athöfn til minningar um 800 ára afmæli Snorra Sturlúsonar verður útvarpað beint frá hátíðarsal Háskóla íslands og hefst dagskráin klukkan tvö í dag. Að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar háskólarektors og formanns Snorranefndar, er þessi athöfn hluti þess sem gert verður til að minnast afmælisins. En að lokinni athöfninni munu hátíðargestir ganga yfir í Bogasal Þjóðminja- safnsins þar sem Þór Magnússon þjóðminjavörður mun opna sýningu um Snorra, en að sýningunni standa Þjóðminjasafnið, Landsbókasafnið og Stofnun Árna Magnússonar, Steinþór Sig- urðsson hefur átt allan veg og vanda að uppsetningu hennar. Hátíðardagskráin í Háskóla ýmsu öðru móti. Utvarpið flutti Islands hefst með því að blásara- kvartett mun leika „Ár vas alda“. Þá mun Guðlaugur Þor- valdsson setja samkomuna og Halldór Laxness flytja ræðu. Lesið verður úr ritum Snorra Sturlusonar og loks mun blás- arakvartettinn leika „ísland far- sældar frón“. Eins og fyrr sagði er hátíðar- samkoma þessi haldin á vegum Snorranefndar sem mennta- málaráðherra skipaði í fyrra til þess að sjá um og annast fyrir sitt leyti hvernig afmælis Snorra Sturlusonar verði minnst. Athöfnin í hátíðarsal Háskólans og sýningin í Bogasal Þjóð- minjasafnsins er það sem nefnd- in stendur sjálf fyrir. En auk þess er afmælisins minnst með þannig fjóra fyrirlestra í janúar um Snorra, sjónvarpið undirbýr kvikmynd um hann í samráði við danska og norska sjónvarpið svo sem kunnugt er og Fornritafé- lagið hefur gefið út sérstaka hátíðarútgáfu Heimskringlu. Þá munu borgfirðingar halda af- mælið hátíðlegt seinna í sumar og út verður gefið frímerki í tilefni afmælisins. í Snorranefnd eiga sæti auk Guðlaugs Þorvaldssonar þeir Gils Guðmundsson og Jónas Kristjánsson sem að vísu hefur ekki getað starfað með nefndinni og hefur Ólafur Halldórsson verið í nefndinni í hans stað og auk þess er Kristján Eldjárn heiðursformaður nefndarinnar og hefur starfað með henni. Sjónvarp kl. 21.40: Lánið er fallvalt í kvöld sýnir sjónvarpið bandaríska bíómynd frá árinu 1935, og kallast hún „Lánið er fallvalt“ (Bordertown). Aðal- hlutverk eru í höndum Paul Muni. Bette Davis og Margaret Lindsey. Söguþráður myndarinnar er í stuttu máli sá að ungur maður af mexikönskum ættum og úr lélegu borgarhverfi, hefur laga- nám og hugsar hátt. Hann lýkur námi en klúðrar hinsvegar sínu fyrsta máli fyrir rétti. Vegna þess arna missir hann málflutn- ingsréttindi sín. Hann verður af þessum sökum bitur út í kerfið og kemst að því, að ekkert nema peningar dugi til að komast áfram í lífinu. Hafandi þetta markmið að leiðarljósi fær hann sér vinnu í spilavíti, og verður brátt meðeigandi í fyrirtækinu. Síðan kemur þar að, að meðeig- andi hans í fyrirtækinu deyr með nokkuð vofeiflegum hætti. Tekur þá hinn ungi og metnað- argjarni maður við stjórn fyrir- tækisins og stjórnar því ásamt ekkju hins látna meðeiganda, en Bette Davis leikur þá frómu frú, sem hugsar sér gott til glóðar- innár. En fleiri konur eru í lífi hins unga fyrrverandi málflutn- ingsmanns. Hann hittir einnig unga konu af fínu fólki sem gantast lítillega með hann. Þar sem ekkju hins látna meðeig- anda finnst nú all nokkuð á sinn hlut gengið með þessu daðri, grípur hana mikil afbrýðisemi og hún tekur til sinna ráða. Stendur nú í miklum deilum nokkra hríð, en allt fer þó vel að lokum, eins og í svo mörgum öðrum myndum sem komnar eru á þennan aldur. Myndin tekur um einn og hálfan tíma í sýningu en þýðandi er Heba Júlíusdóttir. Útvarp Reykjavlk FÖSTUDKGUR 22. júní. MORGUNNINN__________________ 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar. 7.10 Leikfimi. 7.20 bæn. 7.25 Tónleikar. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfr. Forustugr. dagbl. (útdr.) Dagskrá. Tón- leikar. 9.00 Fréttir., 9.05 Morgunstund barnanna: Heiðdís Norðfjörð heldu áfram að lesa söguna „Hall og Kalli, Palli og Magga Lena“ eftir Magneu frá Kleifum (3). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregn- ir 10.25 Tónleikar. 11.00 Morguntónleikar: André Saint-Clivier leikur Mandólínkonsert í G-dúr eft- ir Johann Nepomuk Hummel með kammersveit Jean-Fran- cois Paillard / Han de Vries leikur lítinn óbókonsert op. 110 eftir Johannes Kalli- woda með Fílharmoníusveit- inni í Amsterdam; Anton Kersjes stj. / Ungverska fílharmoníusveitin leikur Sinfóníu nr. 49 í f-moll „La Passione“ eftir Joseph Haydn; Antal Dorati stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Skonrok(k) Þorgeir Ástvaldsson kynn- ir ný dægurlög. 21.15 Græddur var geymdur eyrir Fjórði þáttur er um verð- könnun. Meðal annarra verður rætt við Jónas Bjarnason, full- trúa neytendasamtakanna, og Magnús Finnsson af hálfu kaupmannasamtak- anna. V____________________________ 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregn- ir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 14.00 Útvarp frá hátíðarsal Háskóla íslands: Athöfn til minningar um 800 ára afmæli Snorra Sturlu- sonar 21.40 Lánið er fallvalt s/h (Bordertown) Bandarísk bíómynd frá ár- inu 1935. Aðalhlutverk Paul Muni, Bette Davis og Margaret Lindsay. Johnny Ramirez er lög- fræðingur að mennt, kom- inn af fátæku fólki. Hann missir lögmannsréttindi sín og byrjar að vinna í næturklúbbi. Þýðandi Heba Júlíusdóttir. 23.05 Dagskrárlok ____________ J a. „Ár vas alda“, íslenzkt þjóðlag. Blásarakvartett leikur. b. Guðlaugur þorvaldsson háskólarektor setur sam- komuna. c. Halldór Laxness rithöf- undur flytur ræðu. d. Lesið úr ritum Snorra Sturlusonar. e. „ísland, farsælda frón“, 15.15 Völuspá“, Tónverk fyrir einsöngvara, kór og hljóm- sveit eftir Jón Þórarinsson. Guðmundur Jónsson og Söngsveitin Fílharmonía syngja með sínfóníuhljóm- sveit íslands. Karsten Andersen stjórnar. 15.40 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.30 Popphorn: Dóra Jónsdóttir kynnir. 17.20 Litli barnatíminn Sigríður Eyþórsdóttir sér um tímann. Hún talar við Ketil Larsen, sem syngur gamanvfs- ur og segir sögur. 17.40 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. SKJÁNUM FÖSTUDAGUR 22. júní Umsjónarmaður Sigrún Stefánsdóttir. KVÖLDIÐ_____________________ 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.40 Kammertónlist Koeckert-kvartettinn leikur Strengjakvartett í g-moll op. 20 nr. 3 eftir Joseph Haydn. 20.00 Púkk Sigrún Valbergsdóttir og Karl Ágúst Úlfsson sjá um þátt fyrir unglinga. 20.40 Úr öskunni í eldinn Þáttur í umsjá Ernu Indriða- dóttur og Valdfsar óskars- dóttur. 21.10 Pfanósónötur Beethovens Deszö Ranki leikur pfanó- sónötur op 27. nr. 1 og 2 eftir Ludwig van Beethoven (Hljóðritun frá ungverska útvarpinu). 21.40 Spurt um frelsi Baldur Óskarsson flytur annan pistil sinn að lokinni ferð til Kína. 21.55 Kfnversk lög. 22.05 Kvöldsagan: „Grand Babylon hótelið“ eftir Arn- old Bennett Þorsteinn Hannesson byrjar lestur þýð- ingar sinnar. 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.50 Eplamauk Létt spjall Jónasar Jónasson- ar með lögum á milli. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.