Morgunblaðið - 22.06.1979, Page 23

Morgunblaðið - 22.06.1979, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ1979 23 Nú er ég horfi til baka um farna ævileið, þykir mér sem nú hafi rætzt hið fornkveðna, að enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. í dag kl. 13.30 verður gerð frá Fossvogskirkju útför Ásthildar Sæmundsdóttur er andaðist á Landakotsspítala aðfararnótt síðastliðins föstudags 15. júní. Ásthildur er fædd að Gufuskál- um á Spæfellsnesi þann 10. maí 1892. Foreldrar hennar voru Sæmundur Guðmundsson útvegs- maður og bóndi þar, en hann drukknaði í sjóróðri þann 6. júní 1914, og kona hans Elínborg Þor- bjarnardóttir, er síðar varð þjóð- kunn sæmdarkona. Ásthildur ólst upp í stórum systkinahópi á heimili foreldra sinna til fullorðins ára, uns leið hennar lá til Reykjavíkur, og stundaði um skeið nám í sauma- skap, er hún síðar gerði að lífs- starfi sínu ásamt húsmóðurskyld- um sínum þegar þar að kom. Á þessum árum var eins og kunnugt er þröngt um atvinnu og var þá oft gripið til hinna ýmsu úrræða, meöal annars var þá mikið um að konur stunduðu fiskvinnu ýmiss konar, meðal ann- ars fiskþvott og fiskþurrkun, þetta varð hlutskipti Ásthildar fyrstu ár hennar í Reykjavík. Á þessum árum kynntist Ást- hildur Þórði Sveinssyni togarasjó- manni frá Skáleyjum á Breiða- firði, þau gengu síðar í hjónaband 22. febrúar 1922. Þórður drukkn- aði í októbermánuði 1929. Þau eignuðust þrjár dætur. Elínborgu, gifta og búsetta hér í borg, Margréti, er lést ung að aldri, og Mjöll, sem er gift kona í Dan- mörku. Ásthildur bar stórbrotinn per- sónuleika, hún var í hærra lagi á vöxt og íturvaxin, fríð sínum og háttprúð um allt siðferði, sem hún átti uppeldismáta foreldra sinna að þakka. Ásthildur var ljós á brún og brá, hárið mikið og fagurt og sló á það gullslit og entist henni það fram á efri ár. Ásthildur var tíguleg að vallarsýn og sópaði að henni hvar sem hún fór, svipmikil og bar með sér tign í fasi sem hún reyndar átti kyn til úr báðum ættum, hreinskilin og sanngjörn svo að af bar. Ásthildur var afskiptalaus um hagi annarra, nema ef til atkvæða hennar kom með nokkru móti, var hún þá stefnuföst og lét ekki hlut sinn að óreyndu. Voru það helst börn og umkomulausir einstaklingar er nutu aðstoðar hennar og athvarfs er í nauðir rak. Ásthildur var jafnan vinnusöm og kappkostaði að vanda verk sín sem mest mátti verða, og mátti hverjum ljóst vera sem fylgdist með athöfnum henn- ar, að þar fór kona, sem á áber- andi hátt skar sig úr fjöldanum. Nokkru eftir að Ásthildur missti mann sinn réðst hún í það að veita heimili Eyjúlfs Gíslason- ar inneimtumanns forstöðu um fimmtán ára skeið eða þar til hann lézt. Ásthildur bar órofa tryggð til bernsku- og æskustöðva sinna og var fróð um sögu heima- byggðarinnar. Ásthildur var ein þeirra sem vildi með öllu móti láta gott af sér leiða, þótt misjafnlega væri þegið á stundum. Mikill og sár söknuður ríkir nú meðal ættingja hennar og vina, og sárt er hennar saknað úr gamla vinahópnum, sem mjög er þó farinn að þynnast, því margir hafa hellst úr lestinni fyrir tímans tönn. Ásthildur átti við mikla van- heilsu að stríða nokkur hin síðari ár ævi sinnar sem hún þó bar með hugrekki og skapfestu sem var svo ríkt í eðlisfari hennar. Ásthildur hafði mikið dálæti á barnabörnum sínum og bar mikla og einlæga ást til þeirra, og nutu þau elsku hennar og umhyggju í drjúgum mæli. Nú er ég lít til baka um farinn veg og minnist samskipta okkar á liðnum ævi- ferli, vil ég þakka henni vináttu hennar og tryggð sem haldist hefur óslitin frá æskuárum mín- um. Eg flyt fjölskyldu hennar og ættmennum öllum dýpstu samúð- arkveðju mína. Og þegar hún nú er öll, óska ég henni fararheilla yfir takmörk lífs og dauða. Megi minning hennar lifa um aldur. Kristján Þórsteinsson Hagstætt verð. Marinó Pétursson h.f. Sundaborg 7. Sími 81044. '"'Íí."'ÍS':'‘■vf|Íiví?|' : ' ■ " Spónarplötur í öllum þykktum tyrirliggjandi. Sænsk úrvalsvara. jörðinni eftir hans dag og keyptu þá jörðina. Brynjólfur hafði aldrei mjög stórt bú, en arðsamt var það. Umgengni öll utanhúss og innan var til mikillar fyrirmyndar, enda Brynjólfur snyrtimenni hið mesta og ekki síður kona hans. Eftir veru Brynjólfs á Eiðum og sérstaklega eftir að hann hóf búskap vann hann ötullega að ræktun, bygg- ingu gripahúsa og öðrum umbót- um á jörðinni. Hin síðari ár eftir að börnin komust á legg stundaði Brynjólfur nokkuð vegagerð á sumrum. Var verkstjóri um árabil og fórst það vel úr hendi eins og allt sem hann lagði á gjörva hönd. Hugur Brynjólfs stóð ekki til þess að hafa mikil afskipti af opinberum málum, þó komst hann ekki hjá því með öllu. Hann átti sæti í hreppsnefnd um árabil, í skólanefnd og fleiri nefndum vann hann fyrir sveit sína. Sæti hans var vel skipað á þeim vettvangi eins og hvarvetna annars staðar. Þau Sólveig og Brynjólfur eignuðust 4 Jbörn. Þau eru Sig- björn kaupmaður á Hlöðum, fæddur 10. nóvember 1928, kvænt- ur Kristínu Jónsdóttur frá Gjögri í Strandasýslu, þau eiga 6 börn; Grétar bóndi á Skipalæk í Fellum, fæddur 26. marz 1930, kvæntur Þórunni Sigurðardóttur frá Sól- bakka í Borgarfirði eystri, þau eiga 3 börn; Þórunn hjúkrunar- kona, fædd 22. júní 1938, gift Magnúsi Guðmundssyni verk- fræðingi í Njarðvíkum, eiga eitt barn og Sigrún, fædd 16. desember 1939, gift Sigurjóni Gíslasyni smið frá Reyðarfirði, þau eiga 2 börn, eiga heima á Lagarfelli í Fellum. Brynjólfur eignaðist son áður en hann kvæntist, heitir Vignir, fæddur 22. apríl 1926, kvæntur Ásdísi Þórðardóttur frá Hvammi á Völlum. Þau búa á Brúarlandi í Fellum. Vignir rekur viðgerða- verkstæði bifreiða. Börn þeirra eru 5. Allra síðustu árin hnignaði heilsu Brynjólfs og kraftarnir þrutu. Hann vissi, að þá var stutt í lokin og beið þeirra með æðru- leysi. Hann hvílir í heimagrafreit á Ekkjufelli. Við kveðjum Brynjólf og þökkum ógleymanlega fylgd. Sendum Sólveigu konu Brynjólfs og fjölskyldum hennar samúðarkveðjur og biðjum þeim blessunar Guðs. Helgi Gíslason. HAFSKIP H.F. Upplýsingar til vióskiptamanna! Fyrstu feröir skipa okkar eftír verkfall eru: „SKAFTA“ lestar í Hamborg „RANGÁ“ lestar í Hamborg „RANGÁ" lestar í Antwerpen „RANGÁ lestar í Antwerpen „SKIP“ lestar í Ipswich „RANGÁ“ lestar í Ipswich „SKIP“ lestar í Kaupm.höfn „LANGÁ“ lestar í Kaupm.höfn „SKIP“ lestar í Kaupm.höfn „SELÁ“ lestar í Gautaborg „SKIP“ lestar í Gautaborg „LANGÁ“ lestar í Fredrikstad „SKIP“ lestar í Fredrikstad „LAXÁ“ lestar í Gdynia „LAXÁ“ lestar í Helsinki 26,— 27. júní /losun Rvík 02 09. júlí /losun Rvík 17. -26. júní /losun Rvík 02 11. júlí /losun Rvík 17. -29. júní /losun Rvík 12. júlí /losun Rvík 17. 25. júní /losun Rvík 02. 26. júní /losun Rvík 03 02. júlí /losun Rvík 09. 26. júní /losun Rvík 02 03. júlí /losun Rvík 09. 28. júní Tlosun Rvík 03 04. júlí /losun Rvík 09. 03. júlí /losun Rvík 16. 06.—09. júlí /losun Rvík 16. 25.- 28,- 25,—í 25. 27. . júlí júlí . júlí júlí júlí júlí júlí júlí júlí . júlí júlí . júlí júlí júlí júlí Komnir aftur -jCm*, ■€ - FLEX-O-LEl é den boieliqc træskc Þaö nýjasta í tréklossum er FLEX-O-LET tréklossinn meö beygjanlegum sóla. Fer sigurför um allan heim. Litir hvítt og drapplitaö Póstsendum GEíS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.