Morgunblaðið - 22.06.1979, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1979
MORöJK/-^
KAFP/NJ \ f
Býð tólfþúsundogþrjúhundruð-
krónur!
Ég sagði við sjálfa mig er ég sá þáttinn
í sjónvarpinu um sjálfskaparvíti — þarna
hefðir þú getað lagt til málanna.
Já, þeir ætla að leyfa þér að
fara heim af spítalanum í dag
— og þá kemurðu sko beint
heim, skilurðu?
Gistivinur Rússa
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Skiptingarspilunum má oft
líkja við skrímsli, sem enginn
veit hvað gera á við ná hvað
stendur. Spilið hér að neðan er
furðulegt og árangurinn eftir
því.
Vestur gaf, norður suður á
hættu.
Norður
S. KG108743
H. Á964
T. 953
L. -
Vestur Austur
S. ÁD9652 S. -
H. K753 H. 2
T. 1084 T. ÁKDG
L. - L. ÁDG109763
Suður
S. -
H. DG108
T. 765
L. K8542
Norður var að hugsa um hvort
betra væri að opna á þrem eða
fjórum spöðum þegar vestur opn-
aði á einum spaða. Þá var það mál
leyst og hann skipti sér því ekki af
sögnum. Austur stökk í þrjú lauf,
sagði fjóra tígla yfir þrem spöðum
vesturs og stökk síðan í sex lauf
þegar vestur sagði fjögur hjörtu.
Hann vissi auðvitað ekkert hvað
gera átti og bjóst jafnvel við, að
alslemman stæði.
Suður spilaði út hjartadrottn-
ingu og austur sá, að hann gat
verið heppnari með spil blinds. Og
norður sá strax eftir að hafa ekki
doblað. Hann drap kónginn með ás
og spilaði lágum spaða. Þar með
varð laufáttan síðar þriðji slagur
varnarinnar. Tveir niður þrátt
fyrir, að austur héldi sig hafa átt
ellefu örugga.tökuslagi.
Spilið kom fyrir í keppni
tveggja sveita og spilararnir í
norður-suður voru nokkuð vissir
um tap á spilinu þegar þeir bók-
uðu 100 sín megin á skorblaðið.
En það reyndust ástæðulausar
áhyggjur. Á hinu borðinu sagði
vestur pass og norður opnaði á
einum spaða. Austur strögglaði á
tveim laufum, sem hann vissi vel
að var mikil undirmelding en
hann vonaðist til að fá hærri
lokasögn doblaða síðar. Sú von
brást þegar þrjú pöss fylgdu og
hann fékk ellefu slagi. Auðvitað
bjóst austur einnig við tapi en
allir urðu sveitarfélagarnir hress-
ari þegar í Ijós kom, að imparnir
sex voru þeim til tekna.
COSPER
8051
COSPER
Afsakið, en hvar eru búningsklefarnir hér á
baðströndinni?
Kæri Velvakandi.
Meðan Svavar Gestsson var
ritstjóri Þjóðviljans, ímyndaði ég
mér alltaf að hann væri gistivinur
þeirra austur í Rússíá. Ég gerði
mér að vísu ekki grein fyrir því,
hvort honum yrði boðin 200 fer-
metra svíta eins og forseta borg-
arstjórnar á dögunum, eil þóttist
þess fullviss, að honum yrði í það
minnsta ekki í kot vísað.
Eins og Morgunblaðið hefur
rækilega bent á, fer að hætta að
borga sig að gera út á Islandi, af
því að öll okkar olía er miðuð við
braskmarkað í Rotterdam. Blaðið
hefur líka vakið athygli á, að
fiskverðið til Sovétríkjanna stend-
ur í stað, þótt það fari hækkandi á
heimsmarkaði.
Nú gæti maður haldið, að Svav-
ari Gestssyni þætti loksins kom-
inn tími til að sýna að hann hefði
átt erindi í sæti viðskiptaráðherra
og héldi austur á bóginn og léti
reyna á gistivináttuna. En hann
situr sem fastast og hreyfir sig
hvergi, — þykir í hæsta máta
eðlilegt, að íslendingar hvorki
æmti né skræmti, þótt þeim sé
tekið blóð í þeim mæli með hverri
olíusendingu, að vísast er að þeim
blæði út efnahagslega á næstu
misserum.
Móri.
• Grátt gaman
Þá er 17. júní kominn og
farinn og útvarpið þurfti auðvitað
að hrista upp í okkur þjóðarstolt-
ið, því að kvöldið áður var fluttur
þar þáttur í samantekt Böðvars
nokkurs Guðmundssonar. Þetta
átti að vera grín, en mér fannst
gamanið nokkuð grátt. Lesin var
lýsing ferðamanna á þeim Reyk-
víkingum sem stóðu á hafnar-
bakkanum og minnti sú lýsing mig
á það sem Krjússoff sagði um
verkamennina í Moskvu 1931:
„Þeir voru klæðalitlir, svangir og
kvaldir af veggjalús."
Það var auðvitað sósíalisti sem
tók saman þennan þátt og fannst
þetta vel viðeigandi. Þeir eru eins
og Þórbergur sagði að losa sig við
persónuleika sinn og gerast
göngumenn Karls-Marx, Lenin- og
Stalínismans. Þetta finnur þjóðin
daglega og núna á síðustu árum er
I Xausnargjald
Helztu sögupersónur:
Logan Field — athafnasamur
og umsvifamikill forstjóri
Imperial-olfufélagsins.
Eileen Field — kona hans —
sem verður ein helzta persóna
sögunnar.
James Kelly — framkvæmda-
stjóri í fyrirt^eki Fields. Aðdá-
andi eiginkonunnar.
Janet Armstrong — ástkona
Logans Fields.
Ardalan hershöfðingi — yfir-
maður SAVAK.
Khorvan — efnahagsmálaráð-
herra írans, sem á að semja við
Logan um mikilsháttar fram-
kvæmd í olíumálum.
Peters — Bandaríkjamaður,
forsvarsmaður skæruiiðahóps
sem undirbýr mannrán.
1. kafli
Þegar James Kelly sagði frá
því að hann ynni í Teheran var
áhugi viðstaddra jafn skjótt
vakinn. Þeim fannst tilhugsun-
in um Persíu spennandi, eink-
um gætti þessa meðal kvenna.
Oann hugsaði þá kaldhæðnis-
lega með sér, að hefði hann sagt
að hann væri framkvæmda-
stjóri Imperial-olíufélagsins
væri óvíst að þessu heíði verið
tekið af jafn mikill áfergju. Og
sú sama kaidhæðni — sem hann
kallaði nú reyndar örlaga-
glettni — hafði og valdið því að
hann hafði kosið Persneska
salinn í Hilton-hótelinu í Teher-
an fyrir veizlustað til heiðurs
efnahagsmálaráðherra keisar-
ans og yfirmanni sfnum, stjórn-
arformanni Imperial-félagsins,
Logan Field. Hann átti ekki von
á því að þetta val hans ylli
formanninum neinum heila-
brotum, allra sfzt myndi hann
sjá í þessu neitt grátbroslegt,
hvað þá annað.
Honum var ekki í nöp við
Logan Field. En hann vissi að
margir höfðu horn í síðu hans.
Og margir höfðu reyndar á
honum hreint hatur. Hann leit
á Logan Field sem furðulegt
fyrirbrigði í mannsmynd —
líkt og hvirfilbylur fór hann um
hvarvetna. Hann var þó ekki
aðeins ófyrirleitinn milljóna-
mæringur, skrfpamynd af hin-
um valdsjúka og gráðuga kaup-
sýslumanni sem hinum æstu
vinstrisinnum var sérstaklega
uppsigað við. Hann var um
margt viðfelldin maður, óhemju
vel gefinn og hafði í sér næstum
óeðlilega mikinn kraft. Og svo
höfðu skipast mál að hann var
nú í forystu fyrirtækis sem
hafði vaxið og eflzt meira en
flest önnur fyrirtæki vítt um
veröld. Kelly hafði farið að taka
á móti honum á Mehrabad-flug-
velli við Teheran um morgun-
inn, hann hafði beðið f steikj-
andi heitu frönsku sólskini, rétt
eins og sendiherra sem kominn
er að fagna kóngi sfnum, og
með honum voru nokkrir að-
stoðarframkvæmdastjórar
ásamt skrifstofustjóra úr ír-
anska efnahagsráðuneytinu til
að bera Logan Field kveðjur frá
yfirmanni sfnum, ráðherran-
um.
Kelly hafði ekki átt von á því
að sjá ciginkonu Fields koma á
hæla honum út úr flugvélinni.
Enginn hafði látið hann vita
um það fyrirfram. í skeytinu
hafði ekki verið minnzt á að
hún yrði í för með honum. Hann
hafði skekið hönd Logans
Fields og síðan hafði röðin
komið að Eileen Field. Hún
brosti og hann fékk þennan
óstöðvandi fiðring um sig allan
og hjartslátturinn jókst snögg-
lega. Þessi undursamlcgu
írsku, bláu augu og milt brosið.
Hvað í ósköpunum hafði valdið
því á sfnum tíma að hún hafði
orðið ástfangin af Logan
Ficld...
Hann hafði farið til Hilton-
hótelsins snemma um morgun-
inn til þess að líta eftir að allt
væri nú í lagi. Hann hafði búið í
Teheran í þrjú ár og var málum
það kunnugur að hann vissi af