Morgunblaðið - 06.07.1979, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1979
Þingflokkur Sjálfstæðisflokks um Jan Mayen:
Látum einskis ófreistað
til að afstýra árekstrum
MORGUNBLAÐINU hefur borizt lagður var í viðræðum um s.l.
eftirfarandi ályktun, sem gerð helgi.
var á fundi þingflokks Sjálfstæð- Skorar flokkurinn á ríkisstjórn-
isflokksins í gær: ir landanna að halda viðræðum
„Þingflokkur Sjálfstæðismanna áfram og láta einskis ófreistað til
harmar að ekki skyldi nást sam- að afstýra árekstrum. Býður
komulag milli Norðmanna og ís- flokkurinn fram allaj>á aðstoð, er
lendinga á þeim grundvelli sem hann getur í té látið."
Bakari hengdur fyrir
smið segir formaður FÍA
— VIÐ höfum spjallað um
þessar uppsagnir á mönnum í
FÍA, en úr því að staða
félagsins er eins og okkur
/
Atta sækjaum
bæjarstjórastarf-
ið í Siglufirði
RUNNINN er út umsóknarfrestur
um starf bæjarstjóra í Siglufirði og
bárust átta umsóknir um starfið.
Umsækjendur eru: Andrés Fjeld-
sted, lögfræðingur, Ingimundur Ein-
arsson, lögfræðingur, Ingimundur
Magnússon, rekstrarfulltrúi, Jónas
Sigurðsson, framkvæmdastjóri,
Kristján Axelsson, sveitarstjóri,
Páll Þorsteinsson, lögfræðingur,
Runólfur Birgisson, bankastarfs-
maður og Þorgils Axelsson, bygg-
ingafræðingur.
Bjarni Þór Jónsson, sem verið
hefur bæjarstjóri í Siglufirði tekur
1. ágúst n.k. við starfi bæjarritara í
Kópavogi.
hefur verið skýrt frá þá sé ég
ekki að mikið sé hægt að
gera, sagði Björn Guð-
mundsson formaður Félags
ísl. atvinnuflugmanna f sam-
tali við Mbl. í gær.
— Okkur finnst að vísu súrt að
vera hengdir fyrir Atlantshafs-
flugið og teljum að þar sé bakari
hengdur fyrir smið, en vissulega
er mjög erfitt varðandi öll olíumál
og eru á allri olíu nánast dagprís-
ar. Hjá okkur var sagt up'p 9
mönnum og helé ég að þeir séu
með allt að 5—6 ára starfsaldur í
þeim hópi. Við höfum ekkert
ákveðið um aðgerðir, enda ekki
sjánlegt að neitt sérstakt sé hægt
að gera, en munum bíða og sjá
hvað setur. Við vonum að ástandið
lagist á næstunni, því nóg er af
farþegum og gildir það um innan-
lands- og Evrópuflugið og jafnvel
um Ameríkuflugið líka þó ég þekki
minna til þess, sagði Björn að
lokum.
Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra:
Virðist ekki grundvöllur
fyrir ráðherraviðræðum við
Rússa eins og sakir standa
Olíunefndin á fundi í gær.
Byrjað á gagnasöfnun
Olíiuiefndin:
FYRSTI fundur olfunefndar var
haldinn í gær og hefur þegar
verið ákveðinn annar fundur f
dag. Að sögn Jóhannesar Nor-
dals formanns olíunefndarinnar
fer tfminn fyrst f stað að mestu f
gagnasöfnun og munu nefndar-
mennirnir kynna sér hinar ýmsu
hiiðar olfumála áður en farið
verður að ræða um hvað leggja
skuli til að framkvæmt verði.
Olíunefndina skipa Jóhannes
Nordal formaður, Valur Arn-
þórsson, Kristján Ragnarsson,
Ingi R. Helgason og Björgvin
Vilmundarson og ritari nefndar-
innar hefur verið ráðinn Geir H.
Haarde.
Frestun á uppsögnum 70 ára borgarstarfsmanna:
Sjöfn myndaði meirihluta
með Sjálfstæðisflokknum
Á FUNDI borgarstjórnar í gær-
kvöldi var samþykkt tillaga frá
Sjöfn Sigurbjörnsdóttur, borgar-
fulltrúa Álþýðuflokksins, þess efn-
is að fresta beri uppsögnum þeirra
stárfsmanna Reykjavíkurborgar
sem hætta eiga störfum fyrir
aldurs sakir. En áður hafði tillaga
sama efnis frá Albert Guðmunds-
syni og Magnúsi L. Sveinssyni
verið felld af fulltrúum meirihlut-
ans í borgarráði.
Með tillögu Sjafnar greiddu at-
kvæði sjö fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins, en Björgvin Guðmunds-
son, annar fulltrúi Alþýðuflokksins,
sat hjá við atkvæðagreiðsluna og
var tillagan því samþykkt með 8
atkvæðum gegn 6.
í tillögu Sjafnar var gert ráð
fyrir frestun á uppsögnum þeirra
starfsmanna sem náð hafa sjötugs-
aldri, meðan nefnd sú starfar sem
vinnur að endurskoðun á reglum
um aldursmörk borgarstarfs-
manna.
Borgarstjórnarfulltrúar Al-
þýðubandalagsins lýstu sig and-
snúna þessari frestun og kváðust
ekki sjá neinn tilgang í því að
fresta gildistöku uppsagnanna
meðan þetta óvissuástand varir.
Kváðust þeir telja, að eitt og jafnt
ætti yfir alla að ganga í þessu efni.
Fjármálastjórn borgarinnar að fara úr böndum:
„EINS og útlitið cr í dag virðist ckki grundvöllur fyrir
ráðhcrraviðræðum við Sovétmcnn um cndurskoðun á viðskipta-
samningnum." sagði ólafur Jóhanncsson forsætisráðhcrra. er
Mhl. spurði hann í gær. hvort ríkisstjórnin hygðist láta reyna á
það. hvort sovézkir ráðamcnn ræddu við íslcnzka ráðhcrra um
cndurskoðun á viðskiptasamningnum cða ckki.
Ólafur sagði að það hefði lengi
verið athugað, hvort möguleikar
væru á því að koma á slíkum
viðræðum, en Sovétmenn virtust
ekki reiðubúnir til að taka upp
þessar viðræður að svo stöddu.
Mbi. spurði þá Ólaf hvort af
IsJands hálfu hefði verið beðið um
slíkar viðræður, eða hvort aðeins
væri um að ræða óformlega könn-
un. „Formleg eða óformleg. Við
skulum sleppa því“, sagði forsæt-
isráðherra.
„Málin standa svona í
dag. En ég reikna með að það verði
haldið áfram að kanna þetta".
Fjárvöntun þrisvar sinnum
meiri en mest var á sl. ári
— segir Birgir ísl. Gunnarsson
FJÁRMÁLASTJÓRN borgar- Gunnarsson, borgarfulltrúi á
innar er augljóslega að liðast fundi borgarstjórnar Reykj-
úr böndum, sagði Birgir ísi. avíkur í gær er önnur um-
Þjófuriim spældi egg, drakk gin með,
setti hitann á og stakk af með vínskáp
INNBROTSÞJÓFUR var á ferð í Miðbænum í Reykjavík í fyrrnótt og
gerði hann sig heimakominn í að minnsta kosti fjórum fbúðum þar.
Meðal annars braust hann inn í íbúð við Sóleyjargötu, og lét þar eins og
hann væri heima hjá sér lengi nætur. Þannig háttar til í umræddu húsi
á Sóleyjargötunni, að í kjallara hússins búa ung hjón og barn þeirra, en
uppi búa foreldrar konunnar.
í samtali við blaðamann Morg-
unblaðsins kvaðst unga konan hafa
vaknað um klukkan hálf þrjú um
nóttiha við mikið rennsli í hita-
vatnslögnum hússins. „Þetta hljóð
kom mér talsvert á óvart,“ sagði
konan, „og þar sem ég var ein
heima með barni okkar, þá fór ég
að gá hverju þetta sætti. Fór ég
upp á loft og sá þá, að ljós var í
stofunni. Gekk ég þar inn og sá
hvar maður var að bogra yfir
einhverju og fór þá og vakti
foreldra mína.“ Síðan kvaðst hún
hafa farið og rætt við manninn, og
spurt hvað hann væri eiginlega að
gera. Var hann þá að dunda við að
tína áfengisflöskur í gulan plast-
poka úr vínskáp í stofunni. „Þeir
buðu mér hingað," sagði maðurinn,
og tók á rás með það sem hann
hafði sett í pokann og hvarf út um
garðdyr er hann hafði greinilega
brotið upp er hann kom inn í húsið.
Þá var hringt á lögregluna og kom
hún nær samstundis á tveimur
bílum, þrír í hvorum báðum megin
við húsið. „Ég hleypti inn öðrum
megin þremur og hinum megin
þremur, þannig að ég var komin
með sex unga og fíleflda lögreglu-
þjóna inn í ganginn hjá mér,“ sagði
konan í samtali við Morgunblaðið.
Hafði lögreglan verið í hverfinu
og leitað að innbrotsþjófinum því
borist hafði tilkynning um að
brotist hefði verið inn í þrjú önnur
hús fyrr um nóttina.
Við athugun á íbúðinni kom í
ljós að hann hafði ekki valdið
neinum skemmdum, nema hvað
læsingin á garðdyrunum sem hann
stakk upp var ónýt. Hann hafði
hins vegar kveikt ljós bæði í
stofunni og í eldhúsinu, og í eld-
húsinu var heldur óhrjálegt um að
litast. Hafði komumaður greini-
lega verið svangur, og því tekið það
til bragðs að spæla egg á pönnu, og
hafði hann torgað heilu kílói af
eggjum áður en hann hætti. Þá
hefur honum væntanlegá þótt
heldur kalt í húsinu á meðan hann
stóð í eldamennskunni, og því setti
hann hitann á fullt. Þá var það
einnig greinilegt, að ekki hefur
honum þótt við hæfi að snæða
eggin þurrbrjósta, svo hann sótti
sér eina ginflösku í skápinn áður
en hann settist til borðs.
í samtali við Morgunblaðið
kvaðst konan ekki hafa orðið neitt
hrædd, nema þá eftirá. Sagðist
hún aðallega hafa orðið reið er hún
sá aðfarirnar. „Auðvitað getur
ýmislegt gerst í svona tilvikum, en
eftirá að hyggja finnst mér þetta
nú fyrst og fremst fyndið," sagði
konan. Hún sagðist hafa álitið að
maðurinn væri um það bil 55 ára,
en í ljós kom að hann er aðeins um
fertugt. Náðist hann örskömmu
eftir að hans varð vart á Sóleyjar-
götunni. Reyndist þar vera á ferð
einn „góðkunningi" lögreglunnar,
útigangsmaður sem slapp ekki alls
fyrir löngu úr afplánun á
Litla-Hrauni. Sagði konan að hann
væri nú í gæsluvarðhaldi eftir því
sem hún hefði frétt. Sagði hún
manninn hafa verið illa til fara og
illa útlítandi enda heimilislausan.
Hefði lögreglan ráðlagt henni að
hreinsa vel íbúðina eftir hann og
kvaðst hún ekki hafa þorað annað
en sótthreinsa hana alla.
ræða fór fram um reikninga
borgarinnar á árinu 1978.
Birgir ísl. Gunnarsson sagði
að fjárhagurinn væri sæmi-
legur það sem af er árinu en
horfur mjög slæmar síðari
hluta ársins.
Greiðsluáætlun, sem gerð hefur
verið fyrir þetta ár sýnir, að
fjárvöntun verður mest um 3
milljarðar og er það þrisvar sinn-
um meira en mest var á sl. ári,
sagði Birgir ísl. Gunnarsson.
Borgarfulltrúinn sagði m.a. að í
greiðsluáætlun þessari væri gert
ráð fyrir að í lok hvers mánaðar
liggi í ógreiddum reikningum 600
millj. kr., en skv. þessari greiðslu-
áætlun verður fjárvöntun í lok
hvers mánaðar það sem eftir er
ársins sem hér segir:
Júlí
Ágúst
September
Október
Nóveihber
Desember
2.002 millj. kr.
3.159 millj. kr.
2.678 millj. kr.
2.396 millj. kr.
1.669 millj. kr.
1.368 millj. kr.
Fjárvöntunin fer hæst upp í um
3 milljarða, skv. þessari greiðslu-
áætlun, sem er þrisvar sinnum
meiri fjárvöntun en hún varð mest
á s.l. ári. Fjármálastjórnin er því
augljóslega að liðast úr böndum.
Fjárhagurinn sæmilegur, það sem
af hefur verið ársins, enda fyrri
hluti ársins alltaf betri, en horfur
mjög slæmar nú síðari hluta
ársins.