Morgunblaðið - 06.07.1979, Síða 5

Morgunblaðið - 06.07.1979, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ1979 5 Þorskveiðar Norð- manna skornar niður um allt að helming? STJÓRNUNARNEFNDí norskum sjávarútvegi hefur í hyggju ýmsar aðgerðir til verndar „norsk-arktiska“ þorskstofninum. Reiknað er með að fiskifræðingar leggi til við ríkisstjórn- ina, að þorskveiðar verði dregnar verulega saman á næsta ári og talið að þeir leggi til að heildar- veiðin verði 3—400 þús- und tonn í staðinn fyrir 684 þúsund tonn á þessu ári. I frétt frá fyrrnefndri stjórnun- arnefnd, sem greint er frá í „Fiskaren", segir m.a. aö 1975 hafi Norðmenn veitt 905 þúsund tonn af þessum þorskstofni, 684 þúsund tonn 1978 og í ár sé kvótinn í samræmi við aflann í fyrra. Þær aðgerðir, sem helzt er talað um til að halda við vexti og viðgangi hrygningarstofnsins, er að auka möskvastærð og loka oftar svæð- um, þar sem mikið er um ungfisk, en áður hefur verið gert. 9 Islenzka landsliðið á EM í bridge: Öruggur 20—0 sigur gegn Hollendingum ÍSLENZKA landsliðinu í bridge gengur vel á Evrópumótinu sem fram fer í Lausanne í Sviss. í gærdag unnu þeir Hollendinga örugglega 20—0 í áttundu umferð- inni. Jón, Símon, Guðlaugur og Örn spiluðu allan leikinn og áttu Holl- endingar aldrei möguleika í leiknum. Af öðrum úrslitum má nefna að írar unnu Júgóslava 20—0 og eru komnir í annað sætið í keppninni nokkuð ov ?nt. Þá unnu heimamenn ítali 12—8 og Norðmenn töpuðu fyrir Austurríki 2—18. Staða efstu þjóða i Evrópumótinu er þessi eftir 8 umferðin Frakkland 106, írland 100, Pólland 99, Ítalía 90, Svíþjóð 86, ísrael 85 og ísland er í sjöunda sæti með 83 ‘Æ stig. I gærkvöldi spiluðu íslendingarnir gegn Þjóðverjum og í dag við Svía. Höfum orðið varir við minnkandi sölu r — segir framkvæmdastj. Islenzks markaðar FYRIR NOKKRU skýrðu Neytendasamtökin frá athugunum. sem gerðar hafa verið á gæðum nokkurra niðurlagningarfyrirtækja og kom þar m.a. fram að nokkru var áhótavanti framleiðslu fjiigurra fyrirtækja. Mbl. hafði í gær samhand við forráðamenn tveggja fyrirta'kja. sem ekki hafa þó verið nefnd í þessu samhandi og spurðist fyrir um hvort orðið hefði vart minni sölu hjá þeim vegna þessara frétta. — Við höfum vissulega orðið var við nokkru minni sölu á vörum okkar og eru við óánægðir með að það skuli koma niður á okkur þegar aðrir fara ekki eftir settum reglum í sambandi við matvælaframleiðslu, sagði Sig- urður Björnsson framkvæmdastjóri íslenzkra matvæla. — Við höfum ætíð farið alveg eftir þessum reglum, en fólk tortryggir okkur og við erum undir grun þrátt fyrir það. Við erum ekki óánægðir með þessa herferð eða athugun Neytendasamtakanna, en það sem við erum óánægðir með er að ekki skuli hafa verið nefnd þau fyrirtæki, serh ekkert hefur verið kvartað yfir, heldur aðeins þau sem vanrækt hafa aö fara að settum reglum. — Það er erfitt að meta það hvort salan hefur minnkað, en eins og má-lið var kynnt af hálfu Neytenda- samtakanna, öll umfjöllun þeirra var mjög neikvæð, þá hlýtur það að koma til með að hafa sín áhrif á söluna, sagði Birgir Þorvaldsson hjá Islenzk- um sjávarréttum. — Við erum með fullkomnar merkingar og okkur hafa ekki borist neinar kvartanir, en hins vegar er rétt að nefna að hér er um mjög viðkvæmar vörur að ræða og stundum þarf ekki annað en að illa sé hugsað um þær í verzlunum. En á þessum fréttum Ne.vtendasamtak- anna var helzt að skilja að allur lagmetisiðnaðurinn væri í kalda koli og það er bara alrangt. Einnig er rétt að taka það fram að ekki þarf nein sérstök skilríki til að hefja svona framleiðslu, hver sem er getur keypt sér dósir og byrjað að leggja í þær matvæli, fari hann að settum reglum, en auðvitað væri réttara að menn væru skyldaðir til að hafa aflað sér einhverrar kunnáttu áður en lagt er út í þessa framleiðslu. Formaður Verðlagsnefndar: Eimskip vildi 40% hækkun á stykkja- vöruflutningunum — en hækkar sjálft aðra flutninga um 6,5% BJÖRGVIN Guðmundsson. formaður Vorðlagsncfndar. var í gær spurður álits á þeim orðum forsvarsmanna skipafclaganna í viðtöium við Mbl. sl. fimmtudag. að þcir tcldu afgrciðslu Vcrðlagsncfndar á farmgjöldum skipafclaganna óíaglcga og félögin hcíðu cngar athugascmdir fengið'við sína útrcikninga. Björgvin sagði að í beiðni sinni tæki Eimskipafclagið inn í dæmið fleiri hundruð milljónir. scm ættu að mæta kostnaði við áhrif farmannavcrkfallsins cn vcrðlagsstjóri hcfði talið að það ætti að bíða og sjá betur hver hin raunvcruicgu áhrif verkfallsins yrðu. Bcnnan lið hcfði verðlagsstjóri strikað út úr hækkunarbciðni skipafclaganna m.a. á þcim forsendum að ekki va'ri komið í ljós hvort um yrði að ra'ða meiri nýtingu á skipunum í kjölfar verkfallsins cða ckki og þessi kostnaður biði athugunar síðar. Björgvin sagði að þá hefði veru- lega borið 4 milli í útreikningum Eimskipafélagsins og afstöðu Verðlagsnefndar varðandi hækk- un á öðrum flutningum heldur en stykkjavörunni, sem heyrði undir Verðlagsnefnd, en farmgjöld fyrir útflutning og ýmsa stærri flutn- inga eins og fyrir Varnarliðið væru frjáls. I útreikningum Eim- skipafélagsins um afkomu félags- ins fyrir yfirstandandi ár hefðu þeir reiknað með því að fá 6,5% hækkun á öðrum flutningi á sama tíma og þeir sækja um 40% hækk- un á farmgjöldum stykkjavörunn- ar. „Þetta þýðir að Eimskip og raunar skipafélögin öll ætla að láta stykkjavöruna bera uppi allan hallarekstur félaganna en ætla sáralítið að fá í gegnum aðrar fragtir. Þetta gátu Verð- lagsnefnd og verðlagsstjóri ekki fallist á og töldu að þaö ætti að fá meiri hækkanir á öðrum frögtum og í útreikningum verðlagsstjóra gerir hann ráð fyrir því að það fáist meiri hækkanir á öðrum frögtum en Eimskip áætlar og þar af leiðandi þurfi ekki að hækka eins mikið farmgjöld fyrir stykkjavöruna," sagði Björgvin. Þá sagði Björgvin að inn í þessar umræður um farmgjöldin hefði komið spurningin um hversu miklar afskriftir ætti að viðurkenna og nefndi hann í því sambandi að á síðasta ári hefðu afskriftir Eimskipafélagsins num- ið 1400 milljónum og rekstrarhall- inn 565 milljónum eftir fyrrnefnd- ar afskriftir. orum að fá mikið úr- val af bolum, buxum, kjólum, sportjökkum og "ðrum sumarfatnaði. TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS t^KARNABÆR Laugavegi 66, sími frá skiptiborði 28155. Komdu og fáöu þér SKRÝPIL

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.