Morgunblaðið - 06.07.1979, Síða 8

Morgunblaðið - 06.07.1979, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ1979 2 íslendingar um borð í brezkri úthafsskútu Brezka úthafsskútan Francis Drake kom í höfn á Seyðisfirði á mánudagskvöld. Um borð voru 14 ungmenni á aldrinum 17—25 ára, þar af voru tveir íslenzkir strákar frá Siglingaklúbbi Reykjavíkur, en þeim var boðið að vera með í siglingunni til íslands. Að sögn Þorvalds Jóhannssonar skólastjóra á Seyðisfirði, en hann á tók á móti hópnum við komuna til Seýðisfjarðar, fór hópurinn strax morguninn eftir til Skafta- fells og var ráðgert að fara upp á Vatnajökul og jafnvel að klífa Hvannadalshnjúk. Sá hópur mun síðan halda áfram ferðalagi um Suðurland og fljúga til baka að því loknu, en í dag leggur skútan af stað til Færeyja með nýjan hóp ungmenna, sem hefur verið á ferðalagi um ísland síðustu daga. Skútan er gerð út af Ocean Youth Club í Englandi og kemur hingað í samvinnu við Brathaey, ensk náttúruverndarsamtök, sem hafa það að markmiði að vinna með ungu fólki að náttúrurann- sóknum og náttúruskoðun. Sagði Þorvaldur að auk ungmennanna væru um borð fjórir þaulvanir sigiingamenn, sem leiðbeina unga fólkinu og hafa umsjón með siglingunni. I gær gafst fjölmörgum ungum Seyðfirðingum tækifæri til þess að fara í stutta siglingu með skútunni og vakti það mikla ánægju, að sögn Þorvalds. Hússt j órnarskólanum á Varmalandi slitið Hússtjórnarskólanum á Varmalandi var slitið þann 1. júní síðastliðinn að viðstöddum kennurum, nemendum og gest- um. Skólinn starfaði í níu mánuði og sóttu hann 36 nemendur víðsvegar að af landinu. Prófi luku 32 og hlaut Vilborg Eiríksdóttir frá Brimnesi, Fáskrúðsfirði, hæstu einkunn. Skólinn sá einnig um kennslu í heimilisfræðum fyrir unglinga úr Grunnskólanum á Varmalandi og einn hópur nem- enda úr Bændaskólanum á Hvanneyri sótti þar einnig námskeið í matreiðslu. I vor sóttu eldri nemendur skólann heim og færðu honum gjafir. Hússtjórnarskólinn á Varma- landi mun starfa áfram með svipuðu móti og verið hefur en námið verður þó samræmt námi á hússtjórnarbrautum fjölbrautar- skóla, eftir því sem unnt reynist, svo að auðveldara verði að meta það til framhaldsnáms. Hlutafélag áhuga- manna um kvikmyndalist STOFNUN hlutafélags áhuga- manna um kvikmyndalist er f Áfram bann í Norðursjó London. 4. júlí. Reuter. BRETAR tilkynntu í dag að bann þeirra við sfldveiðum (Norðursjó yrði áfram í gildi út þetta ár. George Younger Skotlands- málaráðherra sagði í Neðri mál- stofunni að „yfirgnæfandi vísinda- legar líkur" bentu til þess að nauðsynlegt væri að halda áfram að vernda síldarstofna á brezkum miðum. Bretar settu fyrst bann við síldveiði í júlí í fyrra þrátt fyrir harða andstöðu Efnahagsbanda- lagsins sem mótmælti einhliða stefnu brezku stjórnarinnar í fisk- veiðimálum. Mokveiði í EUiðaánum LAXVEIÐIN í Eiliðaánum tók gríðarlegan kipp í fyrradag og veiddust þá hvorki fleiri né færri en 40 laxar fyrir hádegið, en eitthvað minna eftir hádegið. Á hádegi í gær voru þá komnir 202 laxar á land úr ánum, en til samanburðar höfðu veiðst 195 laxar um mánaðamót júní/ júlí í fyrra. Hér er því um svipaða veiði að ræða, en munurinn liggur að sjálfsögðu í hinum mikla morg- unafla í gær, en þá fylltu tveir eða þrír veiðimenn kvóta sinn, eða drógu á land 8 laxa. Veiðin hefur nefnilega verið afar dræm til þessa og verið allt frá 15 löxum á dag og niður í engan fisk tvo daga. Helmingur laxanna í gær- morgun veiddur í Fossinum, 11 á Breiðunni, hinir dreifðust nokk- uð. Flestir voru smáir, en gang- an var þeim mun stærri. undirbúningi og verður stofn- fundur haldinn á Hótel Esju 12. júlí n.k. kl. 20.30. Hlutverk félagsins verður að kynna kvikmyndir og efla áhuga fólks á þeim. Einnig er í ráði að félagið standi fyrir sýningum og útgáfu rita er varða kvikmyndir. Ennfremur mun eitt af hlutverk- um félagsins verða að styrkja og standa að gerð og dreifingu kvik- mynda. Áætlað er að fyrsta verk- efni félagsins verði að dreifa og framleiða kvikmyndina Sóley og mun stefnt að því að byrjað verði á upptökum ekki síðar en um miðjan ágúst. Brauzt inn í íjorar íbúðir BROTIST var inn í fjórar íbúðir í Þingholtunum í Reykjavík í fyrrakvöld og stolið þaðan ýmsum smá- hlutum svo sem úri, kveikj- ara, silfurhring auk áfeng- is. Farið var inn um glugga og svalahurðir. í fyrrinótt handtók lögreglan ölvaðan mann í nágrenni innbrots- staðanna og fundust í fór- um hans ýmsir hlutir, sem rekja mátti til þeirra. Við- urkenndi maðurinn að hafa farið inn í íbúðirnar en lögreglan hefur áður orðið að hafa afskipti af honum vegna ýmissa mála. INNLENT Alfreð Jónsson og kona hans Ragnhildur Einarsdóttir, taka við lyklum að glæstum farkosti sem þau hrepptu í vinning í happdrætti Slysavarnafélagsins. Alfreð er formaður slysavarnadeildarinnar í Grímsey og að sögn forráðamanna happdrættisins meðal ötulustu umboðsmanna þess. Lyklana afhenti Gunnar Friðriksson forseti SVFÍ og einnig voru viðstaddir forráðamenn happdrættisins. / „ Anægjan launar erfiðið margfaldlega þegar mannslífum er bjargað” — spjallað við Alfreð Jonsson oddvita í Grímsey „Þegar ég fór til Grímseyjar leiddi það af sjálfu sér, að ég hélt áfram afskiptum af slysa- varnarmálum. Svo atvikaðist, að ég var ekki búinn að vera nema 1 ár í Grímsey þegar búið var að dubba mig upp í oddvita og það hefi ég verið síðan. Félagslíf hefur því miður aldrei staðið með miklum blóma í Grímsey og minnkaði til muna eftir að sjónvarpið kom til sögunnar. En Grímseyingar eru eins og ein fjölskylda í sorg og gleði,“ sagði Alfreð Jónsson, oddviti Grímseyinga og vinn- ingshafi í happdrætti SVFÍ. Alfreð sagðist vera fæddur og uppalinn í Siglufirði en fluttist til Grímseyjar árið 1957. „Á þessum tíma gerðu allir eins og þeir gátu til að styðja við björg- unarstörf og úr. mörgum var að velja til starfa. Þá þótti enginn maður með mönnum nema hann tæki þátt í sem flestum íþrótta- greinum. Ég var í íþróttunum og setti mér snemma það mark að vinna 100 verðlaunapeninga. Það tókst mér og rúmlega það.“ Þegar talið barst að björgun- arstörfum sagðist Alfreð minn- ast þess þegar færeyska skipið „Haffrugvin" strandaði við Sauðanes árið 1949 og þegar Þormóður rammi varð sömu örlögum að bráð árið 1950. Fær- eyska skipið strandaði vestan við Sauðanes. „Við komum á strand- staðinn í náttmyrkri og stórsjór torveldaði okkur öll björgunar- störf. Við gátum hvergi fest björgunartaug í landi svo við urðum að halda í hana í bröttum aurskriðum þar sem erfitt var að fóta sig. En allt gekk vel að lokum og allir 18 skipverjarnir björguðust." Eftir þessa björgungáfu Fær- eyingar Slysavarnafélaginu fé sem notað var til'að endurnýja björgunarútbúnað. „Þegar Þormóður rammi strandaði þá var yfir fjall að fara frá Siglufirði í krapahríð og roki. En þegar við vorum komnir upp í fjall þá gerði hörkufrost og rok. Allt okkar hafurtask fraus og við urðum að skríða þegar verstu hryðjurnar gengu yfir.“ Varð þarna mannbjörg þrátt fyrir erfiðar aðstæður á leið á strandstað og sömuleiðis þegar þangað var komið. „Þegar kall kemur um að þörf sé björgunar þá er aldrei spurt að því hvað sé verið að gera þá stundina, heldur er farið af stað til að koma nauðstöddum til hjálpar. En allur sá tími og fyrirhöfn sem fer í þessi störf fær maður margfalt til baka í áfciægju þegar upp er staðið og mannslífum hefur verið bjargað. Það eru bestu laun sem nokkur getur kosið sér. Þegar er staðið í ströngu við björgunarstörf er eins og manni áskotnist viðbótarorka. Við gömlu mennirnir þurfum ungt fólk til-að leysa okkur af hólmi og beisla eigin orku til góðra starfa. Þjóð eins og íslendingar sem hafa allt frá öndverðu stað- ið í ströngu við náttúruöflin þarfnast þess að allir leggi sitt af mörkum. Ég held áfram þangað til ég verð orðinn til trafala — þá hætti ég, á meðan ég get orðið að einhverju liði þá læt ég mitt ekki eftir liggja," sagði Alfreð Jóns- son að lokum. Eins og sjá má komust ekki allir sem vildu í Eskifjarðarkirkju er þar fór fram minningarathöfn um sjómennina, sem fórust með vélbátnum Hrönn í lok aprfl. Fjölmenni við minningarathöfn Eskifirði FYRIR nokkru fór fram frá Eski- fjarðarkirkju minningarathöfn um skipverjana sex, sem fórust með vélbátnum Hrönn á Reyðar- firði utanverðum í lok aprílmán- aðar. Mikið fjölmenni var við athöfnina og rúmaði kirkjan eng- an veginn alla þá, sem komu til að votta hinum látnu virðingu sína. Séra Davíð Baldursson annaðist minningarathöfnina. — Ævar Þykkvibær: Kartöflugrös að byrja að koma upp á stöku stað „ÞETTA er hreinn fimbulkuldi og það er ekki nema á stöku stað, sem kartöflugrös eru að byrja að koma upp,“ sagði Magnús Sigurlásson, fréttaritari Morgunblaðsins í Þykkvabæ, er blaðið ræddi við hann. Sagði Magnús, að ekki væri ofsagt, að kartöfluspretta og öll vinna við þær væri nú mánuði seinna en venja væri til. Seint hefði verið sett niður og það væri allt undir haustinu komið, hvernig uppskeran yrði og þá sérstaklega hvenær næsturfrost færu að hafa áhrif. Magnús sagði að útlitið væri ekki bjart hjá kartöflubændum en hins vegar hefði verið sæmileg grasspretta. JASÍMINN ER: 22480 kjSJ JRorxsimhlíibiti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.