Morgunblaðið - 06.07.1979, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ1979
Nautastöðin á Hvanneyri:
Nautin eignast afkomendur löngu
eftir að þeirra eigin jarðvist lýkur
Búnaðarfélag íslands rekur nautastöð á Hvanneyri í Borgar-
firði, og er hún í mýrinni austan við þjóðveginn. Þar eru að jafnaði
um 20 til 25 naut, sem notuð eru til sæðistöku. Á síðasta ári voru
djúpfrystir um 130 þúsund skammtar, og frá stöðinni eru sæddar
um 19 þúsund kýr á ári. Við nautastöðina starfa nú tveir fastráðnir
menn, en frá síðustu áramótum hafa öll húnaðarsambönd landsins
skipt við stöðina.
Framkvæmdastjóri stöðvar-
innar er Diðrik Jóhannsson, og
sýndi hann blaðamanni og ljós-
myndara Morgunblaðsins nauta-
stöðina þegar minnst var 90 ára
afmælis bændaskólans á
Hvanneyri. Nú í sumar eru liðin
tíu ár frá því nautastöðin tók til
starfa. Sem fyrr segir er þetta
nú eina sæðingarstöðin á land-
inu, en áður voru starfandi fleiri
stöðvar, sú fyrsta í Eyjafirði frá
1946, og síðan kom djúp-
frystingarstöð í Laugardælum
1972. Raunar er enn rekin
sæðingarstöð frá Laugardælum,
og mun svo verða á meðan
birgðir þar endast, en að því
loknu flyst starfsemin alfarið til
Hvanneyrar.
Er Morgunblaðsmenn bar að
garði í nautastöðina hjá Diðrik
voru þar 15 naut. Allt voru það
ung naut, enda sagði Diðrik að
þeim væri fargað þegar búið
væri að taka úr þeim ákveðið
magn sæðis, þar sem mun ódýr-
ara er að geyma það djúpfryst
heldur en að halda fullorðnum
törfum á gjöf. í nautastöðina
koma nautin því yfirleitt um
eins árs gömul, og eru þar uns
þau hafa náð tveggja ára aldri,
en þá eru þau felld. Sagði Diðrik
að sæði nautanna væri geymd
djúpfryst, í um það bil 196 gráðu
frosti, en teknir eru um það bil 7
þúsund skammtar úr hverju
nauti. Diðrik kvað 6 þúsund
þessara skammta vera setta í
geymslu, en rösklega eitt þúsund
er sent út til notkunar.
Afgangurinn er síðan geymdur í
4 til 5 ár, og ræðst það þá af
þeirri reynslu sem fengin er af
viðkomandi nauti, hvort meira
er notað. Ekki þarf að taka fram
að viðkomandi naut er löngu
FORKUR 76010,
f. 30. apríl 1976 á félagsbúinu Grof, Ong-
ulsstaðarhreppi, Eyjafirði.
44. Forkur 76010.
Lýsing:
Dökkkolóttur og krossóttur: kollottur; sterk
yfirllna; gleitt sett rif; útlögur vel I meðal-
lagi, djúpur bolur; jafnar, breiðar
malir; fremur háfættur með frem-
ur þykk læri; lausbyggður.
þroskamikill grípur (1.11. '77 °9 —
breytt 2.5. 78).
Umsögn:
I Forkur var felldur 5. sept. 1978
, eftir að tilskildu saeðismagni
hafði verið náð úr honum. i sept-
emberlok var búið að senda út
I til dreifingar 1121 skammt.
Móðurætt:
MÓÐIR: Húfa 33, f. 26. mars 1965, Gröf, Öng.
Mf. Gautur 61016.
Mm. Hjálma 10.
Mff. Ægir 53024.
Mfm. Lukka 34, Gautsst. II, Svalb.
Mmf. Sjóli 49023.
Mmm. Skrauta 3.
Umsögn:
Forkur 76010 er annar kálfurinn, sem val-
inn er undan Húfu 33 á Nautastöð.na. Hmn
var Virkir 75008. i árslok 1977 hafSi Hufa
33 mjólkað að meðaltali I 10,7 ér 6239 kg
með 4,07% fitu, þ.e. 253,9 kg mjólkurf.ta,
Húfa 33 hefur hlotið I. verðlaun á sýmngum
1969. 72 og 76.
45. Húfa 33, Gröf.
lafn og nr. móður:
lúfa 33 .....
Afurðaeinkunn
»j. ára kg, mjólk
Meðal-
frávik
á fitu %
Dómur við skoðun: (1976) .
Skap-
Skrokkur Júgur Spenar Mjöltun gerð
28,0
13,0
13,5
15,0
Sýnishorn einnar síðu úr skýrslu Búnaðarfélags íslands um
Nautastöðina, en hún er gefin út sem sérprentun úr búnaðarblað-
inu Frey. Hér getur að líta ítarlegar upplýsingar um kynbótanaut
eins og sjá má.
Ljósm. Mbl: Emilía.
Diðrik við eitt nautanna í Nautastöðinni. Nautin eru öll ung að árum, enda eru þau felld þegar tiltekið
sæði hefur verið tekið úr þeim, en mun ódýrara er að geyma sæðið djúpfryst en að hafa á fóðrum mörg
fullvaxin naut.
komið til feðra sinna þegar full
reynsla er komin á afkvæmi
þess. Diðrik sagði það aðeins
vera tiltölulega fá naut sem
stæðust þær kröfur sem gerðar
væru til nauta til undaneldis, og
kvaðst hann halda að um það bil
tvö naut af hverjum tíu sem
reynd væru, stæðust þær kröfur
sem gerðar væru.
í þessum tanki er sæðið geymt,
djúpfryst, við 196 gráðu frost á
Celcius.
Eftir því sem auknar kröfur
eru gerðar til gæða nautgrip-
anna, bæði hvað varðar bygg-
ingu og afurðamagn, þá verður
það nauðsynlegt að beita sífellt
markvissari aðferðum við rækt-
un stofnsins, og er nautastöðin á
Hvanneyri einmitt rekin með
slík sjónarmið í huga. Eftir því
sem ræktunin heldur áfram og
þróast, þá fylgir í kjölfarið mikil
skýrslugerð, og meðal annars
haldið til haga miklum upplýs-
ingum um kynbótagripi, bæði
kýr og tarfa. Eru í þessum
tilgangi færðar miklar ættbæk-
ur, þar sem finna má hinar
fjölbreytilegustu upplýsingar
um nautpening landsmanna.
í fjósinu heima á Hvanneyri eru þessi naut höfð á bás, og raunar
alls óskyld nautunum á Nautastöðinni hinum megin við þjóðveg-
inn. Þetta eru blendingar af Gallowayholdanautum, en talsverð
hjörð holdagripa er á Hvanneyri.
Sumar á Kjarvalsstöðum
- f jölbreytt dagskrá verður á K jarvalsstöðum í sumar
I SUMAR verður tekin upp
sú nýbreytni á Kjarvalsstöð-
um að bjóða ýmsum lista-
mönnum að sýna verk sín þar
undir nafninu „Sumar á
Kjarvalsstöðum“, með það
fyrir augum að kynna ferða-
mönnum í borginni íslenska
list, jafnframt því sem borg-
arbúar geta haft ánægju og
fróðleik af.
I sumar sýna þrír hópar
listamanna verk sín á
Kjarvalsstöðum, í vestursal
sýnir Septem-hópurinn,
Gallerí Langbrók sýnir í kaffi-
stofu og á göngum, og Mynd-
höggvarafélagið setur upp
sýningu umhverfis húsið og í
anddyri. í austursal, Kjarvals-
sal, verða sýnd málverk eftir
Jóhannes S. Kjarval í eigu
Reykjavíkurborgar. Samtals
verða í sumar á Kjarvalsstöð-
um verk eftir um 35 lista-
menn.
Um þessar mundir er í und-
irbúningi Reykjavíkurvika,
sem halda á dagana 13.—19.
ágúst. Þar er ráðgert að kynna
ýmsar stofnanir Reykjavíkur-
borgar og í tengslum við þá
kynningu verður m.a. sett upp
sýning frá Þróunarstofnun á
skipulagi þriggja hverfa í
Reykjavík. Fyrirlestrar og
umræðufundir eru ennfremur
ráðgerðir í tengslum við
skipulagssýninguna svo og
kynnisferðir í þessi tilteknu
hverfi. Sýningin verður sett
upp í fundarsal Kjarvalsstaða
og fellur þannig inn í ramma
sumarsýningarinnar.
Með haustinu eru margar
sýningar ráðgerðar á
Kjarvalsstöðum. Um mánaða-
mótin ágúst—september verða
tvær bandarískar sýningar í
vestursal, MÍR gengst fyrir
tónleikum og listmunasýningu
frá sovéska ríkinu Kazakstan
um miðjan september og um
svipað leyti verður Haustsýn-
ing Félags íslenskra myndlist-
armanna. í byrjun október
SUMAR
á KjarvalsstöÓum
T
verður alþjóðleg barnabóka-
sýning á vegum Bókavarðafé-
lags Islands, Rithöfundasam-
bands og fleiri aðila, og eru
ýmis dagskráratriði ráðgerð í
tengslum við þá sýningu. í
október setur Rafn Hafnfjörð
upp ljósmyndasýningu og að
henni lokinni heldur Einar
Hákonarson einkasýningu. í
nóvember verða nýlistamenn-
irnir Ólafur Lárusson, Þór
Vigfússón, Kristinn Harðar-
son og fleiri með sýningu.
Nýr veitingamaður hefur
tekið við rekstri veitingastof-
unnar á Kjarvalsstöðum, en
það er Huld H. Goethe í
samvinnu við Eið Valgarðs-
son. Um leið hafa verið gerðar
þar nokkrar breytingar og
tekin upp sjálfsafgreiðsla.
Þegar vel viðrar er fyrirhugað
að setja borð út á stéttina, og
geta menn þá borið út með sér
veitingarnar. Stefnt er að því
að opna veitingastofuna á
hádegi og hafa þar á boðstól-
um létta smárétti, en ekki er
ennþá búið að ákveða hvenær
sú nýbreytni verður tekin upp.