Morgunblaðið - 06.07.1979, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ1979
Ben Bella
Um hann hefur löng-
um leikiö hetjuljómi
íaugum landa hans
AHMED Ben Bella sem var
einna frægastur hálfgleymdra
pólitískra fanga f heimi, hefur
nú fyrirvaralaust verið sleppt
úr haldi. Hann var f augum
margra landa sinna holdtekja
þeirra drauma sem voru undir-
rót langrar og harðvítugrar
frelsisbaráttu sem Alsírbúar
háðu við Frakka og hann var
einn f hópi nfu amnna sem
stofnuðu þjóðlegu frelsisfylk-
inguna árið 1949 og hófu
frelsisstríðið gegn Frökkum.
Hópurinn var illa vopnum bú-
inn í fyrstu, en fylgismenn
samtaka þessara voru einarðir
og svifust einskis og frelsis-
stríðið í Alsír varð bæði
grimmiiegt og langvinnt.
Löngu áður en því lauk og Ben
Bella tók við áhrifastöðu lék
um hann hetjuljómi og landar
hans höfðu á honum mikið
dálæti. Sjálfur mun hann aldrei
hafa óskað þess að verða slíkt
goð og hann reyndi eftir megni
að komast hjá opinberu umtali
og lifði fábrotnu Iifi.
Hann var forsætisráðherra í
eitt ár og síðan forseti í tvö ár. í
valdaráni Houari Boumedienne
árið 1965 var Ben Bella dreginn
í dögun út úr rúmi sínu og
síðan haldið í einangrun og
stofufangelsi f fjórtán ár.
Fangavist var honum ekki ný
reynsla því að meðan hann stóð
í sjálfstæðisbaráttunni hafði
hann margsinnis verið í fang-
elsi og þegar frelsisstríðið
komst í' hámark var Ben Bella
frægastur fangi Frakka og sá
þeirra sem bezt var gætt.
Ahmed Ben Bella fæddist
þann 25. desember 1916 í Marnia
í Vestur-Alsír. í heimsstyrjöld-
inni síðari barðist hann í
franska hernum og fékk heiðurs-
merki fyrir vasklega framgöngu.
Það sem skipti sköpum fyrir
Ben Beila var atburður sem
gerðist meðan hann beið þess í
Frakklandi að vera leystur úr
herþjónustu. Fréttir bárust af
uppreisnartilraun þjóðernis-
sinna í Austur-Alsír í maí 1945
og jafnframt af þeirri ógurlegu
grimmd sem sýnd var til þess að
bæla hana niður.
Til þess að hefna 200 land-
nema gáfu evrópskir borgarar
sig fram til þjónustu í sérstökum
sveitum, sem aðstoðuðu franska
landherinn, flugherinn og flot-
ann við að eyða þorpum og slátra
rúmlega 10 þúsund múhameðs-
trúarmönnum. Þjóðernissinnar
töldu að mannfallið hefði '-erið
langtum meira, eða allt að 40
þúsund. Frá þeirri stundu var
Ben Bella sarifærður um að allar
vonir um nýja skipan mála í
Alsír með friðsamlegum hætti
væru byggðar á sandi og eina
vonin væri vopnuð uppreisn.
Dirfska hans vakti oftsinnis
athygli. Einhverju sinni brauzt
hann ásamt tveimur félögum
sínum inn í pósthús í Oran í
Vestur-Alsír og hafði á braut
með sér þrjár milljónir franka
(hér er átt við gamalfranka) og
var þeim varið til uppbyggingar
byltingarsveitunum. Hann var
handtekinn og varpað í fangelsi
en hann slapp þaðan 1952 og
komst undan til Kairó og stjórn-
aði þaðan baráttunni við Frakka
af harðfylgi og kænsku. Með
brögðum tókst Frökkum síðan
að hafa hendur í hári hans
fjórum árum síðar og sat Ben
Bella síðan í fangelsi unz vopna-
hlé var loks samið.
Vegur hans til æðstu valda var
þó ekki átakalaus vegna þess, að
samkvæmt Eviansamkomulag-
inu höfðu Frakkar gert samning
við útlagastjórn Alsírmanna í
Túnis og héldu forsvarsmenn
þeirrar stjórnar nú til Algeirs-
borgar að taka þar við stjórnar-
taumum. Ben Bella var ekki dús
Ben Bella
við þetta og réðst til inngöngu í
Vestur-Alsír frá Marokkó og
fljótlega kom í ljós, að allur
þorri manna studdi hann til
valda svo að hann varð síðan
forsætisráðherra 1962 og síðan
forseti án þess nokkur byði sig
fram á móti honum. Hann naut
mikillar lýðhylli á þessum árum
og fábrotnir lifnaðarhættir hans
hugnuðust löndum hans mjög
vel. Hann vildi vinna af kappi að
félagslegum umbótum í landinu,
reisa úr rúst atvinnuvegina og
efla sjálfsvirðingu landa sinna.
Hann var lítt mannblendinn og
kærði sig sem minnst um að vera
í sviðsljósinu en hann gat verið
harðskeyttur og hann lét hand-
taka ýmsa andstæðinga sína og
reka aðra í útlegð. Ben Bella var
einlægur múhameðstrúarmaður.
Kallaður sósíalisti en lét kenni-
setningar ekki blinda sig. Hann
var andsnúinn kommúnisma, að
sögn ekki af trúarlegum eða
hugsjónarlegum rökum, heldur
vegna fyrri kynna og reynslu af
kommúnistaflokknum í Frakk-
landi og Alsír.
Fáir treystu sér tl að draga í
efa að hann hefði viljað af alhug
og einlægni vinna landi sínu
gagn og skapa íbúunum mann-
sæmandi kjör og betra líf en
áður.
Þegar kunngert var að Ben
Bella hefði verið leystur úr haldi
hófust samstundis vangaveltur
um hvort hann myndi á ný hefja
afskipti af stjórnmálum. Úm það
hefur ekkert verið sagt endan-
legt en talsmaður NLF, eina
stjórnmálaflokks Alsírs, sagði
Ben Bella væri alténd heimilt að
gerast félagi í flokknum.
h.k.
Berlinguer neitar
Andreotti stuðningi
Rómaborg, 5. júlí. AP.
ENRICO Berlinguer, for-
maður ítalska kommúnista-
flokksins, skýrði Andreotti,
forsætisráðherraefni lands-
ins, frá því í dag að það
væri afdráttarlaus ákvörð-
un flokks hans að fara í
stjórnarandstöðu þar sem
kommúnistum hefði verið
neitað um að fá sæti í
ríkisstjórn.
Berlinguer hafði minnst
Svíar hækka
forvexti
Stokkhólmi, 5. júlí. AP.
LANDSBANKI Svíþjóðar -til-
kynnti í dag, að ákveðin hefði
verið hækkun á forvöxtum um
hálft prósent eða í sjö prósent, og
er þá rétt ár síðan vextir voru
hækkaðir um ámóta prósentu-
tölu.
á þetta fyrr en ítrekaði það
í viðræðum sem Andreotti
hóf í dag við formenn
stjórnmálaflokkanna eftir
að Pertini forseti fól honum
að mynda 38. ríkisstjórn
Ítalíu síðustu þrjátíu og
f jögur ár.
Berlinguer sagði að kommúnistar
myndu ekki taka þátt í neinum
samtölum um huganlegan sam-
starfssamning fyrir ríkisstjórn-
ina, en Andreotti er að reyna að
draga upp slíkan samning.
Kommúnistar hættu stuðningi
við stjórnina í janúar og varð það
til þess að síðan varð að efna til
kosninga í landinu, tveimur árum
fyrr en áætlað hafði verið. í
kosningunum misstu kommúnist-
ar veruiegt fylgi í fyrsta sinn um
langa hríð og njóta nú stuðnings
30 prósenta í stað 34 próscnta
áður.
Andreotti ræddi við leiðtoga
Lýðræðislegra sósíalista og re-
públikana flokka sem ásamt
Kristilegum demókrötum áttu að-
ild að síðustu stjórn. Munu þeir
hafa gefið góð orð um að styðja
hann til ríkisstjórnarmyndunar
svo fremi hann fáist til að taka
það inn á áætlun sína að leysa
ýmis aðkallandi vandamál, þar á
meðal atvinnuleysi í landinu og
fjárhagsvandræði af ýmsum toga
sem m.a. má reka til olíukrepp-
unnar.
Fjársjóða-
leit í sorp-
ræsunum
Tanfield Lea, Englandi, 5. júlí — AP.
LÖGREGLA í námabæn-
um Tanfield Lea á Norð-
ur-Englandi leitar nú
ákaft aö manni sem virðist
haldinn þeirri sérstæðu
áráttu að sturta peningum
í skolpræsi. Verkamenn,
sem voru við störf niðri í
slíkum ræsum, ætluðu
varla að trúa sínum eigin
augum þegar þeir fóru að
finna slitrur af 5 og 10
punda seðlum í eðjunni.
Hafa nú fundist um 300
sterlingspund og lögreglan
segir að hún sé áfjáð í að
hafa upp á þeim sem hefur
iðkað þetta og kveðst óttast
að barn gæti hafa komizt í
spariskilding foreldra
sinna ellegar launaumslag.
ERLENT
Þetta gerdist
1972 — Suður-Víetnamar taka
Quang Tri.
1967 — Borgarastríð brýzt út í
Nígeríu.
1964 — Malawi fær sjálfstæði.
1950 — Oder-Neisse-línan lýst
vananleg landamæri Þýzkalands
og Póllands (af Austur-Þjóðverj-
um og Pólverjum)
1923 — Sovétríkin formlega
stofnuð.
1908 — Uppreisn Ung-Tyrkja
hefst í Makedóníu.
1827 — Stórveldin samþykkja skv.
Lundúna-sáttmálanum að viður-
kenna sjálfstjórn Grikkja.
1809 — Orrustan um Wagram:
Napoleon sigrar Austurríkismenn
— Frakkar taka Pál páfa VV til
Perlinguer
Frumútgáfa kommúnista
ávarpsins á 24 milljónir
Parfa, 5. júlí AP.
FRUMÚTGÁFA kommúnistaávarpsins, sem gefið var út í
London árið 1848 af Marx og Engels, var í dag seld á uppboði
fyrir um það bil 67 þúsund dollara, eða sem svarar rúmlega 24
milljónum íslenzkra króna. Þetta er eitt af tíu eintökum sem
vitað er að til séu af frumútgáfunni, sem var á þýzku og 23 bls. að
stærð. Ekki hefur verið sagt hver kaupandi var, en hann mun
vera Frakki.
Veður
víða um heim
Akureyri 14 skýjaó
Amsterdam 20 skýjaó
Barcelona 24 skýjaó
BerKn 18 skýjaó
BrUssel 23 bjart
Chicago 22 bjart
Denpasar, Bali 31 skýjaó
Feneyjar 22 heiðskírt
Frankfurt 24 skýjaó
Genf 24 sólskin
Helsinki * 17 rigning
Hong Kong 33 skýjaó
Jerúsalem 31 bjart
Jóhannesarb. 13 sólskin
Kaupmannah. 20 sólskin
Kairó 37 bjart
Las Palmas 23 léttskýjaó
Lissabon 27 skýjað
London 25 sólskin
Los Angeles 23 skýjað
Madríd 28 sólskin
Majorka 25 skýjaó
Malaga 25 léttskýjað
Moskva 22 rigning
Nýja Delhi 37 skýjaó
New York 21 úrkoma
Ósló 23 sólskin
París 22 sólskin
Reykjavík 9 alskýjað
Rio de Janeiro 31 skýjaó
Rómaborg 27 sólskin
San Francisco 17 skýjaó
Stokkhólmur 19 skýjað
Sydney 17 bjart
Teheran 36 bjart
Tel Aviv 31 skýjaó
Tókíó 28 bjart
Vancouver 21 skýjaö
Vínarborg 16 skýjað
6. júlí
fanga fyrir að bannfæra
Napoleon.
1782 — Sjóorrusta milli Breta og
Frakka við Madras, Indlandi.
1770 — Rússneskur floti sigrar
tyrkneska sjóherinn við Cheshme,
Tyrklandi.
1747 — Frakkar og Spánverjar
rjúfa hafnbann Breta og Austur-
ríkismanna á Genúa.
1699 — Sjóræninginn kapteinn
Kidd settur í varðhald í Boston
(seinna hengdur í Englandi).
1685 — Orrustan um Sedgemoor.
1673 — Fjórða Húgenotta-stríðinu
lýkur með friðun Boulogne.
1560 — Edinborgar-sáttmáli Eng-
lendinga og Skota: Lið Frakka
flutt burt og tilkall Maríu Skota-
drottningar til ensku krúnunnar
ógilt.
1535 — Sir Thomas More tekinn af
lífi.
1553 — Lafði Jane Grey verður
drottning Englands.
1415 — Jóhann Húss brenndur á
báli.
Afmæli. Bernardino Baldi, ítalsk-
ur stærðfræðingur
(1535—1617)=John Paul Jones,
bandarískur flotaforingi
(1747—1792)=John Flaxman, ensk-
ur myndhöggvari
(1755—1826)=Janet Leigh, banda-
rísk leikkona (1927—)=Maximilian
Mexíkókeisari(1832—1867).
Andlát. Hinrik II Englandskon-
ungur 1189=Játvarður VI Eng-
landskonungur, Sigismund II Pól-
landskonungur 1572=Guy de
Maupassant, rithöfundur, Louis
Armstrong, tónlistarmaður, 1971.
Innlent. „Flóra" skotin í kaf
1917=síra Ólafur Egilsson kemur
heim úr ánauð í Algeirsborg
1620=Embættismannanefndin
fundar um stofnun Alþingis í
Reykjavík 1841=Eyjólfur Jónsson
syndir úr Selsvör til Akraness á 13
klst. 1958=„Northern Dawn“ reyn-
ir að kafsigla „Gullborgar" Binna í
Gröf 1960=Öskjuferð geimfara
1967=f. Þóra Borg 1907=Eggert G.
Þorsteinsson 1925.
Orð dagsins. Hlutskipti gagnrýn-
enda er það, að þeirra er minnzt
fyrir það sem þeir gátu ekki skilið
— George Moore, írskur rithöf-
undur (1852—1933).