Morgunblaðið - 06.07.1979, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ1979
Selma Jónsdóttir við nokkur verka Bram van Velde. Ljósm.: Kristinn.
Listasafn íslands fær
veglega listaverkagjöf
LISTASAFNI íslands hef-
ur borist vegleg lista-
verkagjöf. Er hér um að
ræða 65 grafísk verk eftir
listmálarann Bram van
Velde og er gefandinn
listamaðurinn sjálfur.
Bram van Velde er einn
fremstur núlifandi lista-
manna. Hann er fæddur í
Hollandi árið 1895, en hefur
lengst af verið búsettur í
París. Sem málari hefur hann
sfaðið nærri Cobrahópnum og
er stundum talinn einn úr
þeirra hópi.
í tilefni þessarar merku
listaverkagjafar mun Lista-
safn íslands efna til sýningar
á verkum Bram van Velde og
mun listamaðurinn sjálfur
verða viðstaddur opnun sýn-
ingarinnar, sem verður sunnu-
daginn 8. júlí n.k., en þá mun
forsætisráðherra, dr. Ólafur
Jóhannesson, opna sýninguna
formlega að viðstöddum for-
seta íslands og frú hans.
Sýningin verður opin dag-
lega klukkan 13.30—22.00 til
29. júlí.
Neskaupstaður fimmtugur:
Fjöldi aðkomumanna komnir
til að vera við hátíðarhöldin
Yfirvinnubann far-
manna fyrir félagsdómi
MÁLFLUTNINGUR í máii
vinnuveitendasambandsins og
vinnumálasambandsins gegn far-
mönnum vegna yfirvinnubanns-
ins hófst fyrir félagsdómi í gær.
Á myndinni flytur lögmaður
farmanna, Arnmundur Bachman,
mál sitt, en hann krafðist þess að
málinu yrði vísað frá dómi. Til
hægri sitja Gunnar Guðmundsson
lögfræðingur VSÍ, Skúli J. Pálma-
son, sem flytur málið fyrir vinnu-
málasambandið, og Barði Frið-
riksson, sem flytur málið fyrir
VSÍ. Félagsdóminn skipa: Guð-
mundur Jónsson, borgardómari,
sem er dómsforseti, Bjarni Kr.
Bjarnason, borgardómari, Þor-
steinn Thorarensen, borgarfógeti,
Páll S. Pálsson, hrl., og Arni
Guðjónsson hrl.
Að loknum málflutningi beggja
aðila var frávísunarmálið tekið til
úrskurðar og er hans að vænta um
eða eftir helgina.
Hlöðuball á Svínabúi
Hljómsveit Stefáns P. ásamt
Baldri Brjánssyni, galdramanni,
Júlfus Brjánssyni og Randver
Þorlákssyni eru um þessa helgi að
hefja tveggja mánaða ballferð um
landið. Hefst ferðin með alvöru
hlöðuballi í hlöðunni að Þórustöð-
um sem er rétt fyrir utan Selfoss.
Hlöðuballið verður haldið föstu-
daginn 6. júlí og byrjar á skemmt-
un sem byggist á grín- og söngatr-
iðum auk töfrabragða Baldurs.
Baldur mun t.d. sýna uppskurðinn
fræga og mun hann líka láta staf
svífa um loftið svo eitthvað sé
nefnt.
Hlaðan að Þórustöðum mun vera
hin vistlegasta, steinsteypt og gólf
góð, en einhver hluti þeirra verður
þó klæddur með plötum. Hljóm-
sveit Stefáns P. mun síðan halda í
landreisuna og leika að Hvoli
kvöldið eftir.
Meðlimir hljómsveitarinnar eru
Stefán P. Þorbergsson, Sigurður
Björgvinsson og Skúli Einarsson.
Slagbrandur mun að öllum lík-
indum fylgjast með dansleikja-
haldinu að Þórustöðum.
HÁTÍÐAHÖLD standa nú yfir á
Neskaupstað vegna hálfrar aldar
afmælis kaupstaðarins. Er mikið
um að vera á Norðfirði þessa
dagana, og hefur fjöldi fólks lagt
þangað leið sfna vfða að af
landinu. Einkum eru það brott-
fluttir Norðfirðingar sem koma í
heimsókn, og er nú langt síðan
öll herbergi á Neskaupstað voru
upppöntuð.
í gærkvöldi var frumflutt hjá
Leikfélagi Neskaupstaðar nýtt ís-
lenzkt leikrit eftir Kjartan Heið-
berg. Leikstjóri er Haukur Gunn-
arsson. I dag verður síðan
knattspyrna og unglingadansleik-
ir.
Á morgun, laugardag, hefjast
hátíðahöldin síðan með siglingu
með gesti um Norðfjarðarflóa, og
þá verður útisamkoma í skrúð-
LÁNASJÓÐUR íslenskra námsmanna
Umsóknarf restur
um námslán
Umsóknarfrestur um haustlán
1979—80 er framlengdur til 1. ágúst
n.k.
Áætlaöur afgreiöslutími lánanna er:
fyrir námsmenn erlendis 1. okt. 1979.
fyrir námsmenn á íslandi 1. nóv. 1979.
Skilafrestur fylgiskjala er mánuöi fyrir
áætlaöan afgreiöslutíma.
Umsóknareyöublöö fást á skrifstofu
sjóösins á Laugavegi 77, afgreiöslutími
er frá 1—4 e.h. Sími 25011.
Reykjavík, 3. 7. 1979,
Lánasjóöur ísl. námsmanna.
Heimdallur með útimarkað
garði bæjarins. Um kvöldið verður
síðan dansleikur í Egilsbúð.
Á sunnudaginn verður haldið
sundmeistaramót Þróttar, hátíða-
guðsþjónusta verður í Norðfjarð-
arkirkju, hraðmót í handknatt-
leik, leiksýning í Egilsbúð og
fleira. Þá verða sýningar opnar
alla daga, sundlaugin verður opin
og fjölmargt verður gert til
skemmtunar á þessu 50 ára af-
mæli Neskaupstaðar.
Ileimdellingar verða með eitt og
annað á hoðstólum á útimarkaðinum
á Lakjartorgi í dag. og munu selja
þar t.d. bækur. kökur og ýmislegt
smádót.
Sem kunnugt er hefur Heimdallur
nýlega gefið út bókina
Sjálfstæðisstefnuna. Itæður og rit-
gerðir 1929—1979 i tilefni af 50 ára
afmæli Sjálfstæðisflokksins. Þessa
bók ætla Heimdellingar að selja á
útimarkaðnum, auk bókarinnar
Uppreisnar í anda frjálshyggju sem
15 ungir sjálfstæðismenn hafa skrif-
að, einnig í tilefni 50 ára afmælis
Sjálfstæðisflokksins. Þá verður einnig
á boðstólum bókin Frjálshyggja og
alræðishyggja eftir Óiaf Björnsson
prófessor.
Útimarkaður Heimdellinganna er
bæði í fjáröflunar- og kynningarsk.vni
fyrir starfsemi félagsins.
Færeysku bæjarfulltrúarnir í Þórshöfn, sem hér eru í boði borgarstjórnar Reykjavíkur skoðuðu í gær
þjóðminjasafnið og Árnasafn, og snæddu síðan hádegisverð að Kjarvalsstöðum. Var þá þessi mynd tekin.
Petur Christiansen bæjarstjóri í Þórshöfn er fjórði frá hægri og bæjarstjórafrúin við hlið hans. Þá er
varaforseti bæjarstjórnar Petur i Gong, siðan bæjarfulltrúarnir Finnur Johansen, Ebbe Mortensen og
Ingi Mohr og á mvndinni eru einnig konur þeirra og börn, sem með eru í ferðinni. í gærkvöldi fóru
bæjarfulltrúarnir í siglingu um Sundin með báti Slysavarnafélagsins og út í Viðey.