Morgunblaðið - 06.07.1979, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1979
19
Guðjón F. Teitsson:
Kaupfar — kaupskip
verzlunarskip—f arskip
Orðið farskip um skip, sem um
aldaraðir hafði yfirleitt verið
nefnt kaupfar eða kaupskip, en á
málum nágranna og frændþjóða
Handelsskib, Hanselsschiff og
Merchant-ship, er tiltölulega nýtt
í íslenzku máli, varla eldra en frá
árunum 1950—60. Er því t.d. ekki í
orðabók Blöndals og komst ekki
heldur í orðabók Menningarsjóðs
1963, þótt slæðst hefði inn í lög um
lífeyrissjóð sjómanna 1962.
Löngu fyrr hafði hins vegar
verið tekið upp og gert algengt í
lagamáli orðið verzlunarskip,
lengra og stirðara orð en hin eldri,
kaupfar og kaupskip.
Orðið farskip er stutt og fer vel í
munni, en virðist skorta rökrænan
grundvöll og samsvörun við mál
frændþjóðanna.
An umhugsunar mun ýmsum
finnast, að farmaður og farskip
fari vel saman, en við nánari
athugun sýnist farmaður þýða hið
sama og skipsmaður, því að væri
ekki svo, myndi hver sá, sem
ferðaðist mikið á einhvern hátt og
án ráðningar í skipsrúm, geta
kallast farmaður, en slíkt hefir
aldrei tíðkast. Ekkert virðist at-
hugavert við það að tala um
farmenn á fleiri skipum en kaup-
skipum, svo sem á fiskiskipum,
varðskipum og hafrannsóknaskip-
um, þar sem menn starfa og búa
um borð á sjóferðum.
En lítum á samsvörun við orðið
farfugl. Hugsanlega er það til
orðið af því að menn fyrr á öldum
hafi tekið eftir því að þessir fuglar
settust til hvíldar á skip (far)
þeirra á ferðum milli landa. Hitt
Guðjón F. Teitsson
er þó líklegra, að orðið farfugl hafi
frá öndverðu haft merkinguna
ferðafugl, í raun og veru lang-
ferðafugl, sem skiptir um dvalar-
staði á hnettinum eftir árstíðum,
og yrði þá samsvörunin sú, að
orðið farskip tæki aðeins til skipa
(kaupskipa?) í langleiðasiglingum
milli landa, en næði ekki til skipa
yfirleitt eða eingöngu í stuttleiða-
siglingum eða strandferðum á
heimaslóðum. Þessi skilningur
virðist samt ekki ríkja hjá þeim,
sem nota orðið farskip, og heim-
færa þeir það jafnt upp á skip í
millilandaferðum sem strandferð-
um.
Má því spyrja, er ekki jafnrök-
rænt að kalla hrafninn farfugl
eins og strandferðaskip og flóa-
báta farskip?
Ég er sammála málfræðingum,
sem eru yfirleitt á móti því að
flækja málið með nýyrðum, þar
sem góð og gild orð eru fyrir, og
frá því sjónarmiði er hér með lagt
til, að fólk hætti að nota hið langa
orð verzlunarskip og hið órökræna
orð farskip, en haldi sig við hin
áðurnefndu upprunalegri orð, sem
ágreiningslaust eiga jafnvel við
skip í siglingum milli landa sem á
heimaslóðum.
Til gamans skal því bætt við
framanritað, að nýlega bar svo
við, að kunningi minn, sem nokkuð
hefir fengizt við skáldskap, tjáði
mér, að hann væri að hugsa um að
nota orðið farvindúr sem heiti á
næstu bók sinni og spurði hvernig
mér litist á það.
Svaraði ég, að mér þætti óljóst
hvað slíkt bókarheiti ætti að boða,
því að allur vindur væri í raun
farvindur, það er loft á mismun-
andi hraðri og langdrægri hreyf-
ingu, en þegar ekki væri vindur
kallaðist logn.
Ætti farvindur í umræddu til-
viki að tákna hagstæð skilyrði til
að koma skáldskapnum á fram-
færi, samanber hagstæðan vind
fyrir skip að sigla, þá virtist
ástæðulaust að boða slíkt í bókar-
heitinu, enda önnur orð þá tiltæk-
ari, svo sem byr, meðbyr eða
meðvindur.
Sýnir þetta, að orðið far sem
tengiorð þykir freistandi til ný-
smíða, en slíkar ber að vanda.
Guðjón F. Teigsson
Jens í Kaldalóni:
Skvettuskrugga
gjálfraði inn miðskipa
Bæjum 23. júní. '79.
I DAG kom hingað flóabáturinn
Baldur með síðustu ferð sína af
þremur hér í Djúp nú í vor með
áburð á Djúphafnir. Er skipið þá
búið að flytja hingað um 600
tonn af áburði, eða um 200 tonn í
ferð. Eru Djúpbændur þar með
búnir að fá þann áburð sem þeir
þurfa á að halda að þessu sinni.
Ég spurði skipstjórann á
Baldri Jón Dalbú, hvernig veðrið
hefði verið síðastliðna nótt, er
þeir voru á leið hér vestur. Það
var komin þreyfandi bylur þegar
við komum að bjargi, sagði
hann, og 9 vindstig og fjöll og
hlíðar hvít í sjó af snjókomu.
Það hefur þá skvettuskrugga
gjálfrað inn miðskipa?
Hann var allur í kafi og kom
aldrei upp, við lokuðum bara
augonum og héldum svo áfram,
um annað var ekki að gera.
Það verður ekki ofsagt, að það
reynir ekki á kappann fyrr en á
hólminn er komið, og mér dettur
svona í hug, að þeir hefðu gott af
því sumir Háskólaprófessorarn-
ir, þegar þeir eru að bera saman
launin sín við sjómennina, að
fara nokkra túra í svipuðu veðri,
Gjöf til Bakka-
gerðiskirkju
Nýlega bárust Bakkagerðis-
kirkju í Borgarfirði kr. 100.000-
frá systkinunum Svavari, Þuríði,
Margréti Lilju og Ólafíu, sem
þau gáfu til minningar um for-
eldra sína, hjónin Láru Stefáns-
dóttur og Árna Sigurðsson, sem
um árabil bjuggu hér í Bakka-
gerðisþorpi.
Lára Stefánsdóttir fæddist 14.
júní 1883 og andaðist 18. maí 1976,
en Árni fæddist 14. ág. 1886 og lést
24. apr. 1937.
Nafn Láru hefur áður tengst
Bakkagerðiskirkju, því að kirkjan
á tvo frábærlega vel unna altaris-
dúka eftir hana, en Lára var
sérstök hannyrðakona.
Fyrir hönd Bakkagerðiskirkju
þakka ég hina höfðinglegu gjöf og
þann hlýhug er að baki hennar býr
og sendi gefendunum hlýjustu
árnaðar- og þakkarkveðjur.
Sverrir Haraldsson
sóknarprestur.
Lára Stefánsdóttir og Árni
Sigurðsson
og og með álika hleðslu, þegar í
logni að svipað sýnist og að
stýrishúsið og brúinn á Baldri
sigli ein sér á sjónum, en milli
hvalbaks og brúar sjáist örmjó
ræma, sem segja má að saman
tengi báða enda, en geta má þá
nærri, að hann vissi hvað hann
sagði skipstjórinn, er hann gat
þess að lokað hefði augunum,
þótt í gamni væri í roki og sjó.
En Baldur skilar sér, sagði
gamall Reykvíkingur, er eitt
sinn ekki til hans purðist, og svo
mun hann áfram gera, enda
traustum höndum þar um haldið
stýrisvölinn.
Á ísafirði voru öll húsþök hvít
af snjó í morgun sa^ði Pétur
Bjarnason, stýrimaður, sem nú
var lóðs á m.s. Baldri hér um
Djúpið, og hér á Snæfjallaströnd
var öll jörð snjóhvít niður að sjó
í morgun, sem þó fljótleg tók
upp, en fjöll eru gráhvít niður á
brúnir.
Ungmennafélagar í Djúpverja
örkuðu hér snemma morguns
upp á Þorskafjarðarheiði, þar
sem þeir tóku á móti lands-
hlaupakeflinu og voru langt á
undan áætlun komnir með það í
hendur ísfirðinga inn í ísa-
fjarðarbotn, og mun nú langt
komið til ísafjarðar keflið í
kvöld. Ekki dróg það heldur úr
áhuga okkar manna, að keflið
góða er útskorið af innfæddum
sveitunga okkar hér í Snæfjalla-
hreppi hinum snjalla
tréskurðarmeistara Halldóri
Sigurðssyni frá Bæjum, en
snemma dró til hagleiksins í
höndum drengsins þess arna, er
hann ungir samansetti hvern
listagripinn öðrum fegurri, og
mátti þar með sanni segja, að
snemma beygðist krókurinn að
því, sem verða vildi.
Jens f Kaldalóni.
ELLEN
BETRIX
1. flokks snyrtivörur
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Það úrval Caterpillar lyftara sem nú
er á markaðnum gerir þér fært að
aðlaga vélarval eftir þörfum — inni sem
úti - og tryggir ennfremur mestu
vinnuafköst. Mjög fjölbreytt úrval af
möstrum, hreyflum, skiptingum, >
göfflum og hjólbarðagerðum.
Gafflar, snúningar, skóflur, grip,
armar, krókar og fjöldi annarra fylgihluta
og tækja eru fáanleg til þess að veita
sem fjölbreyttasta möguleika og tryggja
að sú fjárfesting sem í lyftarakaupum
liggur verði arðvænleg.
Hekla hf., véladeild, veitir fúslega
allar upplýsingar varðandi lyftarana og
þá þjónustu er fyrst og fremst mun
tryggja hagkvæman rekstur og arðvæna
fjárfestingu. __
□
CATERPILLAR
SALA & ÞJCTMUSTA
HEKLA hr
Cottpéa. Grt. 09 (B eru iliróseO vorumefki
■ Laugavegi 170-172, - Simi 21240
gæoin
ofar öllu
sending
komin