Morgunblaðið - 06.07.1979, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JIJLÍ 1979
31
Ragnar Gíslason Víkingi reynir að krækja boltanum frá Guðpiundi Þorbjörnssyni Val.
Valsmenn áfram
MARK Inga Björns Albertssonar
á 70. mi'nútu í leik Vals og
Víkings kom Val áfram í bikar-
keppninni. Það var ólafur Dani-
valsson sem átti mikinn heiður af
markinu, hann náði að gefa góða
sendingu inn á Inga inn í vítateig
Víkings og skot hans fór í Magn-
ús varnarmann Víkings og þaðan
í netið. Ekkert glæsimark er þó.
Reyndar voru marktækifærin í
leiknum teljandi á fingrum ann-
arar handar, svo fá voru þau.
Bæði liðin ióku þokkalega úti á
vellinum en er nær dró markinu
virtist allt renna út í sandinn.
Valsmenn voru þó öllu brattari
og áttu fleiri tækifæri. Framlína
Víkings átti sárasjaldan hættu-
leg marktækifæri í leiknum.
í fyrri hálfleiknum komu reynd-
ar ekki nema tvö góð markskot og
átti Atli Eðvaldsson þau bæði. Hið
fyrra var á 2. mínútu leiksins eftir
hornspyrnu og það síðara var á 11.
mínútu. Guðmundur Þorbjörnsson
skallaði boltann út til Atla sem
kom á fullri ferð og skaut þrumu^
skoti rétt utan við stöngina. í
síðari hálfelik var mikið um
miðjuþóf á vellinum og þrátt fyrir
ágætan samleik á köflum voru
fyrirgjafir og skot oftast mis-
heppnuð hjá báðum liðunum.
Leikurinn var nokkuð harður og
fengu fjórir gult spjald, þeir
Hörður Hilmarsson, Atli Eðvalds-
son og Ólafur Danivalsson úr Val
og Heimir Karlsson Víkingi.
Varnarleikur beggja liða var góð-
ur, og lítið gefið eftir.
Leikmenn Vals voru ákaflega
jafnir að getu og erfitt að gera upp
á milli þeirra. Miðjuspil Vals var
traust, og ekki er annað að sjá en
að framlínan sé að braggast.
Hefur það mikið að segja að
Guðmundur Þorbjörnsson hefur
nú verið færður fram og leikur
sem fremsti maður.
Lið Víkings hefur sýnt miklar
framfarir frá því í vor, og á
sjálfsagt eftir að ná sér enn betur
á strik. Sigurlás er ávallt hættu-
legur í framlínunni, þá er vörn
liðsins sterk barátta góð, þrátt
fyrir að á stundum sé leikið full
fast.
-þr.
Þorsteinn krækti
í silfurverðlaunin
ÞÓRSTEINN Þórsson, tugþraut-
armaðurinn efnilegi, krækti f
silfurverðlaunin á unglinga-
meistaramóti Norðurlanda f fjöl-
þrautum, en ni&tinu lauk f fyrra-
kvöld í Kaupmannahöfn. Þor-
steinn hlaut 6,087 stig f keppn-
inni, en það er nýtt fslenzkt
unglingamet. Átti Þorsteinn
KORNUNGUR Breti Sebastian
Coe setti stórglæsilegt heimsmet í
800 metra hlaupi í Oslo í gær-
kvöldi. Hljóp hann á 1,42,33 mfn
og bætti heimsmet Kúbumanns-
fyrra metið, sett í vor í Reykja-
vík. Sigurvegari í keppninni varð
Norðmaðurinn Olsen er hlaut
7,060 stig.
Eftir fyrri dag keppninnar var
Þorsteinn aðeins 50 stigum á eftir
Olsen og flest benti til þess að
Þorsteinn næði 7,000 stigum. Hon-
um tókst ekki vel upp í kastgrein-
ins Juantorena um meira en heila
sekúndu. Gamla metið var 1,43,4
mín, sett árið 1977. Það hjálpað-
ist allt að, brautin var góð, réttur
millitfmi og loks var ég velupp-
lagður sagði Coe eftir hlaupið.
14.000 áhorfendur hvöttu hann
ákaft f lokin. Annar f hlaupinu
varð Evans White Bandarfkjun-
um á 1,45,75 mín og þriðji Gary
Cook Bretlandi á 1,46,28 mín.
Millitfminn í hlaupinu fyrstu 400
metrana var 50,5 sek.
unum seinni daginn, kastaði
kringlu 35,43 metra og spjóti 50,07
metra, en í þeirri grein á hann öllu
betri árangur. Þorsteinn jafnaði
sinn bezta árangur í stangar-
stökki, stökk 3,90 metra, Mljóp á
16,1 sekúndu í 110 m grindahlaupi
og á 4:37,7 mín. í 1,500 metra
hlaupi. í þriðja sæti varð finnskur
íþróttamaður, Esa Vutasalo, með
sömu stigatölu og Þorsteinn, en
Þorsteinn sigraði Vutasalo í fleiri
greinum, og hlaut því silfrið.
Dregið í
bikarn-
um
í HÁLFLEIK í gærkvöldi í
leik Vals og Víkings var
dregið í átta liða úrslit í
bikarkeppni KSÍ og dróg-
ust eftirtalin lið saman:
ÍBV—Þróttur
ÍA-ÍBK
KR-Valur
Fram-UBK
Glæsilegt
heimsmet
Sækir FH stig
til Akureyrar?
TVEIR mikilvægir leikir fara í kvöld fram í 2. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu. Á Akureyri mætast Þór og FH og má vænta hörkuleiks.
Viðbúið er að FH-liðið verði til muna veikara heldur en verið hefur til
þessa. þar sem Janus Guðlaugsson leikur að öllum lfkindum ekki með
FII. Leikurinn hefst klukkan 20.00
Fylkismenn fá síðan ÍBÍ í heimsókn á Laugardalsvöllinn og hefst
leikur liðanna klukkan 20.00.
Nokkrir leikir fara einnig fram í 3. deildinni. en þeir eru
eftirfarandi:
B-riðill óðinn — Léttir á Melavelli kl. 20.00
E-riðill Reynir —Dagsbrún á Árskógsströnd kl. 20.00.
E-riðill Völsungur —Árroðinn á Húsavík kl. 20.00
Kvennaflokkur Fram —UBK á Framvelli kl. 20.00.
Golf á Grafar-
holtsvelli
N.K. laugardag, 7. júlí, fara fram tvö opin golfmót á Grafarholtsvelli.
en það eru:
ÖLDUNGAMÓT G.R.
Hefst kl. 10:00. Mótið er opið kylfingum 50 ára og eldri. Leiknar
verða 18 holur. Keppt er um glæsilegan farandgrip auk þess verða
veitt þrenn verðlaun, með og án forgjafar.
OPIN KVENNAKEPPNI
Hefst kl. 13:30. Leiknar verða 18 holur og veitt þrenn verðlaun m.
og án forgjafar.
Þátttaka í bæði mótin tilkynnist á þátttökulista í skálanum. eða í
síma 84735.
Stórsigur Tindastóls
EINN leikur fór fram í D-riðli 3. deildarinnar í knattspyrnu í
fyrrakvöld. Tindastóll vann þá stórsigur, 7 —1, á Höfðstrendingi, en
staðan í hálfleik var 3—0.
Gústaf Björnsson skoraði þrennu í leiknum og þeir Sigurjón
Magnússon og Björn Sverrisson skoruðu tvö mörk hvor. Hólmgeir
Einarsson skoraði eina mark Höfðstrendinga.
Óvæntar sölur
í Englandi
ÞRÍR KUNNIR enskir knattspyrnumenn hafa flutzt búferlum frá
fyrri félögum sínum til nýrra heimkynna að undanförnu. Er ekki
laust við að allar sölurnar hafi komið töluvert á óvart.
Fyrst ber að nefna hæstu söluna. en þar seldi Aston Villa einn af
snjallari leikmönnum sínum, Brian Little, til nágrannaliðsins
Birmingham fyrir 600.000 sterlingspund. Ýmislegt er athyglisvert við
sölu þessa, t.d. að Villa skuli geta séð af Little, einnig að Little skyldi
samþykkja að fara til félags sem leikur í 2. deild, ekki síst þar sem
liðin leika bæði í Birmingham og áhangendur taka þeim oft illa sem
fara á milii félaga f sömu borg eða héraði.
Little hefur átt við þrálát meiðsli að stríða síðustu mánuðina og
hann gat lítið leikið sfðasta vetur. Hann er þó enn kornungur og á sín
beztu ár eftir. Hann hefur leikið einn landsleik, gegn Wales fyrir 3
árum síðan.
Aston Villa kom einnig við sögu í annarri stórsölu, en félagið lét
einnig óvænt frá sér fara John Gregory. Brighton borgaði fyrir hann
300.000 sterlingspund. Gregory var „altmuligman" hjá Villa og á einu
og hálfu keppnistímabili sfnu með Villa lék hann allar stöður nema í
marki. Og þó að yfirleitt léki hann í vörninni eða sem miðjuleikmaður.
var hann jafnan með markhæstu leikmönnum liðsins.
Þriðja meiri háttar salan, sem fram hefur farið í vikunni, var einnig
óvænt, en þar keypti Arsenal til sín hinn 32 ára gamla fyrirliða QPR,
John Hollins, áður Ieikmann með Chelsea. Var kaupverðið 75.000
pund. Ekki er nokkur vafi, að fjörugt verður á markaðinum á
næstunni, það er venjan.
• John Gregory skorar hér fyrir Aston Villa gegn Arsenal. Hann var
seldur til Brighton f vikunni.