Morgunblaðið - 06.07.1979, Qupperneq 32
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINE
\l sl\(. \
SIMINN KH.
22480
EFÞAÐER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
\i i.nsi\(. \
SIMIW KH:
22480
FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1979
RALLBÁTURINN Inga kom
til Akureyrar um hádegisbilið í
gær og hinn báturinn, Signý,
siðdegis. Þegar stig höfðu verið
reiknuð út og dómnefnd fellt
niður leiðina Hornafjörður—
Neskaupstaður, en til kæru-
máls kom vegna hennar, kom í
ijós að Inga er með 37 stig og
Signý 31.
Frá Akureyri áttu bátarnir
að halda árla í dag og er næsti
áfangi til ísafjarðar.
Sjá bls. 16-17.
Unnar kjöt-
vörur hækka
um 16-22%
RÍKISSTJÓRNIN hefur
samþykkt tillögu verðlags-
nefndar um 16 til 22%
hækkun á verði unninna
kjötvara og gaf verðlags-
stjóri út í gær tilkynningu
um nýtt hámarksverð á
þessum vörutegundum en
nýja verðið tekur gildi í
dag.
Hækkunin er mismikil á hinum
einstðku tegundum unninna kjöt-
vara og hækka þær vörur, sem
einkum eru unnar úr kindakjöti,
mest. Þessi hækkun stafar af
hækkun á kjöti 1. júní sl. en hins
vegar eru í þessari hækkun
hvorki teknar með launahækkan-
ir vegna síðustu kjarasamninga
né hækkun á verði kjöts, sem
varð 1. júlí sl. vegna lækkunar á
niðurgreiðslum.
Valkostir um stjórnar-
skrárbreytingar fyrir
þingflokkana í haust
„VARÐANDI kjördæma-
málið, sem er erfiðast og
viðkvæmast, geri ég ráð
fyrir að stjórnarskrár-
nefndin leggi fyrir þing-
flokkana í haust nokkra
valkosti með upplýsingum,
útreikningum og rök-
stuðningi,“ sagði dr.
Gunnar Thoroddsen, al-
þingismaður og formaður
stjórnarskrárnefndar, í
viðtali við Mbl. í gær.
Gunnar sagði að ætlunin væri
áð á næstunni yrðu undirbúnar
tillögur um ákveðin endurskoð-
unaratriði og valkosti, til dæmis
varðandi kjördæmamálið, og
stefnt væri að því að geta lagt
fyrir þingflokkana í haust
hugsanlegar breytingar og grein-
argerðir um ýmis atriði stjórnar-
skrárinnar. Hann sagði að nefnd-
in yrði að hafa samráð við
þingflokkana um mikilvægustu
atriðin í endurskoðun stjórnar-
skrárinnar, áður en hún skilar
endanlegum tillögum. Að sögn
Gunnars hefur nefndin haldið
marga fundi frá því hún var
skipuð síðastliðið haust, en hún á
að hafa lokið störfum fyrir árs-
lok 1980. Nýlega fóru Gunnar og
ráðunautur nefndarinnar dr.
Gunnar G. Schram, prófessor, til
Norðurlandanna í kynnisferð og
gagnaöflun fyrir nefndina og
skiluðu þeir skýrslu um ferð sína
á fundi nefndarinnar í gær.
Sjá nánar „Leggjum val-
kosti fyrir ...“ bls. 16—17.
SLATTUMAÐURINN — Vélknúnar sláttuvélar af ýmsum
gerðum hafa nú í flestum tilvikum leyst orfið og ljáinn af
hólmi. En á stöku stað verður hinni nýju tækni iíla beitt og
þá koma hin gömlu tól í góðar þarfir.
Ljósm. RAX.
Loónuveiðar við Jan Mayen:
Byrja Norðmenn 23. júlí
án tiltekins hámarks?
Oaló, 5. júlí. Frá (réttaritara
Mbl. Jan Erik-Lauré.
NORSKA ríkisstjórnin mun að
öllum líkindum tilkynna í dag, að
norskir sjómenn hefji loðnuveiðar
Ráðningu forstöðumanns
Laufásborgar frestað
ÁKVEÐIÐ var á borgarstjórnar-
fundi í gærkveldi að fresta ráðn-
ingu forstöðumanns að dagheim-
ilinu Laufásborg. en á fundi
Félagsmálaráðs fyrir nokkru
hafði verið samþykkt að ráða
Elínu Torfadóttur til starfans.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins töldu að ekki hefðu öll
gögn málsins verið könnuð til
hlítar og því bæri að fresta
ákvarðanatöku. Sjöfn Sigur-
björnsdóttir var sammála borgar-
fulltrúum Sjálfstæðisflokksins í
þessu efni. Var tillaga þessa efnis
borin undir atkvæði og hún sam-
þykkt með 14 samhljóða atkvæð-
við Jan Mayen 23. júlí, án tiltekins
hámarksafla. Knut Frydenlund
utanríkisráðherra sagði f samtali
við Mbl. f kvöld, að hann harmaði
það, að ekki skyldi hafa náðst
samkomulag við íslendinga, en
Iagði jafnframt áherzlu á að stöð-
ugt samband yrði milli norsku og
fslenzku rfkisstjórnanna til að
tryggja, að ekki komi til deilna,
þótt samkomulag sé ekki fyrir
hendi.
Frydenlund tók fram, að norska
ríkisstjórnin gæti illa takmarkað
afla norskra sjómanna meðan óvíst
væri um aðgerðir gegn nýjum
veiðiþjóðum á Jan Mayen svæðinu,
sem að mati Norðmanna geta að-
eins falist í norskri fiskveiðilögsögu
og samkomulagi við íslendinga.
Síðasta málaleitan Frydenlunds
sem Íslendingar höfnuðu í gær, var,
hvort íslendingar gætu hugsað sér
að fallast á norska fiskveiðilögsögu
við Jan Mayen, ef af Norðmanna
hálfu væri jafnframt sagt, að það
þýddi ekki viðurkenningu íslend-
inga á rétti Norðmanna til efna-
hagslögsögu við Jan Mayen.
Viðtal norska blaðsins Aftenpost-
en við Benedikt Gröndal vakti vonir
Norðmanna um að íslendingar
gætu sætt sig við norska fiskveiði-
lögsögu við Jan Mayen, en þar gaf
hann í skyn, að hún fæli í sér
mögulega lausn málsins og sagði að
Islendingar myndu taka slíka mála-
leitan til eins velviljaðrar athugun-
ar og unnt yrði.
Haukur varð efstur
við sjöunda mann
HAUKUR Angantýsson varð
efstur við sjöunda mann á World
Open skákmótinu f Philadelphiu,
„Tókst ad henda mér út með-
an bíllinn vó salt á brúninni”
„í RAUN og veru gerði ég mér
ekki grein fyrir því, hvað væri að
gerast, en mér tókst að henda
mér út meðan bfllinn vó salt á
brúninni“, sagði Einar Stefáns-
son, ungur Ólafsfirðingur, f sam-
tali við Mbl. f gær, en hann
bjargaðist í gær út úr bíl sfnum
áður en hann fór út af veginum í
Ólafsfjarðarmúla og steyptist
eina 180 metra niður í sjó. Einar
var einn á ferð.
„Ég var á heimleið til Ólafs-
fjarðar um hálfeittleytið", sagði
Einar. „Og var að koma út úr
Ófærugjánni. Ég var rétt búinn að
mæta bíl, ók hægt og hélt mig
nálægt brúninni fyrir klettanefið,
því ég vissi ekki nema annar bíll
kæmi á móti.
Eitthvað hlýtur svo að hafa
farið úr sambandi í stýrinu, því
allt í einu fór bíllinn að skrika og
ætli hann hafi ekki farið þannig
eina fimm metra eftir brúninni,
unz hann stoppaði og vó salt. Það
næsta sem ég vissi var að ég var
kominn út og svo horfði ég á eftir
bílnum fram af og niður.“
Einar sagðist hafa farið síðar og
þá týnt ýmislegt úr bílnum, sem
hefði hafnað hálfur í kafi á kletta-
nös. „Hann er alveg ónýtur, allur
samanvafinn og hann hefur slegizt
utan í á niðurleiðinni og týnt ýmsu
af sér“, sagði Stefán. „Þetta var
Plymouth 1974, sem ég keypti
fyrir um mánuði síðan".
„Eiginlega get ég ekki lýst
þessum augnablikum", sagði Ein-
ar, er Mbl. spurði hann nánar um
það, þegar hann henti sér út úr
bílnum. „Það er ekki fyrr en eftir
á, sem maður getur reynt að gera
sér grein fyrir þessu og því að hafa
horft á eftir bílnum niður“.
sem lauk i fyrrinótt og fengu þeir
8 vinninga af 10 mögulegum.
Margeir Pétursson varð í 8.—14.
sæti með 7,5 vinninga og Sævar
Bjarnason hlaut 6,5 vinninga.
Haukur tefldi við Georghiu í
síðustu umferð og lauk skákinni
með jafntefli, en jafnir þeim að
vinningum urðu Browne, Bisquir,
Miles, Zukerman og Fedorovic.
Margeir gerði jafntefli við
Weinstein í síðustu umferðinni, en
Sævar Bjarnason vann sinn and-
stæðing.
Þeir Haukur og Margeir taka
þátt í Philadelphia Open skákmót-
inu, sem hefst á mánudaginn.
Um 600 þúsund krónur koma í
hlut Hauks fyrir sigurinn, en sem
kunnugt er varð Ingvar Ásmunds-
son efstur á þessu móti í fyrra og
deildi þá líka sigrinum með 6
öðrum.