Morgunblaðið - 13.07.1979, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 13.07.1979, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 1979 15 r Astralíu- menn í Skylab- leit Perth. ÁstraKu, 12. Júlí. AP. MARGIR Ástralíumenn leituðu í dag að hlutum úr Skylab og fundu ýmsa sviðna búta í út- jaðri eyðimerkurinnar í suð- vestanverðri Átralíu þar sem rauðglóandi stykki úr geimvís- indastöðinni dreifðust yfir stórt svæði eins og flugeidar. Margir aðrir Ástralíumenn hafa hringt til bandarísku ræð- ismannsskrifstofunnar í Perth til þess að mótmæla því að hlutar vísindastöðvarinnar skuli hafa hafnað í Ástralíu. Húsmóð- ir sem hringdi í dagblað í Perth gagnrýndi það að falli Skylabs hefði verið frestað í 18 mínútur svo að stöðin lenti ekki á Banda- ríkjunum heldur Ástralíu. Sex ára ferð geimvísinda- stöðvarinnar lauk á einhverju eyðilegasta svæði heimsins, en engar fréttir hafa borizt um manntjón eða eignatjón. Þrír menn vöknuðu upp við mikinn dynk í afskekktum bæ, Rawlinna, og voru meðal hinna fyrstu sem tilkynntu að þeir hefðu fundið bút úr Skylab. Bill Norton og tveir félagar hans sáu eins og hálfs metra langt og tæplega eins metra breitt hylki úr geimfarinu um tíu kílómetra suður af Rawlinna sem er 550 mílur austur af Perth. Nota varð tvo bíla með drif á öllum hjólum til þess að draga hylkið sem var sett á aftaníkerru. Annar hlutur fannst rúmlega 600 km í suðvestri, í bænum Jerramungup þar sem ókunnur íbúi kom með klump úr sviðnu trefjaefni til lögreglustöðvar bæjarins. Maður nokkur í strandbænum Albany tilkynnti fyrstur manna að hann hefði fundið bút úr Skylab, en það reyndist gabb. Hann vildi „hefna" sín á bandarískum geimvísindamönnum þar sem þeir hefðu vísvitandi beint geimstöðinni til Ástralíu. Geimrannsóknastofnunin NASA neitar því að hún hafi „miðað" stöðinni á Ástralíu, en tilraun sem var gerð á síðustu stundu til að stýra geimfarinu getur hafa orðið til þess að það fór lengra í fallinu en ætlazt var til. Blaðið San Francisco Examin- er hefur heitið 10.000 dollara verðlaun hverjum þeim sem kemur til blaðsins með fyrsta stykkið úr vísindastöðinni. Ýmis fyrirtæki um allan heim eru sögð reiðubúin að greiða háar upphæðir fyrir búta úr geim- stöðinni sem væri hægt að selja sem minjagripi. Talsmaður NASA segir að hugsanlegt sé að stofnuin sendi sérfræðinga til Vestur-Ástralíu til að kanna hvort þeir hlutar sem sagt hafi verið að séu úr geimstöðinni séu raunverulega úr henni. Yfirvöld álíta að flestar leifar geimstöðvarinnar hafi lent á strjálbýlu svæði 530 mílur aust- ur af Perth þar sem Balladonia sé miðsvæðis. Berlin^ aðild a< Róm. 12. júlí. AP. ÍTALSKI kommúnistaflokkurinn ítrekaði í dag kröfu sína um ráðherrastóla og settu hana sem skilyrði fyrir stuðningi við ríkis- stjórn undir forsæti sósíalistans Bettino Craxi sem hefur verið falin stjórnarmyndun. Kommúnistaleiðtoginn Enrico Berlinguer sagði þó eftir tveggja tíma fund með Craxi að þessi afstaða kynni að verða endurskoð- uð en það færi eftir framvindunni. Þetta er túlkað þannig að afstaða kommúnista hafi mildazt þar sem þeir hafa harðlega neitað að styðja kristilega demókratann Giulio Andreotti. uer vill > stjórn Craxi tókst ekki að tryggja sér stuðning kristilegra demókrata í viðræðum við þá í gær. Sandro Pertino forseti fól Craxi stjórnarmyndun fyrstum manna úr öðrum flokki en Kristilega demókrataflokknum eftir heims- styrjöldina þegar tilraun Giulio Andreottis forsætisráðherra til myndunar samsteypustjórnar fór út um þúfur. Craxi ræddi einnig í dag við sósíaldemókratann Pietro Longi sem sagðist hlynntur samsteypu- stjórn kristilegra demókrata, sós- íalistaflokks hans sjálfs og lýð- veldissinna. Lýðveldissinnar og sósíaldemókratar eiga sæti í stjórn Andreottis. Khadafy bægt frá Líbanon ' Beirút. 12. júlí. AP. MÚHAMEÐSTRÚARMENN af Shita-trúflokknum í Líbanon komu í veg fyrir það í dag að líbýski þjóðarleiðtoginn Moammar Khad- afy kæmi í heimsókn og hleyptu af vélbyssum og kveiktu í hjólbörðum á götum Beirút til að leggja áherzlu á mótmæli sfn. Khadafy hefur verið á ferð um 10 Arabaríki og ætlaði að koma við í Líbanon á leið sinni heim frá Sýrlandi, en varð að hætta við það og fór rakleiðis heim frá Damaskus. Götuvígi voru reist í nokkrum úthverfum Beirút og lýst var yfir allsherjarverkfalli í Bekaa-héraði í Austur-Líbanon þar sem Shítar eru í meirihluta eins og víða annars staðar í landinu. Leiðtogi þeirra imaminn Mousa Al-Sadr, er náinn trúnaðarvinur íranska byltingar- leiðtogans Khomeini, en hans hefur verið saknað síðan hann fór í opinbera heimsókn til Líbýu í ágúst í fyrra. Shíta-leiðtoga í Líbanon og íran grunar að Sadr sé fangi líbýsku stjórnarinnar. Margir þeirra hafa vísað á bug þeirri staðhæfingu Líbýumanna að Sadr hafi farið frá Líbýu í septemberbyrjun með flug- vél sem ætlaði til Rómar. Áður en Khadafy fór frá Damask- us lofaði hann að útvega Sýrlending- um herflugvélar í stað allra her- flugvéla sem þeir misstu í loftbar- dögum við ísraelsmenn. Hann sagði að ráðgerðar væru sameiginlegar aðgerðir Araba til að herða bannið á Egypta og grafa undan friðarsamn- jngi þeirra og ísraelsmanna. Arabískur réttarsigur gegn Israel Tel Aviv, 12. júlí. AP: Hæstiréttur ísraels úrskurðaði í dag að hætt yrði vinnu á stóru svæði sem stjórn ísraels tók eignarnámi á vesturbakka Jórdanárinnar. Þetta er sigur fyrir 13 arabíska landeigendur í þorpinu Salfit sem hafa reynt að stöðva eignarupp- tökuna sem miðar að því að stækka nálæga Gyðingabyggð, Ariel. I síðasta mánuði stöðvaði Hæstiréttur vinnu í hinni um- deildu byggð Elon Moreh á vestur- bakkanum þar til sannað vaéri að eignaupptaka arabísks lands væri nauðsynleg öryggi ísraels. Dómur- inn í dag byggir á sömu forsendu. Keypti pels og brenndi London, 12. júlí, AP. FAY Funnell húsmóðir sparaði í f jóra mánuði til að kaupa minkapels á sumarút- sölu, stóð í biðröð í níu daga til að fá hann og brenndi hann á götu úti. Vegfarendur í Oxford Street horfðu á þetta furðu lostnir, en frú Funnell, 36 ára, sagði fréttamanni: „Ég er hæstánægð. Ég hata loð- feldaiðnaðinn og grimmd hans við dýr.“ Pelsinn hafði kostað 795 pund og fékkst á 79 pund á útsölunni í Debenham’s verzluninni þar sem hann var einn eftirsóttasti varningur- inn. t&Cafttk. LAUGAVEGI47, BANKASTRÆTI 7

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.