Tíminn - 24.06.1965, Page 7
7
FIMMTWDAGUR 24. júní 1965
TÍMINN
irlýsing
Mér þykir hlýða, að gera þeim,
sem láta sig einhverju skipta
stofnun minningarsafns Davíðs
heitins Stefánssonar .skálds, bróð
ur míns, nokkra grein fyrir megin
þáttum þess máls, svo sem það
horfir við frá mínu sjónarmiði,
en nú hefir það mál væntanlega
verið til lykta leitt, svo sem fram
kom í fregn í Morgunblaðinu í
gær.
Nokkru eftir fráfall Davíðs
heitins komu fram raddir um, að
tilhlýðilegt væri að varðveita sem
safn, til minningar um hann,
bókasafn hans og helztu persónu-
lega muni. Bæjarstjóm Akureyr
ar — en þar var Davíð heitinn
heiðursborgari — leitaði eftir því
við okkur, nánustu ættingja hans,
hvort við værum þessu samþykk
og var svar okkar einróma á þá
leið, að okkur og án efa öllum
aðstandendum og velunnurum
hans væri ánægja að því, að minn
ingu hans yrði sómi sýndur með
einhverskonar minningarsafni, sem
yrði stofnað og starfrækt af opin
berri hálfu. Framan af virtist
nokkuð óljóst hvernig menn hugs-
uðu sér, að þessu yrði fyrir kom
ið, en þegar fram í sótti virtust
einkum tvær hugmyndir koma
fram. Önnur var sú, að hús
Davíðs heitins, Bjarkarstígur 6
á Akureyri, yrði varðveitt með
öllum munum hans og bókasafni
og þá væntanlega þannig, að
Akureyrarbær eignaðist það og
stæði undir rekstri þess. Hin var
sú, að bókasafninu og nánustu
munum og listaverkum hins látna
yrði komið fyrir í einum sal hinn
ar nýju Amtsbókasafnsbyggingar
á Akureyri, en í einum sal hinnar
nýju Amtsbókasafnsbyggingar á
Akureyri, en í henni er salur, sem
mundi mjög vel hæfa þessum til-
gangi. Er það ljóst þeim, sem til
þekkja, að í þessum sal mundi
hið mikla og ágæta bókasafn
njóta sín að fullu og að þar
mundu verða skilyrði til þess, að
það kæmi að notum, þar sem það
væri í mjög nánum tengslum við
Amtsbókasafnið. Var það ætlun
þeirra, sem þessari hugmynd
fylgdu, að þessi rúmgóði, bjarti
og glæsilegi salur yrði verðugur
minningarstaður um hið látna
skáld. Þarna yrðu starfandi bóka
verðir Amtsbókasafnsins og allur
kostnaður við rekstur þessa minn
ingarsalar yrði innan hóflegra
marka. Þeir, sem þessari leið
fylgdu og þekktu til á Bjarkar
«stíg 6, töldu, að bókasafnið nyti
sín ekki þar, en þar er það í
mörgum vistarverum og sumt af
því lokað inni í skápum. Ennfrem
ur að það kæmi þar ekki að not
um þar sem mjög léleg skilyrði
eru þar til lestrar ef halda á
stofunum þar eins og þær voru
í tíð Davíðs heitins. Auk þessa
er svo það, að þarna þyrfti að
halda húsvörð og bókavörð og
húsið þarf »iðgerðar og viðhalds
fyrir utan annan rekstrarkostnað
slíks safns i franitíðinni, sem fyr
irsjáanlega verður talsverður.
Mjög hlýtur jafnan að vera tví-
sýni um aðsókn að slíkum hús
um og hætt við að þau verði
a.m.k þegar fram í sækir. hálf
gerðii eyðistaðir, sem verði minn
ingu beirri, sem þeir eiga að
geyma. engu síður til óþurftar en
sóma
Að fenginni rausnarlegri að-
stoð ríkissjóðs til að kaupa bóka
safnið í þvi skyni að það yrði
í tengslum við Amtsbókasafnið,
óskaði Akureyrarbær eftir því
í nóvemberlok s. i. að kaupa bóka
safnið, en falaðist ekki eftir hús
inu. Voru þá samningar gerðar
um að bærinn keypti bókasafnið
og jafnframt gáfn ættingjarnir
listmuni og aðra innaanstokks-
muni hins látna til þess að aöt
þetta yrði varðveitt í hinnm fyrir
hugaða minningarsal í AmtsbÆa-
safnsbyggingunni. Þetta sam-
þykkti bæjarstjóm Akureyrar ein
róma og virtust þessi mál nú vera
komin farsællega í höfn. Erfingj
arnir voru yfirleitt ánægðir með
þessa ráðstöfun, töldu hana mjög
smekklega og skynsamlega og
stóðu einhuga að þessari lausn
málsins.
En nú gerist í máli þessu það,
sem alkunnugt er, að samtök
urðu meðal allmargs fólks á Akur
eyri um að vinna að því að fyrri
leiðin yrði farin, þ.e.a..s. að hús
ið yrði, á vegum Akureyrarbæjar,
varðveitt með því, sem þar var
þegar Davíð heitinn féll frá. Virð
ist samtökum þessum hafa þótt
sú lausn, sem fengin var, allsend
is ófullnægjandi og ekkert sæm-
andi annað en að sú leið yrði far
in, sem þau vildu vera láta. Var
nú hafist handa um fjársöfnun
þá, sem eigi þarf hér að lýsa.
Skal það viðurkennt, að við, erf-
ingjarnir, vissum um fyrirætlanir
samtakanna um söfnun þessa áð-
ur en hún hófst. Var hún a.m.k.
flestum okkar þá þegar mjög á
móti skapi, en við settum okkur
ekki upp á móti henni og mun
þar hafa ráðið miklu um, að for
göngumenn samtakanna voru, a.
m.k. .sumir, vinir og kunningjar
Davíðs heitins. Mun okkur, satt
að segja, eigi þá, í upphafi og í
skammsýni okkar, hafa órað fyrir
því, hvílíkri skapraun söfnun þessi
og það, sem henni fylgdi, mundi
valda, ekki einungis okkur held
ur einnig fjölmörgu öðru fólki,
sem lét .sig þessi efni skipta. Er
ég eigi óhræddur um, að þeir,
sem að söfnuninni stóðu hafi eigi
aðgætt nægilega inn á hve við-
kvæm einkasvið þeir voru að ráð-
ast, né hvaða óheillaöfl þessar
gerðir þeirra kynnu að leysa úr
læðingi.
Eitt af því, sem samskotaher-
ferðin hafði í för með sér, er það
að okkur systkinunum hefir af
ýmsum verið legið á hálsi fyrir
það, að við skyldum ekki gefa
húsið til safnstofnunar þessarar.
Um þetta skal það tekið fram, að
við höfðum leyst mál þetta með
bæjarstjórn Akureyrar á þann
hátt, sem við vorum mjög ánægð
með og ekkert lá fyrir um að
bærinn hefði hug á að eignast
húsið i því skyni, að halda þar
uppi safni með ærnum kostnaði.
Áttum við þá, þótt einhverjir vildu
hafa þetta á annan veg, að gefa
húsið til þess fyrirkomulags minn
ingarsafnsins, sem okkur — a.
m. k. flestum — þótti síðar en
það, sem ákveðið hafði verið?
Eg vil svara þessu svo, að eigi
hafi með sanngirni verið unnt að
ætlast til þess, að við gerðum
það, enda kom aldrei til greina.
að það yrði gert.
Söfnunin virðist ekki hafa náð
því sem þeir, sem að henni stóðu
ætluðust til, en hún hefir orðið
til þess, að bæjarstjórn Akureyr-
ar hefir á ný gengið í málið með
því að kaupa húsið í því skyni að
þar verði minningarsafnið.
Mun mál þetta þá vera þannig
til lykta leitt, en eigi skyldi það
undra mig þótt að því kæmi, að
safnið yrði flutt' ; salinn í Amts
bókasafnsbyggingunni og væri
vel að forráðamenn hennai vrðu
við því búnir.
Er þess nú að vænta, að kyrrð
v/Miklatorg
Sími 2 3136
BlLALEIGAN BlLLINN
RENT AN-ICECAR
Simi 18833
C-onðu/ Cortina
nUmry Comrt
CCti&óa -feppa /
Ztphft “(>
BlLALEIGAN BlLLINN
HÓFÐATUN 4
Sfmi 18833
LAUGAVEGI 90-92
Stærsta órvaJ bilrelQa 6
einnm stað. Salan er 6rngg
bjá okkur.
5.píí|
1
GOOD^TEAR VáiXVm G(!OTIÍSAR
aðeins gœðavara frá, GOOD/YEAR
MALNINO-&JA'RNVÖRUR
LAUGAVEGI 23 SÍMI 11295
þér eigið valið,
vex handsápurnar
hafa þrennskonar ilm
EFNAVERKSMIÐJAN
Landmælingamaður
Landmælingamaður t. d. verkfræðistúdent, sem
lokið hefir námi í landmælingum, óskast til
starfa hjá Kópavogskaupstað yfir sumarmánuðina.
Umsóknir sendist til skrifstofu minnar fyrir 30.
þ. m.
Kópavogi 23. júní, 1965,
Bæjarverkfræðingur.
Íulllz
ommn
áiancui
í
færist yfir þessi mál, svo sem
vera ber.
Þótt harla ógeðfeilt sé, að rita
opinberlega um svo nákomin
einkamál, sem þetta er að vissu
leyti, tel ég mig — að marggefn-
um tilefnum — eigi geta hjá því
komizt, að fá þessa yfirlýsingu
birta og verður hver að virða
það sem verkast vill, en það skal
skýrt fram tekið að ég stend
einn áð henni.
Valdimar Stefánssou.
Það má œtíð
treysta
Royal