Morgunblaðið - 04.08.1979, Síða 29

Morgunblaðið - 04.08.1979, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1979 29 Frá norrænni prestastefnu: Fólk lítur á mig sem prest, en ekki aðeins kvenprestinn vandamál, og átt okkar samfé- lag. Það er alltaf mikils virði að hitta starfsbræður sína frá öðr- um löndum og ræða ólík vanda- mál þrátt fyrir ólíka siði og venjur. — Ég vildi að lokum flytja íslendingunum mínar beztu þakkir fyrir allt skipulag þeirra á prestastefnunni, sérstaklega Ólafi Skúlasyni og það hefur einmitt verið mjög gaman að fá að koma út í söfnuðina og hitta forráðamenn þeirra og fræðast af þeim um safnaðarlífið eins og við fengum tækifæri til eitt kvöldið. Einn hinna 39 þátttakenda frá Finnlandi er Henrik Andersén og starfar hann við söfnuð sænskumælandi Finna í Hels- inki: — Sænskumælandi Finnar hafa sinn eigin söfnuð og sína eigin skóla og hefi ég verið prestur hjá þessum söfnuði í Helsinki í 9 ár eða frá því ég lauk guðfræðiprófi. Söfnuðurinn í Helsinki nær yfir mjög stórt svæði og eru 11 kirkjur í okkar söfnuði. Þess vegna er kannski nokkuð erfitt fyrir okkur að safna saman sérstaklega t.d. unglingum eða ákveðnum hópum úr söfnuðinum. Finnska kirkjan mjög sjálfstæð — Finnska kirkjan er mjög sjálfstæð stofnun hvað varðar öll ytri mál, skipulagningu og fjármál. Þannig reisa söfnuðirn- ir sjálfir kirkjur sínar og hafa verið byggðar í Helsinki mjög margar kirkjur eftir stríðið, ég held einar 25—30. Þá er kirkjan valdamikil hvað varðar laga- setningu er hana sjálfa varðar og þegar þingið hefur lagafrum- vörp er snerta kirkjuna til með- ferðar, verður það annað hvort að hafna þeim eða samþykkja, það getur ekki breytt þeim nema að samþykki kirkjuyfirvaldanna komi til. — Það hefur verið mjög fróð- legt að koma hingað til íslands, fyrirlestrar hafa verið góðir og mikilvægt er fyrir okkur að — segir Karen Horsens Undanfarna daga hefur staðið yfir í Reykjavík norræn prestastefna. Er hún haldin hérlendis öðru sinni, en var hér áður árið 1956. Sitja hana nú kringum 250 prestar frá Norðurlöndunum ásamt um 50 starfsbræðrum þeirra íslenzkum. Mbl. ræddi við nokkra þeirra erlendu gesta, sem prestastefnuna sitja, en henni lauk að kvöldi fimmtudags. Halda flestir þeirra síðan eitthvað út um landið í skoðunar- ferðir, en hverfa til síns heima í næstu viku. — Við erum hér ein 45 frá Noregi, þ.e. prestar ásamt mök- um, og óhætt er að segja að allir eru mjög ánægðir með að hafa farið þessa ferð til íslands, sagði Fredrik Gönningsæter, sem er prestur við Dómkirkjuna í Osló. Mættu vera fleiri þátttakendur — Okkur finnst mikilvægt að koma saman á þennan hátt öðru hverju, hlusta hvert á annað, skiptast á skoðunum og læra hvert af annars reynslu. Mættu gjarnan vera hér fleiri norskir prestar, því móttökur allar hafa verið hinar hlýlegustu. — I Noregi eru starfandi kringum 1.100 prestar við alls kyns opinbera þjónustu, en auk þeirra má telja nokkur hundruð sem starfa hjá hinum ýmsu félögum svo sem heimatrúboði, sjómannastarfi o.fl. Síðustu árin hefur verið skortur á prestum heima, en nú má segja að við séum orðnir nokkuð vel settir og er því næsta verkefni að finna fleiri verkefni fyrir presta okk- ar, finna ný störf og ný tækifæri þar sem prests er þörf, en sem við höfum ekki getað annað fram til þessa. Fredrik Grönningsæter var í mörg ár formaður prestafélags- ins norska og hefur tekið mikinn þátt í norrænu samstarfi. Áður en hann gerðist prestur við Dómkirkjuna í Osló hefur hann þjónað í fámennum bæjum, sem fjölmennum, víðs vegar um Nor- eg og var hann spurður hvort mikill munur væri að starfa á þessum stöðum: — Ég hefi alltaf lagt áherzlu á að þjónustan sjálf er aðalatrið- ið umhverfið er mjög mismun- andi og prestur verður að lifa sig inn í starf sitt og umhverfið þar sem hann starfar. Hann á fyrst og fremst að vera til þjónustu í söfnuði sínum, starf hans er meðal fólksins og því þarf hann oft að mæta í mismunandi um- hverfi, en grundvöllur starfsins er alltaf hinn sami, sagði Grönn- ingsæter að lokum. Sænski presturinn Olof Erics- son starfar í Anundsjö, en hann er núverandi formaður Svenska kyrkans personalforbund, sem er félag presta og annarra starfs- manna sænsku kirkjunnar: — Félagið okkar hét áður sænska prestafélagið, en fyrir nokkrum árum þótti rétt að breyta nafninu ekki sízt þar sem kirkjan hefur nú svo marga aðra starfsmenn en einungis prest- ana. Við mjög margar kirkjur starfa safnaðarsystur og ýmiss konar starfsmenn sem hafa sér- stökum verkefnum að sinna inn- an safnaðanna, kennslu- og þjónustustörf o.fl. Er mikill munur á starfsemi kirknanna á Norðurlöndum? — Kirkjurnar á Norðurlönd- Olof Ericsson frá Svíþjóð Umræðuhópur að starfi í 1. kennslustofu Háskólans. unum eru mjög mismunandi hvað snertir ytri starfshætti og ýmiss konar siði og venjur. Skipulagið er nokkuð ólíkt, en vitanlega er boðunin hin sama og segja má að t.d. samband ríkis og kirkju sé nokkuð ólíkt. I Finnlandi er kirkjan sennilega hvað sjálfstæðust af kirkjum Norðurlandanna, en í Svíþjóð er hún aftur mjög fast bundin ríkinu. Samband ríkis og kirkju var mjög til umræðu á síðasta kirkjuþingi okkar í febrúar sl., en þar var ekki meirihluti fyrir því að slíta sambandinu við ríkið. Ég geri hins vegar ráð fyrir að það atriði komi til umræðu á næsta kirkjuþingi árið 1981 eða ’82. Viljum auk- ið samstarf Olof Ericsson upplýsti að í Svíþjóð væru starfandi kringum 4 þúsund prestar og væru tæp- lega 50 þátttakendur í mótinu hér að þessu sinni. Næst verður það haldið í Svíþjóð. Ericsson hefur starfað í félagi sænskra kirkjustarfsmanna frá 1951 og var hann spurður hvort sam- starf presta á Norðurlöndum væri meira en innan hins nor- ræna sambands sem heldur prestastefnur sínar þriðja hvert ár: — Norræna prestasambandið hefur ekki á sínum snærum fleiri ráðstefnur en þessa al- mennu, sem er á þriggja ára fresti, en hins vegar eru stund- um haldnar minni ráðstefnur fyrir hinar ýmsu sérgreinar innan prestsstarfanna. Við vilj- um vissulega aukið samstarf m.a. við íslendinga, því við get- um sótt til nágrannalandanna hjálp og hvatningu og rætt Henrik Andersén frá Finnlandi -. - vm m ■ Karen Horsens frá Danmörku skiptast þannig á reynslu og leita lausnar á sameiginlegum vanda okkar. Þá hefur verið mjög fróðlegt fyrir okkur, sem komum langt að, að kynnast landinu og sögunni og hlökkum við til að komast út á land og sjá meira, sagði Henrik Andersén að lokum. Að síðustu var rætt við Karen Horsens, en hún hefur verið formaður í Det danske præste- forening frá því í janúar 1978: — Um 2.600 meðlimir eru nú í sambandi okkar, en ég geri ráð fyrir að þjónandi prestar í Dan- mörku séu kringum tvö þúsund. Við erum 120 með mökum sem komum á prestastefnuna í Reykjavík og höfum átt alveg frábæra daga hér, enda skilst mér að íslendingar hafi geymt góða veðrið þangað til við kom- um. Við bjuggumst við miklu af Islandsferðinni og höfum sann- arlega fengið óskir okkar upp- fylltar og vel það. Karen Horsens var spurð um hlutfail kvenna í danskri presta- stétt: — Við erum eitthvað nálægt 160 konur, sem gegnum prestsemb- ættum í Danmörku og hygg ég að það sé eitt hæsta hlutfall á Norðurlöndum. Árið 1958 var breytt lögum á þann veg að konur gátu tekið við embætti prests og það ár tóku 3 konur við embætti. Karen Horsens hefur verið prestur í Kaupmannahöfn í 17 ár og var hún spurð hver hefði verið reynsla hennar fyrst þegar hún hóf störf: — Fólki fannst mjög spenn- andi fyrst í stað að koma og sjá kvenprestinn. Það var einhvers konar nýjabrum í kringum þetta og varð ég mikið vör við það fyrstu vikurnar, en strax og ég var komin á kaf í starfið hvarf það og fólk tók að líta á mig sem prest, en ekki sem kvenprest. Systir hennar er einnig prest- ur og kvað Horsens sig e.t.v. hafa hvatt hana nokkuð til þess að fara út í það starf, en hún hóf guðfræðinám á miðjum aldri og starfar nú á Jótlandi. Þá má nefna að maður hennar er organisti við kirkjuna, sem hún starfar við. — Við kirkju okkar eru 3 prestar og skiptum við sókninni á milli okkar, en höfum ekki verkaskiptingu, þannig að hvert okkar sinnir hvers kyns prests- þjónustu í sínum hluta sóknar- innar. — Ég vil fá að endurtaka hversu ánægð ég er með dvölina hérna og má t.d. nefna að þeir Islendingar sem við höfum rætt við eru mjög vel heima í tungum Norðurlandaþjóða. Hefur það komið margoft fyrir í umræðun- um að menn skipta yfir frá dönsku í norsku eða sænsku eða öfugt að því er virðist fyrirhafn- arlaust og finnst mér það mjög vel af sér vikið. Þessi presta- stefna ýtir mjög undir frekari samskipti presta milli landa, eins og aðrar norrænar presta- stefnur, þær eru haldnar á þriggja ára fresti, en án efa fara menn í heimsókn hver til annars þess á milli og höfum við hjónin þegar ákveðið að koma aftur til Islands að ári og býst ég við að margir fleiri af okkur, sem sótt- um prestastefnuna frá Norður- löndunum muni einnig leggja leið sína hingað aftur fyrr eða seinna, sagði Karen Horsens að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.