Morgunblaðið - 04.08.1979, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1979
35
i
Bæn
Góði Guð.
Fyrirgef mér, hvað ég gleymi þér oft í daglegu
lífi. Kenn mér að hugsa til þín og minnast þín við
dagleg störf. Iljálpa mér að þekkja sjálfan mig,
skilja náungann og rétta honum hjálparhönd.
Kenn mér að gleðja aðra, svo á ég geti sjálfur
glaðst í einlægni.
I>.
HVAÐ VEISTU UM
HÁKARLINN?
Veistu, að hákarlinn
er eini fiskurinn, sem
getur lokað auyunum?
Enyinn fiskur hefur eins
sterka mayasýru oy
hákarlinn. Hún er svo
sterk, að hún yetur leyst
upp járn! Það eru dæmi
til þess, að járnhlekkir
hafi tærst upp í sýru
hákarlsins!
REGNHLÍFAR
Árið 1882 fluttu Eny-
lendinyar út 3.580.055
reynhlífar til Indlands!
Árið 1966 fluttu
Enylendinyar aðeins út
26.000 reynhlífar í allt!
Japanir tóku við af
Enylendinyum oy fram-
leiða nú um helminy
allra reynhlífa i heimin-
um. í handaríkjunum
m innkaði fra mleiðslan á
sama ári um 12 milljón-
ir.
ANDINN í FLÖSKUNNI
Mörg ykkar hafa lesið um Aladín og lampann og
önnur ævintýri, þar sem „andinn“ uppfyllir óskir
eigandans.
Nú geturðu reynt að framleiða „anda“! Settu tóma
flösku andartak inn í ísskáp. Taktu hana síðan út
aftur og leggðu rakan pening ofan á op flöskunnar.
Taktu síðan utan um flöskuna og athugaðu vand-
lega, hvernig „andinn“ ýtir á peninginn og reynir að
þrýsta sér út! (Þú getur reynt að óska þér einhvers!
Það sakar ekki að reyna!) — Hins vegar þarftu að
vita, að „andinn" er hitinn frá höndum þínum þenur
kalda loftið út í flöskunni.
Gátur
gátur, sem við ætlum
ekki að gefa svör við. Við
erum alveg viss um, að
eitthvert ykkar getur
svarað þeim. Við reynum
að minnsta kosti!
1. Tveir bílar lögðu af
stað samtímis frá
Hafnarfirði og Reykja-
vík, klukkan tólf að
hádegi nákvæmlega.
Bíllinn, sem fór frá
Reykjavík ók með ólög-
legum hraða og fór með
80 km meðalhraða alla
leið — en hinn, sem fór
frá Hafnarfirði, fór
aðeins með 65 km hraða
að meðaltali. Vegalengd-
in milli Hafnarfjarðar
og Reykjavíkur er um 12
km.
Hvor bíllinn var nú
nær Hafnarfirði, þegar
þeir mættust?
2. Hvort heldurðu að sé
þyngra, eitt kg af fiðri
eða eitt kg af blýi?
3. Hvort er réttara að
segja:
Fimm og sjö eru þrettán
eða fimm og sjö er
þréttán?
Lesið nú gáturnar vel
og vandlega og látið ekki
plata ykkur!
Skoðun
mín
Ef þér finnst allt ómögulegt í þessum heimi, sem
við lifum í skaltu minnast þess, að það er fólk alveg
eins og þú, sem hefur gert hann eins og hann er.
Gandhi.
Þeir sem hafa lítið að gera eru þeir einu, sem hafa
tíma til að móðgast.
Ekki segja, að þú sért syndari — það er alltof
auðvelt, og orðið er næsta ofnotað.
Segðu heldur, að þú sért lygari, raggeit, átvagl eða
eitthvað því um líkt. Ef þú rannsakar nákvæmlega,
hvernig þér líður og hvers þú nýtur, muntu
sennilega hætta að kvarta yfir vesaldómi þínum á
óraunhæfan hátt og á rósamáli. Ruskin.
Tvö vitni
Einu sinni fann maður nokkur veski fullt af
peningum. Hann vissi, hver átti peningana og kom
þeim til skila.
„Mikill bjáni varstu að fara þannig að ráði þínu,“
sagði kunningi hans við hann. „Þú gast vel hirt
peningana sjálfur, því að enginn sá, að þú fannst þá.
„Jú, það voru tvö vitni að því, að ég fann
peningana,“ svaraði maðurinn. „Annað vitnið var
Guð, en hinn var mín eigin samviska.“
Sumar og sveit
Teikning: Ulrika, 9 ára, Kópavogi.
a a óá.\\\a pá
.—Va g i