Morgunblaðið - 04.08.1979, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1979
45
kf TB'W"" Ai
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11
, FRÁ MÁNUDEGI
MdJAmtasaH'U If
sami geitnahirðir hafi haft þessa
reynslu sína af uppeldinu meðal
ferfætlinganna að leiðarljósi í
samskiptum borgarstjórnar við
bóndann í Laugardal. Það er
vonandi að öðrum farist betur
listin að læra af reynslunni.
• Togaraskylda
I lok greinar sinnar talar
Ellert um nokkuð sem ég verð að
taka undir og vona að aðrir séu
sama sinnis. Þar segir hann að
sjómennskan hafi verið mikil
reynsla fyrir sig. Síðan segir hann:
„Reynsla sem ætti raunar að vera
skylda hvers íslendings að öðlast.
í staðinn fyrir herskyldu mætti
koma togaraskylda." Eg held að
þarna sé komið að þungamiðju
málsins. Það er ekki nóg að segja
að íslendingar byggi afkomu sína
á sjávarútvegi og útflutningi sjáv-
arafurða. Það er ekki nóg þegar
við vitum það að mikill hluti
þjoðarinnar veit næsta lítið um
sjávarútveg og iðnað, sem honum
er tengdur.
Það ætti ekki endilega að skylda
hvern íslending til að veltast í
togara heldur er af nógum störf-
um að taka sem fólki væri bæði
hollt og gott að kynnast. Ef fólk
hefði tækifæri til að kynnast
fiskveiðum, fiskvinnslu, viðhaldi
fiskiskipaflotans eða framleiðslu
veiðarfæra þá er ég næsta viss um
að okkar þjóð væri nær sannleik-
anum í rekstri þjóðarbúsins vegna
þeirrar reynslu sem það fengi í
gegnum þau störf.
Sérstaklega skyldi kappkosta að
sjá okkar þingmönnum fyrir þess-
ari reynslu sem fæstir hverjir
hafa kynnst sjávarútvegi nema af
tölum um aflabrögð og afkomu á
skrifborðinu. Slíkt telst ekki með
þegar rætt er um reynslu við-
sjávarútveg. Þeim væri bæði holt
og nauðsynlegt að „kassera"
jakkafötunum og taka upp vinnu-
gallann.
Það gerði ekki einungis þeim
gott og færði þeim reynslu. Miklu
fremur mundi það leiða til skyn-
samlegri stjórnunar þjóðarskút-
unnar.
• Áhugamaður
Ein er sú stofnun hér í bæ,
sem okkur Iangar til að vekja
athygli á, en það er Heilsuræktin í
Glæsibæ.
Þetta er mjög hljóðlátur, falleg-
ur og þrifalegur staður, vel búinn
þjálfunartækjum og hreinlætis-
aðstöðu (sauna og heitum kerj-
um), ásamt góðri þjálfun og þjón-
ustu.
Það er þangað, sem við höfum
sótt okkar heilbrigði, við kvillum
svo sem ofþyngd, migreni, bak-
veiki, stirðleika, streitu og fleiru
sem margir eru haldnir. Er þetta
jafnt fyrir konur sem karla, á
öllum aldri og einnig upplagðir
hjónatímar.
Erum við undrandi á að fólk
skuli ekki nota sér þessa frábæru
aðstöðu til að auka heilbrigði sitt,
mitt í sjálfri Reykjavík. Væri ekki
vert að reyna?
Eufemína Kristinsdóttir,
Örnólfur Hall,
Guðmundur Þorkelsson,
Selma Hannesdóttir.
Þessir hringdu . . .
• Seðlar fyrir
blinda
Eríka Friðriksdóttir sagðist
vilja upplýsa um það í tilefni
lesendabréfs nú fyrir skömmu um
seðla fyrir blint fólk, að siíkir
seðlar væru nú í notkun víða um
lönd. Hún sagðist hafa undir
höndum ísraelskan seðil sem væri
með slíkum auðkenningum til
hægðarauka fyrir blint fólk. Hún
sagðist taka undir að nauðsyn
krefðist þess að það yrði hugsað
fyrir þessum hlutum.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á alþjóðlega skákmótinu í
Banja Luka í Júgóslavíu í vor kom
þessi staða upp í skák stórmeist-
aranna Guillermo Carcia, Kúbu,
sem hafði hvítt og átti leik, og
Walthers Browne, Bandaríkjun-
um. Síðasti leikur svarts, var
hrikalegur afleikur, 37.
Bd5xa2. Browne gafst upp um leið
og hann varð mistaka sinna var,
þannig að Carcia tókst ekki að
koma bráðskemmtilegri hugmynd
sinni í framkvæmd:
38. Hxe4+! - fxe4 39. Bh3 Mát.
HÖGNI HREKKVÍSI
IV ^
. t>röe>vA0oPe&vruAj/M.../Vý' ^rbef^Érr...
...HeejD/iSMj/b xárrvcaamptm&w&&£...
Afhenti trúnaðarbréf sitt
Nýskipaður sendiherra Sovétríkjanna, hr. Mikhail
Nikolaevich Streltsov, afhenti 2. ágúst forseta Islands trúnaðar-
bréf sitt að viðstöddum utanríkisráðherra Benedikt Gröndal.
Síðdegis þáði sendiherrann ásamt nokkrum fleiri gestum
síðdegisboð forsetahjónanna að Bessastöðum.
Cessna^
Getum útvegaö Cessna varahluti beint frá
framleiöenda. Hafiö samband sem fyrst.
Sverrir Þóroddsson,
______________Fellsmúla 26, sími 82377.
Auglýsing
um aðalskoðun bifreiða
í lögsagnarumdæmi
Reykjavíkur í
ágústmánuði 1979.
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Mánudagur
Þriðjudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Mánudagur
Þriöjudagur
Miövikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
15. ágúst R-45201 til
16. ágúst R-45601 til
17. ágúst R-46001 til
20. ágúst R-46501 til
21. ágúst R-47001 til
23. ágúst R-48001 til
24. ágúst R-48501 til
27. ágúst R-49001 til
28. ágúst R-49501 til
29. ágúst R-50001 til
30. ágúst R-50501 til
31. ágúst R-51001 til
R-45600
R-46000
R-46500
R-47000
R-48000
R-48500
R-49000
R-49500
R-50000
R-50500
R-51000
R-51500
Bifreiðaeigendum ber aö koma meö bifreiöar
sínar til bifreiöaeftirlits ríkisins, Bíldshöföa 8 og
verður skoöun framkvæmd þar alla virka daga
kl. 08:00—16:00.
Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu
fylgja bifreiöum til skoöunar.
Viö skoðun skulu ökumenn bifreiöanna leggja
fram fullgild ökuskýrteini. Sýna ber skilríki fyrir
því aö bifreiðaskattur sé greiddur og vátrygging
fyrir hverja bifreiö sé í gildi.
Athygli skal vakin á því, aö skráningarnúmer
skulu vera vel læsileg.
Samkvæmt gildandi reglum skal vera gjald-
mælir í leigubifreiöum sem sýnir rétt ökugjald á
hverjum tíma. Á leigubifreiöum til mannflutn-
inga, allt aö 8 farþegum, skal vera sérstakt
merki meö bókstafnum L.
Vanræki einhver aö koma bifreið sinni tii
skoðunar á augiýstum tíma veröur hann látinn
sæta sektum samkvæmt umferðarlögum og
bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar
næst.
Bifreiöaeftirlitiö er lokaö á laugardögum.
Lögreglustjórinn í Reykjavík
1. ágúst 1979.
Sigurjón Sigurösson.