Morgunblaðið - 16.08.1979, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1979
Sovéskt skip með
kapal 1 eftirdragi
SOVÉSKT flutninga- eða birgða-
skip var í gær á siglingu um það
bil 45 til 50 sjómflur austur af
Hornafirði er flugvél Landhelgis-
gæslunnar flaug þar yfir. Að
sögn Þrastar Sigtryggssonar í
stjórnstöð Gæslunnar var skipið
á siglingu í norðausturátt á um
það bil 12 sjómflna hraða.
Að sögn Þrastar virtist sem
skipið drægi á eftir sér kapal eða
svert tóg og voru Landhelgis-
gæslumenn engu nær um hvað
þarna var á ferðinni, en skipið var
eitt á ferð. Sagði hann, að Gæslan
yrði sovéskra skipa oft vör á
þessum slóðum á siglingu til og
frá Nýfundnalandi og Mexikóflóa.
Guðmundur og
Margeir eru
í efstu sætum
SKÁKMENNIRNIR Guðmundur
Sigurjónsson og Margeir Péturs-
son eru báðir í fremstu röð á
skákmótinu í Gauksdal f Noregi.
í gær téfldi Guðmundur við
sovézka stórmeistarann
Land og synir:
Ný aðal-
leikkona
tekin við
KVIKMYNDUN sögunnar
„Lands og sonar“ eftir Ind-
riða G. Þorsteinsson stendur
nú yfir af fullum krafti í
Svarfaðardal og á Hjalteyri.
Sú breyting hefur orðið á,
að nýrri Íeikkonu hefur verið
falið aðalhlutverkið í mynd-
inni. Ragnhildur Gísladóttir
söngkona átti að leika hlut-
verkið en þegar til kom þótti
leikstjóranum að þau pöss-
uðu ekki saman Ragnhildur
og Sigurður Sigurjónsson,
sem leikur aðalkarlhlutverk-
ið. Var gengið frá því í fullri
vinsemd, að sögn aðstand-
enda myndarinnar, að ný
leikkona tæki við hlutverk-
inu. Fyrir valinu varð ungur
ritari í Útvegsbankanum,
Guðný Ragnarsdóttir, og fór
hún norður í gær. Mun leik-
stjórinn Ágúst Guðmundsson
hafa uppgötvað hana á gangi
á götu í Reykjavík.
Romanizhin, sem er stigahæsti
keppandi mótsins, og lauk skák-
inni með jafntefli. Margeir tefldi
við Stein frá V-Þýzkalandi og
vann Margeir sannfærandi sigur.
Þá vann Margeir biðskákina gegn
Bretanum Tiller.
Þegar 4 umferðum er lokið eru
Romanizhin og Karlsson efstir
með 3Vfe vinning en Guðmundur og
Margeir hafa 3 vinninga ásamt
nokkrum öðrum skákmönnum.
O'
INNLENT
Sökk út af Tjömesi
ÞRÍR menn björguðust í gær-
morgun er bátur sökk tæpar 15
sjómflur út af Tjörnesi. Báturinn
hét Sporður ÞH 45 og var gerður
út frá Kópaskeri. Hann var smíð-
aður árið 1939, 13 tonna eikar-
bátur. Skipstjóri var Georg Val-
entínusson.
Laxveiðitímabilið er nú í hámarki og eru hér á landi margir erlendir veiðimenn. Þessir voru að koma
af veiðum norður í landi í gær, og sótti þá flugvél Vængja. Þegar til Reykjavíkur kom var vélinni
rennt upp að einkaþotu veiðimannanna, og þangað gengu þeir nokkur skref með aflann áður en
haldið var af landi brott á ný. Ljósm. ól. K.Mag.
Álögð gjöld í Reykjavík:
800 millj. umfram það
sem reitnað var með
Brunamálið:
Kröfu um
gæzluvarð-
hald synjað
VIÐ rannsókn á orsökum brunans
í Þingholtsstræti 23 s.l. sunnu-
dagskvöld vaknaði sá grunur, að
um íkveikju kynni að vera að
ræða. Vegna rannsóknarinnar
gerði Rannsóknarlögregla ríkisins
í gær kröfu um að ákveðinn maður
yrði hnepptur í gæzluvarðhald en
þeirri kröfu var hafnað af saka-
dómi Reykjavíkur. Rannsókn
málsins verður haldið áfram að
fullum krafti.
NIÐURSTAÐA álagning-
ar opinberra gjalda í
Reykjavík er tæpum 800
milljónum króna hærri en
reiknað hafði verið með og
er þá búið að taka til
greina viss afföll sem
væntanlega verða af þess-
ari viðbótarálagningu, að
sögn Egils Skúla Ingi-
bergssonar borgarstjóra.
„Þetta kemur sér mjög
vel,“ sagði Egill Skúli. „Það
var gert ráð fyrir einum
milljarði upp í launahækk-
anir sem nu er uppurmn
miðað við þær hækkanir
sem orðið hafa og miðað við
þær áætlanir sem við höf-
um gert um hækkanir fram
til áramóta. Þessi viðbót
kemur sér því ákaflega vel
til þess að greiðslustaðan
versni ekki mikið umfram
það sem við höfðum gert
ráð fyrir að yrði um ára-
mót.“
Snorri fékk gott
verð í Englandi
Skyndilegur leki kom að bátn-
um þar sem skipverjar voru að
veiðum og sökk hann á skammri
stundu.
Skipverjar á Kópi ÞH
komu skipsbrotsmönnunum til
aðstoðar og sigldu með þá til
hafnar á Kópaskeri.
Ákvörðun í dag
um stað og stund
viðræðnanna?
UTANRÍKISRÁÐUNEYT-
INU barst í gær formlegt
svar frá Norðmönnum að
þeir væru reiðubúnir til
samningaviðræðna. í svari
Norðmanna kom einnig
fram staðfesting á, að loðnu-
veiðarnar yrðu stöðvaðar
næstkomandl laugardag,
eins og skýrt var frá í Morg-
unblaðinu í gær. Ekki hefur
verið ákveðið hvenær við-
ræðurnar hefjast og hvar
þær verða, en reikna má með
að ákvörðun um það verði
tekin í dag.
SNORRI Sturluson iandaði hiuta
afla sfns f Hull f gærdag og fékk
mjög gott verð fyrir hann. Hjálp-
aðist hvort tveggja að, að fiskur-
inn var ferskur og vel með farinn
og sömuleiðis að undanfarið hef-
ur fiskast illa f Norðursjónum.
Snorri Sturluson seldi 135 tonn
fyrir tæplega 60 milljónir og
fékk að meðaltali 440 krónur
fyrir kflóið. í dag verður landað
60—70 tonnum úr togaranum.
Á föstudag verður í Reykjavík
fundur umboðsmanns fiskkaup-
enda í Bretlandi og er það Lands-
samband ísl. útvegsmanna, sem
Matthías
Bjarnason í
viðræðurnar
Á FUNDI þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins f gær var ákveðið að
tilnefna Matthías Bjarnason al-
þingismann fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins í viðræðunefndina við
Norðmenn um Jan Mayen.
stendur fyrir þessum fundi. í
fyrrahaust var slíkur fundur einn-
ig haldinn hér í Reykjavík og þótti
takast vel.
Geir Hallgrímsson um sovézku yfirlýsinguna:
Sovétmenn eru ekki að hugsa um
okkar hagsmuni heldur sína
MORGÚNBLAÐIÐ sncri sér í gær til þoirra Gcirs Ilallgrfmssonar
formann Sjáifstæðisflokksins og Kjartans Jóhannssonar sjávarút-
vegsráðhcrra, scm gcgnir nú störfum utanríkisráðherra, og leitaði
álits þcirra á yfirlýsingu Novosti-fréttastofunnar sovézku, sem birt
var í hlaðinu í gær. Þar kom fram, að útfærsla lögsögu við Jan
Mayen mundi leiða til „aukinnar spennu“ á þessu hafsvæði.
Geir Hallgrímsson sagði að
þessu tilefni. „Það er augljóst að
þessi yfirlýsing sovézkra yfir-
valda, ef trúa má fréttum
Novosti, er ekki fram borin
vegna umhyggju fyrir hagsmun-
um okkar, heldur gætir hér
eingöngu einhliða sovéskra
hagsmuna. Ef til vill sýnir slík
yfirlýsing sem þessi bæði Norð-
mönnum og íslendingum betur
en fiest annað, að við eigum
sameiginlegra hagsmuna að
gæta á Jan Mayen-svæðinu.
Þessir hagsmunir eru fólgnir í
því, að þriðji aðili, einn eða
fleiri, geri ekki tilkall til auðæfa
hafsins, hafsbotnsins eða ann-
arrar aðstöðu á þessu svæði. Frá
sjónarmiði bæði Islendinga og
Norðmanna getur þess vegna
verið um að ræða bæði efnahags-
og öryggishagsmuni."
Kjartan Jóhannsson hafði
eftirfarandi um málið að segja:
„Ég er þeirrar skoðunar, að
samningaumleitanir milli Norð-
manna og íslendinga til þess að
tryggja hagsmuni Islendinga á
þessu svæði eigi ekki á nokkurn
hátt að auka spennu varðandi
þetta hafsvæði. Mér finnst
mikilvægast í þessari yfirlýs-
ingu, að þeir lýstu yfir skilningi
á hagsmunum íslenzkra sjó-
manna er varða þetta hafsvæði
og ef vilji er til skilnings í þeim
efnum þá hljóta þeir, sem þann
skilning sýna, ekki að hafa nein-
ar skoðanir á því með hvaða
móti við tryggjum hagsmuni
okkar.“
Þyrlur fljúga
án eldsneyt-
istöku yfir
Atlantshafið
ÞYRLUR frá bandaríska
hernum komu í gærkvöldi til
Keflavíkurflugvallar frá
Grænlandi, og héðan halda
þær áfram í dag til megin-
lands Evrópu. Eiga þær að
fljúga yfir hafið án þess að
taka eldsneyti á flugi, og
takist það er það í fyrsta sinn
sem það tekst. Tilgangurinn
með fluginu er að kanna
hvort unnt er að fljúga þyrl-
unum yfir hafið milli Áme-
ríku og Evrópu komi til
stríðsátaka. Héðan fara þyrl-
urnar til Heidelberg í Þýska-
landi um Skotland og Eng-
land.
Skipstjórinn
verður kærður
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
leggja fram kæru á hendur
skipstjóranum á vestur—
þýska togaranum Darm-
stadt frá Cuxhaven, og
verður málið rekið fyrir
íslenskum dómstólum að
því er Þröstur Sigtryggsson
skipherra í stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar sagði
í samtali við Morgunblaðið
í gær.
Flugvél Gæslunnar stóð
togarann sem kunnugt er
að veiðum á Dornbanka um
5 mílur innan 200 mílna
fiskveiðilögsögunnar.