Morgunblaðið - 16.08.1979, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1979
37
?n í i • m i ■ í >
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL 10—11
^ FRÁ MÁNUDEGI
Ný sending af
Kattavinafélagið og styðja það
með ráðum og dáð.
Nú um árabil hefur fólk leitað
með dýr sín til geymslu hjá
formanni félagsins, Svanhildi
Löve, og hefur það gefist mjög vel,
en það eru alltaf takmörk fyrir því
hvað ein manneskja getur gert, og
spurning um hvort réttlætanlegt
er að ætlast til að mestöll vinna í
einu félagi hvíli á herðum eins
meðlims. Það verður að ætlast til
þess að aðrir félagar leysi af hendi
sinn skerf af vinnu. Það er ekki
nóg að greiða félagsgjöldin. Til-
gangur félags er að vinna að og
koma í framkvæmd áhugamálum
félagsins og til að svo megi verða
þurfa sem flestir félagar að vinna
þau verk sem inna þarf af hendi —
ekki bara einn eða tveir.
Það geymslupláss sem hefur
verið á boðstólum á vegum Katta-
vinafélagsins er að Reynimel 86 og
hefur Svanlaug Löve unnið að
mestu leyti ein við þessa þjónustu
hingað til. Það pláss sem hún
hefur er alltof lítið og uppfyllir
aðeins brot af þeirri þörf sem fyrir
hendi er og hefur hún því miður
orðið að vísa mörgum frá með dýr
sín og er það afar slæmt. Við sem
eigum þessi dýr og viljum sjá þeim
fyrir góðri aðhlynningu eigum að
taka höndum saman og vera með í
Kattavinafélaginu sem virkir
Þessir hringdu . .
125 P
• Móðirin á
barnið líka
Velvakandi fékk tvær upphring-
ingar vegna greinar sem birtist í
dálkinum í gær um meðlag til
einstæðra mæðra. Vildu viðmæl-
endur Velvakanda koma því á
framfæri að bréfritara hefði þar
yfirsést að móðirin á barnið rétt
eins og faðirinn og bæri henni því
einnig að leggja 31 þúsund krónur
af mörkum til framfærslu barns-
ins. Væru þar því 62 þúsund
krónur sem úr væri að spila til
framfærslu hvers barns.
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á unglingaskákmóti í Noregi í
fyrra kom þessi staða upp í skák
þeirra Bergs, sem hafði hvítt og
átti leik, og Michelscns.
i.Hd7!! (En alls ekki strax 35.
xf8+? - Hxf8. 36. f7+ - e5)
xd7 (Ef 35... Hxd7 þá 36. Dxf8
át) 36. Dxf8+! og svartur gafst
}p því að eftir 36... Hxf8 37. f7+
■rður hann mát.
áhugasamir félagar. Okkur sem
málið er skyldast ættum að sam-
eina þar kraftana á einum stað —
þá getum við miklu frekar komið í
framkvæmd þessu áhugamáli okk-
ar.
Kattaeigandi
• Orð í tíma
töluð
Mikið hefur verið ritað í dag-
blöðum undanfarnar vikur um
matvæli og matvælaeftirlit eftir
að Neytendasamtökin létu gera
könnun á lagmeti sem er á boð-
stólum í verslunum.
í Morgunblaðinu 9. þ.m. ritar
Ingimar Sigurðsson deildarstjóri
athyglisverða grein um þessi mál
og skýrir þau á greinilegan hátt.
Hann minnist á áhugaleysi al-
mennings um þessi mál. Hér er
um að ræða höfuðhollustumál
þjóðarinnar sem snertir hvern
einasta mann, eins og hann orðar
það. Ég tel að þetta séu orð í tíma
töluð. Vil ég eindregið hvetja
húsmæður um allt land til að vera
á varðbergi og fylgjast vel með
þróun þessara mála og jafnframt
styrkja og efla þá aðila sem gæta
hagsmuna okkar á þessu sviði sem
öðrum, eins og til dæmis Neyt-
endasamtökin gera.
Húsmóðir í Heimahverfi
Bíllinn sem vekur eftir-
tekt ekki bara
verðsins
vegna.
Verö
m. ryövörn
2.780.000.-
miðað viö gengi 7/8 ‘79.
Innifalið í verði m.a.
* Kraftbremsur með
diskum
á öllum hjólum.
Radíaldekk.
Tvöföld framljós
með stillingu
Læst bensínlok
Bakkljós
Rautt Ijós í öllum hurðum
Teppalagður
* Loftræstikerfi
* Öryggisgler * 2ja hraða miöstöö * Tau i sætum - 2ja hraoa
rúöuþurrkur * Rafmagnsrúöusprauta * Hanzkahólf og hilla *
Kveikjari * Litaöur baksýnisspegill * Verkfærataska *
Gljábrennt lakk * Ljós í farangursgeymslu * 2ja hólfa
karborator * Synkromeraður gírkassi * Hituð afturrúða *
Hallanleg sætisbök * Höfuöpúðar * Ofl. O.fl.
Nokkrum bílum óráðstafað.
FÍAT EINKAUMBOÐ Á fSLANOI
DAVto SIGURÐSSON hf.
SfÐUMULA 35. SÍMI 85855
MANNI OG KONNA
HAGTRYGGING HF
7
Ógætilegur akstur getur endaö með ósköpum.