Morgunblaðið - 16.08.1979, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.08.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1979 19 Tanzaníumenn eru að útrýma dýrum í þjóðgörðum Uganda Kampala, 15. ág. Reuter. TANZANÍSKIR hermenn slátra nú í gríð og erg þúsundum ljóna og ffla og fleiri villtum dýrum í þjóð- görðum Úganda og selja kjötið slátrurum að því er bandarískur líffræðingur, Karl von Orsdol, sagði í dag. Sagðist hann ætla að hermenn frá Tanzaníu hefðu drepið allt að tíu þúsund villt dýr í Úganda síðan þeir leiddu innrásar- heri inn í landið sem steyptu Idi Amin einræðis- herra af stóli. Orsdol hefur verið að fylgj- ast með lifnaðarháttum ljóna í Ruwenzori þjóðgarðinum við landamæri Zaire undanfarin tvö ár og hann sagði að það sem þarna væri að gerast væri í svo stórum stíl að mikil hætta væri á að ýmsum dýra- tegundum í Úganda myndi útrýmt með þessu áframhaldi. Hann sagði að sér og þjóð- garðsvörðum bæði á þessum stað og víðar hefði verið hótað öllu illu ef þeir reyndu að skipta sér af þessu. Hefði hann sent áskorun til Nyerere Tanzaníuforseta um að hann beitti sér fyrir að þessi ógeð- felldu dýradráp verði stöðvuð en engin svör við því fengið. Kvaðst hann nú mundu fara til Kenya og reyna að hefja þar áróðursherferð gegn þess- um drápum. Moskvu. 15. ágúst. Reuter. ÞEKKTUR félagi í forystu sov- ézka kommúnistaflokksins. Kon- stantin Chernyenko, sagði í ræðu í dag að Sovétríkin myndu gera nauðsynlegar ráðstafanir til þess að koma samskiptum Sovétríkj- anna og Kína í eðlilegt horf, f viðræðum sem hefjast milli full- trúa landanna f næstu viku. Chernyenko sagði þetta í ræðu í Frunze, ekki ýkjalangt frá kín- versku landamærunum. Hann sagði að Sovétmenn væru reiðu- búnir til að byggja upp samskipti við Kínverja á grundvelli friðsam- legrar sambúðar af beggja hálfu. Chernyenko er félagi í Æðsta ráðinu og náinn samstarfsmaður Brezhnevs forseta. Vakin er at- hygli á að þessi orð sem Cherny- enko lét falla eru þau fyrstu sem koma frá svo háttsettum manni í Sovétríkjunum varðandi viðræð- urnar við Kínverja í næsta mán- uði. Símamynd AP. Björgunarmaður úr þyrlu breska flughersins hefur sigið í sjóinn og náð tökum á drukknandi siglingamanni. Komst maðurinn aldrei til meðvitundar og lézt við komuna á sjúkrahús, þrátt fyrir lífgunartilraunir. • • Oldurnar hœrri en 99 99 þriggja hœða hús Heath stýrði skútu sinni heilu og höldnu til hafnar Plymouth, 15. ágúst. AP—Reuter. LJÓST er nú að fjórtán siglingamenn fórust í storminum mikla sem gerði við suðvesturströnd Englands í gær þegar keppni á síðasta hluta Að- mírálsbikarsins stóð yfir. Tólf þeirra er fórust voru brezkir en hinir voru frá Bandaríkjunum og Hol- landi. Þá var ljóst í kvöld, að 21 skúta hafði sokkið eða hvolft og verið yfirgef- in, en enn var saknað 20 skúta. Alls tóku <rúmlega 300 skútur frá 19 þjóðum þátt í keppninni. Skip og þyrlur björguðu 130 manns úr sjónum. Siglingakapparnir, sem margir hverjir voru þaulreyndir keppnis- menn, lýstu sumir hverjir veður- haminum er þeir komu til hafnar. „Öldurnar voru hærri en þriggja hæða hús,“ sagði Alan Bartlett, kunnur brezkur sægarpur. Hann komst einn lífs af er björgunar- fleki, sem hann og þrír félagar hans voru á, brotnaði í spón í einu brotinu. Þyrla bjargaði Bartlett, sem er 53 ára, eftir að hann hafði verið að velkjast í hafrótinu í sex klukkustundir. Margir aðrir sigl- ingamenn höfðu svipaða sögu að segja, er þeir komu í örugga höfn, ýmist af eigin rammleik eða í togi. Edward Heath, fyrrum forsæt- isráðherra Breta var meðal þátt- takenda í keppninni, en sigurlíkur hans urðu að engu er bátur hans missti stýrið fyrr í keppninni. Heath tókst að stýra skipi sínu til hafnar heilu og höldnu, en „þetta var það versta sem ég hef nokkru sinni lent í,“ sagði Heath, sem er þaulvanur siglingagarpur. „Þessi reynsla var nokkuð sem enginn vill upplifa aftur,“ sagði Heath einnig, en hann marðist illa um allan skokk þegar sjóarnir riðu yfir. Margir aðrir sægarpar tóku undir orð Heaths og sögðust ekki hafa lent í meiri þrekraun á hafi úti. Stormar hafa aldrei fyrr gert eins mikinn usla í siglingakeppni og að þessu sinni. Kunnugir sögðu, að það hefði verið mesta mildi að ekki fórust fleiri, en margar skút- ur komust við illan leik til hafna víðs vegar á Englandi, Wales og Irlandi. Auk manntjónsins hafa fimm milljón dollara verðmæti eyðilagst er skipin sukku eða löskuðust. í keppninni var siglt um þær slóðir þar sem Englendingar og Spánverjar háðu mikla sjóorrustu í júlí árið 1588. Spánverjar biðu lægri hlut í viðureigninni við Sir Francis Drake og hans menn, en þá setti óveður einnig mark sitt á leikinn, því dag einn lenti hluti spánska flotans í stórsjó og fórst um helmingur sjóliðanna, þúsund- ir manna. smtm'1* :!ííl .érií- Simamynd AP. Þyrla brezka flugher.sins kemur bresku skútunni Camargue til aðstoðar, þar scm skútan hrekst löskuð undan suðvesturströnd Englands. Á dekki skútunnar sést einn úr áhiifn hennar, en áhöfninni, átta manns, var bjargað um borð í þyrluna. Elvis Presley, konungur rokksins. Tvö ár éru í dag liðin frá andláti hans. Presley aldrei vinsœlli TVÖ ÁR ERU í dag, 16. ágúst. liðin frá því að rokkkóngurinn Elvis Presley lézt. í lifenda lííi naut Presley fádæma frægðar, en frægðarsól hans reis enn hærra eftir andlátið og njóta sönglög hans enn meiri hylli nú en nokkru sinni fyrr. Hljómplötur með lögum Presleys hafa verið mjög vinsælar síðustu tvö árin og hefur hljóm- plötufyrirtækið RCA vart haft undan við framleiðsluna. Það sem af er árinu hafa selzt um 200 milljónir hljómplatna með lögum Presleys og í allt hefur fyrirtækið selt um 600 milljónir platna með lögum hans. Þá berast þær fregnir frá Memphis, að mikið sé til af lögum með Presley sem aldrei hafi verið gefin út, og munu þau nægja til umfangsmikillar plötuútgáfu næstu fimm árin. Kaupsýslumenn margir hafa og orðið forríkir eftir andlát Pres- leys. Vinsæll söluvarningur eru ljósrit af erfðaskrá hans, ökuskír- teini, hjúskaparskírteini og ýms- um öðrum skjölum er tilheyrlu Presley. Þá hefur plakat af forsíðu blaðsins National Enquirer selzt í milljónum eintaka, fyrir utan öll önnur plaköt að sjálfsögðu, en blaðið birti stóra mynd á forsíðu af Presley sitjandi í líkkistunni, sem hann síðar var borinn í til moldar. Og nú ætla vínframleiðendur að njóta góðs af frægð Presleys þar sem boðað hefur verið sérstakt Elvis-vín og kappkostað hefur verið að koma því á markað í öllum stórmörkuðum og vínútsöl- um í Bandaríkjunum síðustu daga svo að landar rokkkóngsins geti svolgrað það í tilefni dagsins. Vínið er ítalskt, en átappað í Kaliforníu. Verður víninu einnig komið á markað í Evrópu. Þannig lítur flaska af Elvis-víninu út. Chemyenko í ræðu; Bættri sambúð heit ið við Kínamenn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.