Morgunblaðið - 20.09.1979, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1979
21
Alþýðuleikhúsið
tekur til starfa
STARFSEMI Alþýðulcikhússins
leikárið 1979—1981 er hafin í
Lindarbæ. en leikhúsið hefur
tekið hann á leigu annað leikárið
í röð. Fyrsta sýning vetrarins var
siðastliðið fimmtudagskvöld. en
þá hófust að nýju sýningar á
leikriti Ólafs Hauks Símonarson-
ar „Blómarósum“, sem frumsýnt
var siðastliðið vor.
Leikstjóri Blómarósa er Þór-
hildur Þorleifsdóttir, leikmynd
gerir Þorbjörg Höskuldsdóttir og
búningar eru eftir Valgerði Bergs-
dóttur. Leikarar á sýningunni eru
12 talsins.
Jón Júliusson hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri leikhússins í
vetur og ýmsar nýjungar eru á
döfinni. Má þar til nefna sérstak-
an barnaleikhóp sem tekinn er til
starfa á vegum Alþýðuleikhússins
og mun vinna ásamt höfundum að
tveimur barnasýningum á leikár-
inu.
Þá eru fyrirhugaðar miðnætur-
sýningar í Austurbæjarbíói á
leikriti Dario Fos, „Við borgum
ekki — við borgum ekki“. Um
þessar mundir standa yfir æfingar
á nýju leikriti eftir Böðvar Guð-
mundsson sem að öllum líkindum
verður frumsýnt í nóvember. Leik-
stjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir.
Landsþing Þroskahjálpar
LANDSÞING Landssamtakanna
Þroskahjálpar verður haldið
laugardag og sunnudag 22. og 23.
september n.k. Þingið, sem er hið
annað í röðinni, hefst kl. 10 f.h. á
laugardag að Hótel Loftleiðum,
Kristalsal. Landssamtökin hafa í
tilefni þingsins boðið hingað, Dr.
Peter Mittler, prófessor frá
Manchester háskóla og mun hann
flytja fyrirlestur f.h. á laugardag
um þátttöku foreldra í kennslu
og þjálfun þroskaheftra barna.
Prófessor Peter Mittler er m.a.
forseti alþjóðasambands foreldra
þroskaheftra barna, ennfremur
er hann stofnandi og veitir for-
stöðu rannsóknarstofnun á veg-
um Háskólans í Manchester, þar
sem unnið er að gerð þjálfunar-
áætlana og framkvæmd þeirra í
samvinnu við foreldra þroska-
heftra barna.
Á laugardag verða ennfremur
flutt erindi um löggjöf um aðstoð
við þroskahefta og framkvæmd
hennar. Um þetta efni munu fjalla
Ingimar Sigurðsson deildarstjóri í
heilbrigðis- og tryggingarmála-
ráðuneyti og Jón Sævar Alfonsson
varaformaður Þroskahjálpar. Þá
munu þau Þorsteinn Sigurðsson
og María Kjeld flytja erindi um
málörvun þroskaheftra barna á
forskólaaldri, en námskeið um
þetta efni, er að hefjast um þessar
mundir á vegum Námsflokka
Reykjavíkur undir stjórn þeirra
Þorsteins og Maríu.
Að loknum framsöguerindum á
laugardag starfa umræðuhópar.
Það skal tekið fram að öllum er
heimilt að hlýða á framsöguerind-
in á laugardag og taka þátt í
umræðuhópum.
Landsþinginu verður framhald-
ið á sunnudag, en þá verður
haldinn aðalfundur Þroskahjálpar
og hefst hann kl. 10 árdegis.
Þetta er jeppinn, sem fór út af veginum á Fjarðarheiði
sl. sunnudag með þeim afleiðingum, að tveir menn biðu
bana. Talið er að jeppinn hafi farið þrjár veltur niður
bratta brekku og er hann ónýtur eftir. Ljósm. Mbl.: Sveinn.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
P. Sarkar (í miðjunni í hvitum kufli, berhöfðaður).
Leiðtogi Ananda
Marga á íslandi
SHRII P.R. Sarkar, andlegur
leiðtogi Ananda Marga-hreyf-
ingarinnar, var staddur hér-
lendis í vikunni. Kom hann til
landsins á þriðjudag og hélt
utan í gærmorgun. Hefur hann
að undanförnu verið á ferð um
ýmis lönd við Miðjarðarhafið
þar sem hann hefur átt viðræð-
ur við fylgjendur Ananda
Marga og haldið fyrirlestra.
Guttormur Sigurðsson og
Margrét Stefánsdóttir, sem hafa
um þriggja ára skeið verið fylgj-
endur Ananda Marga-hreyf-
ingarinnar og starfað fyrir svo-
nefnda Prout-deild, sem er
sprottin af kenningum Ananda
Marga, sögðu að fátítt væri að P.
Sarkar kæmi til lands þar sem
ekki væru fleiri fylgismenn, en
hér eru, en milli 30 og 40 starfa
reglulega.
í kynningarbæklingi
um P. Sarkar segir m.a., að hann
sé andlegur leiðtogi milljóna
manna um allan heim, sé höf-
undur svonefndrar Framfara- og
nýtnikenningar, Prout, sem sé
altæk félagsleg kenning grund-
völluð á alheimsbundnu viðhorfi.
Leggi kenningin til leiðsögu fyr-
ir þróttmikið mannlegt samfélag
þar sem allar auðlindir muni
verða nýttar á framfarasinnað-
an hátt. „Ananda Marga og
Prout urðu sterk andleg og fé-
lagsleg öfl í Indlandi og hafa nú
dreifst um allan heim. Vegna
andstöðu sinnar við arðrán, and-
legs grundvallar þeirra og rækt-
arsemi við félagslega þjónustu
eru þessi samtök alvarleg ógnun
við gróna hagsmuni sem þrífast í
spillingu, óréttlæti, arðráni og
kúgun", segir einnig í bæklingn-
um.
íslenzkir fylgismenn Ananda Marga-hreyfingarinnar tóku á móti iærimeistara sínum á
Keflavíkurflugvelli á þriðjudag með söng. Mynd: G.S.
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Vélstjóri
28 ára vélstjóri meö full réttindi, óskar eftir
starfi í landi.
Tilboð sendist Mbl. merkt: „Vélstjóri —
3151“.
Afgreiðslustarf
Óskum eftir aö ráöa nú þegar vana af-
greiöslustúlku í kjötverslun.
Uppl. í kjötverslun Tómasar, sími 12112.
Trésmiðir
Trésmiö eöa mann vanan verkstæðisvinnu
vantar strax.
Trésmiójan Holt,
Urðarholti 3, Mosfellssveit,
sími 66440.
Óskum eftir að ráða
menn til verksmiðjustarfa strax, helst vana
polyestervinnu. Lágmarksaldur 20 ár.
Upplýsingar í síma 84452.
Snyrtivöruverslun
viö Laugaveg óskar eftir vönum starfskrafti
hálfan eöa allan daginn.
Tilboö sendist Mbl. fyrir 25. sept. merkt:
„Starfskraftur — 662“.
VANTAR ÞIG VINNU
VANTAR ÞIG FÓLK
Þl AL'GLYSIR L'M ALLT
LAND ÞEGAR ÞÍ Al'G-
LÝSIR i MORGl'N'BLADINL