Morgunblaðið - 07.10.1979, Síða 1
64 SÍÐUR
220. tbl. 66. árg.
SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Rekinn
af þingi
Seoul, 6 okt. AP. Reuter.
HELSTI stjórnarandstöðu-
flokkurinn í S-Kóreu
hefur hætt þátttöku í
störfum þingsins eftir að
Kim Young-Sam, leiðtogi
flokksins var rekinn úr
þinginu. Og í dag svipti
dómstóll í Seoul
Young-Sam stöðu leiðtoga
flokksins og lýsti
kosningu hans sem leið-
toga flokksins í maí
ómerka.
Kim Young-Sam, leiðtogi Nýja
demókrataflokksins (NDP), hvatti
Bandaríkin til að hætta stuðningi
sínum við Park Chung Hee,
forseta landsins. Park svaraði með
því að láta reka Young-Sam af
þingi og síðan svipta hann
leiðtogastöðu flokksins.
Bandaríski sendiherrann í Seoul
var í dag kallaður heim til
Washington. Talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins
kallaði aðgerðir stjórnarinnar í
Seoul í „ósamræmi við þingræðis-
legar hefðir."
Leiðtogar
1 A-Berlín
Austur-Berlín, 6.október.
AP.Reuter
LEIÐTOGAR austur-evrópskra
ríkja flykktust i gær til Austur-
Berlinar til að vera viðstaddir
hátiðahöld i sambandi við 30 ára
fullveldi Austur-Þýzkalands.
Hátiðahöldin ná hámarki á morg-
un, sunnudag, er haldin verður
mikil hersýning í A-Berlín.
Brezhnev forseti Sovétríkjanna
heldur í dag ræðu í tilefni afmæl-
isins í Lýðveldishöllinni, sem er
stórhýsi úr marmara og grágrýti á
bökkum árinnar Spree. Búist er
við að Brezhnev muni einkum
beina spjótum sínum að Carter
Bandaríkjaforseta vegna ummæla
og aðgerða Carters í sambandi við
sovézku hersveitirnar á Kúbu.
Ráðherrar og íorystumenn Alþýðubandalagsins komu saman til sérstaks skyndifundar í Þórshamri i gær hjá Lúðvík Jósepssyni, en þeir
vildu ekkert segja við blaðamenn að loknum fundi. Lúðvik kvaðst hins vegar hafa boðað þingflokk og framkvæmdastjórn til fundar síðdegis
ígær. Hér sjást nokkrir forystumannanna skeggræða undir garðvegg Alþingishússins að loknum skyndifundi igær, en frá vinstri eru þarna
Hjörleifur Guttormsson, ólafur Ragnar Grímsson, Kjartan ölafsson, Geir Gunnarsson, Ragnar Arnalds og Einar Karl Haraldsson. Sjá frétt
á bls. 2. Ljósmynd Mbl. ÓI.K.M.
Norska fjárlagafrumvarpið:
Endurgreiðsiur erlendra lána
hæsti útgialdaliðurinn 1980
Frá fréttaritara Mbl Ósló, 6 október. Jan-Erik Lauré.
PER KLEPPE fráfarandi fjármálaráðherra lagði í dag
fram fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár.
Niðurstöðutölur frumvarpsins eru 91,1 milljarður norskra
króna (um 7200 milljarðar ísl. króna), sem er 13,8
milljörðum hærri upphæð en í fyrra. Gert er ráð fyrir að
halli verði á fjárlögum um 19,6 milljarða og er fyrirhugað
að fjármagna hann mað lánum.
Hörð gagnrýni á páfa:
„Karlmenn líta á sig
sem átrúnaðargoð”
New York, 6. okt. AP. Reuter.
ANDÚÐ Jóhannesar Páls páfa
á getnaðarvörnum, fóstureyð-
ingum og kvenprestum hefur
orðið kreddulausum kaþólikk-
um tilefni til harðrar gagnrýni
á páfa og kirkju.
Skoðanakannanir hafa leitt í
ljós að 73% kaþólskra Banda-
rikjamanna eru samþykkir
getnaðarvörnum og 21% fylgj-
andi löglegum fóstureyðingum.
í ræðu sem páfi hélt í gær
frammi fyrir 1,5 milljónum
áhorfenda á grasbala við
Michigan-vatn kvað hann fóst-
ureyðingar „óumræðilegan
glæp“.
Samtök kaþólikka, er nefna
sig „kaþólskt valfrelsi", hafa
keypt hálfrar síðu auglýsingu í
sunnudagsútgáfu Washington
Post þar sem birtist bréf til
páfa, en hann kemur til
Washington á morgun. Þar segir
að þótt kaþólskir áskilji sér rétt
til meira frelsis í barneignamál-
um hafi þeir ekki hörfað frá
trúnni, heldur hafi kirkjan fjar-
lægst mannfólkið.
Einnig hafa samtök 1.750
presta, er aðhyllast jafnrétti
kynjanna til prestskapar, gagn-
rýnt harðlega þau ummæli páfa
að hin hefðbundna afstaða kirkj-
unnar til prestsskapar kvenna
væri ekki mannréttindamál. Þá
samþykktu samtök bandarískra
nunna, er telja um 1.800 með-
limi, ályktun þar sem gagnrýnt
er að aldagömul hefð gegn
prestsskap kvenna skuli gert
hærra undir höfði en meginregl-
ur kirkjunnar er kveða á um
réttlæti og jafnrétti. Systir
Margaret Ellen Traxler, sem
verið hefur nunna í 35 ár, lét þau
orð falla að karlmenn í kirkjunni
hefðu komið sér upp falsguði er
væri þeirra eigin karlmennska.
„Þeir tilbiðja sjálfa sig sem
átrúnaðargoð."
Stærsti útgjaldaþáttur fjárlag-
anna er afborganir og vextir af
erlendum lánum, samtals 14,7
milljarðar norskra króna. Gert er
ráð fyrir ýmsum nýjum sköttum,
m.a. auknum benzín- og bílaskött-
um. Fargjöld með almenningsfar-
artækjum, lestum, langferðabíl-
um, skipum og flugvélum verða
hækkuð og sama er að segja um
afnotagjöld síma, sjónvarps og
rafmagns. Áfengi og tóbak verður
ekki hækkað í verði eins og
yfirleitt hefur verið gert árlega
með nýjum fjárlögum.
Nokkur lækkun verður á bein-
um sköttum samkvæmt frumvarp-
inu, en þó mun minni en borgara-
flokkarnir hafa lagt til. Barna-
bætur verða sömuleiðis auknar og
einnig ellilífeyrir.
Per Kleppe fjármálaráðherra
sagði í dag í þinginu, að stjórn
Verkamannaflokksins vildi með
frumvarpinu leita eftir stuðningi
borgaraflokkanna við að leysa hin
efnahagslegu vandamál, sem að
steðjuðu. Ráðherrann sagði, að
stjórnin legði eftir sem áður
mesta áherzlu á að halda atvinnu í
Noregi, en samstarf allra þeirra,
sem málið snerti, væri nauðsyn-
legt til að ná því markmiði.
Óvænt
Smith
til Salisbury
Lundúnum. 6. október, AP. Reuter.
IAN Smith, fyrrum forsætisráð-
herra Rhódesiu, hélt skyndilega til
Salisbury i dag til að ræða við ýmsa
helstu leiðtoga hvita minnihlutans í
iandinu. Brottför Ian Smith frá
Lundúnum kom á óvart og hann fór
aðeins klukkustund eítir að Abel
Muzorewa, forsætisráðherra Zimb-
abwe Rhódesiu, féllst á skilyrði
Breta að nýrri stjórnarskrá í land-
inu.
Eftir fjögurra vikna viðræður
setti Carrington lávarður utanríkis-
ráðherra deiluaðilum úrslitakosti —
annað hvort að samþykkja drög að
nýrri stjórnarskrá eins og Bretar
hafa sett hana fram, eða hafna.
Muzorewa féllst síðan á öll skilyrði
Breta en hann sagði að einn nefnd-
armanna sinna hefði verið andvígur.
í tillögum Breta er gert ráð fyrir að
hvíti minnihlutinn missi neitunar-
vald sitt í þinginu og að nýjar
kosningar fari fram í landinu. Orð-
rómur er uppi um, að hann hyggist
reyna að koma í veg fyrir hinar nýju
tillögur. Hvítir menn hafa enn
neitunarvald í þinginu.
Muzorewa sagðist í dag ekki eiga
von á því að Ian Smith myndi beita
sér gegn samkomulagi um Rhódesíu-
deiluna, þó hvíti minnihlutinn missti
neitunarvald sitt á þinginu í Salis-
bury.