Morgunblaðið - 07.10.1979, Qupperneq 32
^Síminn á afgreiðslunm er
83033
3W*r0iinbInt>ib
SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1979
á ritstjórn og skrifstofu:
10100
JMvrgunblabib
Hafskip vill
kaupa þotu til
vöruflutninga
„HAFSKIP hefur að undanförnu
verið að kanna möguleika á því
að kaupa þotu til vöruflutninga
milli landa og við höfum fengið
ýmsa til þess að kanna fyrir
okkur málið,“ sagði Björgúlfur
Guðmundsson framkvæmdastjóri
Hafskips í samtali við Mbl. i gær,
„en þetta er eitt af þeim verkefn-
um sem við höfum sett okkur að
Ijúka við.“
Björgúlfur sagði að starfsmenn
hefðu orðið að einbeita sér að
skiparekstrinum að undanförnu
og því hefði flugvélakaupamálið
ekki verið rekið á fullu, en hann
kvað stóran hóp viðskiptavina
Hafskips hafa hug á að flytja
varning heiman og heim með
flugvélum og því væru þeir að
kanna málið.
Játarfjárdrátt
GJALDKERI Breiðholtssafnaðar s.l. föstudag er hann var að koma
í Reykjavik hefur við yfirheyrslur frá útlöndum. Við yfirheyrslur
hjá Rannsóknarlögreglu rikisins hefur hann viðurkennt að hafa
játað að hafa dregið sér fé úr dregið sér 2,5 milljónir króna úr
sjóðum kirkjunnar. sjóðum kirkjunnar á þessu ári.
RLR barst í vikunni kæra frá Rannsókn málsins er á frumstigi
safnaðarstjórn og var gjaldkerinn og liggur ekki ljóst fyrir hvert
handtekinn á Keflavíkurflugvelli umfang þessa máls er.
Kærður fyrir kyn-
ferðisafbrot gagn-
vart dóttur sinni
RANNSÓKNARLÖGREGLA
rikisins handtók s.l. föstudag
liðlega þritugan Reykviking, sem
grunaður er um mjög alvarleg
kynferðisafbrot gagnvart dóttur
sinni.
Maðurinn er kærður fyrir að
hafa haft kynferðislegt samband
við dóttur sína, sem nú er 12 ára
gömul. Hefur þetta samband stað-
ið í nokkur ár, samkvæmt fram-
burði stúlkunnar.
Stöðugar yfirheyrslur hafa far-
ið fram yfir manninum síðan hann
var handtekinn og síðdegis í gær,
þegar Morgunblaðið fór í prentun,
hafði Rannsóknarlögregla ríkisins
gert um það kröfu til sakadóms
Reykjavíkur að maðurinn yrði
úrskurðaður í gæzluvarðhald.
„Mun tala
fyrir
áfram-
haldandi
stjórn-
arsam-
staríi”
unar þingflokks Alþýðuflokksins
um stjórnarslit, en Magnús var
eini þingmaður flokksins sem
greiddi atkvæði gegn stjórnarslit-
um.
„Ég er algjörlega sammála þing-
„ÉG er ekki sammála þingflokki flokknum í þvi að það þurfi að
Alþýðuflokksins i afstöðu hans til breyta um kúrs á þjóðarskútunni,“
stjórnarslita að því leyti að ég tel sagði Magnús, „og að breyta þurfi
það hafi ekki verið þrautreynt nú um efnahagsstefnu. Ég er einnig
i haust hvort samstarfsflokkar sammála þingflokknum í því að
okkar séu tilbúnir til þess að taka ástæðan fyrir því hvernig komið er
nógu hraustlega á i sambandi við í dag er fyrst og fremst að
verðbólguvandann. Ég tel að það samstarfsflokkar okkar voru ekki
eigi að reyna meira til þess að tilbúnir á s.l. vetri til nægilega
halda stjórninni á fioti og sam- harðra aðgerða í sambandi við
ræma kompásstefnuna áður en verðbólguvandann. Það er hins
farið er i bátana og fyrir áfram- vegar mitt mat eins og ég sagði
haldandi stjórnarsamstarfi mun áðan að ekki hafi nægilega verið
ég tala á flokksstjórnarfundi Al- látið reyna á að ná samkomulagi,
þýðuflokksins á mánudag,“ sagði en ég vil sem minnstan blaðamat
Magnús H. Magnússon félags- gera úr ágreiningsefnum innan
málaráðherra i samtali við Mbl. i flokksins á meðan þau eru í
gær um afstöðu hans til ákvörð- deiglunni."
Bukovsky við komuna til Keflavíkurflugvallar í gær.
Ljósm. Mbl. RAX.
Bukovsky á Mandi
Andófsmaðurinn heimskunni
Vladimir Bukovsky kom hingað
til lands í gærmorgun. Dvelst
hann hér yfir helgina og flytur
i dag, sunnudag, erindi á fundi
Samtaka um vestræna sam-
vinnu og Varðbergs, er hefst kl.
14 í Súlnasal Hótel Sögu. Fund-
urinn er öllum opinn.
Við komuna sagðist Bukovsky
vera þreyttur eftir langt ferða-
lag frá Vancouver á vestur-
strönd Kanada, þar sem hann
var á fyrirlestrarferð á vegum
háskólans. Áður hafði hann setið
nokkra daga á ráðstefnu í
Washington, höfuðborg Banda-
ríkjanna.
Bukovsky stundar nú nám í
líffræði við háskólann í Cam-
bridge í Bretlandi og heldur
þangað eftir dvöl sína hér.
Hann sagðist ánægður yfir því
að fá tækifæri til að koma
hingað og geta kynnt íslending-
um brot af lífsreynslu sinni í
sovéskum fangelsum og rætt um
samskipti austurs og vesturs á
liðandi stund.
Garðar í Þjórsá til að
auka vatn tíl virkjunar
Landsvirkjun:
„VIÐ REIKNUM með að þessar framkvæmdir geti gefið okkur
10—15 gígawattstundir, sem reiknaðar í olíu þýða 3—500
milljónir króna,“ sagði Jóhann Már Maríusson yfirverkfræð-
ingur Landsvirkjunar, er Mbl. spurði hann um fyrirhugaða
garða, í Þjórsá ofan Búrfells. Það er fyrirtækið Suðurverk,
sem annast framkvæmdir, og verður byrjað á þriðjudaginn.
Garðarnir eiga að minnka
ísskolunarþörf við Búrfell, en Jó-
hann sagði hana kosta 5—700
gígalítra á ári, sem ekki er þá
hægt að taka inn til virkjunarinn-
ar til rafmagnsframleiðslu.
„Framkvæmdir sem þessar hafa
ekki komizt á dagskrá meðan við
höfum haft nóg vatn. En nú er
okkur sárt um hvern dropa og það
kemur þá í stað þess að finna
meira vatn að losna við ísskolun-
ina,“ sagði Jóhann. Áætlaður
kostnaður er um 60 milljónir
króna.
Landsvirkjun hefur athugað
möguleika á að veita meira vatni
til Þórisvatns en nú er. Jóhann
sagði þar bæði um að ræða
möguleika á að ná auknu vatni í
Köldukvísl og einnig að ná þver-
ám, sem renna í Þjórsá, til dæmis
Svartá, í Þórisvatn. „Þetta yrði
gert með skurðum og stíflum,"
sagði Jóhann, „og við teljum unnt
að gera þetta fyrir veturinn
1980-81.
Þarna yrði um að ræða örfáa
rúmmetra á sekúndu, en vel að
merkja á hverri sekúndu allan
ársins hring og höfum við í huga,
að þessar framkvæmdir gætu gef-
ið okkur um 40 gígawattstundir á
ári.“
Sjá erindi Jóhanns: Lands-
virkjun og vatnsbúskapur á
bls. 14 og 15.