Tíminn - 29.06.1965, Blaðsíða 2

Tíminn - 29.06.1965, Blaðsíða 2
BORGIN MJÓLKURLAUS TÍMINN ÞRBDJUDAGUR 29. júní 1965 Mánudagur 28. júní. NTB-Kaupmannahöfn. Samningurinn rnn afhendingu íslenzku handrltanna verður undirritaður í Kaupmannahöfn á fimmtudagsmorgun, en eins og kunugt er hefur þingið sam þykkí samninginn en Áirnasafns nefndin hefur hins vegar höfð- að mál gegn ríkinu til að fá lögunum um afhendinguna hnekkt. NTB-Algeirsborg. Fréttamenn segja, að byltlngar ráðið í Alsír undir forsæti Boumedienne, hershöfðingja, hafi nú traust tök á stjórn landsins, enda þótt frestun ráð stefnu Afríku- og Asíuríkja hafi verið áfall fyrir ráðið. 40 —50 manns hafa farizt í óeirð unum undanfarið, en frétta- menn segja, að allar mótmæla- aðgerðir til stuðnings Ben Bella hafi runnið út í sandinn. NTB-Brussel. Alþjóðasamband blaðamanna sendi í dag mótmæli til stjóm ar S-Vietnam vegna áætlana hennar um að banna öll 36 blöð landsins allan júlímánuð. Mótmælin eru gerð fyrir hönd 54.000 blaðamanna liins frjálsa helms, sem aðild eiga að al- þjóðasambandinu og segir í mót mælaorðsendingunni, að áætlan ir stjórnarinar muni aðeins skaða málstað S-Vietnam. NTB-Lundúnum. Alþjóða hvalaveiðimálastofnun in hóf í dag 17. ráðstefnu sína í Lundúnum og munu fulltrúar hinna 17 aðildarlanda ræða fyr Ir luktum dyrum alla næstu viku, hugsanlegar frekari tak markanir á hvalveiðum í því augnamiði að vernda hvala- stofninn. NTB-Haag. Júlíana Hollandsdrottning skýrði frá því opinberlega í dag, að Beatrix, krónprinsessa hefði trúlofast vestur-þýzka diplómatlnum Claus von Ams berg, sem á stríðsárunum var í unglingahersveitum Hitlers. Beatrix sagði eftir þessa til- kynningu, að ef hollenzka stjórnin hefði ekki samþykkt ráðahag henar, hefði hún hætt við þessi giftingaráform sín. En við vonum, að með tíman um muni fólk fá trú á okkur, sagði krónprinsessan í blaða- viðtali. Holandsdrottning sagði í tilkynningu sinni, að þau hjónin væru algerlega sam- þykk ráðahagnum. NTB-Leopoldville. Frá því var skýrt í Leopold ville í dag, að upreisnarmenn í Kongó hefðu barið og höggvið í hel 30 belgiska og hollenska trúboða í Buta í Norður-Kongó og síðan látið þá sem eftir lifðu safna saman líkamshlutunum og bera brott. f dag komu stjórnarhermenn með 19 Evr ópumenn þar á meðal 15 nunn ur, sem bjargað hafi verið úr klóm upreisnarmanna, eftir 11 mánaða fangelsisvist. Sögurnar, sero fangarnir sögðu voru hrylll legar, svo sem sagt er hér að framan. Enn er leitað 19 evr ópskra manna, sem taldir eru vera i fangelsum uppreisnar- manna. TK-Reykjavík, mánudag. Mjólkurlaust mun verða í Reykjavík á morgun, þriðjudag, og fram á miðjan miðvikudag vegna verkfalls Dagsbrúnarmanna í þjónustu Mjólkursamsölunnar, sem hefst á miðnætti í nótt og stendur fram til kl. 7 á miðvlku dagsmorgun. Blaðið átti tal við Odd Helga son, sölustjóra hjá Mjólkursamsöl unní í Reykjavík, síðdegis í dag og spurðist fyrir um dreifingu mjóVkur í Reykjavík í tilefni I verikfallinu, sem hefst á miðnætti í nótt hjá Dagsbrúnarmönnum hjá Mjólkursamsölunni, en þegar hef ur orðið vart erfiðleika við mjólk urdreífinguna undanfama daga vegna eftirvinnubannsins, sem ver ið faefur í gildi. Oddur Helgason sagði, að vegna eftirvinnuibannsins hefði dreifing mjólkurinnar slltnað í sundur og orðið mjólkurlaust í mörgum búð- um um stimd fyrir hádegi, en ræzt úr þegar liðið faefur á dag inn og ætíð verið næg mjólk til sölu síðdegis. Búðimar myndu liggja með nokkrar bírgðir í kvöld, en öll mjólk selzt áreiðan lega upp á morgun. Á miðvikudag verður mjólfcuriaust fram á dag- inn og yrði fólk þá að búa að þeim birgðum, er það aflaði sér í dag og á morgun. KJ). Það munu vera um 60—80 menn, sem leggja niður vinnu við mjólkurdreifingu á morgun. Tíminn kannaði ástandið í nokkr um mjólkurbúðum rétt fyrir lokun í kvöld. Var þá mjólk uppseld með öllu í flestum búðum og engin mjólk verður þar til sölu á morg un. Vestmannaeyjabátum líka lagt KJ—Reykjavík, mánudag Um tuttugu bátar hafa að und anförnu stundað síldveiðar frá Vestmannaeyjum, og eru það mestmegnis bátar sem ekki eru taldir orðnir samkeppnisfærir til síldveíða fyrir Norður- og Austur landi. Hefur afli verið góður hjá þessum bátum, og þeir hæstu komnir með um 17 þúsund mál. Blaðið átti í kvöld tal við Jóhann Pálsson skipstjóra, for- mann Útvegsbændafélags Vest mannaeyja. Jóhann sagðist vera nýkominn frá Reykjavík þar sem hann átti viðræður við L. í. Ú. um síldarverðið í Vestmannaeyj um. Ekki sagðist Jóhann geta gef ið upp það verð sem þeir vildu fá fyrir síldina, en við viljum fá það mikið fyrir hana að eðlilegur rekstrargrundvöllur skapizt fyrir þessum veiðum. Stefán Stefánsson á Halkion frá Vestmannaeyjum sagði að þeir hefðu verið fyrir austan á síld- veiðum nú í um hálfan mánuð og komnir með 7000 mál, og hér við Vestmannaeyjar væru þeir búnir að vera í nokkra daga og væru komnir með 4000 tunnur. Stefán sagði að illt hljóð væri í mönn l |um í Eyjum, og allar skipshafnir .............. iíwi Mvndin var tekin á fluo vellinum og eru á henni Nilson ásamt konu slnnl. (Timamynd— Utanríkisráðherra Svía kominn GB—Reykjavík, mánudag. Um hálffimmleytið í dag lenti Sólfaxix á Reykjavíkurvelli og hafði seinkað nokkuð vegna mikils mótvinds, en meðal far þega voru utaeríkisráðh. Svía og kona hans, með fylgdarliði úr sænska útanríkisráðuneyt- into, Leif Beifrage ráðuneytis stjóra, Hichens-Bergström deildarstjóra og Par A. Kettis fulltrúa, sem koma hingað í opinbera heimsókn. Á flugvellinum tóku á móti gestunum utanríkisráðherra Guðmundur í. Guðmundsson, Agnar Kl. Jónsson ráðuneytis stjóiri, Augus-t H. von Hart- mansforff sendiherra Svia á íslandi, Gunnar Rocksén vara ræðismaður Svía, og Árni Tryggvason sendiherra íslands í Stokkhólmi, svo og konur þeirra. Var þessi mynd tekin, er hinir opinberu gestir stigu úr flugvélinni og voru boðnir velkomnir, en síðan farið með þá til gististaðar. stæðu einhuga á bak við þessar mótmælaaðgerðir. Ekkert þýddi að semja í Vestmannaeyjum á meðan ekki næðist samstaða annarsstaðar, og væri því bezt að bíða og sjá hverju fram yndi. Það hefði viðgengizt allt of oft að farið væri á veiðar áður en búið væri að ákveða síldarverðið, og mætti líkja því við að verka menn færu að vinna án þess að þeir væru búnir að gera samninga um kaup. Þess vegna væri ekki róið núna, þegar verðið væri ó- komið. Verkfall hjá málm- og skipsmiðum TK—Reykjavík, mánudag. Á miðnætti hefst sólarhrings- verkfall hjá málm- og skipasmið um í landinu einns og boðað hefur verið. Sátu félagar í Sambandi málm- og skipasmiða á fundi í kvöld og verður nánar sagt frá þeim fundi síðar. A þriBja þúsund í Skógarhólum (.m JHM-Reykjavík, mánudag. í gær, sunnudag, fóru fram kappreiðar hestamannafélaganna í Jeppi á Blönduósi Reykjavík, mánudag. ,iJeppaflokkurinn“ hafði frum sýningu á Blönduósi i gæi á Jeppa á fjalli, og var húsfyllir, eða eins o g mögulegt var að troða í húsið. Bíll sá sem flokkur inn lagði af stað með. héðan úr Reykjavík bilaði á leiðinni. og síð an hafa þeir eins og vera ber með „jeppaflokkinn“ verið á jeppa, og riðu á honum ( hlað á Blönduósi Flokurinn sýnir á Sauðárkróki í kvöld. Skógarhólum við Þingvefli og sóttu mótið á þriðja þúsund manns. Þarna voru saman komnir margir af beztu gæðingum landsins, auk hundruð annarra hesta.Hestamenn fóru að streyma á Þingvöll strax á föstudagskvöldið, en flestir komu þó á laugardag. Blaðið hafði tal af Guðmundi Þorlákssyni bónda á Seljabrekku og skýrði hann svo frá, að mótið hafi tekizt sérlega vel, enda var veður gott mestallan tímann og mikil stemning var meðal fólks- ins. Hann sagði, að engin fyrstu verðlaun hafi verið veitt. nema í 300 metra stökki. Jón bóndi Guðmundsson á Reykjum sýndi kerruhláup með léttikerru, sem hann hafði fengið frá Noregi Sjálft mótið hófst klukkan 1 e. h. á sunnudag með hópreið fulltrúanna frá hesta- mannafélögunum átta. sem sáu um mótið. Það var hestamannafélagið Sleipnir á Selfossi, sem fékk 1. verðlaun fyrir t'allega eið mennsku og beztu knapana. Sveit- ir frá hestamannafélögunum Loga og Trausta sigruðu naglaboð hlaupskeppnina. 250 m skeið: 1. Logi Jóns í Varmadal á 24,4 sek. 2. Hrollur Sigurðar í Laugarnesi á 24,5 sek. 3. Neisti Einars Magn- ússonar á 24,6 sek. 300 m stökk: 1. Þytur Sveins K. Sveinssonar á 21,4 sek. sem er nýtt met. 2. Dreyri Guðna á Skarði á 23,0 sek. 3. Áki Guðbjartar Pálssonar á 23,1 sek. 600 m brokk: 1. Gustur Einars í Heiðarbæ á 1,30,6 mín. 2. Sleipnir Guðbjartar Pálssonar á 1,36,8 mín. 3. Höttur Hreins á Laugabóli á 1,37,8 mín. 800 m stökk: 1. Logi Sigurðar Sigurðssonar á 70.3 sek 2. Gustur Baldurs Berg- steinssonar á 71.0 sek 3. Þröstur Ólafs Þórarinssonar á 71,2 sek. VERKFALL SELFOSSI A ÓJ-Selfossi, mánudag. Sólarhringsverkfall hefst hér á miðnætti hjá öllum félagsbundn- um konum og körlum í Verkalýðs- félaginu. Bílstjórar og mjólkur- fræðingar, sem eru í öðrum stétt- arfélögum leggja þó ekki niður vinnu og verður mjólkin sótt á morgun heim á bæina. Ágreining- ur er um skilin milli verksviðs mjólkurfræðinga og starfsmanna í verkalýðsfélaginu við móttöku mjólkurinnar og er ekki vitað enn þá, hvort reynt verður að veita , mjólkinni viðtöku í mjólkurbúinu. Eftir sólarhringsverkfallið hefst 3ja daga eftirvinnustöðvun, sem tekur þó aðeins til Mjólkurbús Flóamanna. Framkvæmdastjóri Mjólkurbús- ins sat á samningafundum með fulltrúum verkalýðsfélagsins í kvöld. Munu hin óglöggu skil milli starfa mjólkurfræðinga og verkamanna við mjólkurbúið aðal lega hafa verið til umræðu. Umferðaslys KJ-Reykjavík, laugardag. í nótt varð alvarlegt umferðar- slys á Miklubraut rétt innan við veitingahúsið Lídó. Jón Sigurðs- son, 16 ára piltur, til heimilis að Ásgarði 73, ók á skellinöðru aft- an á kyrrstæðan bíl, sem stóð á vinstri götuhelmingi. Lenti skelli- naðran á miðjum „stuðaranum", en Jón skall á efri brún afturglugg ans á bifreiðinni, sem er „station“ bíll af Wartburg gerð. Aðkoman á slysstað var ljót, því blóðlæk- J irnir runnu eftir götunni, og kom í ljós, að Jón hafði kjálkabrotnað og hlotið önnur meiðsli. Var farið með hann í Slysavarðstofuna en j þaðan á Landakot og síðan á | Landsspítalann, þar sem mun \ vera sérfræðingur, er gerir að I slikum meiðslum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.