Tíminn - 29.06.1965, Page 16
: , . —b
•//
„Það er engin síld til í
sjónum á þessu verði
KJ, BÞG — Reykjavík, mánudag.
Síldarbátarnir voru að tínast inn í ReyRjavíkurhöfn þegar fréttamenn Tímans bar þar
að, skömmu eftir hádegið í dag. Bátarnir keyrðu á fullri ferð inn sundin, þssir nýju glæsi-
legu bátar, og það voru snör handtök við að binda þegar lagzt var að. Sjómennirnir stóðu
sumir hverjir í sparifötunum um borð þegar lagzt var, og voru ekki lengi að vippa sér
frá borði með sjópokana um öxl.
Það voru snör handtök hjá síld-
veiðisjómönnum við að hafa sig í
land, er þeir komu til Reykjavíkur
upp úr hádegi í gær. Margir stóðu
prúðbúnir við borðstokkinn með
pokann sinn þegar lagzt var upp
að, og síðan var stikað stórum
upp Granda, eins og myndin hér
að ofan sýnir. Hún er tekin pf
skipverjum á Ásbirni, er voru á
leið í bæinn, en kunningi þeirra,
annar frá hægri, hafði slegizt í
förtna til að spyrja tfðinda af ver-
tíðinni nyrðra, þar sem nú er auð-
ur sjór. Tímamynd KJ.
Tveir bátar Ingvars Vilhjálms
sonar, Ásbjöm og Ásþór komu
hver á eftir öðrum inn i höfnina
og tókum við skipsmenn þeirra
talí. Skipstjórinn á Ásbirni sagði
að þetta hefði verið að grafa um
sig að undanfömu, þeir hefðu allt
af verið sviknir á undanförnum
árum. — Það hefur aldrei verið
samið um síldarverðið, fyrr en
síldarvertíðin hefur verið byrjuð,
og eínhvem tíma hlaut að koma
að Því, að við mótmæltum. Það
er bæði þessi fimmtán króna skatt
ur og síldarverðið sem við mótmæl
um, og það verður ekki farið út
aftur fyrr en nýtt verð verður aug
lýst. Þetta er ekkert verkfall hjá
okkur, og þess vegna þurfum við
ekkert að setjast að samninga-
borði, en bíðum bara eftir að
nýtt verð verður auglýst.
Við erum komnír með um fimm
þúsund mál hérna á Ásbimi, eftir
þriggja vikna útivist, en það er
eklki hægt að segja um hve hlutur
inn er orðinn mikill, því á hvaða
verðí á að reikna aflann? Það eru
ekki bara við skipstjórarnir sem
stöndum að þessu, þótt það séum
við sem sendum ráðherranum
skeytið frá Raufarhöfn — allar
skipshafnirnar standa á bak við
Þetta.
Hásetamir voru nú hver af
öðrum að tínast frá borði. —
er bezt að nota tímann á meðan
maður er í landi, sögðu þeir, mað
ur veit aldrei hvort þetta verður
aðeins í nokkra daga eða þriggja
vikna sumarfrí. En við förum ekki
út aftur fyrr en búið er að aug-
lýsa nýtt verð, og með það öxluðu
þeir sjópokana, og gengu upp
bryggjuna.
Skipverjarnir á Ásþór voru
að ganga frá nótinni, er okkur
bar að, og Helgi Kristjánsson varð
fyrir svörum:
— Við vorum á austurleið frá
Siglufirði, komnir á móts við
Rauðunúpa er við heyrðum um
mótmælaaðgerðimar „í loftinu“,
og það var snúið all snarlega við.
Þeir vom með norskt fiskimálablað
um borð í Siglfírðingi.' og voru
að segja okkur frá bræðslusíldar
verðinu þar úti, sem okkur reikn
aðist til að væri um þrjú hundruð
krónur íslenzkar fyrir málið —
sótt ofan í lest bátanna, en hér
verðum við að vinna við löndunína,
og fáum um hundrað krónum
minna fyrir málið, en sjómenn í
Noregi. Nánar var sagt frá verð
inu þannig, að til 10. júní fá
norsku sjómennirnir 30 krónur
norskar fyrir hektólíterinn plús
4.70 sem þeir fá í styrk á hvert
mál, en frá 10. júní og til septemb
erloka fá Þeir 33 krónur norskar
plús\ styrkinn, og það verð er
líka miðað víð að verksmiðjurnar
sæki síldina niður í lestir skip
anna.
— Þetta var nú búið að grafa
um sig síðustu daga, því þegar
þeir voru að tala saman í talstöðv
arnar skipstjórarnir, um væntan
legt verð, mátti heyra að þeir
myridu fara í land, ef verðið yrði
ekki viðunandi, og skipshafnirnar
stóðu allar á bak við þá í þessu.
Svo þegar fréttist um verðið var
ekki lengi verið að )a\a sig saman
og ákveða að fara í land. — Nei,
við finnum ekki síld í sjónum fyr
ir þetta verð sem nú hefur verið
auglýst, sú semi við veiðum er
miklu dýrari, og það verður ekki
farið út fyrr en nýtt verð kemur.
Mannskapurinn á Þorsteini, einu
nýjasta og glæsilegasta skípi síld
Blaðamaður spurði um skipstjór
ann og sagði Þá strákur með
nokkru stolti: „Það er nú hann
pabbi minn, sem stendur þarna“
Aflaklóin, Guðbjörn Þorsteinsson,
heilsaði brosandi og neitaði því
ekki að bátur hans væri á topp
inum.Sagði hann að þeir væru bún
ir að fá um 18000 mál og munu
vera hæstir, að því er blaðið
veit bezt, enda byrjuðu þeir
snemma. „Við erum allir sem
einu, skipstjórar og önnur áhöfn
einhuga um þessar aðgerðir. Við
förum nú í land og ekki út aftur
fyrr en við fáum hækkun þá á
verð bræðslusíldar. sem við höf
um krafizt. Við mótmælum fyrst
og fremst ákvörðun yfirngfndar
Verðlagsráðs sjávarútvegsins um
bræðslusíldarverð, en einníg 15
króna skattinum. Við teljum, að
síldarverksmiðjurnar geti borgað
meira og í því sambandi má minn
ast þess, að í Noregi mun verðið
vera um 100 kr. meira á mál, en
hér, og er þá miðað við, að verð
ið hér væri 250 kr., eins og við
viljum fá. Þetta fá Norðmenn og
þó er síldin hjá Þeim sótt niður í
lest, en hér verðum við sjálfir
að skila henni til verksmiðjanna,“
sagði Guðbjörn.
142. tbl. — Þriðjudagur 29. júní 1965 — 49. árg.
veiðiflotans, hafði snör handtök Samtök okkar mynduðust með
við að koma nótinni í land, því að
fyrir höndum var e. t. v. smáfrí. í
brúnni, sem er einna líkust stáss
stofu, sat drenghnokki og horfði
stórum augum á fréttamann.
samtölum í gegnum talstöðvar, en
raunar vorum við ákveðnir að
fara í land, strax og við heyrðum
tilkynninguna um ákvörðun
I bræðslusíldarverðsins. Flestir
sigla bátum sínum til heimahafna,
en nokkrir skilja þá þó eftir fyrir
austan og norðan og fara sjálfir
heim með flugvélum, bætti Guð-
björn við.
Að lokum langar mig til þess
að biðja þig um að minnast á
eitt mál. Vísir skýrði frá því fyr-
ir nokkru, að hásetahluturinn hjá
okkur á Þorsteini væri 104 þúsund
krónur. Ekki veit ég hvemig þeir
útreikningar eru gerðir, en ef rétt
væri, þá svaraði það til þess, að
málið væri á 380 kr! Um Þetta er
ekki annað að segja, að vilji þeir
borga þetta, skulum við fara aftur
út í hvellí." sagði Guðbjörn og
glotti.
Skipverjar á Birni Jónssyni, RE-
22, áttu í brösum við að koma
bátnum fyrir við bryggjuna, þvi að
þegar var orðið þröngt á þingi.
í brúarglugga sást ungur maður,
sem gaf fyrirskipanir. Reyndist
hann vera skipstjórinn og bar
sama nafn og báturinn. sem heit
inn er eftir afa skipstjórans.
Björn, sem er aðeins 23 ára,
sagði fréttamönnum, að þeir kæmu
beint frá Raufarhöfn og . hefði
ferðin suður gengið vel. Veður
hefði verið gott, en svolítil bræla
' þó í Faxaflóa. Um veiði vildi hann
Framhald á l4 síðu
■ - ....
Guðbjörn Þorsteinsson, skipstjóri á
Þorsteini.
VÍTA SILDARSKATTINN
Blaðinu barst eftirfarandi yfir-
lýsing í gærkveldi:
„Stjórnir Alþýðusambands ís-
lands, Farmanna- og fiskimanna-
sambands íslands og Sjómanna-
sambands íslands, átelja harðlega
þann drátt er orðið hefur hjá
Verðlagsráði sjávarútvegsins um
verðlagningu sjávarafla, þar sem
heita má orðið óþekkt fyrirbrigði
að lögum og reglum sé framfylgt
um að fiskverðsákvörðun liggi fyr
ir, áður en veiðitímabil hefst.
Stjórnir sambandanna motmæla
eindregið þeirri ákvörðun meiri
hluta yfirnefndar Verðlagsráðs að|
ákveða löngu eftir að síldveiðari
hófust nú, tvennskonar verð á j
sumarveidrri síld fyrir norðan og
austan, þar sem eining á fituprój
sentu er þá ekki almennt látin!
gilda um verð á síld veiddri á!
svæðinu allt veiðitímabilið og má
fullvist telja, að hefði verðákvörðj
un legið fyrir, áður en síldveiðari
hófust að þessu sinni, hefði ekki j
verið rætt um tvennskonar verð
á síld. veiddri fyrir Norður og
Austurlandi á yfirstandandi
sumri, og verður að telja víst, að
vegna þessa gerræðis við sjómenn
og útvegsmenn, mun því ekki
treyst í framtíðinni að byrja veið
ar fyrr en verðákvörðun liggur
fyrir hverju sinni.
Þá telja stjórnir sambandanna að
hin ákveðnu verð á síld til
bræðslu séu 'alltof lág, miðað við
áætlað veiðimagn. fyrirframsölu
á mjöli og lýsi og markaðsverð á
þeim afurðum eins og það er nú.;
Stjórnir sambándanna mótmæla
ákveðið bráðabirgðalögum þeim
er sett hafa verið um flutninga á
síld, verðjöfnun síldar í bræðslu
og salt, o. fl. og telja það sér-
staklega mikið fljótræði að
ákveða uppbætur á síld til söltun
ar og frystingar á kostnað bræðslu
síldar, meðan verð á síld til sölt
unar eða annarar nýtingar en f
bræðslu liggur ekki fyrir og það
ekki ennþá verið tekið fyrir til
umræðu í Verðlagsráði, enda eng
in gögn eða upplýsingar borizt
frá Síldarútvegsnefnd um sölu o.
fl., eða áætlanir frá félagssamtök
um síldarsaltenda eða öðrum við
komandi aðilum.
Framhald á 14. siðu.