Morgunblaðið - 16.11.1979, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 16.11.1979, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1979 11 Basar Kvenfélags Háteigssóknar Á morgun, laugardaginn 17. nóvember, heldur Kvenfélag Há- teigssóknar basar að Hallveigar- stöðum, og hefst hann kl. 2 e.h. Með þessum línum vil ég minna þá er kunna að lesa þær, á basarinn. Þar verður margt ágætra og þarflegra muna á boðstólum. Hafa kvenfélagskonurnar unnið sjálfar þessa muni eða aflað þeirra. Sömuleiðis verða seldar kökur á basarnum. Ágóða af sölu þessara muna verður varið til þarfa Háteigs- kirkju og til líknarmála. Kvenfé- lag Háteigssóknar hefir unnið að þessum málum ala tíð og hefir haft forgöngu um söfnun til ým- islegra verkefna kirkjunnar og nú síðast hefir kvenfélagið lagt fram fé, se er afrakstur starfsemi þeirra, til að létta undir með kaupunum á hinum nýju kirkju- klukkum í Háteigskirkju, er nú hljóma yfir byggð á helgum dög- um. Vegna framlags Kvenfélags Háteigssóknar var lagt út í þessi kaup, og svo er um fleira, er Háteigskirkja hefir notið vegna atorku félagskvenna. Margt er enn ógert og mörgu ólokið, sem þörf er á að þokist áfram. Mun Kvenfélag Háteigs- sóknar leggja sig fram um stuðn- ing við það allt. Félagskonur hafa sýnt mikla samstöðu og fórnfýsi í starfsemi sinni og þeim skulu færðar alúð- arþakkir um leið og allir velunn- arar kirkjunnar eru hvattir til að fjölmenna á basarinn að Hallveig- arstöðum á morgun. Arngrímur Jónsson. Bandarískur prédikari talar í Kópavogi KROSSINN, kristilegt starf að Auðbrekku 34, Kópavogi, er að fá hingað til lands víðkunnan banda- rískan prédikara, John Brown. Hann er kunnur í heimalandi sínu og víðar fyrir áhrifamikla boðun og bænir fyrir sjúkum. John Brown mun tala á samkomum hjá „Krossinum", en einnig á sam- komum hjá varnarliðinu á Kefla- víkurflugvelli. Fyrsta samkoman hjá Krossinum verður á morgun, laugardag, og hefst klukkan 20.30. Guðrún Egilson Almenna bókafélagið Austurstræti 18 sími19707 Skemmuvegur 36 sími 73055 MeðMð í lukuniim í gamni og alvöru er undirtónninn í lífi og starfi Rögnvalds Sigurjónssonar píanóleikara. Ævisaga hans einkennist af alvöru listamannsins, hreinskilni og víösýni og umfram allt óborganlegri kímni. Stórkostleg nýjung í Glæsibæ Viö bjóöum nú 15—20% afslátt af 5 vinsælustu hljómplötum verslunarinnar Einnig bjóðum við sömu kjör á 5 athyglisverðustu nýju plötunum í hverri viku og byrjum á þessum stór- kostlegu rokkplötum Skcv^l3í«h iÍG Verö 8.750 - Okkar verð 7.500 Okkar verö 7.500 Okkar verö 7.500 Foreigner Verö 9.600 - Okkar verö Judas Priest Verö 8.750,- Okkar verö 7.500. Kansas Verö 8.750. Okkar verö 7.500- Otrúlegt en satt. Komiö, sjáiö og sannfærist. HLJÓMDEILD & KARNABÆR r GLÆSIBÆ, SÍMI 81915

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.