Morgunblaðið - 16.11.1979, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1979
29
nr
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
{/jAmtoy-ajz'v ii
ar hefðu verið jafn skjótir til
svars, þegar þeir heyrðu þessa
ógeðslegu sögu lesna upp fyrir
börnum lands vors. Það var bless-
unin hún María okkar Markan,
sem hafði andlegan þrótt til þess
að kveða upp úr með það sem við
öll hefðum viljað segja.
Lesari sögunnar kveður hana
vera sanna. Ef svo er, að þessi litli
drengur er þannig veikur, er þá
endilega nauðsynlegt að smita öll
hin börnin með sjúkdóminum.
María Markan hefir lengi verið
eitt af skærustu ljósum þessarar
þjóðar og glatt og vermt hjörtu
vor með sinni yndislegu rödd,
sinni göfugu list.
Ég skil ekki að sú þjóð sem átt
hefir bæði hana og aðra listamenn
í æðra veldi ef svo má segja, sem
hafa beint hugum vorum upp til
hins fagra og góða, geti þolað aðra
eins andstyggð og hér er borin
fram.
Með ósk um að prestar vorir og
aðrir góðir menn, sem ekki er
sama um andlega og veraldlega
heill þessarar þjóðar, láti til sín
heyra, læt ég hér staðar numið.
Með þökk fyrir birtinguna,
Kristín M. J. Björnsson.
• „Réttum hjálpar-
hönd“
Nú hefur sá hroðalegi atburð-
ur gerst að 90 manns í bandaríska
sendiráðinu í Teheran eru þar
fangar og, réttara sagt, milli
heims og helju því brjálaðir of-
stækismenn sem kalla sig stú-
denta halda vesalings fólkinu þar í
gíslingu og er fyllsta ástæða til að
óttast um líf þessa ógæfusama
fólks. Friðhelgi sendiráðs hefur
verið svívirt og einnig bandaríska
þjóðin.
Ekkert hefur heyrst frá Norður-
löndunum þessu vesalings fólki til
stuðnings, því miður. Ég skora því
afforsætis- og utanríkisráðherra,
hr. Benedikt Gröndal, að óska nú
þegar eftir fundi með öðrum
forsætisráðherrum á Norður-
löndunum og mótmæla kröftug-
lega og jafnvel hóta því að verði
gíslunum gert mein þá verði öllum
Irönum, hvort sem þeir kallast
námsmenn eða „gestarbeter" vísað
tafarlaust úr landi og jafnframt
verði öllum samskiptum við íran
hætt, bæði stjórnmálalegum og
viðskiptalegum. Enginn má sitja
hjá og alls ekki við því vissulega
eru Bandaríkin vinaþjóð íslans og
góðir bandamenn. Forsætisráð-
herra og utanríkisráðherra. Við
treystum því að þú og sam-
starfsmenn þínir rétti hjálpar-
hönd.
Virðingarfyllst.
V.S.
London
24.nóv. til l.des.
Nokkur sæti laus
Hotel Cumberland,
Regent Palace,
Russel Hotel,
Stratford Court.
• Þakkar
athugasemdir
Aldamótamaður hringdi:
— Ég vil aðeins fá að þakka
Maríu Markan fyrir þær athuga-
semdir er hún hefur gert við
lestur útvarpssögu Þóris Guð-
bergssonar fyrir unglinga. Mér
finnst undarlegt ef aðalatriði allr-
ar skólagöngu er að verða kynlífs-
fræðsla, en á mínum unglingsár-
um var eitt aðalfagið kristindóm-
ur. Ég hefði haldið að mun meiri
þörf væri á að fræðast um krist-
indóminn meira og betur en þetta
sífellda stagl um kynlífsfræðslu
og þess háttar. Það hlýtur líka að
vera hægt að fræða börnin á
annan hátt og mætti kristindóms-
fræðslan gjarna ýta kynlífs-
fræðslunni meira til hliðar.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á brezka meistaramótinu í ár kom
þessi staða upp í skák þeirra
Fullers, sem hafði hvítt og átti
leik, og Steedmans.
25. Rg6±! - Kg 8, 26. Re7+ -
Kh8, 27. Dh6 og svartur gafst upp,
því að 27.... Hg8 er hægt að svara
með 28. Dg7+! — Hxg7, 29. fxg7
mát.
Þeir Bellin, Short og Nunn urðu
jafnir og efstir á mótinu, en Bellin
var úrskurðaður sigurvegari á
stigum.
• Taka stæðin frá
viðskiptavinunum
Verslunareigandi hringdi:
— Ég hefi margoft orðið var
við, að sumir kaupmenn við
Laugaveg leyfa sér að leggja
bílum sínum í stæðin hér utan við
búðirnar. Þar standa þeir kannski
tímunum saman, menn hirða vart
um stöðumælana og með þessu er
verið að taka bílastæði frá við-
skiptavinum, en ekki er nú of
mikið af stæðum hér í miðbænum
eins og menn vita. Mér finnst að
kaupmenn ættu að gera sér far um
að hafa bíla sína annars staðar,
heima við ef ekki vill betur, því
það er ófært að láta þá standa hér
frá morgni dags og langt fram
eftir degi.
HÖGISTI HREKKVÍSI
■
Ferðamiðstöðin hf.
símar 12940 og 28133.
Heimilistölvan
Tölvuskóli
Borgartúni 29,
sími 23280.
Tölvunámskeið
Hraönámskeiö á smátölvur veröa haldin í lok
nóvember og byrjun desember n.k.
Hvaö er kennt?
1. Grundvaliaratriði forritunar (lit-
skyggnur með tali).
2. Forritunarmáliö BASIC (notað á
allar smátölvur microcomputers).
3. Notkunarsvið og notkunarmögu-
leikar smátölva.
Viö bjóöum:
Nýtískuleg efnismikil og samþjöppuð
námskeiö.
Þrautreynt kennslukerfi.
Kennt er með aðstoö tölva.
Góða aðstöðu.
Einungis tveir nemendur eru um
hverja tölvu.
Nú er rétta tækifæriö til aö læra á tölvu. Eftir
örfá ár veröa smátölvur komnar inn í hvert
fyrirtæki og jafnvel inn á hvert heimili.
Sími Tölvuskólans er OOOQA
Innritun stendur ytir. fcOZOU
S2P S\G6A V/öGA 2 vLVEftAN
(oá \Wt® 7Yog l&A QaY
V^í,L)0T/ J (A$NIf? \\[/E$ ðQtiOYf)
\boL\,mj/ Vw wlMQi \íláWJ 'Áwriml'/
v ((Æv? sVá.Í
^$6) Ju -I
OÓ77
AuLái&Zywmi)]