Morgunblaðið - 17.11.1979, Page 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
254. tbl. 66. árg.
LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1979
Prentsmiöja Morgunblaösins.
Carrington lávarður:
Vopnahlé
í Rhódesíu
— eftir nokkra daga
London. 16. nóvember. Reuter. AP.
CARRINGTON lávarður. utanríkisráðherra Breta, sajíði i daK að hann
ætlaðist til þess af hinum striðandi aðilum i Zimbabwe-Rhodesíu, að þeir
byttu enda á striðið þar innan orfárra daga. Umreeður um vopnahiéið
hófust í da>c. en allir aðilar að deilunni hafa nú fallist á tiilögur Breta um
kosniniíar i landinu og tilhövtun stjórnar landsins, þar til ný stjórn tekur
við völdum að afloknum kosninKum.
í tillögum, sem Carrington lagði
fram í dag, er gert ráð fyrir að
herjum stjórnarinnar og skæruliða-
foringjanna Mugabe og Nkomo verði
haldið algerlega aðskildum á meðan
brezkur landsstjóri tekur við stjórn-
artaumunum og stjórnar landinu
fram að kosningum. Gert er ráð
Ökyrrð á
gjaldeyris-
mörkuðum
London, 16. nóvember. Reuter, AP.
Bandaríkjadollar lækkaði í
dag i verði á alþjóðagjaldeyr-
ismörkuðum i kjölfar fregna
um að íransstjórn hefði
ákveðið að hætta að taka við
dollurum sem greiðslu fyrir
oliuútflutning landsins.
Olíumálaráðherra írans
bar frétt þessa til baka síðari
hluta dags í dag og hækkaði
gengi dollarans lítils háttar
eftir þá yfirlýsingu. Þegar
gjaldeyrisviðskiptum var
hætt á mörkuðum í Evrópu í
kvöld hafði sterlingspundið
hækkað mest Evrópugjald-
miðla gagnvart dollar, jap-
anska yenið lækkaði hins veg-
ar nokkuð.
fyrir því að gæzlusveitir skipaðar
hermönnum frá aðildarlöndum
brezka samveldisins muni halda
uppi lögum og reglu í landinu þar til
kosningarnar fara fram.
Herforingjar stjórnarinnar í
Rhódesíu og skæruliðaforingjanna
hittust í dag í London en ekki er
búizt við miklum kærleikum þeirra í
milli í vopnahlésviðræðunum, sem
nú standa yfir. Peter Walls yfir-
hershöfðingi Salisbury-stjórnarinn-
ar, sagði i dag, að her hans mundi
sýna fulla hörku yrði á menn hans
ráðist.
Um 1400 manns hafa nú látið lífið
í borgarastyrjöldinni í Zimbabwe-
Rhódesíu.
Atburðirnir í íran:
Ungfrú alheimur 1979, Gina Swainson frá Bermunda, ásamt þeim keppendum, sem næstir henni
komu, eftir að úrslit i keppninni um þennan titil voru kunngerð i Royal Albert Hall í London á
fimmtudagskvöld. Sfmamynd AP.
Ungfrú heimur“ frd Bernuída
Lundúnum. 15. nóvember,
— Reuter, AP.
„ÉG hélt ég ætti enga möguleika
á sigri,“ sagði Ungfrú heimur
eftir krýninguna í Lundúnum.
Titilinn i ár hlaut 21 árs gömul
Bermúdastúlka, Gina Swainson,
en ungfrú Bretland, Carolyn
Seaward, hafnaði i öðru sæti.
Þriðja varð Debbie Campbell frá
Jamaica. Ungfrú Ástralía hafn-
aði í fjórða sæti.
Búist hafði verið við því fyrir-
fram, að ungfrú Bretland hreppti
titilinn. Þá áttu menn von á því
að ungfrú Svíþjóð myndi blanda
sér í keppnina um fyrsta sætið en
mörgum til mikillar furðu varð
hún ekki einu sinni meðal 15
fyrstu. Sjónvarpssendingar frá
keppninni féllu niður þar sem
hljóðupptökumenn BBC voru í
verkfalli. Um titilinn kepptu
sjötíu stúlkur.
Gíslum hótað öllu illu verði keis-
arinn sendur frá Bandaríkjunum
Teheran, WashinRton,
16. nóvember. AP. Reuter.
EINN leiðtogi stúdentanna, sem
halda um 80 gislum föngnum i
bandariska sendiráðinu i Teheran,
sagði í dag, að afstaða þeirra til
gislanna mundi harðna, ef Banda-
rikjastjórn ákvæði að senda Reza
Pahlavi fyrrum Iranskeisara úr
landi. Stúdentinn sagði, að hann og
félagar hans færu i einu og öllu
eftir óskum Khomeinis trúarleið-
toga. j,efur< ejn8 0g Aöur
hefur komið fram, tekið sér hvild
fram til 5. desember og mun ekki
taka á móti neinum gestum fyrr en
eftir þann tíma.
Geysifjölmenn mótmælaganga var
við bandaríska sendiráðið í Teheran
í dag til stuðnings aðgerðum stúd-
entanna innan veggja sendiráðsins.
Brenndu mótmælendurnir brúður af
Carter Bandaríkjaforseta og Reza
Pahlavi og hrópuðu ókvæðisorð um
Bandaríkin.
Njósnahneykslið í Bretlandi:
Home lávarður og Harold
Wilson vissu ekkert um málið
London, 16. nóvember, Reuter, AP.
MARGAR spurningar hafa vaknað i Bretlandi i kjölfar uppljóstrunar Thatchers forsætisráðherra i þinginu
i gær þess efnis, að listfræðingurinn Anthony Blunt, sem i mörg ár hefur verið listaverkaráðunautur
Bretadrottningar, hafi verið sovézkur njósnari. Að þvi er Thatcher upplýsti i gær, viðurkenndi Blunt þegar
á árinu 1964, að hann væri njósnari, en honum var hlift við málssókn og refsingu i skiptum fyrir
mikilsverðar upplýsingar um njósnastarfsemi Rússa i Bretlandi og annars staðar.
Margir brezkir þingmenn og
brezku blöðin spyrja í dag hvernig
á því standi að maður, sem er
viðurkenndur njósnari, skuli hafa
verið látinn gegna háttsettu starfi
við hirð drottningar í 15 ár eftir að
kunnugt varð um atferli hans.
Nokkrir þingmenn Verkamanna-
flokksins hafa óskað eftir rann-
sókn á þessu atriði og margir
spyrja hvort fleiri njósnarar starfi
í stjórnkerfinu með sömu skilmál-
um og Blunt. Af hálfu yfirvalda
hefur verið gefið í skyn, að ekki
hafi verið hægt að víkja Blunt úr
starfi sínu, þar sem það hefði
óhjákvæmilega vakið tortryggni
Sovétmanna og annarra, sem
Blunt veitti upplýsingar um. Ekki
hefur komið fram, hvort Elísabetu
drottningu hefur verið kunnugt um
njósnaferil Blunts frá því upp um
hann komst.
Blunt, sem nú er 72 ára að aldri,
sást síðast í leigubíl á leið til
Heathrow-flugvallar á miðviku-
dag, daginn áður en upplýst var
um feril hans í þinginu. Thatcher
forsætisráðherra lét segja honum
frá því að frá njósnum hans yrði
skýrt í þinginu. Af ooinberri hálfu
hefur verið sagt að brottför Blunts
úr landi skipti stjórnina engu, þar
sem hann hafi ekki getað veitt
frekari upplýsingar um njósnir
Sovétmanna. Ekki er vitað hvar
Blunt er nú niðurkominn.
Home lávarður, sem var forsæt-
isráðherra Breta árið 1964, sagðist
í dag ekki hafa haft neina vit-
neskju um að Blunt hefði verið
njósnari og við hann verið samið af
hálfu stjórnvalda. Harold Wilson,
sem tók við stjórnartaumunum af
Home haustiö 1964, sagðist heldur
ekki hafa haft vitneskju um njósn-
ir Blunts. Yfirlýsingar þessara
tveggja fyrrum forsætisráðherra
þykja staðfesta grun ýmissa um að
yfirmenn brezku leyniþjónustunn-
ar fari ferða sinna án þess að gera
ríkisstjórninni nákvæma grein
fyrir þeim.
Haft var eftir Bani-Sadr utan-
ríkisráðherra írans í dag, að konum
og blökkumönnum í hópi gíslanna
yrði sleppt, en stúdentarnir hafa
neitað að taka slík tilmæli til greina.
Carter Bandaríkjaforseti varaði
landsmenn sína í dag við því að láta
reiði sína vegna atburðanna í Teher-
an bitna á írönskum borgurum í
Bandaríkjunum. Forsetinn hefur áð-
ur sagt, að aðgerðirnar í Teheran
jafnist á við gerðir hryðjuverka-
manna og að ráðamenn í Iran beri á
þeim ábyrgð. Verkamenn á ýmsum
stöðum í Bandaríkjunum hafa neitað
að afgreiða írönsk skip og flugvélar.
Sendiherra írans í Stokkhólmi átti
í dag fund í finnska utanríksiráðu-
neytinu, þar sem hann skoraði á
Finna og aðrar Norðurlandaþjóðir
að beita áhrifum sínum í Bandaríkj-
unum til þess að fá keisarann
fyrrverandi framseldan.
Skaut sig til bana
í Péturskirkjunni
Róm, 16. nóvember. AP. Reuter.
FIMMTUGUR ítali skaut sig til
bana framan við grafhýsi Jóhannes-
ar páfa 23. í Péturskirkjunni i
Vatikaninu i dag. Maður þessi,
Mondasio Doria, rakari að iðn, var
látinn þegar verðir i kirkjunni
komu að honum eftir að hafa heyrt
hann hleypa af byssu.
Jóhannes Páli 2. páfa var þegar
tilkynnt um atburðinn og herma
heimildir að honum hafi brugðið
mjög við þessar fréttir og þegar
haldið í einkakapellu sína til að
biðjast fyrir.