Morgunblaðið - 17.11.1979, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1979
Þjófarnir sinntu ekki
aðvörunum og höf ðu
ekkert úr krafsinu
ÞJÓFARNIR sem brutust inn í
skrifstofu gosdrykkjaverk-
smiðjunnar Sanitas hf í fyrri-
nótt höfðu ekki erindi sem
erfiði.
Þeir lögðu til atlögu við
heljarmikinn peningaskáp og
skáru allstórt gat á hlið hans
með logskurðartækjum, sem
þeir höfðu burðast með á inn-
brotsstað. Á peningaskápnum
var litill miði og á honum stóð:
„Það eru engir peningar i
þessum skáp — aðeins bók-
haldsgögn.“ Þjófarnir hafa ef-
laust haldið að þetta væri plat
en svo reyndist ekki vera. í
honum voru aðeins bókhalds-
gögn og því var erfiði nætur-
innar til einskis unnið. Láta
þeir sér þetta væntanlega að
kenningu verða.
Tillaga um leikritagerð sjónvarps:
Sex verk verði
unnin á næsta ári
Á FUNDI útvarpsráðs í gær var rætt um áætlun Lista- og
skemmtideilda sjónvarpsins um leikritagerð á næsta ári. Deildin gerir
það að tillögu sinni að sex leikrit verði gerð og eru þau eftirfarandi:
„Milli steins og sleggju“ eftir son, leikstjóri Agúst Guðmunds-
Davíð Oddsson, leikstjóri Andrés
Indriðason.
„Snorri Sturluson", leikstjóri
Þráinn Bertelsson.
„Líkamlegt samband fröken
Guðrúnar" eftir Steinunni Sigurð-
ardóttur, leikstjóri Egill Eð-
varðsson.
„Hver er sinnar gæfu smiður"
eftir Þorstein Marelsson, leik-
stjóri Hrafn Gunnlaugsson.
„Projekt 33“ eftir Jónas Árna-
son.
Ætlunin er að taka einnig upp
barnaleikrit í ágústmánuði á
næsta ári, en ákvörðun hefur ekki
verið tekin um hvaða verk verður
fyrir valinu. Snorri Sturluson og
„Projekt 33“ eru unnin í samvinnu
við aðrar norrænar sjónvarps-
stöðvar.
í áætlun er gert ráð fyrir að
keypt verði einhver verk af kvik-
myndagerðarmönnum utan sjón-
varpsins.
Saksókn-
ari ákærir
þrjá
bílasala
RÍKISSAKSÓKNARI hefur gefið
út ákærur á hendur þremur
bilasölum í Reykjavík fyrir meint
skjalafals og fjársvik í sambandi
við kaup og sölur með notaða
bila. Hefur sakadómi Reykja-
víkur verið falin dómsmeðferð
málanna.
Eins og menn eflaust muna voru
þessi mál til athugunar hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins fyrr á
þessu ári og sátu þá nokkrir
bílasalar í gæzluvarðhaldi um
hríð. Bílasalarnir þrír eru ákærðir
fyrir sviksamlegt athæfi í við-
skiptum með nokkra tugi bíla,
m.a. fyrir það að hafa þvingað
bíleigendur til að selja bíla á verði
sem var lægra en gangverð og láta
síðan kunningja sína eða skyld-
menni kaupa bílana. Voru bílarnir
síðan útlitsbættir og seldir á mun
hærra verði.
Lézt af völdum
umferðarslyss
Unglingsvetur
Umræður á Fiskiþingi:
í GÆRMORGUN lést á Borg-
arspitalanum ungur maður af
völdum meiðsla, sem hann hlaut í
umferðarslysi á Snorrabraut
fimmtudaginn 1. nóvember s.l.
Maðurinn hét ólafur Alfreðs-
son, Snorrabraut 81, fæddur 31.
ágúst 1953, og því 26 ára er hann
lézt.
Slysið varð með þeim hætti, að
Ólafur heitinn ók mótorhjóli norð-
ur Snorrabraut og lenti hjólið í
árekstri við fólksbifreið, sem ók í
sömu átt. Slasaðist Ólafur mjög
alvarlega og komst hann aldrei til
meðvitundar eftir slysið.
Ólafur heitinn var sonur hjón-
anna Alfreðs Eymundssonar og
Unnar Ólafsdóttur. Hann var
íþróttamaður mikill, skíðamaður
og sundmaður og systkini hans
þrjú, Þórunn, Axel og Hermann,
eru öll landsliðsmenn í sundi.
Ný skáldsaga
eftir Indriða
G. Þorsteinsson
EFTIR 8 ára hlé á skáldsagna-
gerð hefur Indriði G. Þorsteins-
son nú sent frá sér nýja skáld-
sögu — nútímasögu um ungt fólk
sem skemmtir sér og eldra fólk
sem orðið er mótað af lifinu.
Bókin er kynnt þannig i kápu-
texta:
.„Skáldsagan UNGLINGSVET-
UR er raunsönn og kímin nútíma-
saga. Veruleiki hennar er oft
mildur og viðfelldin, en stundum
blindur og ósvífinn. Hér er teflt
fram ungu fólki, sem nýtur gleði
sinnar og ástar, og rosknu fólki,
sem lifað hefur sína gleðidaga og
reynslan hefur meitlað í drætti
sína. Allt er þetta fólk bráðlifandi,
sama hvort það eru aðalpersónur
eða hefur á hendi aukahlutverk —
hvort heldur þeir heita Loftur
Keldhverfingur eða Sigurður á
Fosshóli. Unglingarnir dansa
áhyggjulausir á skemmtistöðum
og bráðum hefst svo lífsdansinn
með alvöru sína og ábyrgð. Sumir
stíga fyrstu spor hans þennan
vetur. En á því dansgólfi getur
móttakan orðið önnur en vænst
hafði verið, — jafnvel svo rudda-
Indriði G. Þorsteinsson
leg að lesandinn stendur á önd-
inni.
Skáldsögum Indriða G. Þor-
steinssonar hefur ávallt verið tek-
ið með miklum áhuga og þær hafa
komið út í mörgum útgáfum. Tvær
þeirra, Sjötíu og níu af stöðinni og
Land og synir, hafa verið kvik-
myndaðar og Þjófur í paradís
hefur verið að velkjast í dómskerf-
inu undanfarin ár.“
UNGLINGSVETUR er gefin út
af Almenna bókafélaginu. Bókin
er 210 bls. að stærð og unnin í
Prentsmiðjunni Odda og Sveina-
bókbandinu.
Frá fundi nemenda MH á matgarði skólans i fyrradag.
Kennsla með eðlileg-
um hætti í MH í gær
KENNSLA féll niður eftir hádegi á
fimmtudag 1 Menntaskólanum við
Hamrahlið vegna mótmæla nem-
enda, sem eru ekki sáttir við reglur
um hvernig mætingar eru metnar
til eininga i áfangakerfinu. Nem-
endur fjölmenntu inn á kennara-
stofu skólans og sátu þar nokkurn
tima, en héldu siðan fund um þessi
mál. Var ekkert kennt i skólanum i
fimm klukkustundir.
Heimir Pálsson, konrektor í
HMH, sagði að kennsla hefði verið
með eðlilegum hætti í skólanum í
gær, föstudag. Skipaðir hafa verið
viðræðuhópar nemenda og kennara
til að finna lausn á þessu máli, en
tillaga, sem nemendur hefðu getað
sætt sig við, var felld á kennara-
fundi i vikunni. Heimir sagði að í
fleiri mennta- og fjölbrautaskólum
væru skiptar skoðanir um hvernig
mætingar ætti að meta.
Morgunblaðinu tókst ekki að ná í
talsmenn nemenda þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir en væntanlega eiga
þeir eftir að koma sjónarmiðum
sínum á framfæri við lesendur
blaðsins.
Er réttlætanlegt að
eyða selastofninum?
Á FISKIÞINGI í gær var meðal
annars fjallað um fjölgun sela-
stofnsins hér við land og áhrif
sels á orm i fiski. Fól þingið
stjórn Fiskifélagsins að beita sér
fyrir því við stjórnvöld, að full-
kannað verði hvort selurinn sé
orsakavaldur þess hve mikill
ormur er í fiski hér við land. Að
þvi sönnuðu telur þingið að finna
þurfi aðferð, sem dugir til þess að
fækka verulega sel við strendur
og útsker landsins.
í greinargerð með ályktun
þingsins segir: „Það er almennt
talið að selurinn sé orsakavaldur
þess að ormur sá, sem oft er mikið
af í fiski, sem tekinn er til vinnslu,
og veldur ómældu tjóni vegna alls
konar vinnu og vandræða, sem
orðið hafa í markaðslöndum. Ýms-
ir telja því að rannsaka þurfi
málið betur áður en ákveðið er að
minnka selastofninn, því sannanir
um árangur liggi ekki fyrir. Hafa
ber í huga að eyðing á selastofnin-
um kostar mikið fé. Stór svæði í
kringum landið eru friðuð fyrir
MJÖG alvarlegt umferðarslys varð á
Reykjanesbraut á Strandheiði
klukkan 15,45 á fimmtudag. Fólks-
bifreið valt á veginum og ökumaður
hennar, 53ja ára gamall Keflvíking-
ur, slasaðist mjög alvarlega. Mun
hann hafa fótbrotnað á báðum fót-
um, handleggsbrotnað, hlotið höfuð-
meiðsl og einhver fleiri meiðsl.
Maðurinn var fluttur á slysadeild
Borgarspítalans i Reykjavik, þar
sem gerð var á honum aðgerð sem
tók 12 klukkustundir.
skotum allt árið vegna selaláturs
og mun því ekki fást bótalaust.
Gizkað er á, að selurinn éti á
hverju ári 30—40 þúsund tonn af
nytjafiski og ef hann er auk þess
valdur að þeim ormi, sem mikið er
af í fiski og veldur verulegu tjóni í
afurðum, virðist réttlætanlegt að
eyða honum að miklum hluta."
Nákvæmlega tveimur klukku-
stundum síðar varð mjög harður
árekstur tveggja fólksbifreiða á
Reykjanesbraut við Kúagerði. Einn
maður var fluttur á sjúkrahús en
hann mun hafa meiðst talsvert mikið
á höfði og skorizt.
Loks varð árekstur tveggja fólks-
bifreiða á Reykjanesbraut í Njarðvík
klukkan 9,30 í gærmorgun. Ökumaður
annars bílsins, kona, var fluttur á
sjúkrahús en hún skarst talsvert í
andliti.
Slasaðist alvar-
lega í bílveltu