Morgunblaðið - 17.11.1979, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 17.11.1979, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1979 11 honum verður erfitt að greina á milli síns fólks og biblíufólksins.* Þannig er skáldskapur Guðmund- ar, stór í sniðum, alvarlegur, tilþrifamikill, þar er alltaf eitt- hvað að gerast, eitthvað á seyði, ládeyða og aðgerðarleysi er þar nánast óhugsandi. Það er því dæmigert að höfundur sér sögu- hetjur sínar jafnan fyrir sér í einhverri athöfn, og í sögu sem þessari, sem nær yfir aldir, er alltaf eitthvert fólk að koma og fara, ættin er á fleygiferð inn á sögusviðið og út af því aftur. «Hún kemur með nafn sitt eitt út úr hulduhólum tötralýðsins til þess að verða ættmóðir Gedans höf- undar» segir t.d. um konu eina. Hver einstaklingur ber sín sér- kenni. Almennt einkenni ætt- menna Guðmundar er hins vegar þrautseigja og þolgæði — að gefast ekki upp: «Langir og krók- óttir eru farvegir blóðsins: frá Víkingslæk, Stóra-Klofa og Hell- um — að Þingskálum, Húsagarði og Lækjarbotnum: ein og sama ættin, greind í sundur og gróin saman á víxl, harðvítugt kyn, blandað öðrum harðvítugum kynj- um, í sífellu stríði við eld, ísald- artíð og sandstorma, lét undan í bland, en neitaði að gefast upp, varðist af hörku, hélt velli.» Þarna er mikið um barneignir og næstum eins mikið um barna- dauða, stundum lifir svo sem eitt af tíu, einatt verið að geta börn og jarða. Síðastur í fylkingunni geng- ur skáldið Gedan sem skrásetur hér með sögu ættar sinnar «með eðli feðranna innbyggt í hold sitt og önd — án þess að vita það.» I rauninni hefur hann tekið við hlutverki ættmenna sinna nema hvað hann hefur látið þess konar atburði gerast í skáldverkum sínum sem þeir skráðu gjarnan með líferni sínu. Þess er getið í sögunni að Sigurður bóndi hafi hugsanlega síðastur íslendinga verið dæmdur til dauða. En hann slapp af því að búið var að leggja öxina til hliðar, og skömmu síðar var vendinum stungið undir sperru. Nú munu fáir mæla bót refsilögum fyrri alda. Eigi að síður hafa þau — eða réttara sagt framkvæmd þeirra — orðið rithöfundum drjúg upp- spretta á okkar öld þar eð dóm- skjöl eru oft og tíðum einu heim- ildir sem nú er að hafa um fólk og atburði á liðnum öldum. Sýslu- menn og hreppstjórar voru undir aga frá sinum yfirboðurum ekki síður en sauðsvartur almúginn og voru samstundis komnir með skrifarann þar sem grunur lék á að eitthvað hefði gerst sem braut í bága við laganna bókstaf. Dómsdagur er ekki fyrsta sögu- lega skáldverk Guðmundar Daní- elssonar, síður en svo. Hann hefur áður stuðst við skráða sagnfræði og líkast til enn meir við munn- mæli — vera má að flestar skáldsögur hans séu að einhverju leyti reistar á slíkum grunni. Dómsdagur er að mínu viti ívið of sundurleit til að teljast til allra bestu skáldsagna Guðmundar Daníelssonar. En tilþrifamikil og kjarnyrt er þessi frásögn og merkilegt dæmi um það hvað unnt er að gera úr réttri og sléttri ættartölu. Vonandi er að fleiri höfundar horfi svona um öxl og bregði upp því gengna mannlífs- myndasafni sem á bak við þá stendur — jafnvel þótt þeir eigi ekki í ætt sinni annan eins langafa og Sigurð bónda Guðbrandsson. Erlendur Jónsson. Felli, séra Stefán Ólafsson í Vallanesi og Páll Vídalín lögmaður. Kunnust er þýðing Steingríms Thorsteinssonar á sögunum, en Freysteinn Gunnarsson þýddi þær einnig. Þýðing Þorsteins frá Hamri styðst við úrval og útgáfugerð Ruth Spriggs frá 1975. Er skemmst frá því að segja að þýðing Þorsteins frá Hamri hefur tekist afbragðsvel eins og vænta mátti af svo vandvirkum höfundi. Hún er í senn lipur og á ákaflega fallegu máli. Þessu til staðfestingar vel ég sem sýnishorn örstutta dæmisögu hins vísa Esóps sem eins og kunnugt er gat verið kaldhæðinn. Sagan nefnist Fjallið: „Einu sinni í fyrndinni byrjaði fjall nokkurt að hristast með dunum og dynkjum. Fólk þyrptist að úr öllum Hér er varla von á minna en voldugum dreka DÆMISÖGUR ESÓPS. Þorsteinn frá Hamri þýddi. Frank Baber myndskreytti. Bókaforlagið Saga 1979. Af dæmisögum Esóps er líklega kunnust Drengurinn sem hrópaði: Úlf- ur. í þessari sögu segir frá smaladreng sem skemmti sér við að hræða fjáreig- endur með köllum um að úlfur væri að hremma kindurnar þeirra. Þeir hlupu fljótt á vettvang til að flæma úlfinn burt. En þegar hinn raunverulegi úlfur kom gegndi enginn aðvörunarorðum drengsins og úlfurinn fékk nægju sína og meira en það þann dag. Lærdóm geta svo menn dregið af þessari sögu eins og öðrum dæmisögum Esóps. Talið er að Esóp hafi verið þræll á eynni Samos á 6. öld fyrir Krist, Þrakverji eða Frygíumaður. Sögurnar voru upphaflega mæltar af munni fram, aðrar dæmisögur tengdust þeim og þegar farið var að rita þær voru þær stílfærðar og aukið við þær með ýmsu móti. í inngangi að íslenskri þýðingu Þorsteins frá Hamri er þess getið að íslendingar hafi löngum haft dálæti á Esóp. Eftirfarandi heiðursmenn feng- ust til dæmis við að snúa sögunum í ljóð: Séra Einar Sigurðsson í Heydöl- um, séra Guðmundur Erlendsson á Bókmenntir eftir JÓHANN HJÁLMARSSON áttum til að sjá hvað verða vildi. „Stórfljót er að fæðast,“ sagði einn. „Hér er varla von á minna en voldugum dreka,“ sagði annar. „Sjálfur guð mun koma fram úr þessum klettum,“ sagði sá þriðji. Loks eftir langa mæðu og mikla eftirvæntingu myndaðist lítil sprunga í fjallshlíðinni. Og út skaust — lítil mús.“ Það sem einkennir sögur Esóps er það að í gervi dýra birtast hin ýmsu mannlegu einkenni, oft fáfengilegustu viðbrögð og skoplegustu hneigðir sem fylgja manninum. Utgáfa Bókaforlagsins Sögu á Dæmi- sögum Esóps er stór og skrautleg, myndskreytt af Frank Baber. Bókin er hin eigulegasta og tilvalin gjöf til barna og unglinga og hvers vegna ekki fullorðinna. Til þeirra mun Esóp hafa beint máli sínu. Myndir Babers eru í hefðbundnum stíl, sæta engum tíðind- um sem slíkar. Þær taka ekki fram gömlum Esópskreytingum sem við þekkjum, en spilla heldur ekki fyrir. ólafur Jónsson: LÍKA LÍF, greinar unt samtímabókmenntir. 244 bls. Iðunn, Rvk. 79. Þessi bók kemur mér í kynduga aðstöðu. Hún hefur að geyma úrval af bókmenntagagnrýni Olafs Jónssonar í blöðum og tímaritum síðustu fimmtán ár eða svo. Hvernig skrifar maður bók- menntagagnrýni um bókmennta- gagnrýni. Á maður að skrifa um hvað manni finnst um það, sem Ólafi Jónssyni finnst um hinar og þessar nýlegar íslenskar bækur. Eg hef ekki lesið nema nokkrar umræddra bóka og það eykur vitaskuld enn á vandræði mín. Ég hef því valið þann kostinn að varpa fram nokkrum spurningum um bókina, í stað þess að reyna að leggja dóm á þær skoðanir sem Ólafur setur fram í þessum grein- um, sem „eru fyrir alla muni læsilegar" svo notað sé orðalag sem kemur fyrir í þessari bók. Hvað sem um ritdóma Ólafs má segja að öðru leyti eru þeir alla jafna hið besta fram sagðir. Lestur þessarar bókar vakti fyrst og fremst með mér eina spurningu: Til hvers er svona bók gefin út? I eftirmála má kannski greina einhvers konar svar. Þar segir Ólafur: „Bókin er tekin saman í þeirri trú að bókmenntir, skáldskapur skipti máli lengur en nemur fyrsta lestri og umtali um nýútkomnar bækur og vert kunni að vera að prófa hversu endist og standist fyrsta reynsla bóka og höfunda". Þetta skil ég sem svo að bókin sé saman sett til þess að Ólafur Jónsson lesendurnir geti spekúlerað í því hvort Ólafur hafi haft rétt fyrir sér í þessum og hinum ritdómum. Þar með er ég kominn að annarri spurningu: Handa hverj- um er þessi bók? Hverjir lesa svona bók? Til þess að hún nái tilgangi sínum til fulls verður lesandi helst að hafa lesið allar þær ægimörgu bækur sem Ólafur fjallar um og ég leyfi mér að efast um að þeir séu ýkja margir. Þannig að vart er hér um væntan- lega metsölubók að ræða, nema þá í yfirfærðri merkingu líkt og hjá Guðbergi Bergssyni. í bókinni er að finna þrjár greinar um þróun íslenskra bók- mennta á síðustu árum og áratug- um. Þær greinar þykja mér mun Bókmenntlr eftir SVEINBJÖRN I. BALDVINSSON fróðlegri lesning en ritdómarnir. Væri óskandi að Ólafur léti meira frá sér fara af því tagi, skrifaði um íslenskar samtímabókmenntir sem fræðimaður fremur en rit- dómari. Að mínu viti hafa rit- dómasöfn ekki mikið gildi, nema þau hafi að geyma viðhorf fleiri en eins manns, þannig að lesanda gefist kostur á að vega og meta ólíkar skoðanir. Ef engin lóð eru til að setja á vogarskálina, hlýtur það sem mæla á að virðast ákaf- lega þungt á metunum. Á bókarkápu hinnar nýju bókar segir m.a.: „Líka líf er athyglis- verð heimild um fyrstu viðbrögð við ýmsum þeim bókmenntaverk- um, sem ætla má að verði spegill samtíðar okkar þegar stundir líða. Utgáfa bókarinnar greiðir veru- lega fyrir athugunum og umræð- um um hlut bókmennta í nútíma- lífinu." Ég geri það að tillögu minni að á bókarkápu næsta upplags bókar- innar verði þessi klausa svohljóð- andi: — Líka líf er athyglisverð heimild um fyrstu viðbrögð Ólafs Jónssonar við ýmsum þeim bók- menntaverkum sem ætla má að verði spegill samtíðar okkar þegar stundir líða. Útgáfa bókarinnar greiðir verulega fyrir þeim athug- unum og umræðum um hlut bók- mennta í nútíðarlífinu, sem hafa skoðanir Ólafs Jónssonar að út- gangspunkti. Kaupmannahöfn 10/11 79. SIB Ólafur Jónsson Metsölubók? Um kvæðafylgsni baö datt dýrgripur, svona af tilviljun, upp i hendurnar á mér á dögunum. Mig langar að þakka hann nokkrum orðum og i leiðinni að benda öörum á það að þeir eiga hans lika kost ef vilja. bað er ekki hversdagslegur atburður að islenskt útgáfu- fyrirtæki, á þessum siðustu og..., sjáisér fært að láta frá sér ganga vandað snilldarverk á efnissviði sem sjaldnast gerir I blóðið sitt, fjárhagslega. begar þetta gerist er það heiður útgáf- unni og sómi þjóöinni. betta hefur Iðunn i Reykjavik gert með þvi að taka að sér út- gáfu á frábæru ritverki Hannes- ar Péturssonar, Kvæðafylgsni, um skáldskap eftir Jónas Hall- grimsson. Og það er ekki heldur hvers- dagslegur atburöur að annað eins ljóðskáld og Hannes Pétursson beiti gáfum sinum, þekkingu og innsýn á skáldskap eftir slikt ljóðskáld sem Jónas Hallgrimsson. En þegar sá at- burður gerist er hann stórhátið. Og er það ekki undur að geta tekiö óvæntan þátt I þessari hátið með lestri bókarinnar — ef til vill ekki sist nú þessa dag- ana? Ef til vill þykir það undarlega að orði kveðið, en fyrsta lýsing- in sem ég vil hafa á þessari bók er sú að hún er skemmtileg og jafnvel spennandi á köflum. Hannes er að greiða úr nokkrum fléttum I kvæðum Jónasar, út- skýra „fólgna staði” i „felustil” Jónasar sem hann kallar svo. Og honum tekst að gera það af þvllikri lipurð, hugkvæmni og þekkingu að það er óblandið yndi að mega njóta þess. Annar þáttur þessarar skemmtunar er sá hversu Hannesi er lagið að fara um efn- Hannes Pétursson Jónas Hallgrimsson beír eru góðir saman ið höndum fræöimannsins, eins og það orð hefur ævinlega verið skiliö meðal tslendinga. Nú er Hannes að vlsu lærður háskóla- maður og tiðkar strangöguð vinnubrögö og heimildarýni. 1 þessari bók bregður hann fyrir sig flestum undirgreinum bók- menntafræðinnar — ef fræði- grein má kalla — , aUt frá upptekningu texta til menn- ingarsögulegra og fagurfræði- legra ályktana. En hann gerir þetta svo leik- andi létt, svo áreynslulitið, af slikri frásagnargleði og sögu- mennsku — eftir alla frumvinn- una, yfirleguna og gagnaleitina — að það sér ekki i saumana. Og hann nálgast viöfangsefnið vegna mikilvægis þess I sjálfu sér eins og islenskir fræöimenn á öllum timum, sveitum og þorpum hafa gert. Varðar les- andann þá ekki endilega öllu að fallist sé þegar á sérhveria ályktun, heldur skiptir hitt mestu að hafa slfkan leiösögu- mann. Einnig þess vegna er lestur bókarinnar skemmtun og hátið sem heldur áfram allt kvöldið og alla nóttina og langt fram á morgun, og allt uns siðasta blaði er flett. Og þá er eins og ör- skotsstund hafi liðið siðan hún hófst. Mikil ánægja, nýr skiln- ingur, nýjar leiðir til að njóta skáldskaparins, verða eftir og endast. bá ér llka eftir löngunin til að fá að glugga 1 þetta aftur og aftur... Mættu sem allra flestir, þeir sem á annaö borð hirða um skáldskap, njóta þessarar skemmtunar. Ég vil fá að þakka fyrir mig. Tlminn, 14. nóvember. JS (A ugtýsing)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.