Morgunblaðið - 17.11.1979, Side 18

Morgunblaðið - 17.11.1979, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1979 Er rétt af okkur íslendingum að byggja upp meira af orkuaðlandi (orkufrekum) iðnaði en orðið er? Þetta er spurn- ing sem mjög hefur verið til umræðu á undanförn- um árum og verður vafa- laust mikið rædd í náinnHramtíð, enda hef- ur ísland yfir að ráða mikilli ónýttri orku og ýmsir möguleikar blasa við á því sviði. En áður en þeirri spurningu er svar- að, sem sett var fram í upphafi greinarinnar, er rétt að líta á nokkrar staðreyndir. Gróðurlendi á íslandi er nú einungis um helmingur þess sem það var á landnámsöld. Eins og sést á mynd 1, kemur í ljós, að mann- fjöldi á Islandi fylgir mjög því fóðri, sem til- tækt hefur verið á hver j- um tíma. Ragnar S. Halldórsson forstjóri: helgi, þá eru ennþá möguleikar á að auká afrakstur fiskveiða að nokkru marki, þ.e.a.s. ef okkur tekst að auka fiskistofnana eins og stefnt er að. Takist það, má sjá af myndinni, að við getum lifað af fiskimiðunum fram til ársins 1988, en þá færi afrakstur á mann aftur minnkandi. Að vísu yrðu þjóðar- tekjur á mann árið 1988 ellefu- faldar á við það, sem var um aldamótin. Má það teljast all gott, og ef til vill finnst ýmsum, að óhætt sé að staðnæmast við það. Annað mál er það, að svo sem sjá má myndu þjóðartekjur á mann minnka aftur á tiltölulega skömm- um tíma, án hagvaxtar. Þegar þjóðin yrði orðin 400.000 manns yrðu þjóðartekjurnar á mann ein- ungis sjöfaldar á við það, sem þær voru um síðustu aldamót, og hefðu þá minnkað um 36% frá því sem þær voru mestar. Ef þjóðinni heldur sem sagt áfram að fjölga, þá er ekki nema eitt ráð tiltækt, það er að nýta þriðju auðlindina, sem við höfum yfir að ráða, orkuna. viðbótarstörf, þ.e.a.s. 77.000 lífsviðurværi. Mynd 4 sýnir, að fólksfjölgun samkvæmt veldis- vexti er óhugsandi. Náttúran eða maðurinn sjálfur setur takmörk á heildarfjölda fólks í landinu. Ella yrðu Islendingar orðnir jafnmarg- ir og Danir eru nú eftir rúmar tvær aldir. Af ofangreindu sést, að óhugsandi er að framfæra þann fjölda í landinu. Mynd 5 sýnir fólksfjölda í landinu í samhengi við atvinnuskeið og þar kemur fram, að mesti mannfjöldi á ís- landi ætti að verða um árið 2000, en þá sýna spár, að mannfjöldinn yrði um 350.000, en það er mesti mannfjöldi, sem hægt er að fram- fleyta án hnignandi kjara. Orkulindir íslands Er nú raunhæft að líta svona á málin? Til að fá svar við þeirri spurningu, getum við litið á mynd 6, sem sýnir orkulindir Islendinga, sem þekktar eru, þ.e.a.s. annars vegar vatnsorku og hins vegar jarðvarma. Við sjáum, að vatns- orka er dreifð aðallega um Suð- völ. Eins og sést á mynd 8 þá kemur í ljós, að við getum fram- leitt ýmis efni og efnasambönd, sem krefjast mikillar orku. Á lóðrétta ásnum er sýnd sú framleiðsla, sem þarf fyrst og fremst mikla raforku. Á lárétta ásnum er iðnaður, sem þarf fyrst og fremst mikla varmaorku. Ef litið er á lóðrétta ásinn sjáum við, að Klór- og natriumhydroxíð- framleiðsla þurfa tæplega 2 kWst. á kg. Kísiljárn eða járnblendi þarf tæplega 7 kWst á kg, mangan rúmlega 10, ál, kísill og magnes- ium um 20, og svo endar lóðrétti ásinn á vetni, sem þarf tæplega 90 kWst af raforku á kg framleiðslu. Á lárétta ásnum sést aftur á móti, að ethylenoxið, ethylenglykól og kisilhlaup þurfa milli 10 og 20 kg af gufu á kg af framleiðslu, og mjólkursykur eða glykosi þarf um 40 kg af gufu á kg. Inni á miðri myndinni sjást þær framleiðslu- vörur, sem þurfa bæði mikla raforku og varmaorku. Þarna er t.d. natrium klórat. Til þess að framleiða það þarf um 6 kWst af Ef velmegun á að ríkja áfram þarf að nýta þriðju auðlindina ORKUNA Fólksfjölgun og hagvöxtur Þjóðinni fjölgaði mjög ört fram- an af, en síðan komu ýmis áföll. Fyrst var Svarti Dauði, síðan Stóra Bóla, móðuharðindi, og síðan sá nærfellt allsherjar land- flótti, sem vesturfarir voru. Ein- mitt í þann mund, sem svo var komið að hvert einasta kot var byggt, allt upp í afdali og innst inn á heiðar, og því ekki frekara landrými til búskapar, varð þessi landflótti. Það sem bjargaði okkur var, að um svipað leyti hófst nýting þeirrar auðlindar, sem síðan hefur framfleytt okkur. Fyrst kom skútuöld, síðan togara- öld og allir þekkja þá þróun, sem hefur verið á þessari öld í öflun sjávarfangs, enda hefur mann- fjöldinn síðan vaxið hröðum skref- um. Mynd 2 sýnir hvernig hag- vöxturinn hefur breytzt síðan um aldamótin. Lóðrétti ásinn sýnir þjóðartekjur á mann á föstu verðlagi, en lárétti ásinn mann- fjöldann, sem síðan er einnig færður til tímans, sem sést efst á myndinni. Svo sem glöggt má sjá af þessari mynd, minnka þjóðar- tekjur á mann, ef ekki verður frekari hagvöxtur, en þjóðinni heldur hins vegar áfram að fjölga. Nú er svo fyrir að þakka, að þar sem við erum búnir að fá full yfirráð yfir okkar 200 mílna land- Mynd 10 Iðnaður og atvinnutækifæri Á mynd 3 sést á hvað mörgum heilsársstörfum í undirstöðuat- vinnuvegum er þörf, ef íslending- um fjölgar í 350.000 um næstu aldamót eins og horfur eru á með núverandi vaxtarhraða. Sjá má, að landbúnaðurinn getur ekki tek- ið við meiru. Landnytjar eru þegar fullnýttar og vel það, þar sem við framleiðum meira en við getum sjálfir torgað og þurfum að koma því út með miklum niðurgreiðslum á erlenda markaði. Auk þess er gengið of nærri landinu, sem er önnur saga. Sjávarútvegurinn get- ur tekið við 2.300 fleiri viðbótar- störfum eins og sjá má. Það þýðir, að hann getur skapað um 16.000 lífsviðurværi því að talið er, að hvert viðbótarstarf í undirstöðu- atvinnuvegi skapi sjöfaldan fjölda lífsviðurværa. Það er ekki einung- is um að ræða mennina sjálfa, sem vinna við undirstöðuatvinnuveg- ina og þeirra fjölskyldur, heldur einnig þá, sem eru nauðsynlegir til þess að halda uppi nútíma þjóðfé- lagi, þ.e.a.s. rakara, bakara, ráð- herra, smið o.s.frv. Þar sem þörf er á 114.000 lífsviðurværum til aldamóta, er ekki í önnur hús að venda en að nýta iðnaðinn, þ.e.a.s. orkueðlandi iðnað, sem gæti skapað um 11.000 vesturland og Austurland. Hægt er að framleiða um 17.000 GWst á ári úr vatnsorku á Suðvesturlandi, þ.e.a.s. á Þjórsár/ Hvítársvæðinu, um 1200 GWst. á ári á Norður- landi vestra, um 3000 GWst. á ári á Norðurlandi eystra og um 8800 GWst. á ári á Austurlandi. Sam- anlagt eru þetta um 30.000 GWst. á ári, og er þá reiknað með að hægt sé að virkja um 3000 mega- wött, er fullt tillit hefur verið tekið til umhverfisverndarsjón- armiða. En við eigum líka aðra orkulind, jarðvarmann. Eins og sést á mynd 7, þá er hann dreifður fyrst og fremst á svæðinu frá suðvestri til norðausturs. Á Suð- urlandi er um 52.000 GWst. á ári að ræða, á Vesturlandi 9200 GWst. á ári, á Vestfjörðum 580 GWst. á ári. Aftur á móti Austfirðir eru því sem næst algjörlega afskiptir af þessu leyti. Orkuvinnslumögu- leikar þar virðast vera minna en 1 GWst. á ári. Þetta er samanlagt um 80.000 GWst. á ári eða um þrefalt orkumagn á við vatnsork- uná. Hins ber að gæta, að ekki er jafn hentugt að nota allan jarð- varma til raforkuframleiðslu. Er talið, að jarðvarmi til þeirra nota samsvari 20.000 GWst. á ári. Orkuaðlandi iðngreinar Hvað eigum við þá að gera við alla þessa orku? Því er til að svara, að við eigum margra kosta raforku og um 5 kg af gufu miðað við kg af framleiðslunni, og efst til hægri sést að til framleiðslu á þungu vatni þarf yfir 100 kWst af raforku og um 1000 kg af gufu á kg. Rétt er þó að gera sér ljóst, að ekki verður hlaupið að því í einu vetfangi að koma upp orkuaðlandi iðnaði. Bæði er, að erlendis bíða ekki fyrirtækin eða bankarnir með reiðufé eftir því að Islending- um þóknist að komast að niður- stöðu, og svo hitt, að frá byrjun athugana til niðurstöðu líður langur tími, 5—10 ár. Reynslan af ISAL Þá er kannski spurningin: Hvernig er nú reynsla okkar af fyrsta stóriðjufyrirtækinu, sem VELTA ISAL 1969 —1979 I MILLJÖRÐUM KRÖNA FÆRÐ UPP TIL AÆTLAÐS ARAMÓTAGENGIS 1979/80(1 S 450 KR) I SAMANBURÐI VIÐ FJARLÖG ÍSLENSKA RÍKISINS FYRIR 1979 VÉLTA ISAL 2?0 210 •í FJÁRLÖG. .1 200 190 ff 1 ■ 1 /0 160 n m ’ ’ J 60 ' IHk 140 130 120 ýýýýý ’ im 110 100 90 Íi ' wm 80 H 70 ■— . H 60 ::gg: HMI : 50 WSm, 40 30 •, ■ ^m 20 H, 10 ’ m 1970HT' jijí 1969 Samanburður á framleiðsluverð- mæti ísals og fjárlögum. Mynd 9 1000 FÓ«U«MAGN iiÚAK 1MIU.HKG. Mynd 1 Tiltækt fóður og fólksfjöidi á árabilinu 1000 — 2000. Atvinnuvegur Viöbótarstörf Heildarviöbót ”lífsviöurværa" Landbúnaóur 0 0 Sjávarútvegur og fiskiönaóur 2.300 16.100 Almennur útflutnings- iðnaóur 3.000 21.000 Orkufrekur iönaöur 11.000 77.000 SAMTALS 16.300 114.100 Mynd 3 Viðbótarstörf í undirstöðuatvinnuvegum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.