Morgunblaðið - 17.11.1979, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1979
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson.
Björn Jóhannsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033.
Askriftargjald 4000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 200 kr.
eintakiö.
Hagstæðara olíuverð
Nú liggja fyrir fyrstu niðurstöður af starfi olíuviðskipta-
nefndar þeirrar, sem skipuð var snemma sl. sumar að
frumkvæði Geirs Hallgrímssonar, formanns Sjálfstæðis-
flokksins, til þess að kanna möguleika á hagkvæmari
olíukaupum en þeim, sem við höfum orðið að búa við
síðustu misseri. Samningar þeir við Sovétmenn, sem
undirritaðir voru í fyrradag, eru frábrugðnir fyrri
samningum að því leyti til, að við höfum nú frjálsar hendur
með að draga úr því magni, sem við kaupum frá þeim, eftir
því, sem okkur hentar. Jafnframt liggur fyrir, að við eigum
þegar á miðju næsta ári kost á olíu á hagkvæmara verði en
Sovétmenn krefjast. Tilboð liggja fyrir frá Noregi,
Finnlandi og Bretlandi og er brezka tilboðið sérstaklega
talið vega þungt í framtíðarákvörðunum okkar um
olíukaup.
Ennfremur standa yfir tilraunir til að fá keypta hráolíu
frá olíuframleiðsluríkjum innan OPEC, sem síðan yrði
unnin í olíuhreinsunarstöð í einhverju nágrannalanda
okkar og á með þeim hætti að vera unnt að ná hagkvæmara
verði en því Rotterdamverði, sem við nú verðum að greiða
Rússum, sem er okurverð.
Þessi tíðindi í olíukaupamálum okkar eru hin merkustu. I
fyrsta sinn í aldarfjórðung er komin veruleg hreyfing á
olíukaup frá öðrum löndum en Sovétríkjunum. Allar þær
röksemdir, sem fram voru bornar fyrr á þessu ári gegn
könnun á olíukaupum annars staðar frá hafa hrunið til
grunna. Nú er því ekki lengur haldið fram, að við megum
ekki kaupa olíu frá öðrum af viðskiptaástæðum. Nú er því
ekki lengur haldið fram, að við getum ekki verið öruggir um
að fá olíu, ef við kaupum frá öðrum en Rússum. Nú er því
ekki lengur haldið fram, að ekki sé hægt að fá olíu annars
staðar en í Sovétríkjunum. Nú er því ekki lengur haldið
fram, að það sé tómt mál að tala um að kaupa hráolíu frá
einu ríki og gera vinnslusamning við olíuhreinsunarstöð í
öðru.
Málflutningur Morgunblaðsins í olíumálunum frá því sl.
vor og sumar var byggður á sterkum rökum, sem hafa
staðizt, þegar málin voru tekin til nánari skoðunar. Það
hefur komið í ljós, að of mikil íhaldssemi hefur ríkt í
olíukaupum okkar bæði meðal stjórnmálamanna, embætt-
ismanna og sumra þeirra, sem hafa með þessi viðskipti að
gera. Nú þegar er fyrirsjáanlegt, að á næstu misserum
munum við fá töluverðan hluta olíu okkar á hagstæðari
verði en Rússar krefjast. Það mun stuðla að því ásamt öðru,
að við náum tökum á efnahagsvanda þjóðarinnar.
Alþýðubandalagið þvæld-
ist fyrir í olíumálunum
Svavar Gestsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, og
Alþýðubandalagið sitja eftir með sárt ennið í olíumál-
unum. Mistök þessa fyrrverandi ráðherra Alþýðubanda-
lagsins hafa orðið þjóðinni dýrkeypt. í febrúar á sl. vetri
hvatti Geir Hallgrímsson vinstri stjórnina til að taka þegar
upp viðræður við Sovétmenn um breytta verðviðmiðun.
Þótt olíuverðið þyti upp úr öllu valdi og hefði gífurlega
neikvæð áhrif á atvinnulífið og kjör almennings í landinu
þybbaðist Svavar Gestsson við og neitaði að fara að
ábendingum Geirs Hallgrímssonar. Það var ekki fyrr en 8
mánuðum seinna, sem viðræður voru teknar upp við Rússa
um þetta efni og þá var það orðið of seint. Enn greip Geir
Hallgrímsson inn í olíumálin snemma í sumar er hann
ritaði vinstri stjórninni bréf og bauð fram samstarf
Sjálfstæðisflokksins um skipun sérstakrar olíunefndar til
þess að kanna möguleika á hagkvæmari olíukaupum.
Árangurinn af starfi þessarar nefndar er nú að koma í ljós.
Við fáum strax á næsta ári olíu á hagstæðara verði en við
getum fengið frá Rússum. Þetta hefur tekizt þrátt fyrir
það, að Svavar Gestsson og Alþýðubandalagið gerðu allt
sem í þeirra valdi stóð til að koma í veg fyrir að við gætum
losað okkur úr okurklóm Rússa og leitað annað. Svavar
Gestsson og Alþýðubandalagið sitja uppi með það að bera
ábyrgð á milljarða álögum, sem þjóðin hefur orðið að taka á
sig á þessu ári vegna olíuokurs Rússa.
hunda-
KERFIÐ
Davíö Stefánsson lýsti Kerf-
inu í Ijóöi sem hann nefndi
Skrifstofubákniö og birtist í
Ijóöabókinni Aö noröan.
Astæöa er til aö vekja athygli á
haröri gagnrýni þjóöskáldsins
á þann sósíalisma, sem býr um
sig í ríkisbákninu og teygir
angana í allar áttir eins og
kolkrabbi. Þaö er um þetta
Bákn, sem nú er barizt þó aö
„kerfiö" sé einatt óskilgreint
hugtak og helzt notaö í póli-
tískum áróöri gegn embætt-
ismönnunum. Hór er „Kerfið“
notaö um sósíalisma. Einkunn-
arorö þess geta veriö: skipu-
lagshroki.
Sjálfstæðisflokkurinn er eini
stjórnmálaflokkur landsins,
sem hefur þaö aö markmiöi aö
leggja ófreskju Kerfisins aö
velli, þótt honum hafi ekki verið
veitt kjörfylgi til aö vinna þaö
verk — og raunar vafasamt,
hvort samsteypustjórnir meö
sósíalískum og hálfsósíalískum
flokkum eigi nokkurn tímann
aöild aö slíku, jafnvel þótt
Sjálfstæöisflokkurinn sitji í
þeim af illri nauösyn. Og nú er
jafnvel komiö aö höfuðborg-
inni, sem fram að þessu hefur
veriö stjórnaö meö sóma. En
ormur sósíalisma og skipuiags-
hyggju býr nú um sig í lauf-
krónu hennar.
En möppudýrin voru komin
til skjalanna fyrir mörgum ára-
tugum, eins og sjá má á því, aö
Ijóðabók Davíös kom út 1936
— eöa á velmektardögum
Framsóknar og Alþýöuflokks.
En Kerfinu hefur jafnvel vaxið
ásmegin frá því Davíö orti
Skrifstofubákniö — og möppu-
dýrunum fjölgaö. Enginn hefur
haft bolmagn til aö ráöa viö
Báknió — og kjósendur af-
hentu fulltrúum þess jafnvel
Reykjavíkurborg í síöustu
kosningum. Er þaö meö ólík-
indum. En afleiöingarnar eru
aö koma í Ijós. Skattar eru t.d.
hærri í Reykjavík en nágranna-
byggðarlögunum — í fyrsta
skipti.
Án Sjálfstæöisflokksins og
styrks hans veröum við Kerfinu
aö bráö einn góöan veöurdag
PARKINSON
og munum ekki fá rönd viö
reist; a.m.k. er styrkur hans
eina vonin um aö haldiö veröi
aftur af drekanum. En helzt
þurfum viö aö leggja hann aö
velli.
Þaö er því ástæóa aö styrkja
Sjálfstæöisflokkinn og telur
Morgunblaðið þaö raunar einu
vonina til aö einstaklingar
hverfi ekki á bólakaf í skrif-
stofubákninu. En þaö var ekki,
eins og kjósendur skildu þaö í
síöustu kosningum, enda haföi
ýmislegt fariö úrskeiðis í stjórn
Sjálfstæöisflokksins og Fram-
sóknarflokks. En þó var reynt
aö andæfa. — Og sjáifstæöis-
menn læröu af reynslunni, seg-
ir formaöur flokksins.
Fulitrúar skipulagshrokans
komu og skelltu jafnvel á
ólöglegu útflutningsbanni, svo
aö ekki sé talaö um verkföllin.
En nú má ætla aö fólk sjái ekki
lengur í gegnum fingur viö þá,
heldur muni kjósendur sjá í
gegnum þá — og ekki síöur
framsóknarmenn, sem höföu
forystu um fjölleikahúsiö á
síöustu mánuöum og hugöust
hreiöra um sig í upplausnar-
greninu. En kratar tóku til
fótanna.
Ef Sjálfstæöisflokkurinn
vinnur ekki eftirminnilegan sig-
ur í kosningunum, dragast
kratar aftur aö ráöherrastólun-
um eins og járn aö segli og þá
mun pólitísk lundúnaþoka
sósíalismans leggjast yfir allt
þjóölíf íslendinga. Borgaranum
veröur vísaö sal úr sal — og
sagt aö koma á morgun, eins
og Davíö segir í Ijóöinu góða
um skrifstofubákniö, sem hann
lýkur meö þessum oröum:
Varla mun borgarinn blessa þau tákn,
né bætur þeim skriftlærðu mæla,
aem vilja að ait þetta blekiðjubákn
aé bænahÚK — krjúpandi þræla.
Sjálfstæðismenn í Reykjavík með
opið hús á fimm stöðum um helgina
SJÁLFSTÆÐISMENN í Reykjavík
hafa opið hús i hinum ýmsu hverfum
borgarinnar um helffina, þar sem
frambjóðendur munu koma og ræða
við fólk og svara fyrirspurnum,
seldar verða kaffiveitingar, og ýmis
skemmtiatriði verða á dagskrá. Ætl-
unin er að þessi opnu hús verði fyrir
illa fjölskylduna, og eru skemmti-
itriðin meðal annars miðuð við það.
í dag, laugardag, verður opið hús í
Árbæjarhverfi, í Hraunbæ 102, og í
Breiðholtshverfum verða sjálfstæð-
ismenn með opin hús í Seljabraut 54.
I Árbæjarhverfi verður Friðrik Soph-
usson til staðar, en í Breiðholti
Guðmundur H. Garðarsson. Aðrir
frambjóðendur verða síðan í förum
milli staða og rabba við fólk. Á
báðum stöðum verður unnt að fá
kaffi, og eitthvað verður til skemmt-
unar.
Á morgun, sunnudag, verður síðan
opið hús á þremur stöðum, í Átthaga-
sal Hótels Sögu, þar sem Albert
Guðmundsson verður til staðar, í
Valhöll við Háaleitisbraut, en þar
verður Ragnhildur Helgadóttir, og í
Glæsibæ, þar sem Guðmundur H.
Garðarsson kemur.
Á þessum stöðum verður það meðal
annars til skemmtunar, að Guðrún Á.
Símonar og Magnús Jónsson syngja,
Gunnar S. Björnsson, einn frambjóð-
endanna, syngur við undirleik Birgis
ísleifs Gunnarssonar, Halli og Laddi
og Jörundur koma ásamt Skrýplunum
á vettvang, og Brúðuleikhús verður á
staðnum. Þá verða einnig ýmiss
konar skemmtiatriði á boðstólunum á
hverjum stað.