Morgunblaðið - 17.11.1979, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1979
25
Athugasemd frá kosningstjóra Alþýðubandalagsins
Reykjavík vegna SINE-bréfs til fjölmiðla:
Leiftursókniniii
bættist liðsauki
Fædd 9. marz 1921.
Dáin 17. nóvember 1978.
Til moldar oss vigði hið mikla vald,
hvert mannslif, sem jðrðin elur.
Sem hafsjór, er rís með fald við fald,
þau falla, en Guð þau teiur;
þvi heiðloftið sjálft er huliðstjaid.
sem hæðanna dýrð oss felur.
E.B.
Það setur alla hljóða við það, að
heyra um andlát nákomins ætt-
ingja eða vinar. Við slíka fregn
bætumst við í hóp þeirra, sem
erum þátttakendur í þeirri miklu
lífsreynslu að syrgja. Söknuðurinn
yfir því að hafa ekki lengur hjá
sér þann, er með lífi sínu hafði
gefið svo margar ánægju- og
gleðistundir, vekur okkur sorg og
trega. Þá finnur maður til smæðar
sinnar og hve litlu við fáum ráðið
im veru okkar hér.
Hvort sem menn líta á endalok
lífs sem upphaf annars og æðra
tilverustigs eða ekki eru sorg og
tregi fylginautar dauðans.
Fæddur 22. janúar 1958.
Dáinn 8. nóvember 1979.
Þann 8. nóvember síðastliðinn
bárust okkur þær hörmulegu
fregnir að bekkjarbróðir okkar,
Guðmundur Kvaran, hefði látist
af slysförum. Við þessar fregnir
fórum við að rifja upp þau kynni
sem við höfðum haft af honum, á
okkar stuttu samleið. í ljós kom að
ekki mörg okkar þekktu hann
náið. Hann hélt sig mest innan
sinna vina og kærði sig lítt um
athygli fjöldans.
Samt verður ekki sagt að
Gummi hafi leitt hjá sér félagslíf
bekkjarins, það litla sem var.
Alltaf var hann glaður á meðal
okkar með fyndnar sögur og
smellin tilsvör.
En þrátt fyrir glaðværð hans
vissum við öll að ekki var djúpt
niður á alvarlega hugsun.
Gummi var dugnaðarforkur og
vitnaðist það margsinnis því fáir
menn á hans aldri hafa atorkað
jafn miklu með vinnugleði sinni og
hörku. Góða uppskeru erfiðrar
sumarvinnu notaði Gummi til
fjárfestinga á dýrum tækjum og
fannst okkur það einkennandi
fyrir hann hversu mikið honum
hafði áunnist á fáum árum. En
aldrei talaði hann um það nema
spurður af fyrra bragði, og því
síður að hann bæri það með sér.
Annað finnst okkur að hafi
einkennt hann sérstaklega og var
það ákveðni hans og hæfni á
mörgum sviðum. Ef hann fékk
áhuga á einhverjum hlut, sem svo
oft kom fyrir, átti sá hlutur allan
hans hug og krafta þar til settu
marki var náð. Sama hvort um
leik eða starf var að ræða, alltaf
var ákveðnin drifkraftur hans.
Sá er mannlegur eiginleiki að
trega sína nánustu og þá vini, er
stærst rúm hafa skipað.
Það kann að vera að okkur ætti
að vera ljóst að hverju dregur þar
sem um langvarandi heilsuleysi er
að ræða, en samt verður kallið
ætíð snöggt og óvænt.
Þannig er mér innanbrjósts, er
ég hugsa til baka til þess dags
þegar mér var flutt andlátsfregn
vinkonu minnar og frænku Láru
Jakobsdóttur. Hún var búin að
eiga við veikindi að stríða um
árabil.
Þegar ég sá Láru síðast var hún
mjög lasin og þreytt þó hún bæri
sig vel og veitti góðgjörðir af sinni
kunnu gestrisni.
Fullu nafni hét hún Lára Þuríð-
ur Jakobsdóttir. Hún fæddist að
Þverá í Núpsdal 9. marz 1921,
foreldrar hennar voru hjónin
Ástríður Pálsdóttir og Jakob
Skarphéðinsson og var hún næst-
elst af fimm systkinum. Hún ólst
upp hjá foreldrum sínum og gekk
þar að öllum bústörfum jafnt utan
húss sem innan.
Um tvítugsaldur flyst Lára til
Reykjavíkur og þar var hennar
starfsvettvangur að mestu leyti
eftir það.
Tvo syni eignaðist Lára, þá
Birgi og Gísla, sem báðir eru
búsettir í Reykjavík.
Síðustu árin bjó Lára að Grett-
isgötu 71. Var hún þar í alfaraleið
og var oft gestkvæmt hjá henni
því margir eiga leið um Laugaveg-
inn.
Þá var gott að koma við hjá
Láru, því að þar var manni ávallt
vel fagnað.
Nú er hún horfin, en eftir lifir
minningin um góða og elskulega
frænku og vinkonu, sem alltaf var
mér sannur vinur.
Vinkona.
Skýrasta og því miður síðasta
dæmið um þetta var þegar hann
fékk áhuga fyrir fluginu.
Það byrjaði sem leikur en áhug-
inn var mikill og á endanum ákvað
hann að fresta frekari langskóla-
námi og snúa sér alhuga að
fluginu.
Ekki kom það okkur á óvart að á
skömmum tíma öðlaðist hann
ótrúlega mikla reynslu og töluverð
réttindi sem flugmaður og þegar
hann deyr, aðeins 21 árs, átti hann
skammt eftir í réttindi sem flug-
kennari. Þeir sem best til hans
þekktu sögðu að hann hefði fundið
sína réttu braut og ekkert okkar
efaðist um það að Gummi hefði
náð langt í heimi flugsins ef
honum á annað borð hefði verið
ætluð lengri dvöl á meðal okkar.
En Drottins vegir eru órannsak- j
anlegir.
í lok þessara fáu minningarorða
viljum við votta foreldrum hans,
systkinum og öðrum ættingjum
okkar dýpstu samúð.
Bekkjarsystkin úr M.S.
Viðbrögð þessa pilts, Péturs
Reimarssonar eru dæmigerð fyrir
leikbrúður Fylkingarinnar. Það er
ekki einasta að Fylkingin leggi
íhaldsöflunum í landinu lið með
framboði sínu og stuðli þannig að
valdatöku Ragnhildar Helgadótt-
ur og Hannesar Gissurarsonar í
menntamálaráðuneytinu, heldur
gefa þeir nú út í nafni SÍNE
þvaðurfullar yfirlýsingar, sem
ganga í berhögg við hagsmuni
námsmanna.
Hið yfirlætisfulla þvaðurbréf,
sem SINE-stjórnin hefur sent
fjölmiðlum, lýsir . slíkri vanþekk-
ingu að það tæki meira en eina og
meira en tvær námsannir í Há-
skóla til að bæta hér úr. Af þeim
sökum ætla ég heldur ekki að gera
tilraun til þess enda nægu öðru að
sinna í leiftursókn íhalds og Fylk-
ingarinnar gegn lífskjörum al-
mennings — og þá ekki síst
námsmanna.
Það eru þó tvö atriði, sem rétt
væri að skýra fyrir fólki af öllu því
rangfærsluflóði, sem í SÍNE-bréfi
þessa Péturs er að finna.
Hið fyrra er, að SÍNE-stjórnin,
þessi ritglaða stjórn, hefur ekki
sent frá sér einn staf um það að
hún hafi slitið samstarfi við Al-
þýðubandalagið vegna kjörskrár-
kæra. Þar af leiðandi líkt og fyrir
kosningarnar 1978, þegar mál
stóðu þannig að íhaldsöflin í
landinu stefndu á og hugðust
Félagsfræðibókin við
Fjölbrautaskólann:
Ekki kennd að
ósk Sævars
MARGRÉT Björnsdóttir kennari við
Fjölbrautaskólann í Breiðholti ósk-
aði eftir að taka fram vegna fréttar
Mbl. í gær um rit Sævars Tjörvason-
ar, sem notað er við félagsfræði-
kennslu í skólanum, að hún hefði
sjálf óskað eftir því við Sævar að fá
að nota kafla úr ritgerð hans til
kennslu, en hann hefði ekki lagt
hana fram sem kennslubók.
hrinda í framkvæmd þeirri ætlan,
að strika alla íslenska námsmenn
erlendis út af kjörskrá, en Alþýðu-
bandalagið kom í veg fyrir það
með mikilli vinnu þar sem hvorki
var aðstoð að fá hjá Pétri þessum
né öðrum bullukollum mun Al-
þýðubandalagið, kæra inn á kjör-
skrá alla þá íslenska námsmenn
sem það veit til að strikaðir hafa
verið út 'af henni, hvort sem þeir
teljast fylgjendur Fylkingarinnar
eða annarra íhalds- og afturhalds-
afla.
Hitt atriðið er viðkomandi
þeirri vinnu, sem stjórn SÍNE
ætlar að leggja í sjálf og ein vegna
kærumálanna. Hin sjálfstæðu
vinnubrögð Péturs þessa og
SÍNE-stjórnarinnar eru þau að
þeir hafa haft fullan aðgang að
kjörskrám Alþýðubandalagsins í
húsnæði þess að Grettisgötu 3 og
notfært sér hana. Þeir hafa fengið
sérstök kæruform, sem unnin voru
Þingmanns-
efni láta
ekki sjá sig
Garði 16. nóv.
Á meðan fréttir berast úr
höfuðborginni um gífurlegt
fannfergi brosum við út í
annað í Garðinum því hér er
aðeins snjóföl á jörðu en í gær
var allt marautt. Það er því
ekki út af færðinni að þing-
mannsefnin hafa ekki komist í
heimsókn en hingað til hefir
ekkert þeirra látið sjá sig. Það
má kannski segja, að ekki sé
mörg atkvæði að sækja hingað
en skv. kjörskrá eru 511 manns
sem hafa kosningarétt, 274
karlar og 237 konur. Eftir
þessum tölum að dæma virðist
vera vöntun á kvenfólki í
þorpið. Að vísu er ekki langt
að fara að leita kvenfanga en
betra er að færð haldist góð.
Fréttaritari.
upp af starfsmönnum Alþýðu-
bandalagsins, og nota þau. Þeir
hafa farið eftir leiðbeiningum
vegna kjörskrárkæra, gefnum út
af Alþýðubandalaginu. Þeir sem
hafa notað húsnæði og síma Al-
þýðubandalagsins við hina sjálf-
stæðu vinnu sína að kjörskrár-
kærum, endurgjaldslaust að
sjálfsögðu. En þeir hafa ekki
ennþá kært inn einn einasta
námsmann, ekki einn — á sama
tíma og tugir og hundruð kjör-
skrárkæra verða lagðar fram af
Alþýðubandalaginu vegna
íslenskra námsmanna erlendis.
Að lokum er rétt að benda
almenningi á, að sú háreysti
heimskunnar, sem Pétur þessi
Reimarsson og SÍNE-stjórnin
standa fyrir í fjölmiðlum þessa
daga, er ekki upphafin með hags-
muni námsmanna fyrir augum.
Þetta er rétt aðeins ein aðgerðin
í ieiftursókn íhaldsins gegn
lífskjörum almennings, í þessu
tilliti gegn lífskjörum náms-
manna, undir herstjórn Fylk-
ingarinnar.
Reykjavík 16. nóvember 1979
f.h. Kosningastjórnar ABR
Úlfar Þormóðsson.
Basar Húsmæðra-
félags Rvíkur
Árlegur basar Húsmæðrafélags
Reykjavíkur verður á Hallveigar-
stöðum á morgun, sunnudaginn
18. nóvember og hefst kl. 14. Meðal
muna sem á boðstólum verða eru
jóladúkar, svuntur, sokkar, vettl-
ingar, púðar, prjónuð leikföng,
jólaföndur og lukkupokar.
Málþing Félags
frjálshyggju-
Safna upplýsing-
um um dagvistun-
armál í Reykjavík
VIKUNA 19.-23. nóvember er
áformað að athuga þörf á dag-
vistunarplássum i Reykjavik með
tilliti til framtiðarstefnumótunar
á dagheimilismálum Reykja-
víkur. Starfshópur sem skipaður
hefur verið af félagsmálaráði
Reykjavikurborgar beinir i því
sambandi eftirfarandi spurningu
til foreldra í Reykjavík:
„Foreldrar, óskið þið eftir dag-
vistun fyrir börn ykkar — eða
breytingu á núverandi dagvistun."
í frétt frá Félagsmálastofnun
segir m.a. að töluvert skorti á að
glöggar upplýsingar séu fyrir
hendi um dagvistunarþörf barna
og óskir foreldra um breytingar
þar að lútandi, en athugun þessi er
þríþætt:
1) Óskað er eftir því að foreldr-
ar sem hvorki eiga börn á dagvist-
unarstofnunum, né eru á biðlista
og óska eftir plássi á dagvistar-
stofnun eða skóladagheimili
hringi á skrifstofu dagvistardeild-
ar, s. 27277 vikuna 19.—23. nóv. kl.
13-16.
2) Sendur verður spurningalisti
til allra foreldra er eiga börn á
biðlista dagheimila, leikskóla og
skóladagheimila, er senda skal að
lokinni útfyllingu til einhverrar
dagvistunarstofnunarinnar.
3) Spurningalista verður dreift
til allra foreldra er eiga börn á
leikskólum borgarinnar með það í
huga að fá upplýst hve vel leik-
skólinn nýtist sem dagvistun.
NÆSTKOMANDI sunnudag, 18.
nóv. kl. 2 e.h. fer fram guðsþjón-
usta í Garðakirkju. Gestir safn-
aðarins þennan dag verða kirkju-
kór Gaulverjabæjarkirkju og
sóknarprestur þeirra, séra Val-
geir Ástráðsson, sem mun pré-
dika.
Á sunnudaginn verður og tekið
á móti gjöfum til Hjálparsjóðs
manna í dag
MÁLÞING Félags frjálshyggju-
manna um kenningar austur-
riska hagfræðingsins Ludwigs
von Mises, sem gagnrýndi mjög
sósíalismann, er i dag.
ólafur Björnsson prófessor flyt-
ur fyrirlestur um von Mises, en að
fyrirlestri hans loknum verða
frjálsar umræður. Málþingið er kl.
14.00 á fundarherberginu nr. 515 á
Hótel Sögu.
Basar
HINN árlegi basar Fósturskóla
Islands verður haldinn í húsi
skólans við Sundlaugaveg, laugar-
daginn 17. nóvember kl. 14.00 e.h.
Meðal muna verða jólavörur,
ýmiss konar handavinna og kökur.
Garðasóknar, en sá sjóður er
notaður til hjálpar þeim, sem
verða fyrir óvæntum áföllum.
Hefur þegar verið veitt milljónum
úr sjóðnum síðustu tólf ár.
Félagssamtök í Garðabæ annast
söfnunina, en viðbrögð fólks hafa
ávallt verið mjög vinsamleg.
(Fréttatilk.)
Gestir í Garðakirkju
Lára Þuríður Jakobs-
dóttir — Minning
Guðmundur Kvaran
flugmaður - Minning