Morgunblaðið - 17.11.1979, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 17.11.1979, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1979 Aðstandendur ráðstefnunnar á fundi með blaðamttnnum. Ljósm. Kristján. Ráðstefna um umhverfi barna Arkitektafélag íslands, Fé- lag húsKagna- og innanhúss- arkitekta og Félag landslags- arkitekta gangast fyrir ráð- stefnu um umhverfi barna á Hótel Borg n.k. laugardag, 17. nóvember. Ráðstefnan hefst kl. 10 árdeg- is og er fyrstur á mælendaskrá Magnús Magnússon ráðherra sem tala mun um áhrif opin- berra aðila á gerð umhverfis fyrir börn. Aðrir sem flytja munu ávörp eru Arni Ragnars- son arkitekt sem talar um börn og skipulag, Auður Sveinsdóttir landslagsarkitekt talar um úti- vist barna, Sævar Guðbergsson félagsráðgjafi talar um áhrif foreldra og opinberra aðila á mótun umhverfis barna, Kristín Guðmundsdóttir innanhússarki- tekt talar um börn og híbýli, Guðmundur Ó. Eggertsson hús- gagnaframleiðandi talar um stöðu húsgagnaframleiðslu fyrir börn og Björg Einarsdóttir formaður ráðgjafanefndar jafn- réttisráðs ræðir um umhverfi barna í jafnréttisþjóðfélagi. Síðan verður starfað í um- ræðuhópum og að lokum verða niðurstöður þeirra kynntar, um- ræður og fyrispurnum svarað. Á blaðamannafundi sem hald- inn var í tilefni ráðstefnunnar kom það fram, að tilgangur ráðstefnunnar er að draga sam- an þær umræður sem orðið hafa um umhverfi barna á þessu ári og reynt verður að benda á leiðir til úrbóta. í máli aðstandenda ráðstefnunnar kom það fram, að mikið vantar á að umhverfi barna sé eins og best verður á kosið og í raun og veru væru börnin aðskotahlutir í þjóðféiag- inu. Aðgangur að ráðstefnunni er öllum opinn, og er ókeypis. Á fundinum kom það einnig fram að þeir, sem að ráðstefn- unni standa, hafa fengið leyfi fyrir tveimur sjónvarpsþáttum eftir áramótin og munu þeir þar gefa upplýsingar um hvernig eigi að búa sem best að börnum. Einnig mun vera í undirbúningi að gefa út upplýsingabækling um þetta efni. „Leikir af lífs- ins tafli“ ÆGISÚTGÁFAN hefur sent frá sér nýja bók eftir Hugrúnu. Nefnist hún „Leikir af lífsins tafli" og hefur að geyma 12 smásög- ur. Á bókarkápu segir m.a.: „Samúð og kærleikur til alls sem lifir er rauði þráðurinn í þessum smá- sögum Hugrúnar og óbil- andi trú á handleiðslu al- mættisins." Bókin er 146 bls. að stærð og vönduð að frágangi. Mun þetta vera 27. bók Hugrún- ar. rúnj. Málverkasýning í Ásmundarsal ELFAR Þórðarson opnar mál- verkasýningu i Ásmundarsal Freyjugtttu 41 i Reykjavik á laugardaginn. Þetta er 5. einka- sýning Elfars og jafnframt fyrsta sýning hans i Reykjavik. Hann hefur áður sýnt í Hvera- gerði, Selfossi og tvisvar á Stokkseyri. Á sýningunni í Ásmundarsal verða 35 olíumyndir sem allar eru málaðar á þremur síðustu árum. Sýningin er opin alla daga kl. 14—22 nema mánudaga og fimmtudaga kl. 20—22. Sýning- unni lýkur 25. nóvember. Landssamband mennta- og f jölbrautaskólanema: Mötuneytisað- staðan aðal baráttumálið Helsta baráttumál Landssam- bands mennta- og fjölbrauta- skólanema á þessu starfsári verð- ur mötuneytismál, sem felur i sér að L.M.F. krefst þess af þvi opinbera að það greiði starfs- mönnum, er starfa við mötuneyti framhaldsskólanna full laun og aðstaða til mötuneytisþjónustu verði bætt. Einnig leggja for-, svarsmenn L.M.F. þunga áherzlu á, að námsstyrkir og námslán haidi fullu verðgildi og úthlutun dreifbýlisstyrkja verði réttlátari en nú er. Þetta kom fram á blaðamannafundi, sem fram- kvæmdastjórn L.M.F. boðaði til i fyrradag til að kynna niðurstöð- ur 13. landsþings L.M.F., sem haldið var i Munaðarnesi dagana 27. og 28. okt. s.l. Fundarboðendur sögðu, að mötuneytisaðstaða í flestum framhaldsskólum væri léleg eða engin. Margir nemendur þyrftu að sækja skóla um langan veg og dvölin stæði oft yfir frá snemma að morgni til síðla dags. í sam- þykkt landsþingsins segir m.a. um þetta mál: „L.M.F. mótmælir því að ekki skuli kveðið skýrar á um mötuneytismál framhaldsskól- anna í frumvarpi því sem lagt hefur verið fyrir Alþingi um framhaldsskólana". Þá koma einn- ig fram mótmæli gegn því að þetta mál sé falið viðkomandi ráðuneyti til ákvörðunar í reglugerð. Nokkuð var einnig rætt um námsstyrki og námslán. Kom fram, að með núverandi fram- kvæmd dreifbýlisstyrkja geta nemendur, sem búa í nánd skóla, en æskja að sækja nám í öðrum fjarlægari ekki fengið til þess dreifbýlisstyrk. Sögðu nemend- urnir, að það gæti oft komið sér illa, nemendur sæktu í sérstaka skóla til náms í sérstökum af- Frá blaðamannafundi L.M.F. talið frá vinstri: Jón Gunnar Grétarsson, Gunnar Atlason, Ágúst Hiörtur Ingþórsson, Guðbrandur Stígur Ágústsson, Ingi Þór Hermannsson formaður, Hrólfur ölvisson og Olafur Guðmundsson. Ljósm. Mbl. Emiiía. mörkuðum brautum og sögðust þeir vita um nemanda, sem sótt hefði um dreifbýlisstyrk en fengið neitun á þeirri forsendu að hann gæti sótt skóla í námunda við heimili hans. í þeim skóla kennir einn aðili 19 tíma af 40 og sögðu nemendurnir að sérhæfing væri engan veginn nægileg í mörgum þessara skóla að dómi félaga L.M.F. Ein af kröfum L.M.F.-félaga er sú, að veittir verði ferðastyrkir til sex heimferða í stað fjögurra, eins og nú er. Sögðu þeir ástæðuna þá, að æskilegt væri að nemendur kæmust heim til sín í páskaleyfum sem og jóla. Nemendurnir sögðu á fundin- um, að aðstaða til félagslífs innan framhaldsskólanna væri engan veginn nægilega góð víðast hvar. Sögðu þeir kröfu L.M.F. að lág- marksaðstöðu yrði komið upp hið fyrsta og benda á, að samkvæmt núgildandi lögum sé yfirvöldum skylt að sjá fyrir viðunandi að- stöðu. Ef ekki sé unnt að skapa hana innan skólanna þá verði að sjá fyrir henni utan þeirra. „13. landsþing L.M.F. sóttu 56 fulltrúar frá 12 framhaldsskólum, auk áheyrnarfulltrúa frá tveimur skólum. Á þinginu gengu tveir skólar í sambandið, þ.e. Fjöl- brautaskóli Suðurnesja og fram- haldsdeild Kvennaskólans í Reykjavík. Á þinginu var kjörin ný framkvæmdastjórn, hana skipa: Ingi Þór Hermannsson formaður, Guðbrandur Stígur Ágústsson varaformaður, Ágúst Hjörtur Ingþórsson ritari, Hrólfur Ölvisson gjaldkeri og Gunnar Atlason meðstjórnandi. Blaða- mannafundinn sátu einnig tveir skólastjórnarfulltrúar, þ.e. Jón Gunnar Grétarsson og ólafur Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.